Morgunblaðið - 02.03.1986, Page 29

Morgunblaðið - 02.03.1986, Page 29
WALCHSEE kr. 21.859.-* WALCHSEE ER NÝR SUMARSTAÐUR FLUGLEIÐA í AUSTURRÍKI Walchsee er lítið tírólskt þorp í Austurríki, örskammt frá landamærum Vestur-Þýskalands. Nafn sitt dregur þorpið af stóru og fallegu stöðuvatni sem það stendur við. I Walchsee eiga stórar og smáar fjölskyldur sæla daga. Þeir sem leita hvíldar og endurnæringar geta slakað á í rólegu og þægilegu umhverfi. Fyrir þá athafnasömu eru næg verkefni. Vatnið er skemmtilegur leikvangur og í þorpinu eru m.a. tennisvellir, keilu- og minigolfvellir. Þá er tilvalið að leigja bíl og heimsækja Salzburg, Innsbruck eða Munchen. Aðeins 400 km eru til Vínarborg- ar og 450 km til Feneyja á Ítalíu. Flugleiðir bjóða farþegum sínum ýmsa möguieika í gistingu, á íbúðahótelum og gistihúsum. Flogið er í beinu áætlunarflugi til Salzborgar, þar sem rútur og bílaleigubílar bíða farþeganna. Fararstjóri í Walchsee er Rudi Knapp. * Miftað vift verfttlmabllift 3. |úl( til 21. ágúst 1986. Vorft fyrir einstakling, miftaft vift 2 I Ibúft á Ibúftahðtelinu llgerhol I 2 vikur, og flug báftar leiftir. BIERSDORF * □□ Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur. Söluskrifstofan Lækjargötu sími 27477, Hótel Esju sími 685011, Álfabakka 10 sími 79500. Upplýsingasími: 25100 FLUGLEIÐIR kr. 23.568.-* NÝR SÆLUREITURÁ LANDAKORTINU Flugleiðir kynna nýjan sumarstað í Vestur-Þýskalandi: Dorint-sumarhúsaþorpið við Biersdorf, nálægt Bitburg í Suður-Eifelhéraði. Umhverfið er fallegt og friðsælt. Sumarhúsin standa í skógivaxinni hlíð og er gott útsýni þaðan yfir vatnið Stausee. Bátaleiga er við vatnið og hægt er að læra á seglbretti. Sumarhúsagestir geta farið í minigolf, leikið tennis innanhúss og utan, synt í stórri sundlaug og skroppið í gufubað á eftir. Þarna eru auk þess tveir fyrsta flokks veitingastaðir, bar, diskótek og keilusalur. I boði eru íbúðir og 2 herbergja sumarhús. öll húsakynni eru nýleg og vönduð. Farþegar á leið til Biersdorf fljúga til Luxemborgar, en þaðan er innan við klukkustundar akstur til Biersdorf. Hægt er að velja á milli þess að fara með rútu eða leigja bíl. Við mælum með síðari kostinum, því það gefur sumarleyfinu meira gildi. Frá Biersdorf er stutt að fara til borga eins og Brussel, Kölnar, Frankfurt, Mainz og Strassborgar. Þá er örskammt niður í Móseldalinn. íslenskur fararstjóri er til aðstoðar og skipuleggur skoðunarferðir. * Miftaft vlft verðtlmabilið 15. mal til 21. júnl 1986. Verð fyrir einstakling, miftaö við 2 f Ibúð I 2 vikur, og flug báðar leiftir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.