Morgunblaðið - 25.05.1986, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUD AGUR 25. MAÍ1986
Þessi morgunn
eins og allir
aðrir morgnar
- segir nýkjörin fegnrðardrottning
Islands, Gígja Birgisdóttir
„ÞESSI morgunn er eins og allir aðrir morgnar — mér líður
bara aðeins öðruvísi núna,“ sagði nývöknuð 18 ára Fegurðar-
drottning íslands 1986, Gígja Birgisdóttir frá Akureyri, f
samtaii við blaðamann Morgunblaðsins í gærmorgun, en hún
var krýnd sl. föstudagskvöld.
„Ég bjóst alls ekki við að sigra
í keppninni frekar en hver önnur
— hafði reyndar ekki getað ímynd-
að mér hver okkar myndi sigra.
Það hefur skapast gott samband
á milli okkar stelpnanna, sem þátt
tókum í keppninni, og er ég viss
um að við höldum kunningskapn-
um áfram þrátt fyrir að við séum
ólíkar — þær eiga það þó allar
sameiginlegt að vera skemmtilegar
og var ég satt að segja í vandræð-
um þegar ég átti að velja vinsæl-
ustu stúlkuna. Við erum m.a. bún-
ar að stofna saumaklúbb og höfum
talað um að ferðast eitthvert
saman.“
Gígja sagðist ekki hafa farið að
sofa fyrr en klukkan að verða sex
í morgun og væri hún ennþá þreytt
í fótunum þar sem hún væri óvön
að ganga á háum skóm. „Ég hafði
líka æft mig að setjast í kjólnum
mínum, en hann var svo þröngur
að ég bjóst jafnvel við að hann
myndi rifna utan af mér þá og
þegar. Ég held ég hefði aldrei
komist í gegnum þetta án aðstoðar
þeirra Sóleyjar Jóhannsdóttur og
Kristjönu Geirsdóttur."
Gígja var kjörin Ungfrú Akur-
eyri 23. apríl sl., en hún hefur
verið nemandi verslunarbrautar
Verkmenntaskólans þar í bæ tvo
undanfama vetur og lauk hún
verslunarprófí þaðan sl. fímmtu-
dag. „Prófín gengu mjög vel þrátt
fyrir annir hjá mér. Undanfamar
helgar hef ég verið á þeytingi á
milli Reykjavíkur og Akureyrar
vegna undirbúnings fyrir fegurð-
arsamkeppnina. Mig langar mikið
til þess að taka stúdentspróf, en
væri alveg til með að hvfla mig á
skóla í eitt ár. Síðan langar mig
til útlanda í framhaldsnám í versl-
un og viðskiptum."
Gígja sagði að hún hefði gaman
af ferðalögum, en hún vissi ekki
ennþá hvaða keppni hún myndi
taka þátt í fyrir hönd íslands á
næstunni. Gígja fer heim til Akur-
eyrar i kvöld og byijar að vinna í
Iðnaðarbankanum þar á morgun,
en þar hefur hún unnið í vetur
með náminu. Foreldrar hennar, afí
og amma, móðursystir, systir og
hennar unnusti og Þröstur, unnusti
Gígju, sem starfar sem rafvirki,
komu öll frá Akureyri til þess að
vera viðstödd keppnina. „Ég hef
nú lítið séð af mínum kærasta síð-
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Gígja Birgisdóttir nývöknuð í morgunkaffi daginn eftir krýning-
una.
asta mánuðinn en þrátt fyrir það
er ég viss um að hann er ánægður
fyrir mína hönd.“
Aðspurð í gærmorgun hvemig
hún ætlaði að eyða fyrsta deginum
sem Fegurðardrottning íslands
sagðist Gígja gera ráð fyrir að
hafa samband við hinar stelpumar
þar sem talað hefði verið um þeirra
á meðal að heimsækja Hlín Hóim,
einn þátttakenda keppninnar, í
Keflavík, sem væri að útskrifast
stúdent þar. Um kvöldið ætlaði
síðan fjölskylda Gígju að koma
saman á heimili frænda hennar í
Kópavoginum, þar sem Gígja hefur
haldið til undanfarið. Þar ætla þau
að borða saman og halda upp á
sigurinn.
