Morgunblaðið - 25.05.1986, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1986
59
—h
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Verðlaunaafhending fyrir innan-
félagsmót á skíðum 1986 verður
haldin mánudaginn 26. mai kl.
20.30 i félagheimili Víkings viö
Hæðargarð. Mætið öll!
Stjórnin.
*
KFUM - KFUK
Samverustund öldungadeildar
kl. 15.00 í félagsheimilinu við
Holtaveg. Almenn samkoma að
Amtmannsstig 2b kl. 20.30.
Upphafsorð og bæn: Ása Þor-
steinsdóttir. Ræöumaöur: Arn-
mundur Jónasson. Tekið á móti
gjöfum í starfssjóö. Bænastund
í bænaherbergi kl. 20.00.
Allir velkomnir.
Vegurinn kristið
samfélag
I kvöld veröur almenn vakningar-
samkoma I Grensáskirkju kl.
20.30.
Bjöm Ingi predikar. Allir vel-
komnir.
ÚTJVISTARFERÐIR
Sunnudagur 25. maf.
1. kl. 8.00 Þórsmörk, elnsdags-
ferð. Verð 850 kr. Munið sumar-
dvöl f skála Útivistar Básum.
Ódýrasta sumarleyfið.
2. kl. 10.30 Haugsvörðugjá -
Sýrfell - Reykjanes. Verð 450 kr.
Gengiö frá Stapfelli suðvestur á
Reykjanestá. Misgengi og gjár
skoðuö.
3. kl. 13.00 Útilegumannakof-
amir - Eldvörp. Merkar fom-
minjar, gigaraðir, útilegumanna-
hellir, hahitasvæði o.fl. skoðaö.
Tilvalin fjölskyldu ferð. Brottför
úr Grófinni (bflastœði hjá Vest-
urg. 4) og BSÍ, bensfnsölu.
Sjáumstl
Útivist, feröafélag.
Trúoglíf
Samvera i dag kl. 14.00 aö
Smiöjuvegi 1, Kópavogi (Útvegs-
bankahúsinu). Þú ert velkomin.
Trú og líf.
UTIVISTARFERÐIR
Sumarleyfisferðir
13.-17. júní:
1. kl. 18 Látrabjarg — Ketildalir.
Svefnpokagisting. Skoðað
stærsta fuglabjarg Evrópu
ásamt Rauðasandi, Sjöundá,
Selárdal o.fl. Fróðleg og
skemmtileg ferð fyrir alla.
2. kl. 20 Þingvellir - Hlöðuvellir
— Brúarárskörð. Bakpokaferð
um fjölbreytt fjallasvæði sunnan
Langjökuls. Göngutjöld.
Myndakvöld Útivistar verður á
fimmtudagskvöldið 29. maí.
Kynntar verða sumarleyfisferöir
þ.á.m. Hornstrandaferöir. Einnig
sýndar myndir úr frábærum
jöklaferðum á Snæfellsjökul og
Öræfajökul um hvítasunnu.
Helgarferðir um næstu helgi:
1. Þórsmörk 3 d. 2. Hekla —
Hraunteigur 2 d.
Kvöldganga á miövikudags-
kvöldið i Esjuhliðar. Leitaö
,gulls“ og gengið um Þverfjalliö
í Esjunni. Uppl. og farm. í sumar-
leyfis- og helgarferöir eru á
skrifst., Grófinni 1, simar: 14606
og 23732. Sjáumst.
Útivist, ferðafélag.
Hörgshlíð 12
Samkoma í kvöld sunnudags-
kvöld kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma i dag kl. 16.30.
Ræöumaður Einar Gíslason frá
Hjalteyri. Allir hjartanl syngur.
Allir hjartanleg velkt .^mnir.
Hvrtasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn söngsamkoma í kvöld
kl. 20.00. Fjölbreytt söngdag-
skrá. Hugvekja: Guðni Einars-
son. Samskot til forlagsins.
Ármenningar - skíðafólk
Fjölskylduskemmtun verður
haldin miövikudag 28. mai i Bú-
staðakirkju kl. 20.00.
Verðlaun afhent fyrir innan-
félagsmót. Mætum öll.
Stjórnin.
KROSSINN
Al.KHÓLSVEGI 32 - KÓPAVOGI
Samkomur á sunnudögum
kl. 16.30. Samkomur á laugar-
dögum kl. 20.30. Bibliulestur á
þriðjudögum kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
§Hjálpræðis-
herinn
y Kirkjustræti 2
f dag kl. 14.00 lýkur sunnudaga—
skóla. Kl. 20.30 Hjálpræðissam-
koma. Allir velkomnir
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
Göngudagur Ferftafélags-
íslands
Sunnudaginn 25. mai efnir
Ferðafélagið til göngudags f
áttunda skipti.
Ekið verður að Kaldárseli þar
hefst gangan, sem er hringferð
um Búrfell, Búrfellsgjá og til
baka meðfram Heiðmerkurgirð-
ingunni að Kaldárseli. Gangan
tekur um 3 klst. ef rólega er
gengið. Brottför frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin kl.
10.30., og kl. 13.00. Verð kr.
200. Fritt fyrir börn i fylgd full-
orðinna. Fólk á eigin bílum er
velkomið i gönguna. Kynnist
landinu og náttúru þess i göngu-
ferð meö Feröafélaginu. Allir eru
velkomnir, félagar og aðrir.
Ferðafélag íslands.
Lada ’85tilsölu!
Vel með farin og ný skoðun.
Upplýsingar i síma 23549.
Dyrasímaþjónusta
Nýtagnir — viðgeröir. S. 19637.
