Morgunblaðið - 28.06.1986, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1986
Börnin færa sig eftir því hvort þau eru að hlusta, endurtaka, skrifa eða vélrita.
Tölvur notaðar
til lestrarkennslu
Lftil fátæk svertingjastelpa fylgist með nýja tðlvuskerminum frá
IBM.
Sigurborg Ragnarsdóttír
skrifar frá Washington
„Bam sem lært hefur að lesa er
ekki sama bam og áður, minnið,
athyglisgáfan og þankagangur
bamsins hefur skerpst. Bamið flyst
þannig yfír á æðra svið málþrosk-
ans.“
Þannig ritaði Lev. Semenovick
Vygotsky í bók sína „Thought and
Language", árið 1934 og gætu
þessi orð allt eins verið skrifuð í
dag. Er ekki úr vegi að hefja þessa
grein með slíkum inngangsorðum,
þar sem lýst verður hér á eftir
athyglisverðri lestrarkennslu, svo-
kallaðri „Writingto Read“.
Það hefur verið áætlað að u.þ.b.
10% allra bama, sem eru meðal-
greind eða þar fyrir ofan, eigi við
einhvers konar lestrarörðugleika að
stríða. Ef svo er, þá má áætla að
2—3 milljónir bandarískra bama
eigi í vandræðum með að læra að
lesa.
Ólæs amma lærir
að lesa
í fyrrasumar gafst undirritaðri
tækifæri til að kynnast starfsemi
lestrarmiðstöðvar George Washing-
ton háskóla. Þangað leitar fólk á
öllum aldri sem á í einhvers konar
örðugleikum með að læra að lesa.
Það er vitað mál að því fyrr sem
brunnurinn er byrgður þeim mun
minni hætta er á að bamið falli
ofan í hann. En því miður eru það
ekki einungis ungir nemendur sem
þama sækja hjálp heldur talsvert
af eldra fólki. Við kynntumst t.a.m.
sextugri ömmu, sem tók upp á því
fyrir ári síðan að læra að lesa. Einn
góðan veðurdag þegar bamabömin
báðu ömmu að lesa fyrir sig, varð
hún skelfíngu lostin og leitaði á
náðir lestrarmiðstöðvarinnar. Eftir
eins árs nám hjá mjög góðum
kennara getur amma lesið fyrir
bamabömin og auk þess fyllt út
ávísanaeyðublöð hjálparlaust. Mörg
önnur dæmi væri hægt að taka en
of langt mál að telja þau öll upp hér.
Það er þvf ekki að undra að skóla-
menn reyni stöðugt nýjar Ieiðir til
að koma í veg fyrir ólæsi og ein
nýjasta er svokölluð „Writing to
Read“ aðferð. Byggist hún á því
að láta bömin skrifa um það sem
þau geta tjáð sig um þegar þau
koma fyrst í skólann. Þessi aðferð
hefur nú verið notuð í nokkmm
skólum höfuðborgarinnar og gefíð
góða raun, sérstaklega þykir merki-
legur árangur hafa náðst í einu
aðalfátækrahverfi höfuðborgarinn-
ar, Anacostia.
Pennavinur Reagan
Þegar undirrituð hugðist heim-
sækja Martin Luther King bama-
skólann í Anacostia til að kynnast
af eigin raun hvemig þessari aðferð
er beitt vora ýmsar fortölur og
viðvaranir reyndar. En það var ekki
um annan máta að ræða en fara á
eigin bfl þar sem almennings sam-
göngukerfið er fremur bágborið á
þessu svæði borgarinnar.
Á leið minni suður 295 hrað-
brautina hvarflaði hugurinn ósjálf-
rátt að því sem beið. Agaleysi, út-
krotaðir veggir, óhreinindi, böm illa
til fara, vannærð o.s.frv. Fljótiega
eftir að beygt var út af hraðbraut-
inni kom í ljós að ekið var um fá-
tækrahverfi, sambýlishús í meiri-
hluta, hlerar negldir fyrir glugga,
óhreinindi, fólk hangandi aðgerðar-
laust í hópum á götum úti. Brúnin
lyftist hins vegar all veralega er inn
í barnaskólann kom því þar biðu
hvítkalkaðir veggir, glerskápar og
töflur með haganlega fyrirkomnum
upplýsingum um skólahald. Á einni
töflunni vora myndir af Ronald
Reagan, en hann og kona hans
hafa bæði heimsótt skólann og
reyndar tók forsetinn skólann undir
sinn vemdarvæng árið 1983. For-
setinn á einnig ágætan pennavin í
skólanum, Rudolph Hines. Þeir
skrifast á nokkuð reglulega. Við
hittum Rudolph, sem er fremur fá-
orður, glaðlegur strákur, á skrif-
stofu skólans. Hann svarar stutt
og laggott Já“, þegar hann er
spurður hvort það sé gaman að
skrifast á við forseta landsins. Tján-
ingarmáti Rudolphs breytist hins
vegar all veralega þegar hann sest
fyrir framan tölvuskerminn og
segist hann þá skrifa forsetanum
um allt milli himins og jarðar s.s.
um aðaláhugamá! sitt sem er að
mála og einkunnir sínar hverju
sinni. Ólíkt mörgum öðram bömum,
fínnst Rudolph og vini hans gaman
að skrifa, þeir hafa þjálfast í því
síðan þeir byijuðu í skóla með hjálp
„Writingto Read“ aðferðarinnar.
