Morgunblaðið - 02.03.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS1986
„Reiðarslag“
- segir Steingrímur Hermannsson
f orsætisráðherra
„ÞAÐ verður að segja það eins og er að maður er varla búinn að na
sér eftir þetta. Þetta kom eins og reiðarslag yfir alla. Maður á bágt
með að trúa því að svona atburðir geti gerst á Norðurlöndunum," sagði
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Eins og allir vita var Olof Palme
í fararbroddi fyrir jafnrétti og friði
í heiminum og barðist gegn ofbeldi.
Hann verður svo ofbeldismönnum að
bráð. Þeir fella hann og reiða þar
hátt til höggs og kannski þar sem
síst skildi. Eg átti góð persónuleg
kynni við Palme. Hann var gestur
hér hjá okkur og mér þótti hann
ánægjulegur stjómmálamaður að
kynnast. Hann var hreinskilinn hug-
sjónamaður. Hann var umdeildur og
það eru nú menn venjulega þegar
þeir hafa ákveðnar skoðanir. Hann
átti sinn stóra þátt í því að byggja
upp velferðarríkið Svíþjóð, sem hefur
orðið fyrirmynd fjölmargra annarra
þjóða. Mér fínnst því að þama hafí
fallið einn af fremstu stjómmála-
mönnum heims. Þetta vekur mann
til umhugsunar um það hvort við
Norðurlandabúar eru lítt betri en
aðrar þjóðir. Ég vil þó ennþá halda
í þá von að mannlífíð hér sé með
því besta sem gerist," sagði Stein-
grímur Hermannsson ennfremur.
„Óhugnanleg staðreynd“
- segir Matthías A. Mathiesen
utanríkisráðherra
„ÞAÐ ER óhugnanleg staðreynd að Olof Palme, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, skuli myrtur í miðri Stokkhólmsborg. Islendingar senda samúð-
arkveðjur til fjölskyldu forsætisráðherrans og sænsku þjóðarinnar
vegna þessa hörmulega atburðar," sagði Matthías A. Mathiesen, utanrik-
isráðherra, í samtali við Morgunblaðið.
„Olof Palme, sem forsætisráð-
herra Svíþjóðar og foringi jafnaðar-
manna í Svíþjóð, lét á alþjóðavett-
vangi mjög til sín taka og kom fram
með sjónarmið og hugmyndir, sem
oft voru umdeilanleg, en vöktu ævin-
lega athygli. Olof Palme tók mikinn
þátt í samstarfí Norðurlandaþjóða,
allt frá því hann hóf stjómmálaaf-
skipti í Svíþjóð. Oftast var hann í
forsæti ríkisstjóma, en hann var
einnig fulltrúi sænska ríkisþingsins
í Norðurlandaráði þegar hann var í
stjómarandstöðu. Enda þótt stjóm-
málaskoðanir okkar færu ekki saman
áttum við gott samstarf á vettvangi
Norðurlandaráðs og er ég gegndi
forsetastörfum í ráðinu 1980-81 var
einmitt Olof Pálme fulltrúi sænska
ríkisþingsins í forsætisnefndinni. Ég
átti því persónulegt samstarf við
Olof Palme, sem ég minnist nú með
þakklæti þegar hann er fallinn frá.
Vonandi verða þessir atburðir ekki
til þess að norrænir stjórnmálamenn
hverfí frá þýðingarmiklum hlutverk-
um, sem þeim, sem fulltrúum frjaisra
lýðræðisríkja, hafa verið falin á al-
þjóðavettvangi," sagði Matthías
ennfremur.
„Friðarins maður,
- fórnarlamb ofbeldis“
- segir Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins
„Ég heyrði þessi válegu tiðindi sem komu eins og þruma úr heiðskiru
lofti í fréttum í gærkvöldi og skömmu síðar hringdi fréttamaður Ritzau
með nánari tíðindi. Mín fyrsta hugsun var þessi: Friðarins maður, fórn-
arlamb ofbeldis. Þetta er mannlegur harmleikur, örlög sem við Islend-
ingar þekkjum helst úr íslendingasögunum," sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður Alþýðuflokksins, í samtali við Morgunblaðið.
„Mín kynni af Olof Palme voru þrumulostinn og sleginn óhug við
ekki náin. Við hittumst þrisvar til
fjórum sinnum og deildum einu sinni.
Það þurfti þó ekki mikil kynni af
manninum til þess að sjá það, að
hann var afburðagáfaður og óvenju
skarpur í hugsun og lét skoðanir sín-
ar og hugmyndir í ljós afdráttarlaust.
Hann var því umdeildur maður, dáð-
ur og jafnvel hataður. Maður er
þessar fregnir og íslendingar senda
sænsku þjóðinni samúðarkveðjur á
þessari stundu. Við vonum að voða-
atburður sem þessi endurtaki sig
ekki í opnu og friðsamlegu samfélagi
Norðurlanda, sem oft virðist sem vin
í eyðimörk ofbeldisins í okkar sam-
tíð,“ sagði hann ennfremur.
