Morgunblaðið - 25.05.1986, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1986
39
Z3T
Sá klóki Oscar Wilde sagði
einhvem tíma: „Ég vel kunningj-
ana eftir skaplyndi þeirra og
andstæðinga mína eftir hyggind-
um þeirra. Maður getur aldrei
farið nógu varlega í að velja sér
andstæðinga." Hyggindi and-
stæðinga ríkjandi sjálfstæðis-
meirihluta blasa við þegar horft
er til yfirstandandi kosningabar-
áttu í Reykjavík — hvort sem þau
koma nú í haginn. Virðast hafa
valið sér þá vígstöðu að beina
öllum spjótunum að einu skot-
marki — kannski ekki fleiri í sjón-
máli. Skotmarkið eina er persóna
borgarstjórans, Davíðs Oddsson-
ar. Skotin líka vandlega valin.
Maðurinn er svo duglegur að ekki
nær nokkurri átt. Hann afgreiðir
bara málin, lætur þau ekki danka.
Svo er borgarstjóri alltaf fús til
að mæta þegar óskað er, þar sem
félög, stofnanir eða hópar eru að
fagna einhveijum tímamótum í
starfsemi sinni eða ná áfanga.
Borgarstjórinn bara mættur á
sýningar í öllum bamaskólunum,
á völlinn til að fagna sigri með
„drengjunum okkar", hvar sem
glaðst er yfir opnun dagheimilis,
bókasafns eða heilsugæslustöðv-
ar, eða þar sem trjáræktarfólk
hefur nýtt átak. Afsakar sig ekki
einu sinni þótt þetta beri upp á
frídag, ef nærveru hans er óskað.
Svo gefur maðurinn sér ekki einu
sinni tima til að fara í almennilegt
sumarfrí, ekki nema eitt sumarfrí
á fjögurra ára kjörtímabili. Er
ekki svona borgarstjori alveg
óbrúklegur? Af hveiju á að vera
að kjósa mann, sem alltaf er að
gera eitthvað í borginni?
Þama er líka bara einn maður
á toppnum. Eins og það nái nokk-
urri átt. Menn vita hvert þeir eiga
að snúa sér. Og hann vísar ekki
annað. Afgreiðir meira að segja
vísast málaleitanina. Ætli það
væri ekki munur að fá aftur
„borgarstjórana sjö“ frá síðasta
kjörtímabili með valdalausan
embættismann í borgarstjórasæt-
inu, sem þurfti að sækja svör við
öllum fyrirspumum og beiðnum
um úrlausn til hausanna ijögurra,
eins úr hveijum flokki. Þeir allir
að samræma mismunandi viðhorf
og hver svo að leita í sinn bak-
flokk, borgarfulltrúaflokka (ef þar
vom fleiri en einn í hóp eða tveir
í strollu) og/eða áfram í málefna-
nefndir hvers aðila og svo aftur
til baka. Allir önnum kafnir við
að finna meðalákvörðunina. Enda
var lqortímabilið búið áður en sum
svörin vom komin í gegn og úr-
lausnimar á framkvæmdastig.
Af einhveijum dularfullum
ástæðum skýtur upp í hugann,
þegar árin 1978—82 í borgar-
stjóm em ri§uð upp, sögunni um
ónefndan mann, sem hér á ámm
áður kom í eitt sendiráða okkar
þar sem ekki kom mikið frá sendi-
herra og sendiráðsritara. Sem
hann sat þama rifjaðist upp fyrir
gestinum upphafið að kennsiu-
texta í ensku, til þess gerður að
kynna sagnir í nútíð. Sá hljómaði
eitthvað á þessa leið:
What are you doing, James?
Iamdoingnothing.
What are you doing, Harry?
IamhelpingJames.
fylkingunni á þeim vettvangi allar
götur ffarn til 1982 og þykist
.því hafa obbolitla reynsluþekk-
ingu á málinu. Fann raunar aldrei
þetta ráðríki sem nú berst til fólks
úti í bæ frá kosningaskrifstofum
andstæðinga borgarstjórans. Hefi
raunar ekki komið auga á þennan
yfírgang enn, meðan ég undan-
farin 4 ár hefi verið í forsvari
fyrir 3 nefndir borgarinnar, án
þess að vera í borgarstjóm og
því átt með málin að leita til
/ * r jr
Ekki svo að skilja að hópur-
inn sem kemur sér saman um
ákvarðanir í borgarmálum sé
nokkuð minni í þessum eina flokki
í borginni, Sjálfstæðisflokknum,
en í hinum til samans. En þar er
bara flogið í oddaflugi, sem skap-
arinn sá endur fyrir löngu að
væri býsna góð aðferð til að
komast áfram í mótvindi. Hópur-
inn velur einn, sem fer í farar-
broddi og sem brotnar á, en raðar
sér að baki honum. Þann hátt tóku
borgarfulltrúar sjálfstæðismanna
í Reykjavík upp fyrir löngu. Að-
ferðin var þar í fullu gildi þegar
skrifari þessa pistils kom fyrst að
borgarstjómarmálum á árinu
1970, einmitt um leið og nefndur
Davið Oddsson kom þar líka sem
nýliði. Vann með honum í breið-
kynningar, samþykkis eða symjun-
ar til borgarstjórans beint. En
afskaplega er þá gott að fá strax
svör og viðbrögð, eftir að hafa
sett fram staðreyndir og rök —
því hann hlustar nefnilega, sem
ekki er öllum jafn vel gefið.
