Morgunblaðið - 25.05.1986, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 25.05.1986, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ1986 Davíð Oddsson borgarstjóri svarar spurningum lesenda um borgarmál LESENDAÞJONUSTA MORGUNBLAÐSINS Davíð Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík og efsti maður á framboðslista sjálfstæðisfólks í borgarstjórnarkosningum, sem fram fara 31. maí næstkom- andi, svarar spurningum í Morgunblaðinu um borgarmál í tilefni kosninganna. Lesendur Morgunblaðsins geta hringt til ritstjórnar blaðsins í síma 10100 á milli kl. 11 og 12 árdegis, frá mánudegi til föstudags, og lagt spurningar fyrir borgarstjóra, sem blaðið kemur á framfæri við hann. Svörin birtast síðan í þættinum Spurt og svarað um borgarmál. Einnig má senda spurningar í bréfi til blaðsins. Utan á bréf skal rita: Spurt og svarað um borgarmál, rit- stjórn Morgunblaðsins, pósthólf 1555, 121 Reykjavík. Nauðsynlegt er, að nafn og heimilisfang spyrjenda komi fram. „Borgarleikhús ris af grunni í nýjum miðbæ, sem hefur verið að taka á sig endanlega mynd þar sem fyrir fáum árum var óbyggt land. í þetta hús eiga Reykvíkingar og íbúar á höfuðborgarsvæð- inu eftir að sækja marga ánægjustund. Austurbæjarskólinn Baldur Pálmason, Egilsgötu 14, spyr: Austurbæjarskólinn, sú reisulega bygging, setur svip á svæðið innan við Skólavörðu- holtið. Er ekki hægt að lýsa þessa byggingu upp, þ.e. mála hana og gera henni eitthvað til góða? Svar: Taka verður undir það sjónar- mið bréfritara að Austurbæjar- skólinn sé reisuleg en drungaleg bygging. Ég fyrir mitt leyti mun láta athuga það hvort tiltækt sé að mála hana, þótt ljóst sé að málun hússins muni kosta veru- lega peninga og vera nokkuð aftarlega í röð biýnustu fram- kvæmda í skólamálum í Reykja- vík. Asparfell — VölvufeU Alice B. Arnadóttir, Asparfelli 42, spyr: „Á milli Asparfells og Völvu- fells er svæði sem ekkert hefur verið lagað eða prýtt i þau 14 ár sem ég hef búið hér. Skapar það afar leiðinlegan blæ á umhverfið, að ég tali nú ekki um rykið sem af því skapast. Hvað hefur borgarstjóri hugsað sér að gera við þetta svæði?“ Svar: „Borgarskipulag er að vinna að endurskipulagi þessa svæðis. Þegar þeir uppdrættir liggja fyrir verða teknar ákvarðanir um byij- unarframkvæmdir, sem gætu þá orðið síðar á þessu ári. Jafnframt eru nú til umfjöllunar tillögur um endurbætur á gönguleiðum á þessum stað.“ Gangstígar í Fossvogi Marinó L. Stefánsson, Brautarlandi 19, spyr: „Er ekki hægt að ljúka hellu- lagningu gangstíga milli gatna og húsa í Fossvogi, sem átti að gerast fyrir löngu?“ „Hveijir eiga að ganga frá stígunum, sem eftir er að hellu- leggja, er það Reykjavikurborg eða íbúamir sjálfir?" Ófrá- gengnir stígar em við Brúna- land milli nr. 10 og 12, 20 og 22, 30 og 32. Einnig er eftir að helluleggja langan stíg milli blokkanna við Efstaland nr. 12 og 14 og nr. 18 og 20. Ef íbúarnir eiga að sjá um hellulagningu stíganna hver hjá sér en fást ekki til að gera það, getur þá ekki borgin séð um verkið og innheimt síðan kostnaðinn hjá þeim sem unnið var fyrir?