Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986
53
Staðarsveit:
Utigöngufé heimt-
ist úr fjöllum
Hlíðarholti, Staðarsveit, 18. febrúar.
LAUGARDAGINN 15. þessa
mánaðar tókst undirrituðum
ásamt tveimur ungum mönnum,
þeim Bjarna Gunnarssyni og
Vigfús Vigfússyni, að handsama
fjórar kindur, sem gengið hafa
úti í allan vetur í fjallinu ofan
við Bjarnarfosskot í Staðarsveit.
Áður höfðu verið gerðir út
margir leiðangrar til þess að ná
kindundum, en án árangurs því
þær sluppu alltaf í kletta.
Vegna sérlega góðrar veðráttu
og lítilla fanna í fjalli höfðu kindum-
ar oftast einhverja beit. Í þetta
skipti voru þær allfjarri klettabrún-
inni og tókst að reka þær í norðvest-
ur frá klettunum. Ætlunin var að
fara með þær norðan Mælifells og
vestan þess, niður af fjallinu, til
þess að þær hefðu ekki færi á að
hlaupa í kletta eins og áður. Til
þess kom þó ekki, því okkur tókst
að handsama allar kindumar og
voru þær leiddar í böndum niður
af fjallinu.
Þetta voru þijár ær, ein frá
hverjum bæ: Görðum, Kálfárvöllum
og Hlíðarholti og þaðan var einnig
hrútlamb svo vænta má þess að
æmar beri snemma í vor. Kindumar
voru allar vel haldnar eftir atvikum;
æmar vógu 45 og 47 kíló og hrút-
lambið 35.
Þrjár ær ganga enn úti í Böðvars-
holtsklettum. Upphaflega voru með
þeim þijú hrútlömb, en þau hröpuðu
öll til dauða í desember vegna klaka
í klettunum.
- Síðastliðinn vetur gekk ein ær
frá Hlíðarholti úti í Bjarnarfoss-
klettum. Var hún þar í sjálfheldur
í sex mánuði, en losnaði úr henni
seint í apríl þegar klaka leysti. Var
hey látið síga niður til hennar tvisv-
ar sinnum um 90 metra vegalengd
og hefur það eflaust bjargað lífi
hennar. Hún heimtist svo af fjalli
seint í haust og var vel á sig komin.
Þ.B.
Jazz í
Hlaðvarp-
anum
KJALLARABANDIÐ heldur
jazztónleika í Hlaðvarpanum í
kvöld, sunnudagskvöld.
Mikil aðsókn og góð stemmning
hefur verið á jazzkvöldum í Hlað-
varpanum að undanfömu og þess
vegna hefur verið ákveðið að halda
enn eitt. í Kjallarabandinu eru Ari
Haralds, Birgir Bragason Friðrik
Karlsson og Gunnlaugur Briem.
I>júsbarinn verður opinn og allir
eru velkomnir.
(Fréttatilkynníng:)
raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
Frá Borgarbókasafni
Reykjavíkur
Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29A, verður lok-
að vegna viðgerða mánudaginn 3. og þriðju-
daginn 4. mars. — Auk þess verða aðrar
deildir Borgarbókasafns lokaðar þriðjudag-
inn 4. mars kl. 16.00-19.00.
Lögmannsstofa
Reyndur lögfræðingur óskar eftir að komast
í samband við hagsmuna- eða félagasamtök
með framkvæmdastjórn, lögfræðiþjónustu
og sameiginlegan skrifstofurekstur í huga.
Tilboð merkt: „Hdl — 018“ sendist til augl.-
deildar Mbl. fyrir 15. marz 1986.
Réttindi til
hópferðaaksturs
Skipulagsnefnd fólksflutninga hefur ákveðið
að hópferðaréttindi verði nú gefin út til 5 ára
til þeirra sem sækja um endurveitingu en til
1 árs til þeirra sem fá réttindi í fyrsta sinn.
Athygli er vakin á að því aðeins teljast
aðilar með gild hópferðaréttindi að þeir
hafi sótt um endurveitingu. Allar breytingar
á bifreiðakosti og skrásetninganúmerum
skulu tilkynntar skipulagsnefnd og ekki er
heimilt að taka í notkun bifreiðar til hóp-
ferða sem flytja fleiri farþega en leyfin til-
greina með samþykki skipulagsnefndar.
Jafnframt hefur verið ákveðið að lengja
umsóknarfrest um hópferðaréttindi til loka
marsmánaðar nk. og verður ekki tekið við
umsóknum eftir þann tíma.
