Morgunblaðið - 25.05.1986, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ1986
IÞINGHLEI
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Ríkisbúskapurinn:
Útgjöld um-
framteldiir
Þingmenn — ríkisbúskapur
Embættismenn ríkisins setja að sjálfsögðu sitt mark á ríkis-
búskapinn. Pólitísk ábyrgð á rikisbúskapnum, ákvörðunarvald í
skattheimtu og fjárveitingum (fjárlagagerð), er hinsvegar í hönd-
um þjóðkjörinna þingmanna. Hér má líta þrjá þeirra: Albert
Guðmundsson, Salome Þorkelsdóttur og Guðmund J. Guðmunds-
son. Myndin er tekin við þinglausnir í vor.
Þrennt er það sem ris upp úr
málflutningi stjórnmálamanna
á síðustu starfsdögum Alþingis
er varðar ríkisfjármál. í fyrsta
lagi meint skattsvik, sem virð-
ast umfangsmikil hér sem í
grannríkjum. í annan stað hve
skatttekjur ríkissjóðs hafa
minnkað mikið vegna margvís-
legra skattalækkana. Og í
þriðja lagi að líkur standa til
að ríkissjóður verði rekinn með
verulegum halla í ár, eða um
1.500 m.kr., samkvæmt spá
Þjóðhagsstofnunar í síðasta
mánuði.
IJmfang skattsvika
í nóvember 1984 skipaði Albert
Guðmundsson, þáverandi §ár-
málaráðherra, starfshóp, sem
fékk þau fyrirmæli að vinna úttekt
á umfangi skattsvika á íslandi.
Formaður nefndarinnar var Þröst-
ur Ólafsson, hagfræðingur.
Þorsteinn Pálsson, fjármála-
ráðherra, lagði síðan skýrslu um
störf þessarar „skattsvikanefnd-
ar“ fýrir Alþingi skömmu fyrir
þinglausnir í vor.
Skattsvik eru hvorki ný af nál-
inni hér landi né umfangsmeiri
en í grannríkjum. Þau eru hins-
vegar alvarlegt innanmein í þjóð-
arbúskap okkar. Furðu gegnir að
úttekt af því tagi, sem hér að
framan greinir, hafi ekki fyrr
verið unnin með þeim hætti sem
gert er nú í fjármálaráðherratíð
Alberts Guðmundssonar og Þor-
steins Pálssonar.
Þær ályktanir má draga af
skattsvikaskýrslunni, sem lögð
var fyrir Alþingi í vor, að „svört
atvinnustarfsemi" hafi velt um
eða yfir sex milljörðum króna á
síðastliðnu ári. Þetta þýðir, ef rétt
er ályktað, að tap hins opinbera,
ríkis og sveitarfélaga, bæði í bein-
um sköttum og söluskatti, kann
að hafa verið um 2,5 milljarðar
króna.
Skattsvik eru ekkert sérís-
lenzkt fyrirbæri. í skýrslu þeirri,
sem hér er vitnað til, segir að
„dulið hagkerfi“ svari til 4% til
5% af landsframleiðslu í Noregi
og 4% til 7% í Svíþjóð. í tilvitnaðri
skýrslu er „svört“ starfsemi hér
á landi talin svara til 5% til 7%
af landsframleiðslu.
Orsakir skattsvika eru m.a.
hátt skatthlutfall, flókið skatt-
kerfí, margar frádráttar- og*und-
anþáguleiðir o.fl.
Það skattkerfi verður að vísu
seint fundið er útilokar skattsvik
að fullu. Hinsvegar er meira en
tímabært að hefjast handa gegn
skattsvikum, sem nú viðgangast,
og stríða gegn almennri réttlætis-
vitund, enda skapa þau verulegt
misrétti í þjóðfélaginu.
