Morgunblaðið - 01.06.1986, Side 23

Morgunblaðið - 01.06.1986, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1986 23 Eins og kunnugt er hefur Agnar Friðriksson fram- kvæmdastjóri Arnarflugs sagt upp starfi sínu. Það gerði hann reyndar fyrir allmörgum mán- uðum. Hann bíður þess nú að geta hætt störfum, sem verður væntanlega þegar niðurstaða liggur fyrir um hver framtíð Arnarfiugs verður. Agnar hef- ur ekki tekið þátt í samninga- gerðinni við lánardrottna fyrir- tækisins. Skúli Þorvaldsson hótelstjóri á Hótel Holt hefur gengið vask- lega fram i söfnun hlutafjárlof- orða, og fengið fjölmarga aðila úr veitingahúss- og hótelrekstri til þess að lofa hlutafjárfram- lagi. Hann, eins og aðrir sem staðið hafa í söfnuninni, heldur nú að sér höndum, þar til niður- stöður viðræðnanna við lánar- drottna liggja fyrir. Helgi Þór Jónsson, bygginga- verktaki hefur verið talinn óþekkta stærðin hvað varðar endurreisn Arnarflugs. Hann keypti eins og kunnugt er allan hlut Flugleiða í Arnarflugi, eða 44%. Siðan hefur hann lítt haft sig i frammi, og ekki komið nálægt samningaviðræðunum við lánardrottna. Hann er samt sem áður í þeim hópi 40 ein- staklinga og fyrirtækja sem hyggjast taka þátt i hlutafjár- aukningunni. Magnús Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Sölusambands ís- lenskra fiskframleiðenda hefur jafnan haft sterkar taugar til Arnarflugs, enda fyrrum fram- kvæmdastjóri félagsins. Hann er i 40 manna hópnum sem ihugar hlutafjáraukninguna. Magnús hefur einnig verið i viðræðum við erlendu lánar- drottnana, enda mun hann vera mjög kunnugur viðskiptum KLM og Arnarflugs. Guðlaugur Bergmann, öðru nafni Gulli í Karnabæ, hefur óbilandi trú á nauðsyn þess að Arnarflug lifi áfram. Hann til- heyrir þeim hópi manna sem hvað harðast hefur gengið fram í söfnun hlutafjárloforða. Ólafur Laufdal, Broadway- kóngur með meiru, hyggst ekki aðeins láta við veitingahúss- og hótelrekstur sitja, því hann hefur lofað 5 milljónum króna i hlutafjáraukningunni, ef öll- um skilyrðum verður fullnægt. skuldattna í hlutafé í fyrirtækinu, og loks hvort þeir væru fáanlegir • til þess að breyta hluta skuldanna í langtímalán. Þó að ofangreind fyrirtæki séu stærstu lánardrottnar Amarflugs, era 10 til 12 aðrir aðilar sem einnig eiga umtalsverðar fjár- hæðir hjá Amarflugi. Tekist að uppfylla tvö af þremur skilyrðum „Okkur hefur raunar tekist að uppfylla tvö af þremur skilyrðum, til þess að tryggja megi áfram- haldandi rekstur Amarflugs," sagði einn hluthafanna í samtali við blaðamann. „Við eram búnir að safna þessum hlutafjárloforðum, sem vora skilyrði fyrir ríkisábyrgð- inni. Við þurftum á þessari ríkis- ábyrgð að halda, til þess að eiga einhverja von um að ná samningum við erlendu lánardrottnana. Öðra- vísi .tækist okkur aldrei að taka til í þessari skuldasúpu. Mesta vanda- málið, og raunar það sem málið stendur og fellur með, er hvort okkur tekst að ná viðunandi samn- ingum við sem flesta af stóra lánar- drottn unum. Það er búið að ná samkomulagi við nokkuð marga af þessum stóra kröfuhöfum, en enn vantar niðurstöður úr viðræðum við aðra.“ Þar sem KLM, Air Lingus og fleiri erlendir aðilar hafa lýst því hversu langt fyrirtækin era reiðu- búin að ganga til móts við Arnar- flug, er næsta skref í þessu máli hjá Amarflugi. Hefur verið ákveðið að leita samninga við fleiri erlenda lánardrottna nú á næstunni, áður en endanleg ákvörðun um áfram- haidið verður tekin. Arabar kröfðust 28 milljóna Sumir þeirra sem fylgst hafa náið með framvindu þessa máls era heldur vondaufir um að það takist að koma fyrirtækinu á réttan kjöl. Óttast þeir að ekki séu öll kurl komin til grafar hvað varðar heild- arskuldir fyrirtækisins. Hafa jafn- vel af því áhyggjur að enn eigi eftir að berast kröfur sem fyrirtækið neyðist til að samþykkja, eða semja um. