Morgunblaðið - 02.03.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986
6i
Morgunblaöið/Júlíus
Jafnvægið f lagi
• Það er ekki fyrir neina aukvisa að framkvæma æfingar á
slá af öðrum eins tfguleik og Lilja Valdimarsdóttir Gerplu gerir
hór.
• Sunneva Sólversdóttir.
• Erla Kristfn Árnadóttir.
Égheftekið
þátt í mörgum
mótum
segir Sunneva Sólversdóttir
SUNNEVA Sólversdóttir,
Stjörnunni, náði að sigra í æf-
ingum á tvíslá og náði bestum
samanlögðum árangri f 4. þrepi
stúlkna 14—16 ára á Unglinga-
mótinu. Þegar umsjónarmaður
ungiingasíðunnar tók hana tali
hafði hún ekki lokið keppni og
þvf lágu úrslit ekki fyrir.
Sunneva sagðist hafa tekið
þátt f fjölda móta þó hún hafi
eínungis æft fimleika f tvö ár,
tvisvar hafi henni tekist að
krækja sér f verðlaunapening á
þessum mótum. „Við f Stjöm-
unni unnum sameiginlega 3
verðlaun á Bikarmótinu og síð-
an hef óg fengið verðlaun á
innanfólagsmóti," sagði
Sunneva. Það hefur því bæst
verulega f verðlaunapeninga-
safn Sunnevu eftir þennan frá-
bæra árangur á Unglingamót-
Inu.
„Tvfsláin er skemmtilegust
því það er svo margt hssgt að
Sera á henni og óg æfi mest á
henni," svaraði þessi geðþekka
stúlka úr Garðabænum þegar
hún var spurð um uppáhalds-
grein innan fimleikana.
Verð stíf í
maganum
Þegar Erla Kristín Árnadóttir 9
ára KR-ingur var tekin tali á
Unglingamótinu í fimleikum hafði
hún lokið við að keppa í tveimur
greinum og var að undirbúa sig
undir að keppa á slá.
„Ég er ofsalega spennt og þá
verð ég svo stíf í maganum, sér-
staklega þegar ég bíð eftir að
röðin komi að mór,“ sagði Erla
sem þarna var að taka þátt í sínu
öðru fimleikamóti.
Erla sagði að henni hefði
gengið ágætlega með þær æf-
ingar sem hún væri búin með á
mótinu en auk æfinga á slá átti
hún eftir að gera gólfæfingar svo
ekki var forsvaranlegt að trufla
hana mjög lengi.
Iþróttir unglinga
Morgunblaöiö/Júlíus
# Hlfn Diego Hjálmarsdóttir, Ármanni, átti ekki f vandræðum með að klára æfingarnar á tvfslá með
glæsibrag og á þessari mynd er hún greinilega ákveðin f að láta ekkert fara úrskeiðis.
Keppendur hátt á
annað hundrað
- á Unglingamótinu ífimleikum
HELGINA 14,—15. febrúar sfð-
astliðinn fór fram svokallað
Unglingamót f fimleikum og var
það haldið f Laugardalshöll.
Keppendur á þessu móti voru
196 og mun þetta vera fjöl-
mennasta fimleikamót sem
haldið hefur verið hór á landi.
Það voru 6 félög sem áttu
þennan mikla fjölda keppenda
en þau eru Stjanan, KR, Gerpla,
ÍBA, Björk og Ármann. í þessu
móti var keppt í svokölluðum
þrepum. Keppendur raðast i
þrep eftir færni í íþróttinni og í
hverju þrepi er keppt í ákveðnum
skylduæfingum. Á þessu móti
var keppendum í nokkrum þrep-
um skipt upp í aldursflokka.
Þegar komið er upp í 1. þrep er
fimleikafólkið fariö að fást við
skylduæfingar sem keppt er í á
Ólympíuleikum, en á þessu móti
voru engir keppendur í 1. þrepi.
Mótið fór mjög vel fram og var
Laugardalshöllin skreytt blóm-
um, burknum og ýmsu öðru sem
setti fallegan og hátíðlegan svip
á mótið.
Úrslit — samanlagt
Á mótinu var bæði keppt í
stúlkna- og piltaflokkum. Piltarnir
kepptu í 6 greinum, þ.e. í æfing-
um á gólfi, bogahesti, hringjum,
tvíslá, svifrá og stökki yfir hest.
• Það ar stfll og glæsileiki yflr
Hlfn Bjarnadóttur þogar hún atfg-
ur lokasporið f gólfæfingum sfn-
um á Unglingamótinu.
Stúlkurnar kepptu aftur á móti í
4 greinum, þ.e. æfingum á gólfi,
tvíslá, slá og stökki yfir hest.
Samanlagður árangur er síðan
reiknaður út frá árangri í keppnis-
greinunum og skulum við nú líta
á hverjir komu best út úr því.
Stúlkur, 2. þrep: stig
1. Fjóla Ólafsdóttir Á 34.05
2. Bima K. Einarsd. Á 29.30
3. Ingibjörg Sigfúsd. Á 27.45
Stúlkur, 3. þrep: 12 ára og yngri:
1. Bryndís Guðmundsdótir Á 31.85
2. María Siguröardóttir B 31.65
3. Edda M. GuðmundsdóttirÁ 30.10
Stúlkur, 3. þrep: 13—14 ára:
1. Lilja Bolladóttir G 35.60
2. Elva Sverrisdóttir G 34.65
3. Elín H. Sveinbjörnsdóttir G 34.60
Stúlkur, 3. þrep: 16—16 ára:
1. Guörún Sveinbjörnsdóttir G 31.90
2. OddnýPótursdóttirÁ 31.15
3. Matthea Siguröardóttir ÍBA 31.00
Stúlkur, 4. þrep: 10 ára og yngrí:
1. Hjördís Sóley Siguröardóttir G 37.35
2. Amfríður Amardóttir B 36.10
3. Melkorka Ágústdóttir Á 33.60
Stúlkur, 4. þrep: 11—13 ára:
1. Linda B. Logadóttir G 38.10
2. Pería Ingólfsdóttir G 37.55
3. Jóhanna Rósa Ágústsdóttir G 37.00
Stúlkur, 4. þrep: 14—16 ára:
1. Sunneva Sólversdóttir S 34.55
2. Hildur B. Sigurbjömsdóttir ÍBA 33.40
3. Harpa María örlygsdóttir ÍBA 32.80
Piltar, 3. þrep: stig
1. Guöjón Guömundsson Á 52.35
2. Jóhannes N. Sigurösson Á 50.90
Pittar, 4. þrep: 10 ára og yngri:
1. Jón Trausti Sœmundsson G 44.35
Piltar, 4. þrep: 11-12 ára:
1. SkarphóÖinn Halldórsson Á 53.70
2. Vilhjólmur Á. Einarsson Á 48.05
3. Jón Þóröarson G 47.25
Pittar, 4. þrep: 13—14 ára:
1. Axel Bragason Á 56.70
2. Krístján Stefánsson Á 55.45
3. Aöalsteinn Finnborgason G 53.75
Pittar, 4. þrep: 16—16 ára:
1. Þorvaldur G. Valdimareson Á 53.70
2. Karl J. Karisson Á 46.10