Morgunblaðið - 25.05.1986, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1986
71
Umsjón/Vilmar Pétursson
íþróttir unglinga
Frjálsíþróttaskóli:
starf ræktur f sumar
— hjá KR-ingum
ÞAÐ VERÐUR mikið um að vera
hjá yngsta frjálsfþróttafólkínu í
KR í sumar eins og undanfarin
sumur. í júní, júlí og ágúst verð-
ur starfræktur frjálsíþróttaskóli
tvisvar í viku þar sem tveir þjálf-
arar munu leiðbeina krökkunum
f hinum ýmsu greinum frjálsra
fþrótta. I sumar fá t.d. 13—14
ára strákar kennslu í stangar-
stökki en ekki hefur verið boðið
uppá slfka kennslu áður fyrir
þetta unga drengi.
í fyrra voru um 50 krakkar á
aldrinum 8—14 ára sem tóku þátt
í frjálsíþróttaskólanum hjá KR og
var víst oft mikið líf og fjör í þeim
skóla. En þó að það sé gaman
að æfa vilja krakkarnir Ifka fá að
keppa og að sögn Guðrúnar
Ingólfsdóttur formanns frjáls-
íþróttadeildar KR er ekki nógu
mikið um mót fyrir frjálsíþrótta-
krakka. Bæði vantar mót fyrir
alla sem vilja taka þátt og eins
vantar líka fleiri mót fyrir þau sem
standa fremst í flokki. Á mótum
eins og Meistaramóti íslands
fyrir 14 ára og yngri þar sem allir
fá að keppa vill oft líða of langur
tími milli greina. Guðrún taldi að
finna þyrfti milliveg á milli þess
að gefa öllum tækifæri til keppni
og eins að hlúa að þeim sem
stæðu sig best hverju sinni.
Helstu mótin sem frjálsíþrótta-
krakkar taka þátt í auk meistara-
mótsins eru skólamót, Reykjavík-
urmeistaramót og innanfélags-
mót.
Þó að sumarið sé sá tími sem
mest ber á frjálsíþróttafólki slá
krakkarnir í KR ekki slöku við
æfingar á veturna. í vetur hafa
þau æft einu sinni í viku undir
stjórn hins kunna frjálsíþrótta-
kappa Valbjöms Þorlákssonar til
að vera sem best undir átök
sumarsins búin.
Blaðamaður leit við á einni
slíkri æfingu ekki alls fyrir löngu
og ræddi við nokkra krakka.
Sigrún Jóhannesdóttir:
Gekk ágætlega á
íslandsmótinu
— þrátt fyrir meiðsli
Morgunblaöíð/Bjami
• Hverjir eru bestir? AtliÓlafsson, Brynja Gfsladóttir, Bergþóra, Berglind Jónsdóttir, Davið Vigfússon, Elsa Guðmundsdóttir, Friðrik
Snæbjömsson, Haraldur Guðmundsson, Halla Pétursdóttir, Hildur Lúthersdóttir, Hildur Arnardóttir, Ingvi Ólafsson, Linda Stefánsdóttir,
Nfna Stefánsdóttir, Laufey Rún, Ólafur Diðriksson, Ólöf Helgadóttir, Ragnheiður Eyjólfsdóttir, Selma Guðmundsdóttir, Þuríður Hjartardótt-
ir, Þorvarður Guðmundsson og Sigrún Jóhannesdóttir telja það vera KR. Sá litli í fremstu röð fyrir miðju er þó ekki alvea viss, skyldi
hann yera Valsari?
Hildur Sif Arnardóttir:
T ek strætó
á æfingar
Á íslandsmeistaramótinu f
frjálsum íþróttum innahúss sem
haldið var í mars síðastliðnum
hafnaði Hildur Sif Arnardóttir f
2. sæti f 50 m hlaupi. Þetta er
frábær árangur hjá Hildi þvf hún
hefur ekki æft frjálsar nema sfðan
f desember. Hún var spurð hvern-
ig hefði atvikast að hún fór að
æfa frjálsar fþróttir.
„Vinkona mín var í frjálsum og
óg fór með henni. Við búum í
Breiðholti og tökum leið 11 á æf-
ingar. Það kemur ekki til greina
að skipta um félag þó að viö þurf-
um að fara langt á æfingar því það
er frábær félagsskapur í KR. “
Hildur sagði ennfremur aö henni
þættu hlaupin skemmtilegasta
grein frjálsra íþrótta, það væri
mesta spennan í þeim. Hún æfir
einnig og keppir í langstökki en
gekk ekki sem best í þeirri grein á
íslandsmeistaramótinu því öll
stökk hennar urðu ógild.
Aðspurð um hvernig sumarið
legðist í hana sagði Hildur að það
legðist vel í sig og hún ætlar aö
reyna að krækja í verðlaun á (s-
landsmeistaramótinu utanhúss.
Morgunblaöiö/Bjami
• Brynja Gísladóttir var ekki á flótta undan óguriegri mús þegar þessi mynd var tekin heldur sýnir
hún hór glæsileg tilþrif í langstökki.
ÞRÁTT fyrir að formaður frjáls-
íþróttadeildar KR sé ekki
ánægður með framboð ungl-
ingamóta í þeirri íþróttagrein
tjáði Sigrún Jóhannsdóttir
blaðamanni að sér þætti fjöldi
móta vel viðunandi. Sigrún er
13 ára vesturbælngur sem hef-
ur æft f rjálsar f eitt og hálft ár.
Flestir íþróttamenn lenda
meira og minna í því að meiðast
í tengslum við íþróttaiðkun sína
og Sigrún var einmitt nýbúin að
ná sér eftir meiðsli þegar við lit-
um inn á æfingu hjá KR-ingunum.
„Ég gat samt tekið þátt í íslands-
meistaramótinu í mars og háðu
meiðslin mér lítiö þannig að mér
gekk ágætlega í því móti. Annars
er það fyrst og fremst sumarið
sem ég stefni á, það er miklu
skemmtilegra að stunda frjálsar
utanhúss. Hér í Baldurshaganum
verður oft svo heitt og rykið er
óþægilegt,“ sagði Sigrún og var
greinilega farin að hlakka til
sumarsins.
Markmið Sigrúnar í sumar er
að komast á (slandsmeistaramót
á Húsavík, en til þess að það
gæti orðið sagðist hún þurfa að
æfa vel og það gerir hún líka
ábyggilega.