Morgunblaðið - 02.03.1986, Side 1

Morgunblaðið - 02.03.1986, Side 1
104SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 51.tbl. 72. árg. SUNNUDAGUR 2. MARS 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsíns Símamynd/Pressens Bild, Stokkhólmi Settur ráðherra Ingvar Carlsson eftirmaður Palme á blaðamannafundi í sænska stjómarráðshúsinu klukkan 5.30 (4.30) á laugar- dagsmorgun. Morgunblöðin segja frá örlögum Palme á for- síðu. Leitar ákveð- ins manns HRINGT var í Reuters-frétta- stofuna í London á laugardag og sagði maður, sem kynnti sig ekki, að Holger Meins, hryðjuverkahópurinn, deild úr þýska Baader-Meinhof- hópnum, bæri ábyrgð á morði Olofs Palme. Sá sem hringdi var sagður tala ensku með norður-evrópskum hreim. Síðdegis á laugardag lýsti sænska lögreglan eftir 30 til 45 ára gömlum karlmanni, 170 til 180 cm á hæð, er hann grunaður vegna morðsins á Palme. Þessi atburður nístir okkur að hjartarótum - segir Ingvar Carlsson settur [j[~T forsætisráðherra Svíþjóðar Syrgjendur á morðstað Þegar birta tók á laugardagsmorg- un safnaðist fólk saman á þeim stað, þar sem Olof Palme var skot- inn klukkan 22.30 í fyrrakvöld, að íslenskum tíma. Köstuðu margir blómum að þeim stað, þar sem blóð- blettir báru voðaverkinu vitni. Símamynd/Pressens Bild, Stokkhólmi aÍ:*vu auv' v tzðsap. OLOFS Palme er minnst um allan heim sem mikilhæfs stjórnmálamanns, leiðtoga í Svíþjóð og áhrifamanns á alþjóðavettvangi. „Nú hefur sá maður fallið fyrir morð- ingjahendi, sem hefur lagt sig meira fram um það en flest- ir aðrir að uppræta ofbeldi og stuðla að friði. Þessi at- burður nístir okkur að hjartarótum,“ sagði Ingvar Carlsson, varaforsætisráðherra Svíþjóðar, sem nú hefur tekið við forsæti í rikisstjórninni. Þjóðarsorg er í Svíþjóð og þangað berast samúðarkveðjur hvaðanæva úr veröldinni. Karl Gústaf Svíakonungur lýsti yfir því, að morðið væri þungt högg fyrir hið opna þjóðfélag. ur. Vildi ekki gæslu Ingvar Carlsson sagði á blaða- mannafundi aðfaranótt laugardags- ins, að Olof Palme hefði hafnað því að láta lögreglumenn gæta sín öllum stundum. Hann hefði til dæmis viljað geta farið einn síns liðs í kvikmyndahús, en Palme og kona hans Lisbeth voru að koma af kvikmyndasýningu í miðborg Stokkhólms um klukkan hálftólf á föstudagskvöld (hálfellefu að ísl. tíma) þegar hin banvæna árás var gerð á forsætisráðherrann. Palme lés1 á skurðarborði Sabbatsberg- sjúk. ahússins um háiftíma síðar. Lisbeti særðist lítillega. Engin viðvörun Ingvar Carlsson sagði, að Palme hefði ekki fengið neina „beina“ viðvörun um að líf hans væri í hættu. Carlsson benti hins vegar á það, að Palme hefði látið til sín taka á þeim heimssvæðum, þar sem launmorð tíðkuðust. Sænskur þjóð- arleiðtogi hefur ekki fallið fyrir hendi morðingja síðan 1772, þegar Gústaf III var myrtur á grímudans- leik í óperunni. Karl Gústaf Svía- konungur og Silvía, drottning, voru í skíðaferð í Norður-Svíþjóð, þegar þau fréttu af örlögum Palme. Kon- ungur hefur ekki stjórnskipulegum skyldum að gegna í tilvikum sem þessum heldur forseti þingsins, Ingemund Bengtsson. Benedikt Gröndal sendiherra ís- lands í Stokkhólmi, sagði, að um alla Svíþjóð væru fánar í hálfa stöng, kirkjuklukkum væri hringt og skemmtunum hefði verið aflýst. „Mér finnst að þama hafí fallið einn af fremstu stjórnmálamönnum heims," sagði Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra, þegar Morgunblaðið leitaði álits hans. Stjórnmálamenn hvarvetna á Norð- urlöndum lýstu miklum harmi vegna voðaverksins og setur það skugga á þing Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn í næstu viku. Utan Norðurlanda lýstu þjóðarleiðtogar einnig harmi sínum, Palme var minnst á flokksþingi sovéskra kommúnista, Bandarikjaforseti sendi samúðarkveðju. I hlutlausum ríkjum utan hemaðarbandalaga minntust menn forystumanns, þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst í Nicaragua. Jafnaðarmenn minntust áhrifamikils skoðanabróð- Sjá forystugrein á miðopnu, viðbrögð ís- lenskra stjórnmála- manna á bls. 2, æviatriði Palme og lýsingu Bene- dikts Gröndal sendiherra ábls. 20—21.. Leitin að morðingjanum: arghandel Stokkhólmi, 1. mars. AP. ALLT lögreglulið Svíþjóðar, 18.000 manns, hefur verið virkj- að í leitinni að morðingja Olofs Palme, forsætisráðherra. Lög- reglan segir, að Palme hafi verið skotinn í bakið og einhveijir kunni að hafa verið i vitorði með þeim, sem hleypti af byssunni. Lögreglan hefur ekki neinar ábendingar um tilganginn með morðinu og útilokar ekki, að það hafi þjónað pólitískum tilgangi. Tveimur grunsamlegum mönn- um var sleppt eftir yf irheyrslu. Lögreglan styðst meðal annars við vitnisburð Anders Delsbom, leigubílstjóra, í leit sinni að morð- ingjanum. Delsborn sá þrjár mann- eskjur í hnapp á morðstaðnum, heyrði tvo skothvelli og sá tvo úr hópnum hníga til jarðar og hinn þriðja hlaupa inn í húsasund. „Ég kallaði strax í lögreglu og sjúkrabíl," segir Delsbom „og lög- regluþjónar komu á vettvang eftir þijár til fjórar mínútur. Þótt ég væri í innan við 10 metra fjarlægð sá ég morðingjann ekki greinilega." Lögreglan hefur fundið eina 9mm byssukúlu á morðstað og telur líklegt, að sama kúlan og grandaði Palme hafí sært konu hans, Lisbeth, en þau voru að koma úr kvikmynda- húsi. Simamynd/Pressens Bild, Stokkhólmi Vitni að morðinu Anders Delsborn, leigubílstjóri, lýsir því, hve skammt var á milli morðingj- ans og Olofs Palme. Delsbom var vitni að því, þegar forsætisráðherrann var skotinn og kallaði á lögregluna. 18.000 lögreglu- menn kvaddir út

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.