Umskipti í
skattamálum
Veruleg umskipti hafa orðið í
skattamálum undanfarið. Um það
efni sagði Þorsteinn Pálsson, §ár-
málaráðherra, í þingræðu:
„I tíð núverandi ríkisstjómar
hafa beinir skattar verið lækkaðir
um 1,4 milljarða króna, sem er
um það bil helmingur af nettó-
tekjuskatti einstaklinga. Skatt-
byrði einstaklinga til ríkisins
vegna beina skatta hefur lækkað
um því sem næst Qórðung frá
árinu 1982. Ýmsir óbeinir skattar
og tollar hafa stórlækkað, launa-
skattur verið afnuminn i fisk-
vinnslu og iðnaði, verðjöfnunar-
gjald á raforku afnumið. Samtals
hafa skatttekjur ríkissjóð verið
minnkaðar um rúmlega 3.200
m.kr. á tíma þessarar ríkisstjóm-
ar . . .“
Heildarskattheimta ríkisins
hefur lækkað sam hlutfall af þjóð-
artekjum næstliðin ár. Hlutfall
skatta í heild af vergri lands-
framleiðslu var 34,1% 1982 en
33,1% 1984.
Rekstrarhalli
ríkissjóðs
„Fram hjá því verður hins ekki
litið að þessar umfangsmiklu
skattalækkanir og aukin §ár-
framlög til að mynda til húsnæðis-
mála hafa valdið hallarekstri á
rikissjóði," sagði fjármálaráð-
herra. „Það verður mikið verkefni
á næsta ári að brúa það bil.“
Samkvæmt spám Þjóðhags-
stofnunar, sem settar vóm fram
í sl. mánuði, gerir stofnunin ráð
fyrir að „rekstrarhalli ríkissjóðs á
þessu ári geti numið að minnsta
kosti 1.500 m.kr. eða rúmlega 1%
af landsframleiðslu" (Mbl. 23/4/
86). Stefnt mun að því að fjár-
magna fyrirsjáanlegan ríkissjóðs-
halla 1986 með skuldabréfakaup-
um viðskiptabanka og sparisjóða
sem og lánum frá Seðlabanka, en
ekki erlendum lánum sem stund-
um áður.
Fjármálaráðherra sagði og
efnislega, að til stæði að stokka
upp tekjuöflunarkerfí ríkissjóðs,
„byggja hér upp nýtt tekjuöflun-
arkerfí, bæði beinna og óbeinna
skatta", m.a. til að fyrirbygga
betur skattsvik, hér eftir en hing-
að til.
Jöfnuður í ríkisbú-
skapnum
Ríkissjóð er hægt að reka með
halla tímabundið, ef það þjónar
öðmm markmiðum í efnahags-
málum þjóðarinnar. Það gildir
hinsvegar hjá ríki sem einstakl-
ingum, að eyðsla umfram telqur
þýðir skuldasöfnun. Það er verið
að velta vandanum yfir á framtíð-
ina. Og vaxtakostnaður segir til
sín í ríkisbúskapnum eins og
öðram búskap okkar.
Ríkisstjómin hefur því spomað
gegn vexti í ríkisútgjöldum, sem
verið hafa mikil síðastliðin all-
mörg ár, án þess þó að draga að
marki úr þeirri þjónustu, er borg-
aramir gera kröfu til. Aðhald
stjómvalda hefur leitt til þess að
íjármunir (skattfé) hefur nýzt
betur. Það gleymist hinsvegar
stundum að kröfur á hendur ríkis-
valdinu, sem kosta fjármuni, em
undantekningarlítið kröfur um
aukna skattheimtu í einni eða
annarri mynd.
Hallalaus ríkisbúskapur er, til
Iengri tíma litið, hluti af því jafn-
vægi og þeim stöðugleika í efna-
hagslífi okkar, sem allir vilja
stefna að, í orði að minnsta kosti.
