Morgunblaðið - 02.03.1986, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986
57
A
ÐALi
Hver hrekkti
Rikshaw?
Fingralangir hrekkjalómar gerðu hljómsveitinni
Rikshaw og hljóðmanni þeirra illan grikk á dögun-
um þegar þeir félagar léku í Tónabæ.
Eins og venja er fyrir böll eða hljómleika var
mætt á staðinn um daginn og hinum ýmsu snúr-
um stungið í samband, hljóðnemum og hátölurum
komið haganlega fyrir og allt þar fram eftir götun-
um. Hljómburðurinn í salnum var prófaður og<
síðan fór hver hljómsveitarmanna til síns heima
svo og hljóðmaðurinn.
Um kvöldið þegar meðlimir Rikshaw og Bjarni
Friðriksson hljóðmaður mæta til leiks er búið að
taka nær allt úr sambandi sem hægt var að taka
úr sambandi. Allar hátalarasnúrur, rafmagnsnúr-
ur og búið að breyta stillingum á hinum ýmsu
rafmagnstækjum sem fylgja hljómflutningskerf-
um sem þessu. En þar sem þetta eru vanir menn,
var málunum bjargað á tiltölulega skömmum
tíma. Ekki náðist í skottið á þeim seku en ekki
er ólíklegt að þeim hafi verið skemmt.
--------mh Kristján Pálsson heitir ungur
wHA maður sem nýbyrjaður er á föstu
iHl og sézt kannski sjaldnar en áður
en vonandi kemur það ekki að
HyjK sök því þetta er áreiðanlega
bezta skinn. Hann stundar nám
við Verzlunarskóla íslands og er
áreiðanlega í sérstöku uppáhaldi
kennara, svo ekki sé minnst á skólastjórann. Þessi myndarpiltur
brázt Ijúflega við bón Popparans og tók saman lista yfir uppá-
haldslög og uppáhaldsplötur á milli þess sem hann fylgist grannt
með því sem fór fram við kennslutöfluna. Dire Straits eru í
miklum metum hjá „Stjána streit" eins og hann er stundum
kallaður.
Kristján
Pálsson
Uppáhaldslög
1. TunnelofLove ........... DireStraits
2. School .................. Supertramp
3. Sultansof Swing ........ DireStraits
4. In the Cage (Live) ......... Genesis
5. NewYearsDay ..................... U2
6. Old and Wise ... Alan Parsons Project
7. Bad (Live) ...................... U2
8. Jungleland ........ Bruce Springsten
9. Childhood's End .......... Marillion
10. PaintitBlack ......... Rolling Stones
Uppáhaldsplötur
1. Making Movies ........ Dire Straits
2. Three Side Live ........ Genesis
3. Crimeof the Century . Supertramp
4. Misplaced Childhood . Marillion
5. Dire Straits ......... Dire Straits
6. TheWall ............... Pink Floyd
7. Borntorun ...... Bruce Springsteen
8. Avalon ............... RoxyMusic
9. Principle of Moments . Robert Plant
10. Steve McQueen ...... Prefab Sprout
við vitna í franskan súrrealista
frá árinu 1924: „Þið fílið bara
það sem þið hafið heyrt 100
sinnum áður, fíflin ykkar."
Talaði hann íslensku?
„Nei, frönsku auðvitað en
þetta þýðir það sama."
Hvað senduð þið mörg lög
í Eurovision-keppnina?
„Ekki eitt einasta og hvað
með það?“
Hvað með það? Það er
ekkert með það, svaraði
Popparinn og spurði svo:
Hvað með aðrar íslenskar
sveitir?
„Það eru fáar original sveit-
ir til staðar eins og er. Stað-
reyndin er sú að ef hljómsveit
er vinsæl, þá er hún leiðin-
leg."
Lifið þið á tónlist?
„Nei. Poppbransinn hér er
hundleiðinlegur og við erum
ekki í tónlist tii að græða
peninga heldur vinnum ann-
ars staðar."
Ætlið þið að gera mynd-
band í Poppkorn?
„Má vera, en það skal skýrt
tekið fram að dansandi negr-
ar fá ekki að vera með, og
ekki léttklæddar stelpur og
að taka myndbandið upp í
yfirgefnu verksmiðjuhúsnæði
þar sem blá þoka flaskar um
kemur ekki til greina."
Og ...?
„Við tökum aldrei áhættu
því við þekkjum okkar tak-
mörk og svo framvegis . . .“
CultureClub |
í slaginn á ný
BOY George og Culture Club senda frá sér smáskifu á morgun
í Bretlandi og er aðallagiö Move Away. Það er tekið af breið-
skífu þessa flokks sem flestir héldu að væri alveg búinn að
vera. Breiöskífan kemur út í apríl og er nafnlaus enn sem
stendur. Sá sem stjórnar upptökum er enginn annar en hinn
frægi Arif Mardin sem er hvað frægastur fyrir sykraðar
strengjaútsetningar og er búinn að vera mörg ár í eldlínunni.
