Morgunblaðið - 19.06.1986, Side 7
dBKI UUiIAUUTMMIÍ .=il«A,IM/líLí3íT0l
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JUNÍ 1986
f
Þjónustumiðstöð
heilsugæsla
íbúðir aldraðra
Borgarráð hefur samþykkt
teikningar af 7.800 fermetra
byggingu á horni Garðastrætis
og Vesturgötu. Þar er gert ráð
fyrir tæplega 4.000 fermetra
bílageymslu, þjónustumiðstöð
fyrir aldraða á 550 fermetrum,
heilsugæslustöð á 500 fermetrum
og íbúðum fyrir aldraða á 1.200
fermetrum.
Eins og sjá má á myndinni er
gert ráð fyrir garði á milli bygging-
anna. Að sögn Guðmundar Pálma
Kristinssonar verkfræðings hjá
byggingardeild Reykjavíkurborgar
hefur tillagan þegar verið samþykkt
í undimefndum og er áætlað að
hefja framkvæmdir í nóvember.
Morgunbladið/Bjami
Skipulagshöfundar Gijótaþorpsins, og Stefán Öm Stefánsson, em
arkitektamir Hjörleifur Stefánsson hönnuðir hússins.
Varðarferð að Veiðivötnum
HIN árlega Varðarferð verður
farin laugardaginn 5. júlí nk.
Að þessu sinni liggur leiðin
inn að Veiðivötnum. Farið verð-
ur af stað frá Valhöll kl. 08:00
og ekið i Þjórsárdal og drukkið
morgunkaffi. Síðan verður ekið
inn að Veiðivötnum, þar sem
dvalið verður nokkra stund. Að
lokinni dagskrá þar sem for-
maður Sjálfstæðisflokksins,
Þorsteinn Pálsson, mun m.a.
flytja ávarp verður ekið um-
hverfis Veiðivötn.
Á heimleið verður ekið niður
Landsveit, stoppað í Galtalækjar-
skógi, við rætur Heklu og síð-
degiskaffí dmkkið. Áætlað er að
komið verði til Reykjavíkur kl.
19:00.
Sú nýbreytni verður nú tekin
upp að ekki verður boðið upp á
mat, heldur til þess ætlast að fólk
hafí sitt eigið nesti og þátttöku-
gjald þá lækkað að sama skapi.
Þátttökugjald verður 750 kr. fyrir
fullorðna, 400 kr. fyrir böm 6—12
ára og frítt fyrir yngri en 6 ára.
í Veiðivötnum er mikil nátt-
úmfegurð. Vatnasvæðið er um-
girt söndum, en opnast sem para-
dís þegar komið er að vötnunum.
Þar skartar íslensk náttúra sínu
fegursta. Mjög góður vegur er nú
inn að Veiðivötnum. Aðalfarar-
stjóri verður Einar Guðjohnsen.
Þess er vænst að sem flestir
noti þetta tækifæri til að kynnast
einum þeirra staða, sem til
skamms tíma var lokaður allflestri
umferð.
(Fréttatilkynning)
Auöi
er bíll
hinna vandlátu
ATJDI er jDÝsku.r fc>íll
AUDI er íormíagur k>íll
AUDI er Ýmist meö írctmdrií
eöa ccldrií (Q.u.ctttro)
AUDI er meö zinlc ryövörn
AUDI er meó lcecjstct vindstuöul
íjöldctírctmleiddrct t>ílcc - cd 0.30
AUDI er meö véUDÚnctö í sérílokkii
HEKLA HF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
§ Kjúklingur er hollur, góður og síðast en ekki síst
Iódýr matur.
Við viljum að allir borði kjúkling að minnsta kosti
einu sinni i viku og velji sér kjúklingadag.
Hér birtist spennandi uppskrift úr samkeppni
ÍSFUGLS, veldu þér kjúklingadag og reyndu
uppskriftina.
JAPANSKUR KJÚKLINGUR
MARGRÉT PÁLSDÓTTIR
Sérstök blanda af sætu, söltu og súru gerir þennan
kjúklingapottrétt sérlega góöan og spennandi — ekki
síst ef von er á gestum. Hann er auðveldur og fljót-
lagaður.
Þetta þarf fyrir fjóra:
1 kjúklingur ca. 1 kg
1 tsk. salt
1/4 tsk.pipar
1/2 msk. engiferduft
1 msk. smjör eða smjörlíki
2 dl hænsnakjötkraftur (bestur þykir
mér fljótandi krafturinn frá „Bong" fæst
t.d. í Hagkaup)
3 dl ananasdjús (e.t.v. að hluta úr
dósinni, sjá neðar)
1 dl hvítvín
1/2 dl edik (útþynnt)
1 - 2 msk. soyasósa (gjarna indó-
nesísk soya frá ,,Bong")
1 lítil dós ananas
1 rauðpaprika
1 grænpaprika
1 meðalstór laukur
3 tsk. kartöflumjöl
2 msk. appelsínumarmelaði
1. Hlutið kjúklinginn í 8 hluta (eða kaupið í hlutum).
Kryddið þá með salti, pipar og engifer.
2. Brúnið þá á pönnu með smjörinu og leggið síðan
bitana yfir í góðan pott, gjarnan með þykkum botni.
3. Hellið yfir kjötkraftinum, hvítvíni, ananasdjús, soya-
sósu og edikinu og látið þetta malla í 10 mínútur.
4. Skerið burt kjarnann úr paprikunni og skerið í ræmur
ásamt lauknum. Bætið þessu svo í pottinn og látið
sjóða 10 mín.
5. Skerið ananasinn í bita og takið síðan kjúklinginn og
grænmetið upp úr pottinum og setjið til hliðar.
6. Kryddið soðið með marmelaðinu og e.t.v. örlitlu
engifer og soyasósu til viðbótar, eftir smekk.
7. Hrærið kartöflumjölið út með örlitlu vatni og hellið
varlega í soðið.
8. Setjið loks allt aftur í pottinn að viðbættum ananas-
bitunum og skerpið e.t.v. örlítið hitann áður en rétt-
urinn er borinn fram.
GOTf-
HOLLT
OG ÓdÝRT
ísfugl
Sími: 666103