Morgunblaðið - 02.03.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986
47
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Byggingafulltrúi
Laus er til umsóknar staða byggingafulltrúa
hjá Hafnarfjarðarbæ. Um menntun og starfs-
svið byggingafulltrúa fer eftir ákvæðum
byggingarlaga og byggingarreglugerðar.
Laun fyrir starfið ákvarðast skv. samningi
við starfsmannafélag Hafnarfjarðar. Nánari
upplýsingar veittar undirrituðum. Umsóknir
ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist skrifstofu minni, Strand-
götu 6, Hafnarfirði, fyrir 17. mars nk.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Starfsmaður
óskast til að sjá um ritvinnslu og skrifstofu-
hald. Óskað er eftir skriflegum umsóknum
með upplýsingum um menntun og fyrri störf.
Ekki er tekið við umsóknum í síma.
Línuhönnun h=
veRkFRædistoFa
ARMÚLA 11 - 105 REYKJAVlK
Rafmagnstalía
Óskum eftir að kaupa 1 -2 tonna rafmagnstalíu
(hlaupakött) með vírum. Lyftih. minnst 12 m.
Uppl. í síma 53999 (Örn Óskarsson).
§ g HAGVIBKI HF
SlMI 53999
3 samhentir
og fjölhæfir iðnaðarmenn, bifvélavirki, pípu-
lagningamaður og vélvirki óska eftir atvinnu.
Margt kemur til greina. Tilboð sendist augld.
Mbl. merkt: „L-732“.
Lögfræðingur
Samband íslenskra myndlistarmanna óskar
eftir að ráða lögfræðing með sérþekkingu á
höfundarréttarmálum. Nánari upplýsingar í
síma 11346.
Eldri hjón óskast til
húsgæslustarfa
Húsfélag óskar að ráða húsvörð til starfa fyrir
stórt fjölbýlishús í Breiðholti (Hólahverfi). Starf-
ið felst meðal annars í ræstingu, eftirliti,
umsjón með framkvæmdum, ýmiskonar við-
haldi og skyldum störfum. íbúð fylgir starfinu
auk ágætis launa og annarra hlunninda.
Umsóknir er tilgreini aldur og fyrri störf
sendist auglýsingad. Morgunblaðsins fyrir
fimmtudaginn 6. mars nk. merktar:
„Húsvörður Hólar — 3347".
LAUSAR STÖÐURHJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal-
inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjara-
samningum.
Fóstrur, þroskaþjálfar eða fólk með
uppeldismenntun óskast til starfa við
dagheimili eða leikskóla víðsvegar um
borgina til að örva og aðstoða seinþroska
börn.
Starfið er unnið í samvinnu við starfsfólk
á viðkomandi dagvistarstofnunum og í
samráði við Sálfræði- og sérkennsludeild
Dagvistarbarna.
Bæði hálfs- og heilsdagsvinna kemur til
greina.
Upplýsingar veitir Garðar Viborg, sál-
fræðingur, í síma 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást.
Afgreiðslufólk
í söluturn
Áreiðanlegt starfsfólk, ekki yngra en 18 ára
óskast til afgreiðslustarfa í söluturn. Vinnu-
tími kl. 08.00-16.00.
Eldhússtörf
Samviskusamt starfsfólk óskast til eldhús-
starfa. Vaktavinna: Vinnutími frá kl. 11.00-
22.30.
Upplýsingar á skrifstofunni næstu daga kl.
10-18.00.
Ucitingahúsið
GRPi-inn
DALSHRAUN113-220 HAFNARFIRÐI - SÍMI 54424
Blikksmiðir
Óskum að ráða blikksmiði, nema og aðstoð-
armenn. Mikil vinna framundan.
Uppl. gefur Kristján Pétur í síma 44100.
BIIKKVER
Skeljabrekka 4 - 200Kópavogur - Sími: 44040.
