Morgunblaðið - 02.03.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986
Staðarsveit:
Útigöngufé heimt-
ist úr fjöllum
Hliðarholti, Staðarsvait, 18. febrúar.
LAUGARDAGINN 15. þessa
mánadar tókst undirrituðum
ásamt tveimur ungum mönnum,
þeim Bjarna Gunnarssyni og
Vigfús Vigfússyni, að handsama
fjórar kindur, sem gengið hafa
úti í allan vetur í fjallinu ofan
við Bjarnarfosskot í Staðarsveit.
Áður höfðu verið gerðir út
margir leiðangrar til þess að ná
kindundum, en án árangurs þvi
þær sluppu alltaf í kletta.
Vegna sérlega góðrar veðráttu
og lítilla fanna í fjalli höfðu kindurn-
ar oftast einhverja beit. I þetta
skipti voru þær allfjarri klettabrún-
inni og tókst að reka þær í norðvest-
ur frá klettunum. Ætlunin var að
fara með þær norðan Mælifells og
vestan þess, niður af fjallinu, til
þess að þær hefðu ekki færi á að
hlaupa í kletta eins og áður. Til
þess kom þó ekki, því okkur tókst
að handsama allar kindurnar og
voru þær leiddar í böndum niður
affjallinu.
Þetta voru þrjár ær, ein frá
hverjum bæ: Görðum, Kálfárvöllum
og Hlíðarholti og þaðan var einnig
hrútlamb svo vænta má þess að
ærnar beri snemma í vor. Kindurnar
voru allar vel haldnar eftir atvikum;
ærnar vógu 45 og 47 kíló og hrút-
lambið 35.
Þrjár ær ganga enn úti í Böðvars-
holtsklettum. Upphaflega voru með
þeim þrjú hrútlömb, en þau hröpuðu
öll til dauða í desember vegna klaka
í klettunum.
- Síðastliðinn vetur gekk ein ær
frá Hlíðarholti úti í Bjarnarfoss-
klettum. Var hún þar í sjálfheldur
í sex mánuði, en losnaði úr henni
seint í apríl þegar klaka leysti. Var
hey látið síga niður til hennar tvisv-
ar sinnum um 90 metra vegalengd
og hefur það eflaust bjargað lífí
hennar. Hún heimtist svo af fjalli
seint í haust og var vel á sig komin.
Þ.B.
Jazz í
Hlaðvarp-
anura
KJALLARABANDIÐ heldur
jazztónleika í Hlaðvarpanum í
kvöld, sunnudagskvöld.
Mikil aðsókn og góð stemmning
hefur verið á jazzkvöldum í Hlað-
varpanum að undanförnu og þess
vegna hefur verið ákveðið að halda
enn eitt. I Kjallarabandinu eru Ari
Haralds, Birgir Bragason Friðrik
Karlsson og Gunnlaugur Briem.
Djúsbarinn verður opinn og allir
eru velkomnir.
(Fréttatjlkynning)
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
Frá Borgarbókasafni
Reykjavíkur
Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29A, verður lok-
að vegna viðgerða mánudaginn 3. og þriðju-
daginn 4. mars. — Auk þess verða aðrar
deildir Borgarbókasafns lokaðar þriðjudag-
inn 4. mars kl. 16.00-19.00.
Lögmannsstofa
Reyndur lögfræðingur óskar eftir að komast
í samband við hagsmuna- eða félagasamtök
með framkvæmdastjórn, lögfræðiþjónustu
og sameiginlegan skrifstofurekstur í huga.
Tilboð merkt: „Hdl — 018" sendist til augl.-
deildar Mbl. fyrir 15. marz 1986.
ýmish
Réttindi til
hópferðaaksturs
Skipulagsnefnd fólksflutninga hefur ákveðið
að hópferðaréttindi verði nú gefin út til 5 ára
tíl þeirra sem sækja um endurveitingu en til
1 árs til þeirra sem fá réttindi í fyrsta sinn.
Athygli er vakin á að því aðeins teljast
aðilar með gild hópferðaréttindi að þeir
hafi sótt um endurveitingu. Allar breytingar
á bifreiðakosti og skrásetninganúmerum
skulu tilkynntar skipulagsnefnd og ekki er
heimilt að taka í notkun bifreiðar til hóp-
ferða sem flytja fleiri farþega en leyfin til-
greina með samþykki skipulagsnefndar.
Jafnframt hefur verið ákveðið að lengja
umsóknarfrest um hópferðaréttindi til loka
marsmánaðar nk. og verður ekki tekið við
umsóknum eftir þann tíma.
