Morgunblaðið - 02.03.1986, Side 32

Morgunblaðið - 02.03.1986, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS1986 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986 Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. 1 Björn Bjarnason. / Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 40 kr. eintakið. Olof Palme myrtur Helfregnin frá Svíþjóð að- faranótt laugardags, um að Olof Palme, forsætisráðherra landsins, hafí fallið fyrir hendi morðingja á götu í Stokkhólmi, er enn einn vitnisburðurinn um að grimmd mannsins eru engin takmörk sett. í öllum löndum leynast menn, sem láta stjórnast af hatri, ranghugmyndum og fyrirlitningu fyrir iífí annarra. Sagan geymir svo átakanleg dæmi um launmorð þjóðarleið- toga, að það hefur verið bama- skapur að ímynda sér, að ekki kæmi að því, að einhver forystu- manna Norðurlanda yrði fómar- lamb ódæðismanna. En þegar atburðurinn gerist vekur hann óhug og grunsemdir um, að hann kunni að breyta sambandi norrænna stjómmálamanna við umbjóðendur sína. Þeir verði undir gæslu lögregluþjóna. Svip- ur hinna opnu þjóðfélaga breyt- ist. Þegar höggið hefur verið gefíð, segja menn, að það sé ekki iengur einkamál þeirra, sem kjömir hafa verið til æðstu embætta, hvort öryggis þeirra sé gætt eða ekki. Þegar þetta er ritað hefur sænsku iögreglunni ekki enn tekist að fínna ódæðismanninn eða ódæðismennina. I skjóli nætur tókst morðingjanum að fínna felustað í Stokkhóimi. Allra leiða úr borginni er gætt. Lögreglumenn eru hvarvetna við störf. Sænska þjóðin er harmi slegin og hvaðanæva úr veröldinni berast samúðarkveðj- ur. Til þessa hefur Svíþjóð haft þá ímynd út á við, að þar ríki meira umburðarlyndi milli manna en víðast annars staðar. Fréttin um launmorðið í skjóli myrkurs breytir þessari skoðun á sænsku þjóðlífí. Olof Paime var heimskunnur stjómmálamaður. Hann hefur lengi verið í forystusveit sænskra jafnaðarmanna, sem farið hafa með landstjóm í Sví- þjóð í hálfa öld. Palme var handgenginn Tage Erlander, leiðtoga jafíiaðarmanna, allt frá 1953, og hann tók við forsætis- ráðherraembættinu af honum 1969. Undir foiystu Palme töp- uðu jafnaðarmenn kosningum 1976 en hann lét ekki deigan síga og barðist aftur til sigurs 1982 og á síðasta ári hlaut hann endurkjör sem forsætisráðherra. Það þarf i senn mikið andlegt og líkamlegt þrek til að vera jafn lengi í forystu í Iýðræðis- þjóðfélagi og Olof Palme. Hann var í senn hugsjónamaður og harðskeyttur pólitíkus, sem lét að sér kveða hvar sem hann kom, hvort heldur í Sviþjóð eða utan. Hann var umdeildur eins og allir, sem láta að sér kveða í stjómmálum af jafn miklum þrótti og hann. Þegar jafn sterkur leiðtogi og Olof Palme fellur frá í blóma lífsins og í miðri starfsönn myndast tómarúm, sem ekki verður auðfyllt. Það mun reyna á innviði sænska Jafnaðar- mannaflokksins og stjómkerfís- ins á næstu vikum og mánuðum, þegar mál skipast með nýjum hætti eftir hinn sorglega atburð. Ótímabært fráfall Olofs Palme hefur áhrif út fyrir landamæri Svíþjóðar, ekki síst á Norður- löndum. Hann lét vemlega til sín taka á alþjóðavettvangi, ekki síst í alþjóðasamtökum jafnað- armanna. Þar er nú skarð fyrir skildi. Til Svíþjóðar em sendar samúðarkveðjur vegna þessa grimmdarverks með þeirri ósk, að