„ Sorgaratburður “
- segir Ólafur Ragnar Grímsson
„ÞESSI frétt kom eins og reiðarslag, því ég kom til landsins í gær-
kveldi úr langri ferð þar sem meðal annars höfðu á fundum i Argen-
tínu verið teknar ákvarðanir um næstu aðgerðir leiðtogahópsins i
afvopnunarmálum. A fundinum kom vel fram að Palme hafði sent sína
menn með ákveðinn og skýran boðskap um að hann hygðist leggja ríka
áherslu á þessi verkefni á þessu ári og því næsta, því hann væri sann-
færður um það að þessi tvö ár réðu úrslitum um framtíðarþróun kjam-
orkuvígbúnaðarkapphlaupsins," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, pró-
fessor í samtali við Morgunblaðið.
„Þau kynni sem ég hafði af Palme
í þessu starfí voru margvísleg og við
ólík tækifæri, bæði í persónulegum
viðræðum og á formlegum fundum
víðs vegar um heim. Við allar þessar
mismunandi aðstæður kom vel fram
að hann var einstakur og óvenjulegur
hæfileikamaður, með sterkan hug-
sjónakraft og djúpa og víðtæka
þekkingu, sem gerði hann jafnoka
fremstu sérfræðinga á sviði alþjóða-
mála. Jafnframt var þessi maður,
sem sumum fannst vera hvass í
orðræðu og stundum háðskur og
kaldur rökhyggjumaður, mjög við-
kvæmur og jafnvel stundum feiminn
og hlédrægur. Hann hafði til að bera
ríka kímnigáfu, sem einkum kom
fram í hópi kunningja og vina. í
heild var hann einstaklega leiftrandi
persónuleiki og þegar hann er myrtur
þá er það ekki aiðeins sorgaratburður
fyrir Svfþjóð og Norðurlönd, heldur
fyrir veröldina alla og baráttu fyrir
jafnrétti og friði í heiminum. Norð-
urlönd hafa aldrei átt stjórnmála-
mann, sem naut jafn mikillar virðing-
ar og hafði jafn mikil áhrif um heim
allan og Olof Palme hafði. Hann var
í rauninni eini heimsstjómmálamað-
ur Norðurlanda. Og þegar hann fóm-
ar nú í raun lífinu fyrir baráttu sína,
þá sýnir það að við búum því miður
í heimi þar sem enginn er lengur
öruggur og ofbeldið getur ógnað
hinum friðsælustu samfélögum,"
sagði Ólafur Ragnar ennfremur.
Morgunblaðið/Ól.K.Mag.
Áætlunarflug hafið milli Nuuk og Reykjavikur:
Fyrstu farþegar frá Nuuk
Á föstudagskvöld lentu fyrstu farþegarnir í áætlunarflugi frá
Nuuk á Reykjavíkurflugvelli. Meðal farþeganna voru ýmsir
ráðamenn þjóðarinnar, en héðan í frá verður vikulegt flug
milli Nuuk og Reykjavíkur allt árið á vegum Grænlandsflugs.
Bílverðslækkunin:
Nokkrir keyptu bíla á
gamla verðinu í vikunni
Munum veita þeim afslátt sem keyptu hjá
okkur segir Bogi Pálsson hjá Toyota
FLESTIR sem hyggja á bílakaup
hafa haldið að sér höndum þessa
vikuna vegna þeirrar lækkunar
tolla á bílum sem legið hefur í
loftinu. Bílaumboðin hafa af-
greitt sárafáa bíla i vikunni og
sum engan. Þó hafa einhveijir
ekki fylgst nógu vel með og t.d.
voru sex bílar tollborgaðir hjá
Toyota-umboðinu sl. miðvikudag
og alls afhentir 14 bilar hjá
umboðinu i vikunni.
„Sumir þeirra bíla, sem afhentir
hafa verið undanfama daga, voru
tollborgaðir í síðustu viku,“ sagði
Bogi Pálsson hjá Toyota-umboðinu.
„Þá voru notaðir bílar teknir upp í
sum kaupin á fullu verði og svo
má geta þess, að ríkið hefur keypt
um helming þeirra bíla sem selst
hafa síðan á miðvikudag," sagði
Bogi. „Umboðið ætlar að veita þeim
mönnum, sem lentu í þessu millibils-
ástandi, afslátt af bílunum sem
þeir keyptu — selja þá því sem
næst á kostnaðarverði. Það ætti
enginn að fara illa út úr þessu,"
sagði Bogi Pálsson.
Júlíus Vífíll Ingvarsson fram-
kvæmdastjóri hjá Ingvari Helgasyni
sagði, að þeir hefðu engan bíl af-
hent í vikunni. „Við höfðum fengið
veður af lækkuninni um helgina og
ráðlögðum mönnum að bíða,“ sagði
Júlíus Vífill. Aðspurður sagði hann,
að hann ætti von á því, að notaðir
bílar lækkuðu u.þ.b. um 30% í
fyrstu og jafnvel meira seinna.
