Morgunblaðið - 25.05.1986, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1986
53
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
jt
Utkeyrsla — akstur
Við leitum að liðtækum starfskrafti fyrir einn
af viðskiptavinum okkar. Hér um að ræða starf
við útkeyrslu og ýmsar útréttingar. Viðkomandi
þarf að hafa bílpróf og geta hafið störf sem
fyrst. Starfið er fjölþætt og krefst mikillar út-
sjónarsemi.
Ráðningartími er 2-3 mánuðir en starfið gæti
hugsanlega orðið framtíðarstarf. Krafist er
algjörrar reglusemi og góðrar mætingar.
Þeir sem hafa áhuga sendi inn skriflegar
umsóknir til Ráðgarðs fyrir 28. maí 1986.
Upplýsingar gefur Hilmar Viktorsson í síma
(91) 686688 eftir kl. 14.00 næstu daga. Farið
verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
RÁÐCÆÐUR
STJÓRNUNAROG REKSTRARRÁEXJJÖF
Nóatúni 17,105 Reykjavík.
Heimilisaðstoð
hlutastörf
Heimilisaðstoð óskast hjá 3 fjölskyldum í
Reykjavík.
Sameina má störfin þannig að sami starfs-
maðurinn ynni 20 klst. á viku, 4 klst. á dag,
frá 8-12 eða 9-13. Einnig kemur til greina
að ráða fleiri en einn starfsmann og fækka
vinnudögum hlutfallslega.
Störfin eru almenn heimilisstörf, ræstingar
og frágangur á þvotti. Barnagæsla er undan-
skilin.
Umsóknarfrestur er til og með 28. maí nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Skólavördustig la — 101 Reykjavik - Simi 621355
Skrifstofufólk
hálfsdagsstörf
Óskum eftir að ráða nú þegar starfsmann
hjá eftirtöldum fyrirtækjum og stofnunum:
A. Smásölufyrirtæki á Ártúnshöfða. Starfið
felst í innslætti bókhaldsgagna í IBM PC
XT tölvu ásamt öðrum tilfallandi skrif-
stofustörfum. Vinnutími er samkomulag.
B. Þjónustufyrirtæki miðsvæðis í Reykjavík.
Starfið felst í vélritun, skjalavistun og
símavörslu. Vinnutími er eftir hádegi.
C. Verktakafyrirtæki á Ártúnshöfða. Starfið
felst í öllum almennum skrifstofustörfum.
Æskileg reynsla af tölvunotkun. Unnið
er annað daginn fyrir hádegi og hinn
daginn eftir hádegi.
D. Verkfræðistofu í Kópavogi. Starfið felst
í vélritun, færslu viðskiptamannabók-
halds, nótuútskrift og öðrum almennum
skrifstofustörfum. Æskileg er góð
ensku- og dönskukunnátta. Vinnutími er
samkomulag.
Umsóknarfrestur ertil og með 28. maí 1986.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf. Hf
Skólavörðustlg la - 101 Reykjavik - Simi 621355
Hárgreiðslu- eða
rakarasveinn
Hárgreiðslu- eða rakarasveinn óskast í hluta
starf.
Upplýsingar í síma 72440, eða á Hárgreiðslu-
og rakarastofunni í Galtará, Hraunbergi 4.
Afleysingar við
tölvubókhald
Óskum eftir að ráða nú þegar tvo starfsmenn
til tímabundinna starfa við færslu bókhalds-
gagna ítölvu.
Annar vegar er um ræða innslátt í IBM 36
tölvu (Alvísbókhaldskerfið) en hins vegar á
SAGE 4 (BOS-bókhaldskerfið).
Skilyrði er að umsækjendur hafi reynslu af
viðkomandi bókhaldskerfum.
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 1986.
Umsóknareyðublöð og nánari uppl. á skrif-
stofunni frá kl. 9-15.
Skólavörðustig la - 101 Reykjavik - Simi 621355
Teiknari/sölumaður
Prentsmiðja óskar eftir að ráða teiknara, vanan
grafískri hönnun.
Umsóknirsendistaugld. Mbl. merktar:
„Teiknari/sölumaður — 5625“. Trúnaði heitið.
Helgarvinna
Afgreiðslustúlkur óskast til vinnu aðra hverja
helgi.