“ Svar: „Allir aðalgangstígar í Foss- vogi eru fullfrágengnir nema í dalbotninum sjálfum. Flestir aðrir gangstígar eru inn á lóðum og eiga húseigendur að kosta gerð þeirra samkvæmt þeim skilmálum sem á sínum tíma voru settir í þessu hverfi. Borgin hefur oft séð um framkvæmd við gangstíga eða útvegað verktaka ef húseigendur hafa gengið í ábyrgð fyrir greiðslu kostnaðar. Best er þó að húseig- endur semji beint við verktaka. Skipulagi er þannig háttað að húseigendur í hverri götu fyrir sig verða að ná samstöðu um fram- kvæmdir og hafa þær á einstaka stað tafist lengi eins og bréfritari nefnir. Nýlega voru íbúar í einni af götum hverfisins á ferðinni og hyggjast nú ljúka frágangi á sín- um lóðum. Ekki mun standa á því að starfsmenn gatnamála- stjóra veiti samskonar fyrir- greiðslu og aðstoð og hingað til hefur verið veitt þ.m.t. lán vegna úttektar á efni til framkvæmd- anna. Er það von mín að nú komi að því að húseigendur ljúki þess- um frágangsverkum sínum, svo ekki komi til þess að borgin þurfi að taka fram fyrir hendur þeirra. Það mun vera heimilt, en er mjög hvimleitt og vona ég að ekki þurfí að grípa til þess.“ Alþýðubandalagið og skipulagsmálin Ellen Sætre, Suðurgötu 24, spyr: „Er búið að samþykkja að byggja ofan á Hótel Holt? Hafa komið fram mótmæli gegn þessari stækkun og þá hversu víðtæk? Ef húsið verður stækk- að mun það spilla svip þessa hverfis. Hótelið mun gnæfa yfir umhverfið og frá mið- bænum séð munu móttöku- skermur og stafimir Hótel Holt bera við himin.“ Svar: „Hér hlýtur að vera um mis- skilning að ræða. Hjá borgaryfir- völdum er ekkert mál á dagskrá varðandi Hótel Holt og hefur ekki verið á þessu kjörtímabili." Spuming: „Það hafa þegar átt sér stað tvenn megin mistök f mið- bænum, með byggingu Morg- unblaðshússins og Iðnaðar- bankahússins. Þarf að miða hæðna á húsunum í nýja skipu- laginu við þessi tvö slys?“ Svar: „Hæð þeirra tveggja húsa sem nefnd eru, ákvarðar ekki húsahæð í miðbænum." Spurning: „Hversu mikil em áhrif hinna óbreyttu borgara í skipu- lagsmálum?“ Svar: „Um skipulagsmál gitdir hið sama og aðra málaflokka. Áhrif „óbreyttra borgara" koma einkum fram í almennum kosningum, sem nú er skammt að bíða. Aðalskipu- lag er auglýst sérstaklega og kynnt almenningi, sem fær sex vikur til að gera athugasemdir. Aðrar skipulagshugmyndir eru oft kynntar og ræddar við þá sem hafa hagsmuna að gæta.“ Spuming: „Getur borgarstjóri t.d. hugsað sér að leyfa almenna atkvæðagreiðslu um nýja mið- bæjarskipulagið og fara eftir úrslitum hennar?" Svar: „Nei. Skipulag í borg er alltof flókið til þess að nokkur leið sé að ákveða það í almennum kosn- ingum." Spurning: „Gerir borgarstjórinn sér ljóst að margt fólk virðist treysta Alþýðubandalaginu betur en Sjálfstæðisflokknum til að varðveita gömlu húsin i miðbænum? Svar: „Nei.“ STÚDENTA- STJARNAN I4karata gull hálsmen eða prjónn Jón Sigmundsson, skartgripaverslun hf., Laugavegi 5, sími 13383. ER BÍLLINN f LAGI Originai japanskir varahlutir í flesta japanska bíla. BÍLVANGUR 5F HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300 Þú svalar lestrarþörf dagsins á^sídum Moggans! A
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.