Morgunblaðið - 19.06.1986, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. JÚNÍ 1986
5
ifí h| W '' L‘3 r ^Mili, W
Forseti borgarstjórnar, Magnús L. Sveinsson, ósamt nýstúdentum, leggnr blómsveig að leiði Jóns
Sigurðssonar.
17. júníí Reykjavík:
A
Ovenju fjölmennt í miðborginni
HÁTÍÐARHÖLDIN í Reykjavík fóru, að sögn lögregl-
unnar, í alla staði vel fram. Veður var gott og óvenju
fjölmennt í miðbænum.
Mikil aðsókn var að útiskemmt-
uninni í miðborginni, en hún fór
að þessu sinni fram á þremur
stöðum; á Lækjartorgi, í Hallar-
garðinum og Hljómskálagarðin-
um, en mannfjöldinn dreifðist
nokkuð jafnt um allt hátíðarsvæð-
ið. Áætlað er að um 20—30 þús-
und manns hafí verið saman
komin í miðbænum þegar flest
var, milli kl. 14.00 og 16.00, og
mun það vera fleira en dæmi eru
til á þessum degi.
Varðstjóri miðbæjarlögregl-
unnar sagði í samtali við Morgun-
blaðið að góð stemmning hefði
verið í bænum en nokkuð hefði
verið um að böm týndu foreldrum
sínum og öfugt og hefði lögreglan
reynt að koma þar til hjálpar.
Ekki var mjög margt á úti-
skemmtuninni á Lækjartorgi um
kvöldið, en um 5.000 ungmenni
voru á tónleikum í Laugardalshöll
á vegum Listahátíðar og mun
hluti af þeim hafa safnast saman
í miðbænum eftir tónleikana. Ekki
var um umtalsverða ölvun að
ræða.
Áætlað er að milli 20 og 30 þúsund manns hafi verið í miðbænum
þegar flest var.
20 tilboð frá 8 löndum
bárust í Japans-togarana
Lægsta tilboð frá Póllandi, það hæsta frá Danmörku
20 TILBOÐ frá 8 löndum bárust
í breytingar og viðgerðir á 6 ís-
lenzkum togurum, öllum eins,
byggðum í Japan. Lægstu til-
boðin komu frá Pólverjum, en
það hæsta frá Dönum. Þijú ís-
lenzk tilboð bárust og var tilboð
Slippstöðvarinnar á Akureyri
lægst þeirra. Endanlegum sam-
anburði á tilboðum er ekki lokið
og því óljost hvaða tilboði verður
tekið.
Húsavík:
Skipta á um aðalvélar í öllum
skipunum, lengja þau um 6,5 metra,
setja meltubúnað um borð, ný hjálp-
arspil, skipta um millidekksbúnað
auk ýmissa tilfallandi lagfæringa.
Vélar og spil eru keypt frá Japan
og kosta um 34 milljónir króna í
hvert skip. Það eru því aðrir verk-
þættir, sem boðið var í og lægsta
tilboðið kom frá Póllandi, 49 millj-
ónir króna á skip. Kostnaðaráætlun,
sem gerð hafði verið, hljóðaði upp
á um 73 milljónir króna á hvert
skip fyrir utan vélamar. Hæsta til-
boðið, frá Danmörku, var upp á 153
milljónir. Næstu tilboð voru um 30
milljónum króna lægri.
Þar sem endanlegur samanburð-
ur á tilboðunum liggur ekki fyrir,
reyndist ekki unnt að fá frekari
upplýsingar um þau eða röð þeirra
á mánudag er þau voru opnuð. Röð
tilboða eftir löndum var þó þessi:
Pólland, Portúgal, Bretland, ísland,
Noregur, Holland, Þýzkaland og
Danmörk.
Mikil rigning á
þjóðhátíðardaginn
Húsavfk.
LEIKFÉLAG Húsavíkur sá um
17. júní-hátíðarhöldin á Húsavík
að þessu sinni og hafði undirbúið
ýmsar óvæntar uppákomur, sem
flestar féllu niður vegna óhag-
stæðs veðurs, norðanrigningar.
Hátíðarhöldin hófust með messu
í Húsavíkurkirkju, þar sem séra
Nafn féll
niður
í grein Guðjóns Ármanns Eyj-
ólfssonar í tilefni af aldarminn-
ingu Jóhanns Þ. Jósepssonar féll
niður nafn Unnar, dóttur Jóhanns,
sem lést árið 1931,21 árs að aldri.
Bjöm H. Jónsson predikaði. Skrúð-
ganga fór frá sundlauginni og var
meiningin að fara að bamaskólan-
um, en vegna rigningar var gengið
til félagsheimilisins og þau atriði
sem áttu að fara fram úti fóra fram
þar inni. Lúðrasveit lék undir stjóm
Benedikts Helgasonar. Hátíðarræð-
una flutti Þorkell Bjömsson og
ávarp fjallkonunnar flutti Regína
Sigurðardóttir. Einnig vora fluttir
leikþættir og kvartett söng. Fyrir-
huguð útihátíð, með íþróttum og
fleiru, féll hins vegar niður vegna
veðurs. Sundmót fór hins vegar
fram, því rigningin hefti það ekki.
Um kvöldið átti að dansa úti við
bamaskólann, en dansinn fór fram
inni, þótt veðrið færi batnandi með
kvöldinu. Mikið fjölmenni sótti
þessa samkundu.
Hlaut styrk
fyrir skrif um
ljóð Snorra
Hjartarsonar
Minningarsjóður dr. phU. Jóns
Jóhannessonar prófessors veitti
þann 6. júní sl. Páli Valssyni
styrk fyrir kandidatsritgerð sem
hann vinnur að um skáldskap
Snorra Hjartarsonar.
í ritgerðinni fjallar Páll um ein-
kenni ljóða Snorra og hvaða nýmæli
hann hefur fært inn í íslenska ljóða-
gerð. Minningarsjóður dr. phil. Jóns
Jóhannessonar prófessors er í eigu
Háskóla íslands og er fjármagnaður
með sölu minningarkorta á skrif-
stofu háskólans.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans! y
Hvarfærðu betra verð
og betri stóla
16.930
Royal-stóllinn á krossfæti
er stillanlegur og með góðu
nautaleðri í mokkalit á slit-
flötum. Beiki-
grindur Ijósar
og dökkar.
Tveirstólará
32.000,-.
14.560
Moss er bróðir Royal á fjór-
um löppum. Taktu tvo á kr.
27.000,-.
Með þessum stólum fást
skammel í stíl á kr. 4.980,-.
Fréttaritari