Umsækjendur mæti hjá Brauð hf. Skeifunni
11 milli kl. 12.00-14.00 mánudag.
Álfheimabakarí,
Hagamel og Álfheimum.
Sjúkraliðar
Sjúkrahús Vestmannaeyja vill ráða sjúkraliða
í fastar stöður og til sumarafleysinga í júlí
og ágúst. Upplýsingar gefur hjúkrunarfor-
stjóri í síma 98-1955.
Sjúkrahús Vestmannaeyja.
Verkamenn
Óskum að ráða verkamenn með vinnuvéla-
próf. Framtíðarstarf.
Umsóknir sendist augld. Mbl. merktar:
„Verkamenn — 1743“ fyrir 10. júlí 1986.
Matreiðslumaður
Óskum eftir að ráða matreiðslumann.
Upplýsingar veitir hótelstjóri eða yfirmat-
reiðslumaður í síma 96-22200.
Hótel KEA, Akureyri.
Yfirþjónn
Fyrirtækið er veitingastaður úti á landi.
Starfið felst í ráðningu starfsfólks, skipulagn-
ingu vinnutíma, almennri verkstjórn, móttöku
borðapantana og gesta, umsjón og eftirliti með
birgðum og húsbúnaði ásamt samsetningu
matseðla í samráði við matreiðslumeistara.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi sé sjálf-
stæður og áræðinn. Eingöngu er leitað að
menntuðum framreiðslumanni á aldrinum
25-40 ára með haldgóða starfsreynslu.
Vinnutími er 40-50 klst. á viku. í boði eru
góð laun fyrir hæfan starfsmann.
Umsóknarfrestur er til og með 28 nk.
Umsóknareyðublöð og nánari uppl. á skrif-
stofunni frá kl. 9-15.
Skólavörðustig 1a - 101 Reykjavik - Simi 621355
B0RGARSP1TALINN
LAUSAR STÚDUR
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á
skurðdeild Borgarspítalans, deild A-3, A-4
og A-5.
Lausar eru stöður svæfingahjúkrunarfræð-
inga á svæfingadeild spítalans. Sérnám í
svæfingahjúkrun er skilyrði.
Sjúkraliðar
Laus staða sjúkraliða á skurðlækningadeild
A-5.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri skurðdeilda í síma
681200-201.
Hjúkrunarfræðingar
Vegna breyttrar og aukinnar starfsemi á
Fæðingaheimili Reykjavíkur vantar hjúkr-
unarfræðinga á handlækningadeild frá 1.
september. Hlutastarf kemur til greina.
Upplýsingar gefur Sigríður Lister í síma
26571.
Fóstrur — starfsfólk
Fóstrur og starfsfólk óskast til starfa á nýtt
barnaheimili Borgarspítalans. Ráðgert er að
barnaheimilið taki til starfa í byrjun ágúst-
mánaðar.
Nánari upplýsingar gefa aðstoðarfram-
kvæmdastjóri og skrifstofustjóri Borgarspít-
alans í síma 681200.
Reykjavík25. maí 1986.
BORGARSPÍTAUNN
Q681200
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á Háls-,
nef- og eyrnadeild Borgarspítalans frá 20.
júlí 1986 að telja.
Háls-, nef- og eyrnadeildin A-4 hefur verið
rekin sem sérstök legudeild frá 1. október
1985.
Þetta er lífleg og skemmtileg deild með rými
fyrir 13 sjúklinga. Allar upplýsingar gefur
hjúkrunarframkvæmdastjóri skurðdeilda
Borgarspítalans sími 681200-201.
Reykjavík 25. maí 1986.
BORGARSPÍTALINN
Q 681200
Fálkaborg
Fóstrur og starfsfólk vantar frá og með 5.
ágúst eða 1. september.
Upplýsingar gefa forstöðumenn í síma
78230.
Tískuhúsið ína
Okkur vantar vana stúlku til sauma á herra-
og dömufatnaði. Uppl. á staðnum Hafnar-
stræti 16, mánudag og þriðjudag milli kl.
16.00 og 18.00.
Fiskeldi
Ungur maður óskar eftir atvinnu á fiskeldis-
stöð, er með menntun og reynslu í seiðaeldi
og matfiskeldi.
Upplýsingar í síma 91-28212 eftir kl. 19.00
á kvöldin (Jón).