Það er því mjög mikilvægt að ná
jöfnuði í ríkisbúskapnum, helzt
með spamaði, aðhaldi í ríkisút-
gjöldum, ella með almennri skatt-
heimtu eða gjaldi fyrir þjónustu.
Morgunblaðið fjallaði um þessi
mál í forystugrein nýlega. Þar
segir m.a.:
„Stærð skattstofna skiptir ekki
síður máli fyrir ríkissjóðstekjur
en skattstigamir sjálfir, raunar
meira máli. Skattastefna næstu
framtíðar þarf að taka mið af
tvennu, öðm fremur:
I fyreta lagi að umsvif í at-
vinnustarfsemi nái að vaxa og
stækka skattstofna.
í annan stað að eyða hvötum
til skattsvika, m.a. með hóflegri
skattstigum, svo almennar tekj-
ur og umsvif skili sér betur til
skatts.“
Ofsköttun dregur úr vinnu-
framlagi og verðmætasköpun í
þjóðarbúskapnum, það er rýrir
skattstofnana, til lengri tíma
litið, og tekjumöguleika ríkis
og sveitarfélaga. Giftudrýgra
er því að stuðla að stækkun
skattstofna en hækkun skatt-
stiga. Annað mál er að sporna
verður gegn skattsvikum með
öllum tUtækum ráðum.
:shannon:
: datastor :
Allt á sínum staö
með :shannon:
idatastor:
:datastor:
skjalaskáp
Ef einhver sérstök vörzluvandamál þarf aö Ieysa biöjum viö
viökomandi góðfúslega aö hafa samband viö okkur sem
allra fyrst og munum viö fúslega sýna fram á hvernig
skjalaskápur hefur ,,a111 á sínum staö
Útsölustaðir:
REYKJAVlK. Penninn Hallarmúla. KEFLAVÍK. Bókabúö Keflav/kur AKRANES. Bókaversl., Andrés
Níelsson HF ÍSAFJÖRÐUR. Bókaverslun Jónasar Tómássonar AKUREYRI Bókaval. bóka- og
ritfangaverslun. HÚSAVÍK. Bókaverslun Þórarms Stefánssonar ESKIFJÖRÐUR. Elis Guönason.
verslun. VESTMANNAEYJAR, Bókabúöin EGILSSTAÐIR, Bókabúöin Hlöðum
«Sa ^ kj. U'f.
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
Flymo L47 svifnökkvinn:
Hljóðlátasta siáttuvélin á
markaðnum
Nýi Flymo L47 bensínnökkvinn
m/tvígengisvélina er bylting.
Hann er:
• Hljóðeinangraður.
• Hraðvirkur.
• Fisléttur.
• Viðhaldsfríasta atvinnusláttu-
vélin fyrir stærri grasfleti,
200 m2- 1000 m2.
• Auðvelt að leggja saman og
hengja upp á vegg eftir
notkun.
• Með stjórnbúnað í
handfanginu.
• Verð ó L 38
kr. 21.450,-
Verð á L 47 kr. 25.2007
Flymo
Slátiuvéla
markaðurinn
Smiðjuvegur30 E-gata,
Kópavogur Simi 77066
y
Frá Austur-Þýzkalandi skrifa
Eva-María og Hans Joachim
Aehle. Þau geta ekki aldurs en
áhugamálin em frímerkja- og póst-
kortasöfnun, ferðalög, íþróttir, tón-
list, bækur, náttúra og garðrækt.
Þau skrifa á ensku, þýzku og
spænsku:
DDR/GDR 7010 Leipzig,
Markt 10A,
DDR-GDR.
Sautján ára vestur-þýzk stúlka
með margvísleg áhugamál:
Anja Flaig,
Schlusselwiesen 35,
7000 Stuttgart 1,
W-Germany.
Sautján ára stúlka í Belize í
Mið-Ameríku vill skrifast á við
17-20 ára íslendinga, einkum pilta:
Rubena Allen,
P.O.Box 1032,
Belize City,
Belize.