Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 44
 44 asei gflAM ,g auDAaumue sm/-jmur,mou MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MAKS1986 Skiptar skoðanir um lög- vemdun á starfsheiti gmnn- og framhaldsskólakennara EINS og- greint hefur verið frá í blaðinu hefur menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, lagt fram á Alþingi frumvarp um lögverndun starfsheita grunnskólakennara og framhaldskólakennara. I reglu- gerð með frumvarpinu segir m.a. að tilgangur þess sé að stuðla að aukinni viðurkenningu á menntun og starfi kennara. Jafnframt sé girt fyrir að aðrir en þeir sem hafa viðhlitandi menntun geti notað þessi starfsheiti. Til þess að gefa lesendum kost á að kynnast málinu frá mismunandi sjónarhólum var haft samband við nokkra aðila sem eiga hagsmuna að gæta. Kominn tími til að afnema lög- verndun starfsheita Þorvarður Elíasson skólastjóri Verslunarskóla Islands sagðist telja alla lögverndun atvinnuheita af hinu illa. Þar væri verið að tryggja ákveðnum hópi einokunaraðstöðu sem væri síst til bóta fyrir þjóðina. Tími væri til kominn að afnema þau forréttindi. „Eg sé ekkert vit í því að mennta ákveðinn hóp til starfa og gefa honum sfðan lögvemduð réttindi til þess að vinna sín störf. Þar er í raun verið að vemda rétt þess sterka á kostnað þess veika.“ Þorvarður sagðist vega og meta umsækjendur um kennarastöður út frá meðmælum, reynslu og mennt- un þeirra. Þegar umsækjendur væru jafn hæfír að öðm leyti gæti kennslu- og uppeldisfræðipróf ráðið úrslitum. „Það eru margir kennarar í Verslunarskóla Islands sem hafa ekki þetta próf,“ sagði Þorvarður, „þeir munu vonandi kenna þar áfram.“ Hann taldi að það væri ekki bara menntun sem réði því hvort menn væru hæfír til að kenna, þar kæmi einnig til skapgerð og ýmis persónueinkenni. „Menn eru einfaldlega mjög misjafnlega fallnir til þess að kenna, því starfí fylgir ákaflega mikið álag.“ Sagðist Þor- varður óttast það að í anda laganna gæti alls ófhæfur maður með kenn- araréttindi krafíst þess að verða tekinn framyfír aðra sem ekki hefðu þau. „Þetta er röng þróun, það er betra fyrir þjóðfélagið í heild að það verði snúið frá þessari lögvemdun- arstefnu, reynt að hefta hana í stað þess að auka hana. Eg hef aldrei dregið dul á það að ég tel það einn helsta hemil á hagvöxt hér á íslandi að iðnaðarmannastéttimar skuli hafa þá lögvemdun sem þær hafa. Það mætti einnig draga úr lög- vemdun margra háskólamenntaðra stétta, þar á meðal lækna, lög- fræðinga og endurskoðenda. Eg er þar með ekki að mæla gegn eftirliti með gæðum þessarar vinnu. Það mætti bara gera með allt öðrum hætti. Lögvemdun er auðvitað ekkert annað en tæki til að hækka laun stéttarinnar. Eg er fylgjandi því að kennarar fái mikla kjarabót, en þetta er ekki rétta leiðin". Ráöuneytið og kenn- arasamtökin vilja stuðla að fagmennsku Sólrún Jensdóttir skrifstofú- stjóri í menntamálaráðuneytinu var formaður þeirrar nefndar sem samdi frumvarpið. Hún sagði að það hefði án efa tafíð fyrir fram- gangi málsins, hversu erfítt ástand- ið væri orðið í mörgum skólum úti á landi. Þótt 80% kennslustarfa í grunnskóla væru mönnuð kennur- um með réttindi væri í sumum fræðsluumdæmum aðeins helming- ur kennara með næga menntun. Sólrún sagði að það hefði verið um það rætt meðal kennara að loka algjörlega á réttindalausa kennara strax. „Það er náttúrulega óraun- hæft og í frumvarpinu er ákvæði sem leyfir undanþágu frá reglunum þegar kennarar með réttindi fást ekki til starfa." Sólrún sagðisthinda,. miklar vonir við frumvarpið, það væri skref í rétta átt til að tryggja góða kennara. Bæði kennarasam- tökin og ráðuneytið vildu stuðla að fagmennsku. „Það er ekki alls ekki nóg að læra ákveðna námsgrein, maður er ekki um leið búinn að læra að miðla öðrum af henni. Eg held einnig að það margir séu sammála nefndinni um það, að tengja beri