Morgunblaðið - 25.05.1986, Síða 65
MORGUNBLABIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ1986
65
un/iguuuiaunj/ /iguot
Helga vinnur öll sin teiknistörf við teikniborðið heima hjá sér.
sagt við eigendur vinnustofanna:
„Vantar þig teiknara sem getur
gert þetta?" Nú, ef svarið var nei-
kvætt, gat ég alltaf haldið áfram
og sagt: „En þetta, eða þetta?“ og
svo koll af kolli, þar til að ég oftast
fékk að heyra hið langþráða já.“
— Nú hygg ég að það sé þannig
um fjölmarga, að þeir geri sér ekki
grein fyrir allri þeirri vinnu sem
liggur að baki teiknimyndar — er
þetta rétt tilgáta hjá mér?
„Já, hún er örugglega rétt. Það
er ótrúlega mikil vinna á bak við
gerð einnar stuttrar teiknimyndar.
I grófum dráttum má segja að
teiknimynd verði þannig til að frum-
teikningin, eða frumhugmyndin
samkvæmt ósk viðskiptavinarins,
kemur frá auglýsingastofu, og er
síðan unnin áfram á teiknivinnu-
stofu. Upphafið er það að teikning-
in, eða frumhugmyndin er færð
yfir á glæru af sérstökum teiknur-
um. Því næst er annar teiknari eða
aðrir teiknara, allt eftir umfangi
verksins, sem mála teikninguna.
Aðrir teiknarar sjá svo um teikn-
ingu bakgrunna og þegar allri
undirbúningsvinnu er lokið er allt
sett saman og kvikmyndað. Það
þarf ekki annað en geta þess að í
teiknimynd eru yfirleitt 24 rammar
á sekúndu, sem jafngildir 12 teikn-
ingum, til þess að lýsa því hversu
mikil vinna er á bak við 3 sekúndna
teiknimynd."
Réttlæti heimsins ekki
alltaf eins og best verð-
ur á kosið
— Er það ófrávíkjanleg regla að
auglýsingastofan sjálf eigi frum-
hugmyndina að auglýsingunni?
„Já, í rauninni ætti það að vera
þannig," segir Helga og hlær við.
„En því miður eru frumhugmynd-
imar ekki alltaf nothæfar, sem
berast frá auglýsingastofunum. Ég
get nefnt þér sem dæmi að í vetur
komu náungar af ákveðinni auglýs-
ingastofu hér í London til A1 og létu
hann fá söguþráð í myndum. Þetta
var vægast sagt svo illa gert, að
ekki var hægt að vinna eftir þessu.
A1 vann frumteikningamar allar
upp á nýtt, alveg frá gmnni og
skilaði svo auglýsingastofunni til
umsagnar. Það er ekki að orðlengja
það að náungamir voru alsælir með
breytingamar og samþykktu
umyrðalaust. Þessi auglýsing fékk
síðan verðlaun nú um daginn. Þá
var það auglýsingastofan sem fékk
allan heiðurinn af störfum Al, en
hans var ekki svo mikið sem getið.
Það em engar ýkjur að segja að
réttlæti heimsins sé ekki alltaf eins
og best verður á kosið.“
— Þú sagðir áðan að samkeppn-
in hér væri ansi hörð. Er þetta þar
með viðkvæmur „bransi", þannig
að enginn komist upp með mistök?
„Já, það má líklega segja það. í
þessari atvinnugrein þekkja svo til
allir alla. Ef einhveijum verða á
mistök, getur það næstum því þýtt
endalokin fýrir viðkomandi. I dag
er mikið að gera í þessari atvinnu-
grein, en fólk verður svo sannarlega
að standa sig, ef það ætlar að hafa
nóg að gera.“
Æ, ég veit ekki hvort
ég er þekkt nafn
— Eins og þú sagðir sjálf áðan,
þá hefur þú alltaf haft nóg að gera.
Þýðir það með öðmm orðum að þú
sért þekkt nafn í þessari atvinnu-
grein hér í London?