Skipulagsnefnd fólksflutninga,
Umferðarmáladeild.
Árshátíð
Norðfirðingafélagsins
verður haldin á Hótel Loftleiðum Víkingasal,
laugardaginn 8. mars nk. og hefst með
borðhaldi kl. 19.30 stundvíslega. Góð
skemmtiatriði, dans.
Aðgöngumiðar verða seldir á sama stað
fimmtudaginn 6. mars nk. frá kl. 17.00-19.00.
Mætið vel og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
%
Félagsfundur
Iðja félag verksmiðjufólks heldur félagsfund
í Domus Medica v/Egilsgötu, þriðjudaginn
4. mars nk. kl. 17.00.
Fundarefni:
1. Kjarasamningarnir.
2. Önnurmál.
Iðjufélagar fjölmennið.
Stjórn Iðju.
Aðalfundur —
Félagið Stoð
Félagið Stoð heldur aðalfund sinn miðviku-
daginn 5. mars nk. að Hótel Hofi v/Rauðarár-
stíg. Hefstfundurinn kl. 20.30.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningarfélagsins.
3. Lagabreytingar.
4. Kosning stjórnar.
5. Önnurmál.
Allt áhugafólk er hvatt til að mæta. Tillögur
um breytingar og nýjungar vel þegnar.
Mætum öll.
Stjórnin.
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur
almennan félagsfund mánudaginn 3. mars
nk. að Hótel Esju, 2. hæð, kl. 20.30.
Dagskrá:
Kjarasamningarnir
Félagsmenn fjölmennið á fundinn og takið
afstöðu til þessa þýðingarmikla máls.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
80 ára afmælisfagnaður
Kvenfélags Fríkirkjunnar í Reykjavík verður
haldinn að Hótel Sögu (Átthagasal) þann 6.
mars nk. kl. 19.30. Aðgöngumiðar eru seldir
í Brynju að Laugavegi 29. Vinsamlega kaupið
miða fyrir 4. mars nk.
Stjórnin.
Landvari
Aðalfundur Landvara, Landsfélags vörubif-
reiðaeigenda á flutningaleiðum, verður hald-
inn að Hótel Esju, Reykjavík, laugardaginn
8. mars nk. og hefst kl. 13.00 stundvíslega.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórn Landvara.
Stofnfundur sjálfstæðis-
félags á Kjalarnesi
veröur haldinn sunnudaginn 9. mars kl. 15.30 í Fólkvangi, Kjalarnesi.
Gestir fundarins: Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins,
Matthías Á. Mathiesen. Einnig er boðið á fundinn Gunnari G. Schram,
Salome Þorkelsdóttur og Ólafi G. Einarssyni. Kaffiveitingar.
Stjórn Þorsteins Ingólfssonar.
Þáttaskil
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík boða til fund-
ar um nýgerða kjarasamninga og horfur í
efnahagsmálum i Sjálfstæðishúsinu Valhöll
fimmtudaginn 6. mars nk. kl. 20.30.
Frummælandi verður Þorsteinn Pálsson
fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæöis-
flokksins.
Sjálfstæðismenn eru hvattir til að fjöl-
menna.
Vörður, Hvöt,
Heimdallur, Óðinn.
Kópavogur spilakvöld
Spilakvöld sjálfstæöisfélaganna i Kópavogi verður haldið þriðjudaginn
4. mars kl. 21.00 stundvislega í sjálfstæðishúsinu Flamraborg 1.
Mætum öll.
Stjórnin.
Stokkseyri
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Stokkseyrar verður haldinn sunnudag-
inn 2. mars 1986 kl. 15.30 i Gimli.
Dagskrá: Almenn aðalfundarstörf.
Önnurmál.
Stjómin.
HEIMDALI.UR
F • U • S
Veðsetning ungs fólks hjá
erlendum bankastjórum
Mánudaginn 3.' mars nk. veröur fundur haldinn í Valhöil, Háaleitis-
braut 1 og hefst hann kl. 21.00.
Umræöuefnið verður: Veðsetning framtíðar ungs fólks hjá erlendurr
bankastjórum.
Kynnt verður blað sem gefiö hefur verið ut og tekur fyrir þessi mál
ásamt þvi að rakiö verður starf félagsins I tilefni þessarar umræðu
dagana 3.-7. mars.
Fundurinn veröur haldinn í Neðri deild Valhallar og gestur fundarins
verður Vilhjálmur Egilsson form. SUS.
Allir félagsmenn velkomnir.
Heimdallur.