kennslufræðinámið bet- ur þeim greinum sem menn hyggj- ast kenna." Sólrún sagði einnig að hertar reglur myndu fæla réttinda- lausa kennara frá því að að ílendast í starfí. Það myndi einfaldlega ekki borga sig, þar sem slíkum kennur- um yrði vikið úr starfí þegar maður með réttindi gæfí kost á sér. „Ég vona einnig að þetta muni gera sveitarfélögin meira meðvituð, þau geri meira til þess að fá kennara. Það hefur tíðkast að sveitarfélög taki þátt í því að borga kennurum. Þó ég sé alls ekki að mæla með því þá er það samt staðreynd að sveitarfélögin geta gert heilmargt til að halda í folk með því að útvega því húsnæði til dæmis." Uppeldis og kennslu- fræðin nám í óljósum og grautar- legum kenningum „Menn hafa oft reynt að sýna fram á ákveðið samband milli rétt- indalausra kennara og lélegs náms- árangurs nemenda," sagði Guð- mundur Heiðar Frímannsson menntaskólakennari á Akureyri. „Eg hef samt hingað til ekki séð neinar tölur um þetta sem mark var takandi á.“ Guðmundur sagðist ekki hafa mikið álit á kennslu- og uppeldisfræðináminu. Skynsam- legra væri að taka menn í nokkurra vikna námskeið þar sem kennt væri t.d. að skrifa á töflu og útbúa glærur: „En að senda menn í árs háskólanám þar sem farið er í ein- hveijar mjög óljósar og grautarleg- ar kenningar og aldrei fjallað um raunverulega hluti, held ég að sé af og frá.“ Guðmundur taldi að kennsla væri fag sem hægt væri að kenna. Því væri sjálfsagt að bjóða uppá e.k. kennslufræðinám, þó með allt öðru sniði en í dag. „Eg held að þessi mikla og öra skipting í stéttinni sé meira vandamál heldur en fjöldi réttindalausra kennara. Það sem skólana vantar er ákveðin festa, þá verður um betri stofnun að ræða, sem skiptir meira máli heldur en það hvort fagleg þekking kennara er alveg upp á tíu.“ Hann benti einnig á það að ríkið hefði fræðsluskyldu gagnvart nemend- urn. Þess vegna hefði reynst nauð- synlegt að setja undanþáguákvæði inn í frumvarpið. Það yrði áfram kappsmál að laða hæft fólk að kennarastarfinu og jafnvel stór- felldar launahækkanir gætu ekki leyst það mál að öllu leyti. „Jafnvel þótt kennaralaun yrðu 100.000 krónur er ekki þar með sagt að við gætum fýllt illa skóla af hæfum kennurum. Það er miklu flóknara vandamál. Ég held að mestu skipti að bæta starfsaðstöðuna í skólun- um, gefa þeim meira fjárhagslegt sjálfstæði og gera kennara að meiri háttakendum í rekstrinum," sagði Þorvarður Elíasson: Það er betra fýrir þjóðfélagið í heild að það verði snúið frá þessari lögvemdunar- stefnu." Guðni Guðmundsson: „Mér fínnst það vera algjör frágangssök að maður skuli þurfa að leita til ein- hverrar nefndar ef maður ætlar að ráða stundakennara sem er ekki með uppeldis- og kennslufræði- próf.“ Sólrún Jensdóttir: „Það em marg- ir sammála nefndinni um að tengja beri kennslufræðinámið betur þeim greinum sem menn hyggjast kenna." Guðmundur. „Það sem mestu skipt- ir fyrir nemendur er lifandi áhugi kennara á námsefninu. Það skiptir meira máli en hvort hann hefur próf.“ Vona innilega að frum- varpið verði að lögnm „Ég tek algjörlega undir fmm- varpið, nákvæmlega í því formi sem það er. Hér er dæmi um fmmvarp sem hefur hefur verið unnið mjög vandlega. Það ber auðvitað keim af ákveðnu samkomulagi, það er búið að gefa ákveðinn afslátt frá Heimir Pálsson: „Kennslan er eins og hvert annað starf. Það em til dæmis allir sammála um að meiri líkur séu á því að maður verði góður læknir ef hann hefur lært læknis- fíæði.