sárið, sem það skilur eftir, verði fljótt að gróa. Minningin um þjóðarleiðtogann Olof Palme mun lifa. Hans verður minnst sem eins af mikilhæfustu stjóm- málamönnum Norðurlanda á þessari öld. Glæsilegur árangur egar litið er til þátttöku fslendinga í heimsmeistara- keppninni í handknattleik er unnt að segja um leikinn við Suður-Kóreumenn á þriðjudag- inn: Fall er fararheill. Síðan hafa okkar menn bæði sigrað Tékka og Rúmena. Sigurinn yfír Rúmenum hefur vakið verð- skuldaða hrifningaröldu um Iand allt. Þorbjöm Jensson, fyrirliði íslenska liðsins, sagði í Morgun- blaðinu í gær um leikinn við Rúmena: „Miðað við mikilvægi var þetta stærsti sigur íslensks handknattleiksliðs frá upphafí að mínu mati. Við áttum á hættu að falla í c-hóp ef við töpuðum, en núna eigum við möguleika á verðlaunum í heimsmeistara- keppninni. Eg ætlaði mér að gefa allt í þennan leik og ég held að ég hafí gert það. Eg er svo þreyttur að ég stend varla í lappimar." Morgunblaðið tekur undir með fyrirliðanum um mikilvægi leiksins og dregur ekki í efa, að liðsmennimir hafí lagt sig alla fram undir frábærri stjóm þjálfarans Bogdans. Blaðið ám- ar liðsmönnum til hamingju með þann glæsilega árangur, sem þeir hafa þegar náð. Hann hefur vakið rökstuddar vonir um enn meiri afrek. Liðsmenn létu ekki deigan síga eftir óvæntan ósig- ur, verðskuldaður sigur dregur ekki úr baráttuþrekinu. REYKJAVIKURBREF Laugardagur 1. mars Kjarasamningar eins og þeir, sem nú hafa verið gerðir, eiga sér lengri aðdraganda en þann rúma mánuð, sem samningsaðilar sátu að viðræðum að þessu sinni. Þetta eru flóknari samningar en við eigum að venjast og áhrif tæknilegra þátta þeirra, ef svo má að orði kveða, koma ekki í ljós á svipstundu. Samningam- ir ná einnig til fleiri atriða en venjulegt er. Með þeim er tekið á mörgu öðru en beinum launahækkunum og í raun lagður grunnur að nýrri stefnu við ráðstöfun fjár úr lífeyrissjóðum og mótun hins opinbera húsnæðislánakerfís. Síðast en ekki síst er ráðist að verðbólguvandanum með mark- vissum hætti og virkari þátttöku ríkissjóðs en við höfum áður kynnst hér á landi. Með markvissum aðgerðum ganga opin- berir aðilar, ríkissjóður og sveitarfélög, fram fyrir skjöldu og lækka gjaldskrár sínar, skatta, tolla og þjónustugjöld. Samhliða þessu er síðan samið um hóflega hækkun launa. Eins og sjá má af ummælum þeirra, sem að gerð samningsins stóðu, eru þeir allir bjartsýnir um að þessi tilraun sé þess virði að vera gerð. Þeir benda hins vegar á, að tekin sé áhætta með því að fara hina nýju leið, eða eins og Bjöm Bjömsson, hag- fræðingur Alþýðusambands íslands, segir í Morgunblaðinu á föstudag: „Það er vissu- l.ega rétt að menn taka áhættu með þessum samningum. Það er hins vegar ekkert nýtt að svo sé í kjarasamningum. Áhættan hefur alltaf verið til staðar og hún hefur fyrst og fremst verið fólgin í því, að menn hafa stungið sér til sunds í verðbólgufenið og látið verðlagsþróunina ráða og stjóma kaupmættinum. Með þeim aðgerðum, sem nú er verið að tala um, ætla menn að stilla verðlagsþróunina af fyrir fram eftir því sem kostur er og tiyggja þannig að árangur náist. Ég held því, þegar grannt er skoðað, að áhættan í þessum samning- um sé í raun minni en í flestum síðustu samningum, sem við