Morgunblaðið - 20.12.1985, Side 79
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
79
KKÍ svarar
KR-stúlkum
STJÓRN Körfuknattleikssam-
bands íslands hefur sent frá sér
svar viö bréfi körfuknattleiks-
stúlkna úr KR sem viö sögöum
frá í síðustu viku. í bréfi stúlkn-
anna úr KR mótmæla þær vinnu-
brögöum viö undirbúning
kvennalandsliðsins í körfu sem á
að taka þátt í Noröurlandamótinu
á næsta ári.
Stjórn KKÍ bendir körfuknatt-
leikskonum úr KR á aö þegar
ákveöiö var aö taka þátt i Noröur-
landamótinu á sínum tíma hafi
veriö boöaöur fundur meö öllum
þeim félögum sem hafa kvenna-
körfuknattleik innan sinna vó-
banda. KR-stúlkur mættu ekki á
þennan fund og létu sem þær vissu
ekki af fyrirhugaðri þátttöku i
Norðurlandamóti.
I bréfi KR segir aö þrjár konur
séu í landsliösnefnd kvenna en
stjórnin bendir á aö í nefndinni séu
fjórar konur og einnig er rangt meö
fariö að liöin sem þátt taka í
kvennakörfuknattleik séu sex —
þau eru sjö.
í landsliðsnefnd karla eru þrír
menn og þar af tveir þjálfarar og
þessi nefnd hefur aldrei veriö
sökuö um hlutdrægni. Stjórn KKÍ
bendir á aö í kvennanefndinni séu
þrjár körfuknattleikskonur sem
leika meö félögum en ein nefndar-
kvenna leiki ekki körfuknattleik.
Stjórnarmeðlimum KKÍ finnst
eölilegt aö landsliösþjálfari velji
þaö lið sem hann vill nota hverju
sinni eins og tíökist og þannig eigi
þaö aö vera.
Eins og viö skýröum frá á sínum
tima er þetta fyrsta tilraunin í rúm-
an áratug til aö koma saman
kvennalandsliöi í körfuknattleik.
Allan þennan tíma hefur hvorki
heyrst hósti né stuna frá KR-stúlk-
um en nú þegar reyna á að endur-
vekja landsliðiö þá koma þær fram
og mótmæla.
Á síðasta ársþingi KKÍ var sam-
þykkt fjárhagsáætlun sem geröi
ráö fyrir umtalsveröum halla og aö
auki haföi ekki veriö gert ráö fyrir
fjármagni til Evrópukeppninnar
sem hér veröur haldin í apríl á
næsta ári. Margar nefndir innan
KKÍ hafa sérfjárhag og kappkosta
aö reka þær sem best en fá aö
vísu styrk frá sambandinu sam-
kvæmt samþykktri fjárhagsáætl-
un. Þetta er ein af ástæöum þess
aö kvennalandsliöið verður aö fjár-
magna keppni sína á Norðurlanda-
mótinu sjálft. Þaö var ekki gert ráö
fyrir þátttöku á mótinu á síöasta
ársþingi, sem var haldið fimm
mánuöum áöur en boö um þátt-
töku kom, og því ekki til fjármagn
hjá sambandinu til aö styöja viö
bakiö á stúlkunum.
I lok bréfs stjórnar KKÍ kemur
fram aö stjórnin ætlar ekki aö
standa í bréfaskiptum og skoöana-
skiptum á síöum dagblaöanna viö
körfuknattleiksstúlkur úr KR um
þetta mál.
k sem
Slökkvitæki, reykskynjarar
Arinsett
Utskuröarjárn
Oiíulampar og luktir
Kopar í úrvali
Rafmagnsverkfæri í öll verk
Vasaljós, luktir
ULPUR — JAKKAR —
FRAKKAR — SIGLINGA-
JAKKAR OG FATNAÐUR í
ÚRVALI.
Lyklasett USAG
Loftvogir, klukkur,
sjónaukar
Kapp-klæðnaður
Koparlampar
Vöruúrvaliö kemur
þér á óvart.
Norsku ullarnærfötin
Loöfóðraðir samfestingar
Ánanaustum, Grandagaröi 2, sími 28855
Vertu velkominn!
I fatadeildinni