Morgunblaðið - 01.06.1986, Side 29

Morgunblaðið - 01.06.1986, Side 29
MORGUNBLABIÐ, SUNNUDAGUR1. JÚNÍ 1986 29 að sögri Magnúsar er ekkert því til fyrirstöðu að þetta fólk geti lifað góðu og löngu lífí, ef farið er eftir grundvallarreglunum. „Erfitt en gott“, segja sjúklingarnir Við hittum að lokum nokkra sjúklinga, er þeir hófu þrekæfíngar á þar til gerðum æfíngahjólum. Hjólin eru tengd fullkomnum bún- aði sem gerir sjúkraþjálfara kleift að fylgjast með hjartslætti og hjartalínuriti hvers og eins í tölvu- borði. Þá eru þau stillt eftir getu hvers og eins. Fyrst ræddum við við Pétur Guðjónsson múrara úr Reykjavík. Hann sagðist hafa farið í hjartaaðgerð um miðjan febrúar- mánuð og að skipt hefði verið um tvær kransæðar. Hann kvað útséð að hann gæti stundað vinnu sem múrari áfram og sagðist mjög ánægður með vistina á Reykjalundi. „Þetta er erfitt en gott“, sagði hann. „Hárlaugur Ingvarsson, bóndi að Hlíðartungu, Biskupstungum. Sá eini á landinu sem ber þetta nafn“, sagði annar hjólreiðakappinn hressilega, er við snérum okkur að honum. Hann sagðist ætla að hætta að búa, starf bóndans væri of erfítt fyrir hjartasjúkling. „Ég hefði viljað búa lengur, svo sem í 15 ár til viðbótar, en maður verður að taka þessu. Mér líkar vel héma, þetta er erfítt en gott“, sagði hann enn- fremur. Sólveig Sigurðardóttir var á. Reykjalundi sinn fyrsta dag, en hún hefiir fengið kransæðastíflu. Hún er við skrifstofustörf en kvaðst þurfa að byggja sig upp til að læra að lifa með sjúkdómi sínum. Á fjórða hjólinu var Guðlaugur Niels- son bifreiðastjóri úr Reykjavík. Hann kvaðst hafa farið í aðgerð fyrir tveimur árum og þá þjálfað sig sjálfur „í snjósköflum". Hann sagðist hafa leitað eftir endurhæf- ingu á Reykjalundi nú þar sem hann hefði fúndið að hann var að slappast og því fyllst óöryggi. Þá ræddum við að lokum við Jón H. Kristinsson. Hann gekk rösklega á þolbandi og sagðist vera á Reykja- lundi í annað skiptið, til að jafna sig eftir lömun. Kvaðst hann hafa náð góðum árangri og að honum líkaði vistin vel. Er við kvöddum var sjúkraþjálfarinn að stilla hjólin: „Nú förum við að hjóla upp brekk- umar“ sagði Hárlaugur hressilega um leið og við gengum út. Búnaðurinn kemur einnig lungnasjúklingum til góða Magnús B. sagði í lokin, að tækjabúnaður sá, sem hugmyndin væri að kaupa fyrir merkjasöluféð, gerði eftirlit með hjartasjúklingum í þjálfun mun auðveldara. Þá myndi búnaður ekki síður koma lungna- sjúklingum og fleiri á Reykjalundi að góðum notum. Rúrik Kristjánsson sagði að merki Landssamtakanna yrðu seld um allt land. Öllum félögum í samtökunum hefði verið send bréf og treystu þau á ný á samtakamátt þeirra. Landssamtökin vom stofnuð árið 1983 og með frjálsum framlög- um, sem þeim bámst skömmu eftir stofnunina, var gefínn tækjabúnað- ur til hjartadeildar Landspítalans, svonefnd Holtertæki. Þá fór fram landssöfnun árið 1985 og afrakstri þeirrar söfnunar varið til kaupa á hjartaaðgerðartækjum sem tekin verða í notkun, þegar hjartaaðgerð- ir heflast á Landspítalanum, vænt- anlega á komandi hausti. Söfnunin nú er að sögn Rúriks í beinu fram- haldi af Iandssöfnuninni 1985, því endurhæfing hjartasjúklinga sé oftast nauðsynlegt framhald að- gerðanna. Sagðist Rúrik vonast til, að þessu framtaki yrði tekið eins vel af landsmönnum. Söfnunin fer fram, eins og fyrr segir, fímmtu- daginn 5. og föstudaginn 6. júní n.k. Viðtal: Fríða Proppé. Ljósmyndir: Börkur Arnarson. ! Bladburóarfólk óskast! I AUSTURBÆR Skipholt 1 -50 KÓPAVOGUR Álfhólsvegur 2-63 VESTURBÆR Tjarnargata frá 39- Suðurgata frá 29- Brávallagata JKtfjpmHfitoife LANDSBANKA Á laugardaginn efnir Landsbanki ísiands til 100 ára afmælishlaups í samvinnu við Frjálsíþróttasamband Islands. Hlaupið er ætlað öllum krökkum sem fæddir eru 1975 og 1976. Keppnin fer fram víósvegar um landið þar sem bankinn hefur afgreiðslur og útibú. Sigurvegari á hverjum stað, fær verðlaunapening og þátttökurétt í úrslitahlaupinu sem fer fram í Reykjavík i haust. Allir þátttakendur fá viðurkenningu fyrir þátttökuna og dregið verður um aukaverðlaun á hverjum staó, Kjörbók með 2.000.-króna innstæðu. j Skráning fer fram í öllum útibúum og afgreiðslum :'$0. á ■ ■ ■ og þar fást einnig nánari upplýsingar. fmÍSf Jl Banki allra landsmanna í 100 ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.