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að nú nýverið hafi borist krafa á Amarflug frá aröbunum sem Amarflug hefur leigt vélar af, upp á 685 þúsund dollara, sem jafngildir um 28 milljónum króna. Þessi krafa sé tilkomin vegna þess að þegar Amarflug skilað vélunum til arabanna á sl. ári, þá hafi þurft að gera við þær, á kostnað Amar- flugs, að mati arabanna. Þeir sem lofað hafi fé til hlutafjáraukningar- innar hafi ekki haft nema óljósa hugmynd um að þessi krafa væri væntanleg. Niðurstaðan hafi orðið sú að Amarflug sættist á að greiða helming þessarar upphæðar, eða 14 milljónir króna. Telja þessir aðilar að þótt þeir reiði fram þær tæplega 100 milljón- ir sem vora settar sem skilyrði fyrir ríkisábyrgð, þá geti litið út fýrir að vanti þegar aðrar 60 til 80 millj- ónir króna í aukið eigið fé, til þess að ríkisábyrgðin fáist. Herma heim- ildir Morgunblaðsins að einhveijir þeirra manna sem hvað harðast gengu fram í söfnun hlutafjárlof- orða, haldi nú að sér höndum þar til niðurstöður úr samningaviðræð um við lánardrottnana liggja fyrir. Þegar ákveðið var að leita eftir samningum við erienda lánar- drottna, var haft samband við í kringum 50 erlenda lánardrottna og þeir beðnir um lengingu á lánum og/eða niðurfellingu skuldar. Svör lánardrottnana sem á annað borð hafa svarað hafa yfírleitt verið á þann veg að ýmist var boðið upp á einhveija niðurfeilingu skuldar eða skuldbreytingu til iengri tíma. Tekst að halda líf- inu í Arnarflugi? I megindráttum má segja að þankagangur nýrra hluthafa í Arnarflugi þessa dagana snúist um það hvort hægt sé að haida lífínu í Amarflugi með þeim björgunarað- ' gerðum sem fyrirhugaðar hafa verið, eða hvort vænlegri kostur sé að stefna að stofnun nýs flugfélags, fáist tii slíks tiiskilin leyfí. Halda sumir að fá megi þrotabú Amar- flugs fyrir aðeins hluta sannvirðis, verði fyrirtækið gjaldþrota, auk þess sem það geti orðið auðveldara að byija frá granni með nýtt flug- félag, sem á engan hátt verði tengt nafni eða rekstri Amarflugs. Þeir munu þó færri í þessum nýja hluta- fjárofendahóp sem þannig era þenkjandi, heldur en þeir sem telja að leggja beri höfuðáherslu á að bjarga Amarflugi eins og það er í dag, og reisa síðan reksturinn við á sama grunni og er fyrir. Verði niðurstaðan hins vegar sú að menn halda að sér höndum og bíða gjaid- þrots Amarflugs, þá mun ákveðinn hópur þessara manna íhuga hvort einhver möguleiki sé á stofnun nýs flugfélags og hvort hægt sé að fínna slíku félagi arðbæran rektrargrand- völl. Þar er höfuðspursmál nýting flugvélar Arnarflugs. Hún þyrfti að fljúga 3000 klukkustundir á ári, en flýgur ekki nema um 1800 stundir. Þess er að vænta að þeir sem verið hafa í forsvari fyrir viðræðun- um við erlendu lánardrottnana muni alveg á næstunni boða til fundar með hluthöfum og þeim sem lofað hafa nýju hlutafé. A þeim fundi verða niðurstöður samninga við erienda lánardrottna væntanlega lagðir til grandvallar þegar reynt verður að ákvarða hvort skynsam- legt geti talist að stefna að endur- reisn Amarflugs eða hvort útlit sé fyrir að rekstrinum verði ekki snúið til betri vegar og allt verði komið í sama horf eftir 6 til 8 mánuði. Er að sönnu bjartara hljóð í mönn- um eftir fundinn sl. þriðjudags- kvöld, en þó heyrast raddir innan þessa hóps sem segja „Er ekki bara verið að framlengja dauðastríðið með því að taka ákvörðun um hluta- fjáraukningu Arnarflugs?" H: 150. Br: 55. D: 60. H: 150. Br: 55. D: 60. 300 lítra m/blásturskæl- 310 litra, tviskiptur. ingu, tviskiptur. H: 165. Br: 55. D: 60. H: 160. Br: 67. D: 60. H: 160. Br: 60. D: 60. 410 lítra, tvískiptur með 350 lítra, tvískiptur. vatnska^li. 290 litra, sambyggður kælir/trystir, 2 pressur. zzzz H: 180. Br: 60. D: 60. H: 18°- Br: 60. °: 60. 390 Irtra, sambyggður 380 1ltra- sambyggður kælir/frystir, 2 pressur. kælir/frystir, 2 pressur. IfcMlí Kr. 26.500 Kr. 26.500 Kr. 31.650 Kr. 31.900 Kr, 32.200 Kr. 37.425 Kr. 37.570 Kr. 42.200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.