höfum gert. í þessu sambandi er líka rétt að minna á, að í þessum samningum er fólgin ákveðin kaupmáttartrygging. “ í þessum orðum kemur fram megin- forsenda þess, að samkomulag tókst á þeim grunni, sem fyrir liggur: viðræðu- nefndimar urðu sammála um að miða við það, að meðalgengi krónunnar yrði haldið stöðugu og launahækkunum yrði ekki velt út í verðlagiÆ Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, sem heldur um púls fískvinnslunnar, sagði í Morgunblaðssamtali: „Fiskvinnslan setur sig í mikla óvissu með þessum samningum, en það gerir hún í trausti þess, að allir leggist á eitt við að tryggja að þessir samningar skili þeim árangri, sem að er stefnt. Brýnt er að allir seljendur vöru og þjónustu haldi verðlagi svo lágu sem kostur er og lækki þar sem svigrúm er til. Enn- fremur er nauðsynlegt að neytendur haldi vöku sinni. En áframhaldandi fall Banda- ríkjadollars kann að setja strik í reikning- inn. Fiskvinnslan þarf tekjuauka en ekki tekjuskerðingu." Ný vinnubrögð Á undanfömum árum hafa verið að þróast nýir starfshættir í samskiptum aðila vinnumarkaðarins. Til einföldunar má segja, að upphafíð sé að rekja til þess, þegar þeir Þorsteinn Pálsson, núverandi íjármálaráðherra, og Ásmundur Stefáns- son, núverandi forseti Alþýðusambandsins, gerðust oddvitar í kjaraviðræðum af hálfu Vinnuveitendasambandsins og Alþýðu- sambandsins. Magnús Gunnarsson, sem nú lætur af störfum framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambandsins eftir giftu- dijúgt starf, hefur lagt sig fram um að halda þannig á málum í samskiptum við viðmælendur sína, að þráðurinn slitni ekki, hvað sem á gengur, Er þolinmæði og bjartsýni Magnúsar við brugðið. Aðilar vinnumarkaðarins hafa orðið sjálfstæðari hin síðari ár í þeim skilningi, að á vegum þeirra sjálfra starfa nú hag- fræðingar, sem búa yfír jafn víðtækri :n;jvciu{H-nj,;2WA no449»g-4!k'óg^--) trno«iaímÁv» þekkingu, ef ekki víðtækari, á öllum þátt- um eftiahagslífísins og starfsmenn ríkisins, hvort heldur í Þjóðhagsstofnun eða annars staðar. Með samvinnu þessara sérfræðinga samtaka launþega og vinnuveitenda hefur verið komist að sameiginiegri niðurstöðu um ýmsar grundvallarforsendur, sem ráða miklu, þegar samið er um kaup og kjör. Þá er það enn til marks um nýja starfs- hætti, að aðilum vinnumarkaðarins fínnst augsýnilega þægilegra og árangursríkara að leysa úr ágreiningi sínum án afskipta ríkissáttasemjara. Löngum hefur verið litið til Vestur- Þýskalands sem fyrirmyndar um það, hvemig skynsamlegt se að halda á stjóm efnahagsmála, ekki síst vegna þess að þar hefur forystumönnum launþega og at- vinnurekenda tekist að skapa gagnkvæm- an trúnað í samskiptum sínum. Á þeim gmndvelli hefur annars vegar verið unnt að koma í veg fyrir kollsteypur og hins vegar halda þannig á málum, að nú er Vestur-Þýskaland, sem var í rúst fyrir 40 árum, eitt auðugasta ríki veraldar. Verð- bólgustríðið undanfarin ár hefur orðið okkur Islendingum dýrkeypt lexía, en ef við læmm það af því, að það er undir samstilltu átaki okkar allra komið að halda þjóðarskútunni á réttum kili, hefur ekki verið barist til einskis. Á undanfömum ámm hefur frjálsræði í viðskiptum manna á milli hér á landi aukist jafnt og þétt, meðal annars með afnámi