Morgunblaðið - 25.05.1986, Side 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ1986
+
Iþrottir unglinga
Umsjón/Vilmar Pétursson
O íslandsmeistarar UMFN f 4. flokki í körfuknattleik 1986. Aftari röö frá vinstri: Valur Ingimundarson
þjálfari, Jón Einarsson, Guöbergur Sveinsson, Gunnar Öriygsson, Rúnar Jónsson, Baldvin Kristjáns-
son, Friörik Ragnarsson fyrirliöi, Danfel Sveinsson. Fremri röö frá vinstri: SigurAur Gíslason, Halldór
Halidórsson, Jón Árnason, Georg Birgisson, Valgeir Ólafsson, Magnús Kristjánsson og GuAjón ívars-
son.
MorgunblaöiA/Julius
UMFN íslandsmeistari Í4. flokki
Linda Stefánsdóttir:
Mjög fjölhæf
íþróttastúlka
HANDBOLTI, körfubolti, fót-
bolti og frjálsar íþróttir eru
meAal þeirra íþróttagreina sem
Unda Stefánsdóttir 14 ára hefur
lagt stund á eöa stundar núna.
Unda er nýflutt til Reykjavfkur
frá Vfk f Mýrdal og fór aö œfa
frjálsar hjá KR vegna þess aö
skólasystur hennar eru margar
f því félagi. Körfubolta stundar
Unda hinsvegar hjá ÍR og sagöi
hún aö karfan vœri sín uppá-
haldsíþrótt.
Þrátt fyrir ungan aldur á Unda
l O mikinn keppnisferil að baki nú
þegar í frjálsum íþróttum, hún
hefur keppt á Landsmóti, ís-
landsmeistaramóti, fjöldanum
öllum af mótum í nágrenni Víkur
svo dæmi séu tekin. Á þessum
mótum hefur hún unnið til
ýmissa verðlauna í langhlaupum
sem eru þær greinar sem hún
leggur áherslu á.
Linda var ánægð með dvölina
í KR, „maöur fær mun meiri til-
sögn hér en í Vik," sagði hún.
Það er óskandi að Linda haldi
ótrauö áfram íþróttaiðkun sinni
en hætti ekki um 16 ára aldur,
sem hún segir marga gera, því
hér er mikið íþróttaefni á ferðinni.
SÍÐASTLIÐIÐ sumar vann FriA-
rik Snæbjörnsson 13 ára tvo
Reykjavíkurmeistaratitla ífrjáls-
um fþróttum í sfnum aldurs-
flokki. Þessa titla vann hann
fyrir langstökk og hlaup en auk
þess segir hann að stangar-
stökkiö freisti sín mikiö.
Friðrik, sem býr í Víkingshverfi
og hefur æft fótbolta meö því
félagi, sagði að engar frjálsar
væru stundaðar í Vtkingi og því
hefði hann farið í KR. „Og óg sé
sko ekkert eftir því, hér er frá-
bært félagslíf og fullt af krökk-
um," sagði hann með áherslu-
þunga.
Um möguleikana á aö verja
Reykjavíkurmeistaratitlana sagöi
Friðrik að það gæti orðið erfitt
en auðvitað stefndi hann að því.
• Þessir kappar hlupu áhertahlaup 4. fl. Vals þann 8. maf sl. Var
hlaupiö frá Kambabrún og f bæinn. Þetta hlaup var haldiö til styrkt-
ar Ítalíuferö á komandi sumri. Heldur flokkurinn á stærsta hand-
knattleiksmót sem haldiö er fyrir unglinga f heiminum f dag.
Morgunblaöiö/Bjami
• ÞorvarAur GuAmundsson fer lótt yfir þessa hæö enda á hann best 1.25 og stefnir á aö fara yflr
2 metra f fyllingu tímans.
Þorvarður Guðmundsson:
Náði betri árangri
ífrjálsum
ÞORVARÐUR GuAmundsson 11
ára er mjög efnilegur frjáls-
fþróttamaöur sem hefur lagt
stund á frjálsar f 2 ár. Hann
byrjaöi á aö æfa knattspyrnu
en sagöist hafa hætt þvf eftir
að hann komst í kynni viö
spretthlaup, hástökk, langstökk
og annað það er fylgir frjálsum
fþróttum.
Þorvarður sagði að ástæðan
fyrir því að hann valdi frjálsar
fram yfir knattspyrnuna væri að
hann hafi náð betri árangri í
frjálsum. Já og árangurinn er
rnjög glæsilegur, síðasta sumar
vann nann t.d. til gullverðlauna
í 60 m hlaupi á íslandsmeistara-
mótinu og varð annar í hástökki
stökk 1.15 m. Núna er Þorvarður
farinn að fljúga yfir 1.25 og segist
stefna á að komast vel yfir 2
metrana i framtíðinni.
Atli Ragnar, vinur Þorvarðar,
á stóran þátt í að félagi hans fór
að æfa því eins og Þorvarður
sagði: „Hann spurði hvort ég
mætti koma á æfingu og það var
allt í lagi." Það er ekki amalegt
að eiga trausta vini í hinni hörðu
baráttu íþróttanna eins og ann-
ars staðar.
Friðrik Snæbjörnsson:
Vann tvo
meistara-
titla
I