Könnun Hagvangs á fylgi flokkanna í þingkosningiim:
Veruleg- fylgisaukn-
ing Sjálfstæðisflokks
Alþýðubandalag, Framsóknarflokkur og Bandalag jafnaðarmanna tapa fylgi
Skoðanakönnun, sem Hag-
vangur gerði fyrir Morgun-
blaðið, leiðir í Ijós, að Sjálf-
stæðisflokkurinn fengi
43,6% atkvæða, ef efnt yrði
til alþingiskosninga á næstu
dögum. I kosningunum 1983
fékk flokkurinn 38,7% at-
kvæða og í könnun Félags-
vísindastofnunar fyrr í þess-
um mánuði 39,8%. Alþýðu-
flokkurinn og Kvennalistinn
bæta einnig við sig fylgi frá
síðustu kosningum, en njóta
þó minni stuðnings en í
könnun Félagsvísindastofn-
unar. Alþýðubandalagið,
Framsóknarflokkurinn og
Bandalag jafnaðarmanna
tapa hins vegar fylgi miðað
við kosningarnar og könnun
Félagsví sindastof nunar.
Ef aðeins er tekið mið af þeim
kjósendum, sem afstöðu tóku, ætla
15,4% að kjósa Alþýðubandalagið,
15,0% Alþýðuflokkinn, 2,9 Banda-
lag jafnaðarmanna, 14,8% Fram-
sóknarflokkinn, 7,4% Samtök um
kvennalista og 0,8% Flokk manns-
ins.
Könnun Hagvangs var fram-
kvæmd dagana 9. til 19. maí sl.
og tók til 1.000 manns, 18 ára og
eldri. Svör fengust frá 781 kjós-
anda eða 78,1% úrtaksins. Spurt
var: „Ef efnt yrði til alþingiskosn-
Alþingiskosningar
Hlutfallslegt fylgi ef eingöngu þeir sem afstöðu tóku eru
lagðir til grundvallar.
Úrsl. Mai Mars Des. Júní Maí Febr. Sept
Kosn. 1986 1986 1985 1985 1985 1985 1984
Alþýðubandal. 17,3 15,4 18,6 14,6 12,0 12,2 10,8 16,1
Alþýðufl. 11,7 15,0 11,9 16,2 16,0 21,3 20,5 7,0
Bandal. jafnaðarm. 7,3 2,9 5,3 4,3 7,7 5,4 6,0 6,2
Framsóknarfl. 18,5 14,8 15,7 13,0 11,0 11,9 9,9 14,6
Samt um Kvennal. 5,5 7,4 8,9 8,9 9,1 7,4 11,2 8,9
Sjálfst.flokkur 38,7 43,6 38,8 42,1 43,6 41,2 40,4 45,7
Fl. mannsins — 0,8 0,8 0,8 0,6 0,6 1,2 — '
Annað 1,0 - - - - 1,5
Taflan sýnir úrslit þingskosninga 1983 og niðurstöður í könnunum
Hagvangs síðan.
inga á næstu dögum, hvaða stjóm-
málaflokki eða samtökum er lík-
legast að þú myndir greiða at-
kvæði?" Ef þátttakandi var óviss,
þá var jafnframt spurt: „Hvaða
stjómmálaflokki eða samtökum er
líklegast að þú myndir greiða
atkvæði?" 29 (3,7%) ætluðu að
skila auðu, 41 (5,3%) hugðist ekki
greiða atkvæði, 144 (18,4%) svör-
uðu „veit ekki“ og 81 (10,4%)
neitaði að svara.
Þátttakendur voru einnig spurð-
ir um afstöðu sína til ríkisstjómar-
innar. 51,1% sagðist styðja sijóm-
ina, 31,1% kvaðst ekki styðja hana,
14,1% svaraði „veit ekki“ og 3,7%
neituðu að svara.