verðlagshafta. Enginn vafí er á því, að ftjálsræðið Ieiðir til heilbrigðari viðskiptahátta. Nú reynir mikið á, hvort ný vinnubrögð einnig á þessu sviði skila árangri. Talsmenn ríkisafskipta af verð- lagsmálum munu fái gullið tækifæri til að afla málstað sínum fylgis, ef verðlag lækkar ekki í samræmi við þau fyrirheit, sem gefín em í nýgerðum samningum. Hlutur ríkisins Öllum er ljóst, að ríkissjóður hefur axlað mikla ábyrgð við lausn kjaradeilnanna. Ekki var ritað undir samninga Alþýðusam- bandsins og Vinnuveitendasambandsins, fyrr en ríkisstjómin hafði gefíð skriflegt svar vegna óska samningsaðila um mörg mikilvæg málefni, sem öll hafa verið tíund- uð rækijega hér í blaðinu. í svari ríkis- stjómarinnar segir meðal annars: „Ríkis- stjómin telur, að með þeim kjarasamning- um, sem nú er verið að gera, og aðgerðum, sem hún hyggst beita sér fýrir, hafí náðst mikilsverð samstaða um átak til að snúa þróun verðlagsmála til betri vegar. Þeim efnahagsbata, sem bætt ytri skilyrði gera nú kleift að ná, er með þessum ákvörðun- um fyrst og fremst varið til að bæta og tiyggja lífskjörin í landinu og gera alvar- lega tilraun til að koma verðbólgunni niður á það stig, sem algengast hefur verið í viðskipta- og samkeppnislöndum íslend- inga.“ Sumum lesendum finnst vafalaust, að þeir hafí oft áður séð þessi orð í svipuðu samhengi í yfírlýsingum ríkisstjóma. Satt er það, en nú er sá mikli munur, að ríkis- stjómin er ekki að lýsa því yfír, sem hún ein vill að nái fram að ganga, hún er að ítreka sameiginlegt markmið sitt og þeirra, sem ekki ráða minnu um framgang efna- hagsstefnunnar en hún, aðila vinnumark- aðarins. Þetta er einmitt sú bylting, sem í þessari samningsgerð felst, ef aðeins er litið á það, hvemig að henni er staðið. Ríkisstjómin brást rétt við með því að leggja svör sín við tilmælum samningsaðila fyrir Alþingi í lagafrumvarpi því, sem Þorsteinn Pálsson, Qármálaráðherra, kynnti á fímmtudagskvöld. Þar með er staðið þannig að málum, að það eru ekki aðeins aðilar vinnumarkaðaríns og ríkis- stjóm, sem axla formlega ábyrgð vegna kjarsamninganna, heldur einnig þing- menn, hvort heldur stuðningsmenn stjóm- arinnar einir eða einnig einhveijir úr stjómarandstöðu standa að samþykkt frumvarpsins. Heyrst hafa gagnrýnisraddir í þá vem, að það sé með einhveijum hætti lítilmótlegt fyrir ríkisstjóm og Alþingi að taka við tilmælum „úr Garðastræti" eins og bað er meðal annars orðað í þinghúsinu. Væri Morgunblaðið/ÓI.K.M. þessi gagnrýni flutt af mönnum, sem alltaf væm að láta til sín taka með þeim hætti að til heilla horfði og smíða ný ráð til að auka hag þjóðarinnar, kynni að vera ástæða til að staldra við hana og velta því fyrir sér, hvort ríkisstjómin sé að afsala sér og þinginu einhveijum völdum. Því miður verður það ekki sagt um okkar ágætu alþingismenn, að einir og óstuddir séu þeir iðnir við að smíða handa okkur bjargráð, sem duga. Jaftian hefur verið litið á það sem traust á ríkisstjómir en ekki vantraust, þegar aðilar vinnumarkað- arins ræða við þær á þeim forsendum, sem nú hefur verið gert. Nú hefur samráðið, svokallaða, skilað meiri árangri en við eigum að venjast. Ekki síst þegar tekið er mið af gerðum þeirra ríkisstjóma, þar sem fulltrúar Alþýðubandalagsins hafa