Morgunblaðið - 20.03.1986, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1986
39
Keflavík:
Eldsvoði í/hraðfrysti-
húsi Keflavíkur hf.
SLÖKKVILIÐIÐ I Keflavík var
kallað að hraðf rystihúsinu Kefla-
vík hf. á þriðjudagskvöldið og
logaði þá þó nokkur eldur í véla-
sal. Myndaðist þar mikill reykur
en greiðlega gekk að ráða niður-
lögum eldsins. Ekki eru nema tvö
ár siðan meginhluti hússins eyði-
lagðist í miklum bruna.
Eldurinn á þriðjudagskvöld
kviknaði út frá rafmagni. Brann út
frá stofnrás, þannig að slökkviliðið
gat ekki hafist handa fyrr en
straumur hafði verið tekinn af hluta
bæjarins og tengingin rofin. Menn
höfðu verið að störfum í vélasalnum
til klukkan sjö og vélstjórinn yfirgaf
varð vart. Eldurinn breiddist lítið
út. Aðallega brunnu klæðning og
rafleiðslur og milliveggur í vélar-
salnum og urðu töluverðar
skemmdir í salnum. Enginn fiskur
varð fyrir skemmdum, og það sem
var í frystingu var flutt í annað
frystihús.
Keflavík hf. varð fyrir miklu tjóni
vorið 1984 þegar aðalvinnsluhúsið
brann. Það var ekki endurbyggt og
dró frystihúsið mikið saman seglin,
og má búast við að við þennan
eldsvoða minnki starfsemin enn
frekar.
—efi
Morgunblaðið/Einar Falur ^
Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins eftir að rafstraumur hafði verið tekinn af húsinu. Hér
koma slökkviliðsmenn fyrir blásara til að minnka reykinn í vélarsalnum.
salinn um hálftíma áður en eldsins
Erindi um
mannerf ðafræði
Ættfræðifélagið heldur félags-
fund á Hótel Hofi í kvöid klukkan
20.30. Ólafur Jensson læknir mun
flalla um framfarir í mannerfða-
fræði.
Skemmtun
fyrir verzlunar-
skólanema
FIMMTUDAGINN 20. mars verð-
ur haldin skemmtun fyrir út-
skrifaða Verslunarskólanema.
Skemmtunin verður í Hollywood
og hefst hún klukkan 21.00 og
stendur til 2.00.
Þar verður margt til gamans
gert til þess að riíja upp hin gamla
„Versló-anda", svo dæmi sé nefnt
þá verða gamlir verslingar með
atriði sem slógu í gegn á sínum tíma
á skemmtikvöldi.
(Fréttatilkynning)
Ættgengi
brjósta-
krabbameins
í ÞRIÐJUDAGSBLADI Morgun-
blaðsins var sagt frá rannsókn-
um á ættgengi bijóstakrabba-
meins f íslenzkum konum, sem
Hrafn Tulinius læknir gerði
grein fyrir á ráðstefnu um erfða-
rannsóknir.
Mistök urðu varðandi frásögn af
niðurstöðunum. Þær niðurstöður,
sem þegar liggja fyrir sýna, að
konur, sem eiga móður og/eða
systur, sem fengið hefur sjúkdóm-
inn, eru í 2,6-falt meiri hættu að
fá bijóstakrabbamein en aðrar
konur. Og konur, sem eiga föður-
eða móðursystur sem fengið hefur
sjúkdóminn, eru í 1,7-falt meiri
hættu en aðrar konur.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
R
£
mm
Drekkum mjólk daglega
Talið er að þriðjungur kvenna yfir sextugu þjðist af
beinþynningu Afleiðingar beinþynningar geta orðið
ískyggilegar; alvarleg bœklun vegna minnstu
áfalla, því beinin verða stökk og gróa seint og illa
Mjólk í hvert mál
Aldurshópur Ráðlagður dagskammtur af kalkiímg Samsvarandi kalk- skammtur f mjólkur- glösum (2,5 dl glös)* Lágmarks- skammtur í mjólkurglösum (2,5 dl glös)**
Böm I -10 óra 800 3 2
Unglingar 11-18 óra 1200 4 3
Ungt fólk og fullorðlð 800*" 3 2
Ófrískar konur og brjóstmœður 1200*“ 4 3
• Hér er gert róð fyrlr crð allur dagskammturlnn at kalkl koml úr mjólk.
“ Að sjðlfsögðu er mögulegt að (ö allt kalk sem llkamlnn þarf úr öðtum matvœlum en mjölkurmat
en sllkt krefst nökvœmrar þekklngar ö nœtlngarfrœðl. Hér er mlðoð vlð neysluvenjur elns og
þœr tlðkast I dag hér ó landl.
” Marglr sérfrœðlngar telja nú oð kalkþörf kvenna eftlr tlðahvörf sé mun melri eða 1200-1500
mg ö dag.
Nýjustu staðlar fyrlr RDSI Bandarfkjunum gera röð fyrirl200tinó00mgödag fyrir þennan hóp.
Mjólk inniheldur meira kalk en nœr allar aðrar fœðutegundir
og auk þess B-vítamfn, A-vítamín, kalíum, magnfum, zink
og fleiri efni.
Um 99% af kalkinu notar Ifkaminn til vaxtar og við-
halds beina og tanna. Tœplega 1 % er uppleyst f
líkamsvókvum, holdvefjum og frumuhimnum,
og er það nauðsynlegt m.a. fyrir blóð-
storknun, vóðvasamdrótt, hjartastarf-
semi og taugaboð. Auk þess er kalkið
hluti af ýmsum efnaskiptahvötum.
Til þess að Ifkaminn geti nýtt kalkið
þarf hann D-vftamín, sem hann
fœr m.a. með sólböðum og úr
ýmsum fœðutegundum, t.d. lýsi.
Neysla annarra fœðutegunda en
mjólkurmatar gefur sjaldnast meira
en 300-400 mg ó dag, en það er
langt undir róðlögðum dagskammti.
Úr mjólkurmat fœst miklu meira kalk, t.d.
800 mg úr u.þ.b. þremur glösum af mjólk.
saman. Tíðni beinþynningar hjá körlum er miklu
minni en afleiðingamar ekki síður slœmar. Með að
minnsta kosti tveimur mjólkurglösum á dag má
spoma gegn kalkskortinum og vinna þannig á móti
þessum óvœgna hrömunarsjúkdómi og afleiðing-
um hans. Fyrir þennan aldurshóp er mœlt með
léttmjólk eða undanrennu fremur en fullfeitri mjólk.
* Mjólk: Nýmjólk, léttmjólk, eða undanrenna
Xws*.
j f --- i ■ -
‘ X
Helstu heimiör Bæklingunnn Kak og beinþynning eftir dr. Jón Óttar
Ragnarsson og Nulrition and Physical Fitness, 11. útg., eftir Briggs og
Calloway, Holt Ránhardt and Winston, 1984.
s
MJÓLKURDAGSNEFND
>