Enn verður þessi persónueigin-
leiki Helgu, hógværðin, áberandi,
því hún segin „Æ, ég veit ekki
hvort ég er þekkt nafn. Það em
alla vega mörg stúdíó sem hafa
aldrei heyrt á mig minnst. Hitt er
svo annað mál, að ég festist yfir-
leitt um nokkurra mánaða skeið
hjá þeim stúdíóum sem ég vinn
fyrir, þannig að það segir kannski
einhveija sögu um það hvemig er
líkað við vinnu mína.“
— Hefurðu kannski þénað stór-
um í þessu starfi þínu?
Þetta var greinilega engin óska-
spuming. — „Ef þú ætlar að hafa
eitthvað upp úr þessari vinnu, verð-
ur þú að vinna vel og vinna mikið.
Ég hef alltaf haft yfirdrifið nóg að
gera, þannig að ég þarf ekki að
kvarta. Reyndar verð ég ósöp fegin
þegar ég fæ smáhlé á milli verk-
efna, en það gerist ekki oft.“
— Hefur það aldrei hvarflað að
þér að gera auglýsingateiknimynd
fyrir íslenska sjónvarpsauglýsendur
heima á íslandi?
„Jú, vissulega. Okkur Al dreymir
um að komast inn í sjónvarpið
heima við gerð einhverra teikni-
mynda. Við fómm heim til íslands
um jólin og höfðum í fómm okkar
sýnishom bestu teiknimyndanna
sem við höfum gert. (Sumar þeirra
em verðlaunateiknimyndir — inn-
skot blm.) Við sýndum ákveðnum
auglýsingastofum þetta band, en
ekkert hefur komið út úr því enn-
þá. Ég er ekki að tala um að flytj-
ast heim til þess að vinna að gerð
teiknimynda, heldur höfðum við lá-
tið okkur detta í hug að auglýsendur
heima keyptu vinnu okkar hér f
London. Það em mýmörg dæmi
þess að önnur lönd leiti hingað
gagngert til þess að láta vinna
teiknivinnuna fyrir sig, því vinnan
hér þykir svo góð.“
Er ekki á leiðinni heim
— Þú segist ekki vilja koma heim
til þess að vinna að gerð teikni-
mynda — ertu þar með að segja
að þú sért sest að hér í London
fyrirfiilltogallt?
„Ja, ég hef alltaf svarað þessari
spumingu á þessa leið: Ég er ekki
á leiðinni heim. Ég hef alltaf sagt
að ég taki árið í senn, þ.e. ég verð
hér eitt ár í viðbót. Þetta hef ég
sagt að ég held fimmtán sinnum."
— Nú er Helga um það bil að
hreiðra um sig í nýja húsinu í
Croydon, þannig að hún sýnir ekki
á sér neitt fararsnið heim til Fróns-
ins. Það er líklega ekki nema gott
eitt um það að segja, þar sem hún
spjarar sig svo vel í heimsborginni,
en einhvem veginn býður mér í
gmn að hún eigi eftir að lyfta fs-
lenskri auglýsingagerð sjónvarps á
ögn hærra plan, fái hún tækifæri
til þess að spreyta sig á þeim vett-
vangi.
VIAtal: Agnes Bragadóttir
ren" á
onn
Engin mús
inn í mitt hús
„HÁTÍÐIMI HÖGNI"
Ver hús þitt fyrir músum,
rottum og öörum meindýrum meö
hátíðnihljóði (22 kH2 — 65 kH2).
Tæki þetta er algjörlega skaðlaust
mönnum og húsdýrum.
Tilvalið fyrir:
I fyrirtæki í • sumarbústaði
matvælaiðnaði % fiskvinnslur
I bændur
I verslanir
i heimili
'ré />V( a6 DV., gT « -uur,
I xxzizzz Spz
f
f ''er*» fyrlr ?*VerB ~ eru etótl /
n,í 5 buér n>Mklf ""“unum
Ofnfastur steinleir í hæsta gæðaflokki
Sænskt handverk eins og
það gerist best.
Póstsendum
KOSTA BODA
Bankastræti 10, sími 13122.
Garðakaupum Garðabæ, sími 651812.