setið. Gagnkvæmur trúnaður Er þá enn komið að því, sem sagt var í upphafi, að samningar af þessu tagi em ekki nokkurra vikna verk. Þeir em ávöxtur þrotlausrar vinnu um langt skeið, þar sem samningamenn hafa getað kannað allar hliðar mála og áttað sig á hinum ýmsu leiðum. I viðkvæmum viðræðum eins og þessum skiptir að sjálfsögðu miklu að trún- aður skapist milli manna og þeir hætti að vera með pólitískt karp um atriði, sem í raun er ekki deilt um nema af flokkspóli- tískum ástæðum. Þeir, sem líta á kjarabaráttu sem bar- áttu fyrir pólitískum völdum sér til handa, vilja auðvitað ekki, að gagnkvæmur trún- aður skapist milli þeirra, sem að kjara- samningum standa. Þeir vilja nota launa- málin sjálfum sér til framdráttar í hinum pólitíska slag. Mönnum er minnisstætt, þegar Svavar Gestsson, formaður Al- þýðubandalagsins, lyfti fíngri framan í sjónvarpsáhorfendur og sagði: Bíðið þið bara, við spumingu um það, hvort flokki hans þætti ekki kröfugerð þeirra alþýðu- sambandsmanna heldur lágreist. Enginn beið eftir Savavari við samningaborðið en innan Alþýðubandalagsins hafa „andófs- öflin", sem svo kallast, beðið færis að ná sér niðri á honum og verkalýðsforingjum. Bendir ýmislegt til þess, að nú eftir samn- ingana komi til átaka innan flokksins um þessi mál. Til marks um þá geijun, sem þar á sér stað, má nefna fréttir um að Bjamfríður Leósdóttir, formaður verka- lýðsmálaráðs flokksins, hafí boðað afsögn sína á miðstjómarfundi á sunnudaginn var. Ekki hefur verið greint frá því opin- berlega um hvað Alþýðubandalagsmenn deila í raun og vem. Össur Skarphéðinsson, Þjóðviljaritstjóri, sem ýmsir telja for- mannskandídat „andófsaflanna", sagði í forystugrein um kjarasamningana eftir að hafa lýst þeim sem ófullnægjandi: „Það kemur dagur eftir þennan dag, og við verðum að sækja í okkur veðrið, herða baráttuna á öllum vígstöðvum." Þessi orð verða ekki skilin öðm vísi en sem herhvöt til liðsmanna Össurar innan Alþýðubanda- lagsins, ekki er hann að skýra frá sjónar- miðum þeirra Ásmundar Stefánssonar og Guðmundar J. Guðmundssonar með þess- um orðum. Eftir því sem gagnkvæmur trúnaður eykst með þeim, sem að kjara- samningum standa, minnkar hann milli manna innan Alþýðubandalagsins. Verður nú flest óhamingju þess að vopni. Maisonrouge til íslands Næstu daga kemur Frakkinn Jacques Maisonrouge til íslands í boði Verslunar- ráðsins og flytur ræðu á vegum þess næstkomandi fímmtudag. Maisonrouge hætti störfum hjá IBM, þegar hann varð sextugur 1984. Hann hafði þá starfað hjá fyrirtækinu í 36 ár eða síðan 1948. Hófst hann þar til æðstu metorða sem yfírmaður Evrópuhluta IBM og yfírmaður allrar starfsemi þess utan Bandaríkjanna. Síðast sat hann svo í sjálfri framkvæmdastjóm fyrirtækisins. Er hann sá manna, sem ekki er frá Bandaríkjunum, er komist hefur hæst í skipuriti IBM, ef þannig má taka til orða. Eftir að Maisonrouge hætti störfum hjá IBM hefur hann meðal annars ritað ævi- sögu sína, en hún kom út í Frakklandi á síðasta ári og heitir Manager Intemation- al eða Alþjóðlegur stjómandi. Þar lýsir hann því, hvemig honum vegnaði í störfum hjá IBM eftir að hafa fengið styrk til verkfræðináms hjá fyrirtækinu í Banda- ríkjunum. Af bókinni má ráða, að þama fer maður, sem hefur hafíst til mikilla