Morgunblaðið - 02.03.1986, Síða 3

Morgunblaðið - 02.03.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986 3 Fiskveiðasj óður: Lán vegna nýsmíði fiskiskipa o g innflutn- ings heimiluð á ný NÝ REGLUGERÐ um lánveiting- ar Fiskveiðasjóðs tók gildi þann 28. febrúar siðastiiðinn. Sam- kvæmt henni er gert ráð fyrir því, að sjóðurinn hefji að nýju lánveitingar vegna nýsmíði fiski- skipa eða innflutnings sam- kvæmt ákveðnum reglum. Sjóð- urinn hefur ekki veitt ný lán til þessara hluta í tæp fjögur ár. í frétt frá sjávarútvegsráðuneyt- inu segir meðal annars, að megin- reglan við úthlutun lána vegna ný- smíði eða innflutnings fiskiskipa skuli vera sú, að afkastageta fiski- skipaflotans aukist ekki við það. Skilyrði slíkra lánveitinga er að skip, sem umsækjandi hefur átt og rekið í að minnsta kosti eitt ár og er af svipaðri stærð og afkastagetu og hið nýja, verði endanlega strikað út af skipaskrá. Umsókn um kaup ' eða smíði á tilteknu verði þarf að hafa borizt innan 12 mánaða frá því, að sambærilegt skip hafí horfið af skipaskrá og sé lánveiting ekki heimil vegna skipa, sem horfíð hafí af skipaskrá fyrir-ársbyrjun 1985. Sé skip keypt að utan skuli aldur þess ekki vera yfír fjögur ár. Þá séu allströng skiiyrði sett um að umsækjandi sýni fram á getu sína til að fjármagna þann hluta kaup- verðsins, sem sjóðurinn lánar ekki. Hámark lána vegna nýsmíði innan- lands verði 65% af kostnaðarverði en 60% vegna notaðra eða nýrra skipa, sem keypt kunni að verða að utan. Lán til endurbóta á físki- skipum skuli fyrst og fremst stuðla að orkuspamaði og bættri aflameð- ferð. Varðandi þessi lán muni áfram gilda svipaðar reglur um lánahlut- föll, en hins vegar verði um að ræða nokkra lengingu á lánstíma. Ekki er gerð breyting á eldri reglum um lán til fiskvinnslunnar. Loðnuveiðarnar: Heimilt að veiða umfram kvótann Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að heimila loðnuskipum lítilsháttar loðnuveiði umfram úthlutaðan kvóta. Ákvörðunin er tekin í ljósi markaðsaðstæðna. í frétt frá ráðuneytinu segir, að i þeim tilgangi að tryggja að unnt sé að standa við gerða samninga um sölu á loðnuhrognum og frystri loðnu og til að treysta stöðu íslend- inga á mörkuðum fyrir þessar af- urðir hafí þessi ákvörðun verið tekin. Það, sem tekið verði umfram kvóta, dragist síðan frá úthlutuðum kvóta viðkomandi skipa við upphaf næstu vertíðar. Þá segir að þeir aðilar, sem hug hafí á því að nýta sér þennan möguleika, þurfí að senda beiðni þar að lútandi til ráðuneytisins ásamt upplýsingum um fyrirhugaða umframveiði og ráðstöfun afla. Óheimilt verði að hefja þessar veið- ar nema fyrir liggi samþykki ráðu- neytisins. Grásleppuveið- ar verða óheim- ilar stærri bátum — nema þeir hafi stundað þær á síðustu vertíð Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú gengið frá reglum um grá- sleppuveiðar fyrir komandi ver- tíð. Meðal helztu breytinga er að ákvæði um leyfilegan netafjölda verða felld úr gildi og veiðarnar verði ekki háðar sérstökum Ieyf- um ráðuneytisins. Ennfremur að bátar stærri en 12 lestir fái ekki að stunda veiðarnar, nema þeir hafi gert það á síðustu vertíð. Reglurnar eru sem hér segir: Veiðitími við landið allt verði frá og með 10. marz til og með 15. ágúst. Felld verði úr gildi ákvæði um leyfilegan netafjölda. Veiðarnar verði ekki háðar sér- stökum leyfum ráðuneytisins. Bát- um 12 lestum að stærð og minni verða veiðarnar heimilar en stærri bátum því aðeins, að þeir hafí stundað grásleppuveiðar á síðustu vertíð o g skilað skýrslu um þær. Svæðaskipting verður óbreytt og er bátum aðeins heimilt að stunda veiðar á því svæði, þaðan sem þeir eru gerðir út. Vegna trygginga sjómanna skulu aðilar fyrir upphaf vertíðar tilkynna til Félags grásleppuhrognafram- leiðenda hyggist þeir stunda grá- sleppuveiðar á komandi vertíð. Allir veiðimenn skuli skila skýrslu um veiðamar til Fiskifélags íslands með sama hætti og undan- farin ár. Að öðrum kosti verða þeim ekki greiddar verðbætur úr Afla- tryggingasjóði sjávarútvegsins. Verður skýrslueyðublöðum dreift til þeirra aðila, sem tilkynna sig til Félags grásleppuhrognaframleið- enda. Urvalið af fermingarfötum okk- ar eykst meö hveijum degi. áhersla er lögð á aö fötin komi að fullum notum að fermingu lokinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.