Morgunblaðið - 25.05.1986, Page 7

Morgunblaðið - 25.05.1986, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1986 Állar krðir á aðeins kr. 23.800,- sem opnar per ennpa Vnri leiðktilsilanan ' Þú getur sparað 10-15 þúsund krónur - og færð spennuna í kaupbæti WISSUÆVINTYRI" Nú bregðum við hressilega undir okkur betri fætinum og gerum tilraun með nýtt fyrirkomulag á sölu sólarlandaferða - og auðvitað til þess að reyna að lækka verðið enn frekar! „SL-SÓL“ er „ óvissuævintýri" - við tryggjum þér pottþétta sólarlandaferð í 3 vikur með vandaðri gistingu, íslenskri fararstjórn og fyrsta flokks aðbúnaði á allan hátt - en enginn veit hvert þú ferð fyrr en 8 dögum fyrir brottför! Leikurinn byggist á því að við veljum áfangastaðina eftir leiguflugsvél- um okkar. Þannig skjótum við „viðbótarfarþegum" inn á elleftu stundu eftir því hvar hugsanleg „göt“ hafa myndast. - Við nýtum flugvélamar betur og farþeginn nýtur afsláttarkjara sem eiga sér fáar hliðstæður. „SL-SÓL“ er eðlilegt framhald af tilraunum okkar með SL-hótel í febrúar s.l. Þá lækkuðum við verð með óvissuþáttum í gistingu og seldust slíkar ferðir upp á augabragði. Nú göngum við lengra. Veljum land, brottfarardag og gistingu og lækkum verðið hressilega. Vegna góðrar bókunarstöðu í sumar er aðeins um fáar „SL-Sólarferðir' að ræða í ár, en ef vel tekst til verður reynt að efla þennan spennandi ferðamáta verulega á næsta sumri. Grunnþættir sem ávallteru tryggiir í„Sl-SÓL"eru: Þannig læriu„Sl-SÓL": 1) Allar SL-Sólarferðir eru til Rimini, Mallorca eða Rhodos. 2) Allar ferðir eru 3ja vikna langar. 3) Brottfarardagur er, eftir því sem farþeginn velur, annað hvort innan tímabilsins 1.-15. eða 15.-30. þess mánaðar sem farþeginn kýs. 4) Gisting er ávallt miðuð við tvo saman í hótelherbergi (með morgunverði) eða tvo saman í íbúð. Ákveðin lágmarksgæði gistingar eru ávallt tryggð, hótel eru einföld, hreinleg og þægileg, staðsetning gagnvart strönd og allri þjónustu ávallt góð o.s.frv. 5) Farþegar fá að vita um alla ferðatilhögun átta dögum fyrir brottför. 6) Allar ferðir t “SL-SÓL“ kosta kr. 23.800 og innifalið er flug, gisting, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. 1. Þú hringir eða kemur, pantar ferð og gefur upp það tímabil sem þú viltferðastá. 2. Við hringjum daginn eftir og látum vita hvort við eigum „SL-SÓL" á þessu tímabili. Séu laus sæti staðfestum við móttöku pöntunar. 3. Þú kemur og borgar inn á ferðina. 4. 8 dögum fyrir brottför hringjum við með upplýsingar um hvert þú ferð, hvaða dag, í hvaða gistingu o.s.frv. 5. Þú ferð í ódýra „SL-SÓL“ og hrósar happi! Samvinnuferdir - Landsýn Austurstræti 12 • Símar91 -27077 & 91 -28899 Hótel Sögu við Hagatorg • 91-622277 Akureyri: Skipagötu 18 • 96-21400

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.