Morgunblaðið - 20.03.1986, Page 44

Morgunblaðið - 20.03.1986, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ1986 BÍLABORG HF Smiðshöfða 23, sími 68 12 65 Bestu kaupin eru hjá okkur! Hjá okkur fáiö þiö original pústkerfi í allar geröir MAZDA bíla. Viö veitum 20% afslátt ef keypt eru heil kerfi meö festingum. Kaupiö eingöngu EKTA MAZDA pústkerfi eins og framleiöandinn mœiir meö — þau passa í bílinn. I Gódan daginn! FLU GV OLLINN SKIL- YRÐISLAUST BURT eftirþórð E. Halldórsson Ég hef talsvert skrifað í blöð um Reykjavíkurflugvöll fyrr og síðar. Hvati þess að ég sting niður penna að þessu sinni er þó ekki það óhapp er varð á vellinum nýlega, þegar einni af vélum Flugleiða hlekktist á í flugtaki með 45 manns innan- borðs. Það slys verður rannsakað og fást væntanlega úr þeirri rann- sókn viðunandi niðurstöður. Ég hef haldið því fram, og læt ekki af þeirri skoðun minni, að Reykjavíkurflugvöll beri hiklaust að leggja niður, því fyrr því betra. Rökin fyrir því eru mörg og sterk, en ekkert virðist hagga þeirri ákvörðun „æðsta ráðsins" að starf- rækja flugvöll í miðborg Reykjavík- ur. Mig undrar stórlega, að þeir menn, sem telja sig ráðgjafa um íslensk flugmál, skuli ekki sjá hættumar sem alls taðar blasa við samfara flugstarfseminni í miðborg Reykjavíkur. Auk þess að hefja flugtak og lenda yfir miðborgina hefur á síð- ustu árum skapast geigvænleg hætta af þeirri fuglamergð sem heldur sig í og við Tjömina í Reykja- vík. Fyrir um 10—15 ámm vom aðeins ein álftahjón ámm saman á tjöminni. Nú skipta álftir mörgum tugum þama. Ég hef hvað eftir annað horft á stóra hópa af álftum koma í oddaflugi yfír Tjömina og setjastþar. Sé flugvél í flugtaki út yfír mið- borgina og rekist á slíkan fíiglahóp, eða jafnvel þó ekki væri nema einn fugl af þessari stærð og þyngd, vil ég ekki hugsa þá hugsun til enda hver afleiðingin yrði. Ég læt tækni- mennina um að svara því. Tel þeim muni verða svarafátt. Og hver vildi kalla yfír sig þá ábyrgð? Er það e.t.v. eitthva af þessu tagi sem beðið er eftir til þess að flugvöllurinn verði fjarlægður, því við stórslys mundi honum samdæg- urs vera lokað til frambúðar. Þórður E. Halldórsson. » „Eg- hef bent á örugga og traust lausn á þessu vandamáli, sem menn mikla fyrir sér, að nota Keflavíkurflugvöll til alls flugs á suðvestur- horninu.“ Mér hefur skilist að fyrir liggi stórframkvæmdir við völlinn á þessu og næstu ámm; Göng undir flugbraut í Skerjafírði, langt undir sjólínu og lenging sömu brautar út í sjó. Ný flugafgreiðsla o.fl. Þessar framkvæmdir kosta hundru millj- óna. Ég hef bent á öruggaog trausta lausn á þessu vandamáli, sem menn mikla fyrir sér, að nota Keflavíkur- flugvöll til alls flugs á suðvestur- hominu. Að leggja einteinung (monorail) frá miðborg Reykjavíkur að nýju flugstöðinni á Keflavíkur- flugvelli. Kostnaðurinn yrði ekki meiri en fyrirhugaðar framkvæmdir við Reykjavíkurflugvöll. Leiðin ekin á 15 mínútum, óháð veðri og vind- um. Afnot af Keflavíkurflugvelli um þessar mundir eru innan við 10% af því sem sá flugvöllur getur af- kastað. Þar eru öll fullkomnustu öryggistæki sem tilheyra rekstri alþjóðaflugvalla. Þar er verið að byggja nýtízku flugstöð, sem vænt- anlega mun anna sínu hlutverki um langan aldur. Tæki þau sem fyrir eru á Reykja- víkurflugvelli munu notast á völlum úti á landi, sem eru naumast í starfhæfu ástandi vegna tækja- skorts. Ég vil minna á að tvær hervélar, 4ra hreyfla af Lancaster-gerð, fór- ust við Reykjavíkurflugvöll 1943. Önnur stakkst á nefíð 10 metrum frá dyrum Stúdentagarðsins, hin stakkst á kaf í mýri, skammt frá húsi við Kaplaskjólsveg. Ég horfði á bæði þessi slys gerast og frábið mér að sjá nokkuð því líkt aftur. Öryggis í ferðamálum er leitað á öllum sviðum á landi, sjó og í lofti hjá öllum þjóðum þar sem ráðamenn bera virðingu fyrir veiferð þegna sinna. Flugvellir á íslandi eru víðast nálægt byggðakjama en vel stað- settir hvað öryggi byggðar snertir nema í sjálfum höfuðstaðnum, Reykjavík. Fólk sem ferðast flugleiðis á ís- landi fer að mestum hluta til og frá Reykjavík. Það er þess vegna mál allra landsmanna að þar sé ítr- asta öryggis gætt, en ekki teflt á tæpasta vað við notkun á flugvelli, sem engum hefði dottið í hug að setja þama nema Bretum, sem tróðu kofum sínum inn á milli húsa þar sem byggðin var þéttust. Sú var virðing fyrir velferð þegnanna í þá daga. Breytum því viðhorfi. Höfundur er eftirla unaþegi, bú- aettur í Lúxemborg. 22.4% U-BIX VERÐLÆKKUN Með nýjum samningum hefur okkur tekist að lækka verðið á U-BIX 120 um Kr. 20.100 U-BIX 120 Ijósritunarvélin er einstök í sinni röð — fjölhæf, ódýr og tekur lítið pláss. U-BIX 120 er þurrduftsvél, Ijósritar á allan venjulegan pappír og glærur, tekur allt að B4 frumrit, skilar 12 A4 Ijósritum á mínútu og fullnægir þrátt fyrir smæð sína öllum þeim kröfum sem gerðar eru til góðra Ijósritunarvéla. Þetta er lítill og snaggaralegur gæðagripur sem vakið hefur athygli og hrifningu um allan heim — og nú býðst þér þessi skemmtilega Ijósritunarvél á einstöku verði. Kynntu þér U-BIX 120 - og gerðu reyfarakaup á meðan tækifærið gefst! SKRIFSTOFUVELAR H.F. Hverfisgötu 33 - Sími 91 -20560 y

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.