trún- aðarstarfa af eigin verðleikum og helgað líf sitt þessu risavaxna fyrirtæki og fjöl- skyldu sinni. Raunar er sagt um IBM, að fyrirtækið verði eins og önnur fjölskylda starfsmanna þess. Þegar Maisónrouge hóf störf hjá IBM var það meðalstórt fyrir- tæki, með 60 umboðsskrifstofur og 25.000 starfsmenn um heim allan, þá var veltan um 150 milljónir dollarar á ári. 1967 vom starfsmennimir orðnir 221 þúsund, 292 þúsund 1974 og yfír 400 þúsund 1984. Velta fyrirtækisins jókst mun hraðar, en það þykir til fyrirmyndar í allri stjómun. Fróðlegt er að lesa um það í bók Maison- rouge, hve oft stjómendur IBM sjá ástæðu til að taka fyrirtækinu tak, ef svo má segja, og skipa þá sérstakar nefndir starfs- manna, sem fá það hlutverk að endurskipu- leggja rekstur þess. Þar á bæ sýnast menn ekki þeirrar skoðunar, að þeir hafí fundið hið endanlega skipulag á rekstrinum, þótt vel gangi. „Fyrir löngu hef ég komist að þeirri niðurstöðu, að ein af ástæðunum fyrir velgengni IBM er, að stjómendur þess hafa aldrei verið fullkomlega ánægðir með árangurinn af starfí þess,“ segir hann á einum stað í bók sinni. Þá lýsir hann því, hve mikil áhersla er lögð á jafnræði með starfsmönnum og dreifíngu valds. Það skipti mestu fyrir sérhvem starfsmann, að hann viti nákvæmlega, hvað hann eigi að gera og megi gera. Hann segist hafa einfalda lausn á því, hvemig best sé að ná árangri við stjómun fyrirtækja, það sé að hvetja starfsmennina til dáða, örva þá og kveikja áhuga þeirra á viðfangsefninu eða eins og hann segir á frönsku: diriger c’est motiver. Fyrirlestur Maisonrouge hjá Verslunar- ráðinu á að §alla um stjómun og er ljóst, að hann getur miðlað félagsmönnum ráðs- ins miklum fróðleik. Hann er þaulvanur fyrirlesari og hefur mikla ánægju af því að fá tækifæri til að skýra frá eigin reynslu. Nú þegar ætlunin er að ráðast gegn verðbólgunni hér á landi með því að lækka verðlag skiptir meim en oft áður, að fyrirtæki séu rekin á sem hagkvæmast- an hátt og stjómað á þann veg, að þau framleiði vöm eða veiti þjónustu með sem minnstum tilkostnaði. Til marks um fyrir- tæki, sem hafa verið endurskipulögð og bjargað frá hmni, nefnir Maisonrouge Chrysler-bílasmiðjumar bandarísku. Þegar hafíst var handa um björgunarstarfíð þurfti fyrirtækið að framleiða 2,2 milljónir bíla á ári til að vera ekki rekið með tapi. Eftir breytingar á rekstrinum, endumýjun tækja, tilkomu vélmenna o.s.frv. byijaði Chrysler að græða, þegar framleidd hafði verið 1,1 milljón bfla á ári. Það er endur- skipulagning af þessum toga, sem í tilviki Chryslers var unnin með aðstoð ríkisins, sem er ekki aðeins nauðsynleg í íslenskum fyrirtækjum heldur bráðnauðsynleg í þjóð- arbúskapnum öllum. „ A undanf örnum árum hefur fijáls- ræði í viðskiptum manna hér á landi aukist jafnt og þétt, meðal ann- ars með afnámi verðlagshafta. Enginn vafi er á því, að frjálsræðið leiðir til heil- brigðari við- skiptahátta. Nú reynir mikið á, hvort ný vinnu- brögð einnig á þessu sviði skila árangri. Tals- menn ríkisaf- skipta af verð- lagsmálum munu fá gullið tækifæri til að afla málstað sínum fylgis, ef verðlag lækkar ekki í samræmi við þau fyrirheit, sem gefin eru í nýgerðum samn- ingum.“ -A 4 -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.