John Henry Martin, þaulreyndur
skólamaður er höfundur þessa nýja
kennsluefnis og hefur ásamt IBM
tölvufyrirtækinu komið því á mark-
að. Þessi aðferð fékk góða dóma
er fram fór alls heijar mat á gildi
þess hjá Aðalstöðvum Námsmats í
New Jersey sumarið 1984.
Tölvuherbergfið
í Martin Luther King skólanum
er sérstakt tölvurannsóknarher-
bergi eða „Lab“ eins og það er
Tölvuherberginu er skipt niður í ýmis vinnusvæði.
Nemendumir vinna saman að verkefnum á tölvunum.
oftast kallað. Hjálparkona ber
ábyrgð á tækjaútbúnaði og öðra
sem er í herberginu, auk þess sem
hún aðstoðar bömin við vinnu sína.
Hver kennari fær 1 klst. til umráða
í herberginu dag hvem, en auk
þess eyða þeir miklum tíma til
undirbúnings og annarrar vinnu
inni í skólastofunum. Rannsóknar-
herberginu er skipt niður í ólíkar
stöðvar: Tölvu-, vinnubókar-, hlust-
unar- og orðabókarstöð. Það var
augljóst þegar bömin tóku að
streyma hljóðlaust inn á vinnusvæð-
in að þau vissu nákvæmlega hvert
þau áttu að fara og hvað þau áttu
að gera. Það var ekki einungis
skólabyggingin sem var hvítkölkuð
heldur vora nemendur og starfsfólk
skólans vel klædd og snyrtileg til
fara. Reyndist erfitt þessa dagstund
að átta sig á þvi að við væram stödd
í aðalfátækrahverfí Washington-
borgar. Bömin settust tvö og tvö
með verkefni sín og tóku ekkert
eftir gestum dagsins, virtust vön
slíkum heimsóknum og byijuðu
strax að vinna. Thelma Michael sem
er aðalframkvæmdastjóri þessa
kennsluefnis á höfuðborgarsvæðinu
sagði okkur í stuttu máli hvemig
það væri skipulagt.
Börnin nota hljóðtákn
Aðalmarkmið þessa kennsluefnis
er að kenna bömunum hljóðgrein-
ingu. Nemendur eiga smátt og
smátt að gera sér grein fyrir að
þau geta skrifað og síðan lesið allt
sem þau geta sagt. 40 hljóðtákn
era notuð í ensku talmáli. Þessi 40
tákn era stafsett á 500 mismunandi
vegu. Með því að nota þetta kerfi
þá læra bömin að skrifa hljóð-
fræðilega. 42 hljóðtákn era kennd
stig af stigi í 10 mismunandi hlutum
kennsluefnisins og notuð eru algeng
orð úr dagiegu talmáli. Bömin fá
alls 10 verkefnabækur með 42
hljóðtáknum. Aðaláherslan er lögð
á að skrifa táknin eins og þau
hljóða. Á þennan hátt geta bömin
betur einbeitt sér að því sem þau
vilja segja, í stað þess að beijast
við rétta eða ranga stafsetningu.
Bömin era sem sagt stöðugt hvött
til þess að skrifa orðin eins og þau
hljóma og geta síðar leiðrétt þau,
er þau birtast í bók. Áhersla í þessu
kerfí er sem sagt aðallega á myndun
hljóðtákna en minna máli skiptir
hvort þau skrifa eins og eftir for-
skriftarbókum.
Thelma tjáði okkur ennfremur
að það væri mun auðveldara fyrir
5 og 6 ára böm að skrifa orðin eins
og þau hljóma en að læra allar
undantekningar frá reglunni í flók-
inni enskri tungu. Ef bömin losna
við að hafa áhyggjur af því hvort
þau skrifa rétt eður ei, þa'geta þau
notað ríkulegan orðaforða sinn í
stað þess að takmarka sig við þau
fáu orð sem þau kunna að skrifa.
Árangur hefur þegar komið í ljós,
heldur Thelma áfram, því hingað
til höfum við varla getað ímyndað
okkur að 5 ára krakki gæti tjáð sig
í söguformi.
Ekkert virtist hindra þessi 5—6
ára böm við vinnu sína hvort heldur
þau vora að skrifa, lesa yfír eða
vélrita lokaeintak sögu sinnar. Ekki
era allir sammála Thelmu um ágæti
ritvélanotkunar. Kenneth Komoski
framkvæmdastjóri fyrirtækis er
metur gæði kennsluefnis og álítur
„Writing to Read“ ágætis kennslu-
efni, telur hugmyndina, að leita til
ritvélar, forkastanlega. Notkun
tölva telur hann hins vegar réttu
leiðina til að örva áhuga bama á
að skrifa. Það er hins vegar hægara
sagt en gert, þar sem flestir skólar
hafa hvorki nægilegt magn af tölv-
um né fjárráð til að kaupa þær.
Hver tölva í tölvuherberginu
hefur 11 diska. Einn er bein kynn-
ing á tölvunni og hljóðum stafrófs-
ins, en hinir 10 era beint kennslu-
efni sem hvert inniheldur 3 ný orð.
Auk þess fylgja próf og aukaverk-
efni ýmiss konar. Bömin fá stífa
kennslu í 15 mínútur á tölvuna og
eiga þá að læra hljóðtáknin 42, sem
þau þurfa til að geta skrifað allt
sem þau geta sagt.
Á hlustunarsvæðið fara bömin
þegar þau hafa lokið fyrsta
kennsluefni, en þar geta þau notað
segulband og heymartæki. Þama
geta þau borið saman tal og ritmál,
auk þess sem þau geta hlustað á
sögur sem hafa verið teknar upp á
hæggengum hraða.
Þriggja ára gömul stúlka við tölvu.