Morgunblaðið - 19.06.1986, Síða 21
MOftGÚNBLAÐIÐ, FIMMÍUÚAGUR 19. JÚNÍ 1986
21
ingum og húsgögnum ásamt hinum
mannlega þætti, eða starfsmannin-
um sjálfum.
Gildi og gæði umhverfis er oft
erfitt og flókið að meta en einn
mælikvarðinn eru afköst starfs-
fólks. Án hæfra starfsmanna nær
ekkert fyrirtæki árangri og til þess
að hæfni starfsfólks fái notið sín
verður að sníða umhverfi og búnað
að þörfum þess, enda sýna niður-
stöður nýjustu rannsókna á þessu
sviði þetta svo ekki verður um villst.
Bandaríska framleiðnimiðstöðin
(American Productivity Centre/
APC) hefur gert slíka rannsókn.
Náði rannsóknin til 600 banda-
rískra fyrirtækja og leiddi í ljós að
16,3% framleiðsluaukning varð
vegna aukins tölvubúnaðar, 11,9%
framleiðsluaukning varð vegna
persónulegrar hvatningar og sí-
menntunar starfsmanna en vegna
fullkomnari aðbúnaðar og innrétt-
inga á vinnustað varð framleiðsiu-
aukning hvorki meira né minna en
11,6%.
Hagkvæmnismat á
lausum búnaði
Við mat innréttinga er einnig
mikilvægt að hafa í huga að erlend-
ar rannsóknir sýna að fyrirtæki
veija að jafnaði 2% útgjalda sinna
til kaupa á lausum búnaði á meðan
90% fara til launagreiðslna. Með
þetta í huga er ljóst að stofnverð
innréttinga skiptir hér sáralitlu máli
samanborið við þá hagræðingu og
þann afkastaauka sem fullkomið
innréttingakerfí leiðir af sér.
Gefí maður sér það að Ríkisút-
varpið greiði samtals 15 milljónir í
laun á mánuði eru það 180 milljónir
(227 milljónir samkv. Qárlaga-
frumv. 1986) á ári. Sé reiknað með
11,6% afkastaaukningu (byggt á
rannsókn APC) með kaupum á
fullkomnu innréttingarkerfí gætu
sparast um 20 milljónir króna á ári
í launakostnaði stofnunarínnar.
Þetta jafngildir því að Rfkisútvarpið
hefði mátt kaupa tvöfalt dýrarí
innréttingar, en það gefur upp að
það ætli að kaupa og afskrífað alian
kostnaðaraukann á einu árí. Að
loknu 5 ára tímabili (fymingartími
skv. skattalögum) gæti spamaður
numið um 80 milljónum króna sem
er um 35% heils árs launakostnaður
stofnunarinnar í dag.
Augljóslega yrði hagræði Ríkis-
útvarpsins enn meira þ.e. því bauðst
háþróað innréttingakerfí á aðeins
25-30 milljónir (nákvæmar tölur
hafa ekki fengist) og vegna þess
hversu stór launagreiðandi (39% af
heildarútgjöldum) það er og að gera
verður ráð fyrir að áætlaður launa-
kostnaður skv. fjárlögum geti farið
fram úr áætlun.
Lokaorð
Eins og hér hefur verið rakið
hefur því miður mjög klaufalega
tekist til með útboð Ríkisútvarpsins.
í fyrsta lagi er ekki hægt að bjóða
út steyptan veg en taka síðan til-
boðum í malarveg. Það er skýlaust
brot á þeim útboðsreglum sem
miðað er við. íslenskar ríkisstofnan-
ir em að öllu jöfnu mjög nákvæmar
í þessu tilliti og sjá sóma sinn í
því að hafna öllum tilboðum og
bjóða út aftur, vilji þær slá af kröf-
um sínum. Ekki fer milli mála að
miðað var við háþróað og samræmt
kerfí í lýsingu, enda áætlun nefnd-
arinnar upp á kr. 28,5 milljónir
þvítil staðfestingar.
í öðru lagi verður að krefjast
þess þegar ríkisstofnun býður út á
alþjóðamarkaði, að staðið sé að
verki af fullri ábyrgð og allir bjóð-
endur látnir sitja við sama borð.
Mjög ber að varast fljótfæmislegar
yfírlýsingar með ákveðnum bjóð-
endum sem túlka má á móti öðrum.
í þriðja lagi verður mat á til-
boðskostum að ná til gæða og
hagkvæmni en ekki einungis verðs.
Hagsmunagæsia byggðasjónar-
miða og þrýstihópapot stórra sam-
taka atvinnurekenda sem hamla
samkeppni má ekki koma í veg fyrir
að faglegar ákvarðanir séu teknar.
Höfundur er framkvæmdastfóri
Magnúsar Kjaran hf.
Akranes:
Ný sjúkrabifreið tekin
í notkun á Akranesi
Akranesi.
TEKIN hefur verið i notkun ný
sjúkrabifreið á Akranesi og var
hún afhent formlega til afnota
föstudaginn 6. júni sl. við hátíð-
lega athöfn.
Bifreiðin, sem er af gerðinni
Volkswagen Caravelle syncro, hef-
ur verið útbúinn sérstaklega til
sjúkraflutninga og þykir verkið
hafa heppnast sérstaklega vel og
er boðið uppá góða starfsaðstöðu
fyrir sjúkraflutninga- og hjúkrunar-
fólk. Hekla hf., sem hefur umboð
fyrir bifreiðina, flutti hana til lands-
ins og bauð á mjög hagstæðum
kjörum. í kaffísamsæti, sem Hekla
hf. bauð til að lokinni afhendingu,
lýsti Finnbogi Eyjólfsson, fulltrúi
Heklu hf., bifreiðinni fyrir viðstödd-
um en þessi bifreið er sú fyrsta
sinnar tegundar sem tekin er í
notkun hér á landi.
Bifreiðin er með sítengdu aldrifi
og mismunadrifslæsingu bæði á
fram- og afturási. Enginn milligír-
kassi er í bflnum, sem er með 5
gíra áfram, þar af einn torfærugír.
Vélin er 4 strokka 78 ha vatnskæld.
Gormafjöðrun er á öllum hjólum
með tvívirkum höggdeyfum. Á bfln-
um eru aflhemlar með skálum að
aftan en diskum að framan ásamt
þrýstijafnara milli fram- og aftur-
hjóla.
Allur þessi búnaður gerir bflinn
sérstaklega fjölhæfan til sjúkra-
flutninga vegna góðrar Qöðrunar
og einnig að hann er í senn hrað-
akstursbfll og torfærubfll.
Það er Akranesdeild Rauða
krossins sem á bifreiðina en um
rekstur hennar sér lögreglan á
Akranesi. Margir aðilar tóku sig
saman ásamt Rauða krossinum við
kaup þessarar bifreiðar og í ávarpi,
sem Lars R. Andersson, formaður
Akranesdeildar Rauða krossins,
hélt við þetta tækifæri, færði hann
öllum þeim sem studdu þessi bif-
reiðakaup bestu þakkir fyrir og
afhenti hveijum og einum skjal þar
að lútandi. Ástæða er til að fagna
því hve vel er staðið að sjúkraflutn-
ingum á Akranesi og ekki síður
viðhaldi og endumýjun á bifreiðum
sem gert er með jöftiu millibili.
JG
Hin nýja sjúkrabif reið afhent.
■ :■' ■ ■■
7
.
...ljúffengt og bragðmikiö
KEXVERKSf
AUGLÝSINGADEILD