Morgunblaðið - 20.03.1986, Side 29
MORGÚNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1986
29
Stóraukinn
flutningur á
ferskum fiski
EIMSKIPAFÉLAG íslands flutti 27.00 tonn af ferskum fiski
í gámum til Bretlands og meginlands Evrópu árið 1985 og
er það þrefalt meira en árið 1984. Gert er ráð fyrir að félag-
ið flytji um 35.000 tonn af ferskum fiski með skipum sínum
árið 1986. Ferskfiskflutningar koma nú til viðbótar flutning-
um á frystum fiski, saltfiski og skreið með áætlanaskipum
félagsins.
Fyrst í stað kom ferskur fiskur
einkum af Reykjavíkursvæðinu og
Suðumesjum en nú er hann fluttur
í vaxandi mæli frá Vestmannaeyj-
um og ísafirði. Eimskip breytti
áætlun strandflutningaskipa þann-
ig að nú er ferskur fiskur lestaður
á ísafirði á mánudögum og fer
áfram með áætlanaskipum til Bret-
lands á miðvikudögum. Fjallfoss
hefur haft viðkomu í Vestmanna-
eyjum hálfsmánaðarlega en á þessu
ári bættust við viðkomur Laxfoss
svo að nú eru vikulegar ferðir frá
Vestmannaeyjum til Bretlands.
Laxfoss hóf meginlandssiglingar
m.a. til þess að geta þjónað fersk-
fiskútflytjendum með flutningi til
Bremerhaven. Eimskip hefur einnig
flutt ferskfisk á þann markað með
norðurlandaskipum um danska
höfn.
Eimskip pantaði nýlega 120 nýja
gáma sem verða sérstaklega búnir
til ferskfiskflutninga. Nú er verið
að smíða þessa gáma í Þýskalandi
og eru þeir væntanlegir til landsins
innan 12 vikna. Kaupverð gámanna
er um 16 milljónir króna.
Hótel við
Skúlagötu?
EIMSKIPAFÉLAG íslands hefur
að undanfömu kannað hvort
skynsamiegt gæti verið fyrir fé-
lagið og hagkvæmt að reisa hótel
á lóð félagsins við Skúlagötu.
Þetta koma m.a. fram í skýrslu
stjómar Eimskipafélagsins sem
flutt var á aðalfundinum á Hótel
Sögu. Jafnframt kom fram að frum-
athugun á þessu máli muni ljúka
innan skamms.
Veruleg aukning á
strandflutningum
VERULEG aukning varð á strandflutningum Eimskips á síðasta ári,
meiri en nokkru sinni fyrr. Strandflutningar sem tengjast inn- og
útflutningi jukust um tæp 40%, en frumflutningur til og frá Reykja-
vik jókst um tæp 60%.
Fullkomnari skip og auknir
gámaflutningar hafa gert það að
verkum að betur hefur gengið að
tengja landsbyggðina flutninga-
kerfi félagsins í millilandasiglingum
með því að umhlaða gámana í
Sundahöfn. Áætlanaskip Eimskipa-
félagsins í strandflutningum halda
uppi vikulegri þjónustu til ísafjarð-
ar, Akureyrar og Húsavíkur og
hálfsmánaðarlegri til Sauðárkróks
og Siglufjarðar. Auk þess safnar
frystiskipið Ljósafoss frystivöru á
ströndinni og dreifir ýmsum vam-
ingi út á land. Eimskip notar full-
komið gámaskip með 35 tonna
krönum í strandsiglingamar.
í skýrslu stjómar Eimskips kom
fram að afkoma í strandflutningum
félagsins hefur batnað verulega
undanfarna mánuði vegna vaxandi
flutninga og hagkvæmari reksturs
með nýju skipi. Þó væri ljóst að
þessi þáttur í rekstri félagsins skil-
aði ekki hagnaði enda ætti félagið
þar í samkeppni við Skipaútgerð
ríkisins sem nýtur ríkisstyrkja skv.
flárlögum á þessu ári sem nema
um 119 milljónum króna eða um
34% af tekjum Skipaútgerðar ríkis-
ins.
Gámaflutningar
ná yf irhöndinni
EIMSKIPAFÉLAG íslands
flutti styklgavöru til og frá
Norðurlöndum eingöngu í
gámum með gámaskipum
árið 1985.
Eimskipafélagið rekur nú
6.500 gáma, þar af eru 3.500
gámar í eigu félagsins. Verð-
mæti þeirra er um 600 milljónir
króna.
Eimskip hyggst halda áfram
þróun á þessu sviði og felst hún
í bættri nýtingu gáma og flutn-
ingi á fleiri vörutegundum í gám-
um.
WmrM Skór
§|*^|kór
skór
tilboðsverði
þessa viku.
Mikið úrval af kvenskóm:
Lakkskór m. háum og lág-
umhælkr.
Strigaskór margir litir,
stærðir frá nr. 35—45
Iþróttaskór háir og lágir,
leður, stærðir frá 40-44
Hvítar drengjaskyrtur frá
kr. 395.
Stuttermabolir, stærðir
S-M-Lxl frá kr. 150—195
kr.
Buxur, stærðir frá 28—33
kr. 250—395 kr.
Peysur, stærðir S-M-L kr.
250—350 kr.
Jogging peysur, stærðir
S-M-L kr. 250.
Mikið úrval af herrabux-
um, flestar stærðir frá kr.
795—990.
Herranærföt, stærðir
S-M-Lkr. 195.
Barnajakkar og buxur kr.
585 settið.
Sumarjakkar í tískulitun-
um, stærðir S-M-L kr.
990.
Herrapeysur S-M-L kr.
740.
Ullarjakkar kr. 2.900.
Dragtir kr. 950.
Kuldaúlpurkr. 1.990.
Jakkarfrá kr. 290.
Barnajogginggallar nr.
6-14 kr. 1.190.
Herraskyrtur, mikið úrval
kr. 490.
Barnasokkar frá kr. 25,
herrasokkarfrá kr. 85.
Hljómplötur, verð frá kr. 49—299,
áteknar kassettur kr. 199, óáteknar
kassettur 90 mín. kr. 99.
Þvottalögur sótthreinsandi á kr. 10,
þvottabalarfrá kr. 319—348.
Vöruloftið
Sigtúni 3, sími 83075