Viðgerðir á malbiki
Húseigendur og forráðamenn
húsfélaga ath!
Tökum að okkur viðgerðir á
holum á malbikuðum eða steypt-
um bílastæðum, innkeyrslum og
fl. Mjög sterkt holufylliefni not-
að. Gerum tilboð.
Verkval S. 42873
'S’* .
radauglýsingar
raðauglýsingar — raðauglýsingar
Miðborg Stokkhólms
Tveggja herbergja íbúð 70 fm í miðborg
Stokkhólms til leigu í 1 ár, frá 9.9.86.
íbúðaskipti æskileg ef þú átt samsvarandi í
Reykjavík sími 08/438885.
Hárgreiðslustofa
55 fm hárgreiðslustofa í Sundahverfi til leigu.
Tryggur leigusamningur fylgir.
Tilboð sendist augld. Mbl. merkt:
„Sund — 5633“.
• • ■ '
iÍSÍÉÍi
Húsnæði óskast
Hjón utanaf landi með 12 og 16 ára gamlar
dætur bráðvantar 3ja-4ra herb. íbúð í Reykja-
vík, Kópavogi eða Hafnarfirði til leigu í 1 ár
eða lengur. Helst frá 1. júní. Reglusemi og
góðri umgengni heitið.
Nánari upplýsingar í síma 96-25006.
húsnæöi óskast
þjönusta
T résmíðaþjónusta
Nýsmíði — Viðhald — Viðgerðir
Gluggar, gler, hurðir, perket, panill,
loftveggir.
Jón H. Magnússon,
húsasmíðam., Hrísateig 39,
105 Reykjavik, simi 33835.
Til sölu
stór Rafha eldavél, stór panna á fæti, upp-
þvottavél og fleira fyrir stór eldhús.
Upplýsingar í símum 79499 fyrir hádegi og
671536ákvöldin.
Fyrirtæki til sölu
Til sölu sérverslun með hannyrðavörur í
miðborg Reykjavíkur.
Til sölu sérverslun með leðurvörur við Lauga-
veg.
Til sölu heildverslun með góðum umboðum
fyrir hannyrðavörur.
Allar nánari uppl. aðeins veittar á skrifstof-
unni.
Eignaborg sf.,
Hamraborg 12, Kópavogi.
Gegnt Eden í Hveragerði
Til sölu atvinnuhúsnæði 700 fm og 500 fm
að stærð ásamt 6000 fm lóð. Hagstæð kjör.
Nánari upplýsingar í síma 32159.
Iðnaðarfyrirtæki
Til sölu iðnaðarfyrirtæki. Hentugt fyrir 2
samhenta aðila. Miklir framtíðarmöguleikar.
Tilboð merkt: „Nýiðn — 5921“ sendist augl-
deild Mbl. fyrir 1. júní.
Einstakt tækifæri
Mjög vel rekin myndbandaleiga á besta stað
í Reykjavík til sölu vegna persónulegra
ástæðna. Lysthafendur sendi upplýsingar um
nafn og símanúmer á augld. Mbl. merktar:
„Tækifæri — 5632".
Innritun
vegna nýrra nemanda stenduryfir.
Umsóknarfrestur er til 20. júní nk. Náms-
framboð skólaárið ’86—’87 verður eftirfar-
andi: Framhaldsnám á almennri bóknáms-
braut, viðskiptabraut, íþróttabraut, heilsu-
gæslubraut og uppeldisbraut Fjölbrautaskól-
ans.
Einnig verður 9. bekkur starfræktur við skól-
ann. Umsóknir sendist merktar Héraðsskól-
inni í Reykholti 320 Reykholt Borgarfirði.
Allar nánari uppl. gefa skólastjóri og yfirkenn-
ari í símum 93-5200, 93-5210 og 93-5201.
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
Umsóknir um skólavist
skólaárið 1986-1987
Umsóknir um skólavist skulu hafa borist fyrir
7. júní nk. Upplýsingar á skrifstofu skólans
alla virka daga frá 09.00-14.00 í síma
1-31-94.
Réttindanám fyrir skipstjórnarmenn sem
hafa starfað á undanþágu hefst 2. september
(nám til 80 rúml. réttinda í 14 vikur og í
beinu framhaldi af því 10 vikna nám fyrir 200
rúml. réttindi).
Sérstök deild: Á haustönn frá 2. september
til jóla verður sérstök deild fyrir þá sem
luku 200 rúmlesta réttindanámi á sl. skóla-
ári og óska eftir að skipta skipstjórnarnámi
2. stigs sem veitir ótakmörkuð réttindi á
fiskiskip á tvær haustannir.
Athugið: Kvöldnámskeið fyrir 30 rúmlesta
réttindi verða haldin á haust- og vorönn með
sama sniði og sl. skólaár og verða sérstak-
lega auglýst.
Skólastjóri.
Togvindur
Höfum á lager 9,6 tonna nýja togvindu með
þrem tromlum, mjög góð fyrir rækjuveiðar.
Einnig nýuppgerð 6 tonna Héðinsvinda.
Upplýsingar í síma 91 -24260.
Vélsmiðjan Héðinn.
Námsstyrkur við lowa
háskóla
Samkvæmt samningi Háskóla íslands við
lowa háskóla (University of lowa) er veittur
styrkur til eins íslensks námsmanns á ári
hverju. Styrkurinn nemur skólagjöldum og
dvalarkostnaði.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu rektors.
Umsóknum skal skilað þangað fyrir 1. júní nk.
Nánari upplýsingarfást hjá námsráðgjafa.
Háskóli íslands.