Endurmat á samstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn tímabært
- segir Þorsteinn
Olafsson
„ÞESSI ákvörðun Alberts þarf
ekki að koma á óvart miðað við
þær ákvarðanir sem hann hefur
tekið á sínum ráðherraferli til
þessa og ýmsar uppákomur sem
hann hefur staðið fyrir," sagði
Þorsteinn Ólafsson í samtaii við
Morgunblaðið er hann var spurð-
ur álits á þeirri ákvörðun Alberts
Guðmundssonar iðnaðarráð-
herra að skipa Jón Aðalstein
Jónasson í stjóm íslenska álfé-
lagsins í hans stað, þrátt fyrir
tilmæli forystu Framsóknar-
flokksins um hið gagnstæða.
„Það hlýtur að vera íhugunareftii
fyrir Framsóknarflokkinn, burtséð
frá þessu máli, hvort flokkurinn
ætti ekki fyrir löngu að vera búinn
að taka til endurmats samstarf sitt
við Sjálfstæðisflokkinn í ljósi þess
að Sjálfstæðisflokkurinn skuli kjósa
að hafa mann eins og Albert Guð-
mundsson í ríkisstjóm. Á ég þá við
til dæmis embættisfærslu hans í fjár-
málaráðuneytinu og almenna van-
hæfni hans sem komið hefur fram
í ýmsum málum sem Framsóknar-
flokkurinn ber óbeina ábyrgð á
vegna setu Alberts í ríkisstjóminni,"
sagði Þorsteinn Ólafsson að lokum.
íslenska óperan:
Sigríður Ella
heldur tónleika
SIGRÍÐUR Ella _ Magnúsdóttir
heldur tónleika í íslensku óper-
unni mánudaginn 26. maí kl.
20.30.
Á efnisskránni em 7 óperuaríur,
eftir Gluck, Mozart, Saint-Saéns og
Donizetti, þekkt íslensk lög og loks
þjóðlög í útsetningu frægra tón-
skálda. Meðleikari Sigríðar á þess-
um tónleikum er Paul Griffíths, sem
er fastráðinn undirleikari við Kon-
unglegu óperuna Covent Garden í
London.
Hann hefur leikið með mörgum
frægustu söngvurum heims, en
hann hefur undirbúið og æft með
Sigríði Ellu tvær óperur, Samson
og Dalilu og 11 Torvatore.
Á tónleikunum á mánudaginn
koma einnig fram Garðar Cortes
og Einar Jóhannesson klarínettu-
leikari. Aðgöngumiðar eru seldir í
íslensku óperunni.
Framboð-
inkynnt
í BÆJAR- og sveitarstj ómar-
kosningunum á laugardaginn
verður kosið í 23 kaupstöðum og
36 hreppum. Morgunblaðið birtir
á blaðsíðu 1—16B í dag yfirlit
yfir framboðin vegna kosning-
anna. Þar er rætt við alla efstu
menn á 114 framboðslistum í
kaupstöðum. Jafnframt eru birt
úrslit kosninga á hverjum stað
1982 og greint frá samstarfi
innan sveitarstjórna á kjörtíma-
bilinu.
í yfírlitinu er greint frá fjölda
manna á kjörskrárstoftii. Á kjör-
skrárstofnum Hagstofunnar eru
171.263; karlar eru 85.584 en
konur 85.679. Kjósendur á kjörskrá
verða nú um 20.000 fleiri en í síð-
ustu sveitarstjómarkosningum
vegna þess að kosningaaldur lækk-
ar nú í 18 árúr 20.
Kammerhljómsveit
Reykjavíkur;
Bruckner-sin-
fónían
í kvöld
KAMMERSVEIT Reykjavíkur
heldur tónleika í kvöld,
sunnudagskvöld, klukkan
20.30 í Bústaðakirkju. Stjóm-
andi er Paul Zukofsky og
verður flutt 7. sinfónía
Bruckners i útsetningu Am-
olds Schönberg. Er þetta
fyrsta sinni, sem þessi sin-
fónía verður flutt á Islandi.
Þessi sinfónía Antons
Bruckner í útsetningu Amolds
Schönberg mun ekki hafa verið
flutt á tónleikum í Vínarborg
síðan 1921, að því er hljómsveit-
arstjórinn sagði í viðtali við
Morgunblaðið. Hann sagði enn-
fremur. „Ef ástæða var til að
kynna Bruckner með þessum
hætti í Vínarborg 1921 er ekki
síður ástæða til að gera það í
Reykjavík nú.“