San Francisco
Au-pair óskast á heimili ekkjumanns með 2
lítil börn. Óskað er eftir að viðkomandi sjái um
heimilið, hafi bílpróf og reyki ekki. Flugferðir
innifaldar. Laun:
100 á viku. Vinsamlegast
skrifið til Maurice J. Carron, CPA, P.O.Box
2394, San Francisco, CA 94126.
Sölumenn
Rafiðnfræðingar —
rafvélavirkjar —
rafvirkjar
Okkur vantar menn í eftirtalin störf:
Yfirverkstjóra rafþjónustu.
Óskað er eftir rafiðnfræðingi með menntun
og/eða reynslu í rekstri verkstæðis, eða
mann með hliðstæða menntun og reynslu.
Rafvélavirkja til sjálfstæðrar vinnu á raf-
vélaverkstæði.
Rafvélavirkja eða rafvirkja til viðgerða á
heimilistækjum o.fl.
Rafvirkja til almennra raflagna og viðhalds-
vinnu.
Bjóðum aðstoð við útvegun húsnæðis og
frían flutning búslóðar. Upplýsingar gefur
Óskar Eggertsson.
Póllinn hf, ísafirði,
sími 94-3092.
Véltæknifræðingur
óskar eftir vinnu. Hef gott vald á dönsku
einnig nokkuð vald á þýsku og ensku. Margt
kemur til greina. Tilboð sendist til augl.deild
Mbl. fyrir 10. mars nk. merkt:
„Tæknifræðingur — 0127“.
Fyrirtæki í Reykjavík er útflytjandi á frystu-
mog ferskum sjávarafurðum og innflytjandi
á
veiðarfærum og umbúðum, einnig rekurfyrir-
tækið fiskvinnslustöð ásamt útgerð.
Útflutningur
sjávarafurða
Sölumaður
Útflutningsdeild okkar sem fer stöðugt vax-
andi vantar duglegan og framtakssaman
mann til að markaðssetja sjávarafurðir um
allan heim.
Um er að ræða starf sem byggist mikið á
samskiptum við innlenda og erlenda aðila.
Krafist er góðrar enskukunnáttu ásamt kunn-
áttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli. Einnig
þarf viðkomandi að hafa innsýn í veiðar og
vinnslu á fiski.
Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt
og hafa góða samstarfshæfileika.
í boði er góð starfsaðstaða í krefjandi starfi
hjá fyrirtæki þar sem er góður starfsandi.
Laun fara eftir hæfileikum.
Með allar umsóknir verður farið sem trúnað-
armál og öllum verður svarað.
Umsóknir sendist augl.deild Mbl. merktar:
„K — 0490" fyrir 5. mars nk.
Atvinna óskast
Ungur þjóðverji óskar eftir vinnu á íslandi.
Margt kemur til greina. 10 ára reynsla í smíði
og vélaviðgerðum. Vinsamlegast skrifið til:
Helmut Gerloff,
P.O.Box20181, 9000 Windhvek,
Southwestafrica - Namibia.
Ferðaskrifstofa-
Vestmannaeyja
auglýsir eftir starfsmanni.
Leitað er að starfsmanni sem er vanur far-
seðlaútgáfu (ticketing). Upplýsingar gefa
Andri Hrólfsson í síma 91-690565 og Engil-
bert Gíslason í síma 98-2800.
Heildsölufyrirtæki á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu óskar eftir að ráða menn til sölustarfa
sem fyrst. Um er að ræða störf við sölu á
matvörum, hreinlætisvörum og öðrum vöru-
tegundum. Leitað er að ungum mönnum
með góða framkomu sem hafa reynslu af
sölu- eða verslunarstörfum.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf skilist á augld. Mbl. eigi síðar en 8.
þessa mánaðar merktar: „P — 3296". Farið
verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Skemmtistaður
í Reykjavík
óskar eftir að ráða hljóðfæraleikara ( hljóm-
sveit) sem spilar bæði gömlu og nýju dans-
ana. Um er að ræða fast starf á föstudags
og laugardagskvöldum.
Tilboð sendist Augl.deild Mbl. fyrir 7. marz
nk. merkt: „Hljómsveit-3129".