Morgunblaðið - 28.06.1986, Side 11

Morgunblaðið - 28.06.1986, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1986 11 Glaðværð o g sorg hjá Sömum Leiklist Jóhann Hjálmarsson Norræn leiklistarhátíð áhuga- manna í Reykjavík: VÁIKKO CUOÐISTÁLU eftir Beaiwas. Leikstjóri: Knut Walle. Tónlist: Egil Keskitalo og Josef Halse. Leikmynd: Aage Gaup. Lýsing: Kurt Hermansen. VÁIKKO CUOÐI STÁLU er hlutur Sama í hinni norrænu leik- listarhátíð áhugamanna sem sett hefur svip á Iistalífið í Reykjavík að undanfömu. í þessu verki er saga Sama rakin frá fomöld til samtíma. Sýnt er með mörgum dæmum hvemig friðsamt og glaðvært fólk, dæmi- gerð náttúmböm, verður fyrir ofsóknum. Meðal kúgara em trú- boðar, skattheimtumenn, stjóm- málamenn og fulltrúar nútíma lifnaðarhátta. Norðmenn reyna á síðari hluta nítjándu aldar að gera Samana að Norðmönnum, m.a. með því að banna samískt mál í skólum. Rifluð er upp saga sjálf- stæðishetjunnar og skáldsins Lars Hætta sem þýddi Biblíuna í fang- Úr leikriti Sama á Norrænni leiklistarhátið áhugamanna. elsi. Lýst er hvemig sjálfstæðis- dregur dám af félagslegum rétt- barátta Sama tengist mannrétt- lætiskröfum. indabaráttu tuttugustu aldar og Það er fyrst og fremst í sam- tímaumijöllun sem leikritið verður pólitískt, leitast við að brjóta ýmis viðkvæm mál til mergjar. Þá taka höfundar verksins mið af því sem hefur verið að gerast í ádeiluleik- ritun síðustu áratugi, notfæra sér leikræn brögð til að koma skoðun- um sínum á framfæri. Þetta tekst yfírleitt vel. Fortíðinni er lýst með þeim hætti að tónlist, dans, hreyfingar og grímur segja söguna. Meira er um tákn en orð og þess vegna getur áhorfandi sem kann ekki orð í samísku notið sýningarinnar og skilið hana, að minnsta kosti meginatriði. Skáldskapur Sama sem undir- ritaður heftir kjmnst lítillega í þýðingum er í anda náttúrulof- gerðar og einfaldleika í tjáningu. Þetta einkennir líka leikrit Sam- anna sem hér er drepið á. Víða í verkinu eru stflhrein og falleg atriði, mörg hver litrík. Það var auðvelt að hrífast af túlkun Samanna, einkum þegar þeir fengust við fortíðina, en samtíma- myndimar orkuðu síður á mig þótt margt í þeim væri fjörlegt og lif- andi. Þau atriði í sýningunni sem lýsa þjóðtrú og töfrum þóttu mér áhrifaríkust. Leikaramir lögðu sig mjög fram, hver með sínum hætti. Þeir vom Sverre Porsanger, Anne Jorid Henriksenj Ámmun John- skareng, Ingur Ántte Ailu, Mary Sarre, Marie Kvemmo og Svein B. Olsen. Tónlistin var kraftmikil, sér- kennileg blanda úr ýmsum áttum. Náttúru- fræðifélagið með ferð í Þerney HIÐ íslenska náttúrufræði- ^ félag hefur ákveðið að standa fyrir ferð í Þemey næstkomandi sunnudags- kvöld, 29. júní. Síðastliðið sunnudagskvöld var ferð í Þemey á vegum félagsins og komust færri að en vildu. Þess vegna hefur félagið ákveðið að endurtaka ferðina. Sá fyrirvari er aftur hafður á að aðeins er lendandi í eyjunni í stilltu veðri. Ef ólendandi er verður það auglýst fyrir kvöld- fréttir í útvarpinu á sunnudags- kvöld. Siglt verður til eyjarinnar á bátnum Skúlaskeiði frá Kom- hlöðunni við Sundahöfn í Reykja- vík kl. 20, og komið til baka um kl. 23.30. Leiðsögumenn verða þeir Ámi Einarsson, Snorri Bald- ursson og Þóra Ellen Þórhalls- dóttir líffræðingar og Ámi Hjart- arson j arðfræðingur. Allir em velkomnir en fólki er ráðlagt að mæta í stígvélum og þeir sem eiga hafí sjónauka með. Askriflaniminn er 83033 LANDSBANKASYNING 100ÁRA AFMÆLI I.ANDSBANKA ÍSIANDSOG ÍSŒNSKRAR SEÐLAUTGAFU r r r 28.JUNI-20.JUU I SEÐLABANKAHUSINU rf Itilefni 100 ára afmælis Landsbankans og íslenskrar seðlaútgáfu hefur verið sett upp vegleg sýning í nýja Seðlabankahúsinu við Kalkofnsveg. Þar er m.a. rakin saga gjaldmiðils á íslandi allt frá landnámsöld, fyrsta afgreiðsla bankans endurbyggð, skyggnst inn í framtíðarbankann, sýndar gamlar gullfallegar vélar og fylgst með hvernig peningaseðill verður til. sýningunni verða seldir sérstakir minnispeningar og frímerki, þarer vegleg verðlaunagetraun og léttur útibúaleikur og daglega eru sýndar kvikmyndir um Landsbankann og sögu íslenskrar seðla- og myntútgáfu. Þá eru einnig sýnd saman opinberlega í fyrsta sinn málverk í eigu bankans eftir marga bestu listmálara þjóðarinnar. Veitingasala er á sýningunni og leiksvæði fyrir börn. ýningin er opin virka daga frá kl. 16.00-22.00 og frá 14.00-22.00 um helgar. Við hvetjum alla til þess að sjá þessa stórskemmtilegu sýningu. Aðgangur er ókeypis. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna í 100 ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.