I
„ Ifið tökum
aldrei áhættu“
SH-draumur orðinn að veru-
leika?
Hljómsveitin SH-draumur
hefur eftir rúmlega þriggja ára
starf sent frá sér tíu þuml-
unga hljómplötu sem heitir
því skemmtilega nafni Bens-
ínskrímslið. Inniheldur hún 4
lög og er tekin upp í Mjöt.
Popparinn hafði samband við
þá félaga og bréfleiðis varð
eftirfarandi að veruleika:
Hverjir skipa SH-draum?
„Gunnar Hjálmarsson,
Steingrímur Birgisson og
Haukur Valdimarsson," er
svarið og skrifast á þá alla.
Það skal upplýst hér og nú
að Gunnar syngur og leikur á
bassa, Steingrímur spilar á
gítar og Haukur er eigandi
trommusetts.
Hvaðan koma meðlimir
hljómsveitarinnar?
„Úr Kópavoginum en eiga
þó ekkert skylt við Ríó tríó."
Og hvernig skilgreinið þið
tónlistina á Bensínskrímsl-
inu?
„Hún er áköf og hrokafull
í senn. Laglínurnar eru leiddar
af bassa og trommum en gít-
arinn flýtur í kring. Rödd
Gunnars er fölsk og skræk
og það er í góðu lagi."
I hvaða lagi? (HAHAHAHA-
HA). Hér hló enginn.
Textarnir eru væntanlega
vel til þess fallnir að syngja
á þorrabiótum?
„Nei ætli það. Þeir eru
frekar bókmenntalegs eðlis.
Og ef viö megum bæta aðeins
við svarið varðandi tónlistina
þá má það koma fram að hún
er afurð einangrunar og
leiða."
Hafið þið prófað að koma
fram í félagsmiðstöðvum
eins og Herbert Guðmunds-
son, Cosa Nostra og fleiri
tónlistarmenn?
„Að sjálfsögðu verður
maður að prófa allt. Við lékum
nýlega í einni þessara mið-
stöðva og var tekið fádæma
illa. Krakkarnir gátu ekki þol-
að okkur af því að við spiluð-
um ekki það sem heyrist
mest á rás 2. Annars viljum
Þ
k
Gaukurá Stönp:
'riðja Lennon-
völdið í kvöld
— og það síðasta á þriðjudagskvöld
Plötu-
fyrirtæki
Wellers
á hausinn
Ákveðið hefur verið að hafa tvö
Lennon-kvöld í viðbót og er það
fyrra í kvöld, sunnudagskvöld, en
það síðara á þriðjudagskvöld.
Bítlavinafélagið er skipað þeim
Rafni Jónssyni sem lemur trommur
þessa dagana ekki ósvipað Ringo
nokkrum Starr, Haraldi Þorsteins-
syni bassaleikara, Stefáni Hjör-
leifssyni gítarleikara og Jóni nokkr-
um sem boxar svartar og hvítar
nótur þegar hann hefur ekki of
mikið að gera í söngnum. Aðgang-
ur á þessi tvö síðustu Lennon-
kvölderókeypis.
John Lennon á greinilega ansi
marga fylgismenn hér á landi því
troðfullt hús var bæði sl. sunnu-
dags- og mánudagskvöld þegar
nýstofnuð hljómsveit, Bítlavinafé-
lagið, lék 30 lög eftir þennan snill-
ing. Aðsókn á Gauk á Stöng hefur
ekki verið jafn mikil síöan staðurinn
var opnaður og þurftu þá margir
frá að hverfa.
Sumir létu reyndar sjá sig bæði
kvöldin, sungu með og létu öllum
illum látum og var sérstaklega
gaman að sjá gömlu hippana með
friðarmerkið í barminum á ný.
Þar sem Paul Weller hefur
ekkert mátt vera að því að
helga sig plötufyrirtæki sínu
Respond er það farið á haus-
inn. Fyrirtækið hefur starfað í
fjögur ár en ansi lítið hefur það
verið með í gangi síðustu mán-
uðina og nú er ævintýrið úti. Á
síðasta ári kom engin breið-
skífa út á vegum fyrirtækisins,
aðeins þrjár litlar plötur sem
gengu allar illa. Vita kannski
ekki allir hver Paul Weller er?
Hann er aðalhetja Style Council
og var sporgöngumaður í Jam
ígamla daga.
Svona líta meðlimir SH-draums út. Alveg sattl!