En allir borgarfulltrúamir og
varaborgarfulltrúamir hittast á
hveijum miðvikudegi, þar sem
borgarstjóri og aðrir forsvars-
menn málaflokka koma með sín
mál, sem liggja fyrir eða eru í
gangi. Og þama í yfir 20 manna
hópi er fyrir hendi býsna víðtæk
þekking og sjónarmið úr ýmsum
áttum sem geta komið fram í
umræður (verða væntanlega
16—18 eftir að borgarfulltrúum
hefur aftur verið fækkað). Og
þama geta allir hinir kjömu full-
trúar talað sig saman um niður-
stöðuna, t.d. fyrir endanlega
ákvarðanatöku á borgarstjómar-
fundum, sem em tvo fimmtudaga
í mánuði. Oddviti hópsins, borgar-
stjórinn, veit alltaf að þama getur
hann gengið að öllum hópnum
vísum til að kynna mál og bera ' f
undir þau mál sem taka þarf
sameiginlega afstöðu til. Og hann
veit líka að þessi samhenti hópur
stendur að baki honum ef nauð-
synlegt hefur reynst að taka
skyndiákvarðanir. Fer eflaust líka
nokkuð nærri um viðhorf ein-
stakra borgarfulltrúa til málanna
eftir svo miklar umræður og kynni
í mörg ár. Ég held að þetta sé
býsna góð vinnuregla og áhrifrík,
þótt oddamaðurinn og fram-
kvæmdastjórinn verði mest áber-
andi og aðrir kannski minna. f
Reyndist það þar sem ég þekki
til undir stjóm Geirs Hallgríms-
sonar, Birgis ísleifs Gunnarssonar
og Davíðs Oddssonar. Og ég hefi
það fyrir satt að þessi háttur, að
fljúga svo oddaflug eftir að ijóst
er hvert ferðinni er heitið, gefist
miklu betur en að reyna að kljúfa
loftið í breiðfylkingu með engan
í broddi fylkingar.
Þá er ekki ónýtt að hafa í fylk-
ingarbijósti mann eins og Davíð
Oddsson, sem ekkert víkur sér
undan, en hefur kjark til að taka
ákvarðanir og halda í mótvindinn,
þar sem hópurinn hans telur þörf
á að sjá lengra ffarn í tímann en
almennt gerist , eins og með
kaupin á Olfusvatni til að tryggja
heitt vatn í borgina eða að bregð-
ast við vondum horfum, sem em
að tína togarana af útgerðum
annarra bæja með því að sameina
útgerðarfyrirtækin og minnka
yfirbygginuna í tíma — jafnvel
þegar kosningar með tilheyrandi
spjótalögum eru í nánd. Því eins
og Piet Hein segir (í þýðingu
Auðuns Braga):
Sújátningersönnogsemviðmetum -
og sýnir mér lærdóm greitt;
Það er ótrúlegt hvað við ekki getum
ef við reynum ekki neitt
REYKJAVÍKURLEIKAR
íknattspyrnu á
Laugardalsvelli í dag
og 2/. og 29. maí
Forsala
25. maí kl. 17.00 ísland — írland
27. maí kl. 19.00 írland—Tékkóslóvakía
29. maí kl. 19.00 ísland—Tékkóslóvakía
aðgöngumiða á Laugardalsvelli í
dag frá kl. 10.00 f.h., þriðjudaginn
27. og fimmtudaginn 29 maí frá kl.
12.00 á sama stað.
Flugleiðir bjóða sérfargjöld á landsleikinn
LEIGUFLUG
Ssremrþóroddsson
Fiskbúðin
Sæbjörg
2ipemn*ítofeari
GRENSÁSVEOI 4R
SÍMI 81618
BAKARf — KONDITORI — KAFFI
ETVT K0RT ALIS S1AÐAR
V