“ Jenna Jensdóttir: „Gott bijóstvit og næm innsýn em mikilvægustu þættimir í fari hvers kennara." ýmsu því sem við hefðum viljað sjá,“ sagði Heimir Pálsson formaður Bandalags kennarafélaga. „Við telj- um að það sé afskaplega mikilvægt að starfsheitin gmnn- og fram- haldsskólakennari verði lögfest og ákveðið hveijir megi bera þau. Ég vil hinsvegar taka það fram að hér er ekki átt við orðið „kennari“, eins og margir andstæðingar fmm- varpsins virðast halda." Heimir sagði að kennarastarfíð krefðist sérþekkingar og sérmenntunar. Menn þyrftu að geta áttað sig á stöðu nemenda sinna og bakgmnni. Það yrði ekki bara gripið úr lausu lofti. „Ég vona innilega að fmm- varpið verði að lögum og að því verði síðan fylgt eftir. Þá getum við vonandi horft framan í nemend- ur. Þurfum ekki að viðurkenna að í sumum fræðsluumdæmum em 50% gmnnskólakennara réttinda- lausir. Eða að 40% framhaldsskóla- kennara hafa ekki réttindi. Eg held að allir foreldrar bama geti verið sammála um það að þessar neyðar- lausnir verða að taka enda.“ Varð- andi gagnrýni sem fram hefur komið á kennslu- og uppeldisfræði- námið í háskólanum nú sagði Heim- ir: „Auðvitað er afskaplega auðvelt að gagnrýna þeta nám. Það hafa kennarasamtökin og gert. En með því emm við ekki að segja að það sé ekki þörf á þessu námi, heldur einfaldlega að það þurfí að vera betra. Við teljum að því meira og betra nám sem menn hafa í kennslufræðum, því betur séu menn fallnir til að kenna. Kennslan er eins og hvert annað Guðmundur Heiðar Frímanns- son: „Held að mestu skipti að bæta starfsaðstöðuna í skólunum, gefa þeim meira fjárhagslegt sjálfstæði og gera kennara að meiri þátttak- endum." til dæmis allir sammála um að meiri líkur séu á því að maður verði góður lækrtir ef hann hefur lært læknisfræði. Auðvitað em mjög deildar skoðanir um margar greinar í háskólanum. Það gildir um allt háskólanám og kemur til með að gilda. Mér sýnist reyndar að þeir sem gagnrýna námið harðast hafí aldrei kynnst því af eigin raun.“ Verður nærri óbæri- legl að starfa samkvæmt lögunum „Það er til amerísk skilgreining á úlfalda. Hún er: Hestur skapaður af nefnd," sagði Guðni Guðmunds- son rektor MR. „Þetta er virðist vera tilhneigingin í dag, að skjóta öllum sköpuðum hlutum til nefnda og færa öll völd inn í ráðuneytin. Mér fínnst það vera algjör frá- gangssök að maður skuli þurfa að leita til einhverrar nefndar ef maður ætlar að ráða stundakennara, sem er ekki með uppeldis- og kennslu- fræðipróf. Slíkt gerir kerfíð svo þungt í vöfum að það er nær óþol- andi.“ Guðni sagði að sennilega mætti spara stórfé í skólakerfinu með því að leysa skólameistara frá störfum. „Mér fínnst að skólastjórar eigi að vera í friði með sína skóla. Þeir eiga að vera ábyrgir og ef þeir eru það ekki, þá sinna þeir bara sínum störfum ekki nógu vel. Uppeldis- og kennslufræði getur ekki gert nokkum mann að góðum kennara. Hún megnar í mesta lagi ekki að eyðileggja mann sem var góður kennari fyrir. Þetta eru mjög sveimandi og ónákvæm vísindi. Auðvitað er ótækt að framhalds- skólakennari skuli þurfa 60 eininga nám í sínu fagi og 30 einingar í „auka“. Ef maður er að ráða kenn- ara þá leitar maður auðvitað eftir því að þeir hafí góða þekkingu í sínu fagi og að maður þekki þá að góðu.“ Guðni sagði það sína skoðun að nær óbærilegt yrði að vinna eftir lögun- um. „Þetta þýðir það að sumarið getur farið í að leita að kennurum, í stað þess að maður afkastaði þessu áður á tveimur af þessum mánuð- um.“ Hann sagði að auðvitað tengd- ist frumvarpið kjarabaráttu kenn- ara og þeim sviptingum sem orðið hafa m.a. með stofnun Bandalags kennarafélaga. „Ég held því alltaf fram að kennarar eigi ekki að vera í neinu félagi. Þeir eiga bara að vera í Bandalagi íslenskra lista- manna. Kennari þarf til dæmis að vera tætings góður leikari — annars er ekkert vit í honum." Lögin eru nauðsyn- legur grunnur uppbyggingar skóla- starfs í landinu „Hér er um að ræða uppbyggingu skólastarfs í landinu. Eða með öðrum orðum menntun þessarar þjóðar til allrar framtíðar. Þar hljót- um við að byggja á fólki, sem kann til verka," sagði Svanhildur Kaab- er varaformaður Bandalags kenn- arafélaga og stjórnarmaður í Kenn- arasambandinu. Taldi hún að lögin
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.