Skipulagsnefnd fólksflutninga,
Umferðarmáladeild.
dir — mannfagnaöir
¦' ¦ "I "ll-l - I 11 " lli-il-ll-jil I- II II ' ' '•"' " ' lillll
Árshátíð
Norðfirðingafélagsins
verður haldin á Hótel Loftleiðum Víkingasal,
laugardaginn 8. mars nk. og hefst með
borðhaldi kl. 19.30 stundvíslega. Góð
skemmtiatriði, dans.
Aðgöngumiðar verða seldir á sama stað
fimmtudaginn 6. mars nk. frá kl. 17.00-19.00.
Mætið vel og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
*I*»<K>^
tsssr
Félagsfundur
Iðja félag verksmiðjufólks heldur félagsfund
í Domus Medica v/Egilsgötu, þriðjudaginn
4. marsnk. kl. 17.00.
Fundarefni:
1. Kjarasamningarnir.
2. Önnurmál.
Iðjufélagar fjölmennið.
Stjórn Iðju.
Aðalf undur —
FélagiðStoð
Félagið Stoð heldur aðalfund sinn miðviku-
daginn 5. mars nk. að Hótel Hofi v/Rauðarár-
stíg. Hefstfundurinn kl. 20.30.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningarfélagsins.
3. Lagabreytingar.
4. Kosning stjórnar.
5. Önnurmál.
Allt áhugafólk er hvatt til að mæta. Tillögur
um breytingar og nýjungar vel þegnar.
Mætum öll.
Stjórnin.
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur
almennan félagsfund mánudaginn 3. mars
nk. að Hótel Esju, 2. hæð, kl. 20.30.
Dagskrá:
Kjarasamningarnir
Félagsmenn fjölmennið á fundinn og takið
afstöðu til þessa þýðingarmikla máls.
Verzlunarmannafélag Reykja víkur.
80 ára afmælisfagnaður
Kvenfélags Fríkirkjunnar í Reykjavík verður
haldinn að Hótel Sögu (Átthagasal) þann 6.
mars nk. kl. 19.30. Aðgöngumiðar eru seldir
í Brynju að Laugavegi 29. Vinsamlega kaupið
miða fyrir 4. mars nk.
Stjórnin.
Landvari
Aðalfundur Landvara, Landsfélags vörubif-
reiðaeigenda á flutningaleiðum, verður hald-
inn að Hótel Esju, Reykjavík, laugardaginn
8. mars nk. og hefst kl. 13.00 stundvíslega.
Dagskrá samkvæmtfélagslögum.
Stjórn Landvara.
FélagMtxaí
Stofnfundur sjálfstæðis-
félags á Kjalarnesi
verður haldinn sunnudaginn 9. mars M. 1 5.30 i Fólkvangi, Kjalarnesi.
Gestir fundarins: Þorsteinn Pálsson formaöur Sjálfstæðisflokksins,
Matthías Á. Mathiesen. Einnig er boöiö á fundinn Gunnari G. Schram,
Salome Þorkelsdóttur og Ólafi G. Einarssyni. Kaffiveitingar.
Stjórn Þorsteins Ingólfssonar.
Þáttaskil
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík boöa til fund-
ar um nýgerða kjarasamninga og horfur i
efnahagsmálum í Sjálfstæðishúsinu Valhöll
fimmtudaginn 6. mars nk. kl. 20.30.
Frummælandi verður Þorsteinn Pálsson
fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Sjálfstæðismenn eru hvattir til að fjöl-
menna.
Vörður, Hvöt,
Heimdallur, Óðinn.
Kópavogur spilakvöld
Spilakvöld sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi verður haldið þriðjudaginn
4. mars kl. 21.00 stundvislega i sjálfstæðishúsinu Hamraborg 1.
Mætum öll.
Stjórnin.
Stokkseyri
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Stokkseyrar verður haldinn sunnudag-
inn 2. mars 1986 kl. 15.30 i Gimli.
Dagskrá: Almenn aðalfundarstörf.
Önnurmál.
Stjórnin.
Veðsetning ungs f ólks hjá
erlendum bankastjórum
Mánudaginn 3.' mars nk. verður fundur haldinn í Valhöll, Háaleitis-
braut 1 og hefst hann kl. 21.00.
Umræðuefnið verður: Veðsetning framtíðar ungs fólks hjá erlendurr
bankastjórum.
Kynnt verður blaö sem gefið hefur verið út og tekur fyrir þessi mál
ásamt þvi að rakið verður starf félagsins í tilefni þessarar umræðu
dagana 3.-7. mars.
Fundurinn veröur haldinn í Neðri deild Valhallar og gestur fundaríns
verður Vilhjálmur Egilsson form. SUS.
Allir félagsmenn velkomnir.
Heimdallur.