„Notaðir bílar hafa verið of dýrir á
Islandi,“ sagði Júlíus Vífíll Ingvars-
son. Flestir viðmælendur Morgun-
blaðsins hjá bílaumboðunum tóku í
sama streng.
Palme píslar-
vottur friðar
í heiminum
- segir biskup Islands
BISKUP íslands, Pétur Sigur-
geirsson, er nú á ferð um Norð-
urlönd og tekur í dag þátt í bisk-
upsvígslu í Osló. Hann sendi
Bertil Werkström, erkibiskupi í
Svíþjóð, svohljóðandi samúðar-
skeyti vegna fráfalls Olofs
Palme:
„Við fráfall Olofs Palme setti
mig hljóðan. Við erum enn minnt á
að hið ótrúlega getur gerst. Norð-
urlöndin sakna mikils foringja, sem
sérstaka áherslu lagði á frið og
bræðralag í heiminum. Mér verður
Palme einkum minnisstæður frá
ráðstefnunni um líf og frið í Uppsöl-
um. Fyrir hönd íslensku kirkjunnar
sendi ég dýpstu samúðarkveðjur til
fjölskyldu hans og sænsku þjóðar-
innar. Palme mun lifa í hjörtum
friðelskandi manna sem píslarvott-
ur friðar í heiminum. Við blessum
minningu hans. Guð styðji og styrki
ástvini hans og sænsku þjóðina."
Lést af völdum
umferðarslyss
OLAFUR Gunnar Ragnarsson lést
í Borgarspítalanum 27. febrúar síð-
astliðinn af völdum umferðarslyss
er hann lenti í 21. febrúar. Hann
átti heima í Hátúni, Seyluhreppi,
Skagafírði. Ólafur fæddist 16. des-
ember 1970. Foreldrar hans eru
Ragnar Gunnlaugsson og María
Valgarðsdóttir.
Góð stemmning í íslenska hópimm í Sviss:
Vorum staðráðnir í að kom-
ast áfram af eigin rammleik
- sagði Jón Hjaltalín Magnússon, eftir signrinn gegn Rúmenum
„MENN eru að vonum mjög ánægðir með þennan sigur og stemmn-
ingin í hópnum eins og best verður á kosið," sagði Jón Hjaltalín
Magnússon, formaður HSÍ, er Morgunblaðið hafði símasamband
við hann á Hótel Ambassador í Bern á laugardagsmorgun, en
kvöldið áður hafði ísienska handknattleiksliðið unnið sætan sigur
á fjórföldum heimsmeisturum Rúmeníu. Jón sagði að menn væru
þó ákveðnir í að láta sigurvímuna ekki hlaupa með sig í gönur
því framundan væru mikil átök. „Þetta er rétt að byrja,“ sagði
hann.
„Menn vom ákveðnir í að láta
ósigurinn gegn Suður-Kóreu ekki
bijóta sig niður. Sigurinn gegn
Tékkum var vissulega uppörvandi
en í Ieiknum við Rúmena var
barist upp á líf og dauða,“ sagði
Jón Hjaltalín ennfremur. Við vor-
um staðráðnir í að komast áfram
af eigin rammleik, en ekki að stóla
á að Suður-Kórea myndi sigra
Tékka og fleyta okkur þannig
áfram. Þetta tókst og þetta er
árangur af góðu starfí undanfarin
tvö ár.“
Jón sagði, að þótt tapið gegn
Suður-Kóreu hefði verið stórt
væri þó ánægjulegt til þess að
vita, að handboltinn væri orðin
viðurkennd íþrótt um állan heim
og lið frá mismunandi heims-
homum hefðu sýnt frábæra leiki
á þessu móti, svo sem Kóreumenn,
Kúbumenn og Alsírbúar. „Það er
því engin skömm að tapa fyrir
liði eins og Kóreumenn hafa nú á
að skipa. Það út af fyrir sig, að
vera í hópi 16 bestu þjóða í heimi,
af þessum 130 sem æfa hand-
bolta, er frábær árangur. Og eftir
sigurinn í gær erum við komnir í
hop hinna 12 bestu. Það er varla
hægt að fara fram á mikið meira,“
sagði Jón Hjaltalín.
Aðspurður um hvort menn
hefðu fagnað með einhveijum sér-
stökum hætti á föstudagskvöldið
sagði ^ Jón: „Leikmönnum var
boðið í hóf hjá borgarstjóranum í
Bem en síðan fóru þeir beint að
sofa. En ég neita því ekki að við
hinir fengum okkur bjór.“
íslendingar leika næst gegn
Ungveijum, í dag, sunnudag,
klukkan 13.45 að íslenskum tíma.
Síðan em leikir gegn frændum
okkar Donum og Svíum á þrichu-
dag og fímmtudag.