Morgunblaðið - 28.06.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAU G ARDAGUR 28. JÚNÍ 1986
19
It
í tilefni tfu ára afmælis Subaru á tslandi: F-9X í sýningarsal Ingvars Helgasonar. Handan
framtíðarinnar sér í nútíðina, Subaru Coupé, og ef vel er að gáð má sjá að þeim svipar saman
að aftanverðu. Þess verður e.t.v. ekki svo ýkja langt að biða að fjarlægir draumar um komandi
tíma verði hversdagsleg brúksþing sem við tökum varla eftir fyrr en við lesum um þróun i
sðgubókum?
Framtíðin tyll-
ir tánni á Frón
einni slíkri á fót í Bandaríkjunum
í samvinnu við Isuzu, sem mun
framleiða pallbfla en Subaru hefur
fólksbfladeildina á sinni kðnnu.
Fabrikkan sú ama á að komast í
gagnið innan þriggja ára.
Breyttir tímar
Nú þykist enginn bflaframleið-
andi maður með mönnum nema
hann geti boðið upp á drif á öllum
hjólum á bflunum sínum og eru
það aðrir tímar en voru þá Subaru
var sem boðflenna í jeppaklúbbi.
Afleiðing þess (eða er það orsök??)
er sú að kaupendur vilja fá drif
á öllum til þess að fá betra veg-
grip og/eða til að sitja nú ekki
ósjálfbjaiga og fastir í einhverri
skammarlega lítilQörlegri ófæru.
Þetta hefur nú þegar valdið því
að markaður fyrir ijórhjóladrifna
bfla hefur þanist út og er ekki
sjáanlegt annað en að sú þróun
verði að byltingu. Þennan meðbyr
ætlar FHI að nýta til fulls og
því eru þar allar tuskur breiddar
og í hönnunardeildum eru teiknuð
og saumuð segl af ofurkappi.
Næsta hyman sem grípur byrinn
hjá þeim verður mismunadrif á
milli öxlanna og er þegar á mark-
aði í Japan. Síðan fylgja von bráð-
ar fleiri: val um sítengt afdrif, sex
strokka vél, skrokkhlutar úr
plasti, fleiri gerðir o.s.frv. FHI búa
að 15 ára reynslu í smíði fjór-
hjóladrifinna fólksbfla og hafa þar
forskot á flesta aðra framleiðend-
ur. Það ætla þeir að nýta til fulls
og líta með kappi í augum til
framtíðar með drifi á öllum og
sjá þar stóraukna sölu á Subam
í öllum heimshomum.
Ber er hver að baki___________
FHI er stórt fyrirtæki á okkar
mælikvarða, en þó ekki svo stórt
að það geti ráðið eitt og óstutt
við það verkefni, að koma bíl á
_________Bílar_____________
Þórhallur Jósepsson
360 hestöfl, áætlaður há-
markshraði 300 km klst., sæti
fyrir fjóra og heilmikið farang-
ursrými! Búið að sameina fjöl-
skyldubílinn og tryllitæki hrað-
brautanna i einn bíl. Þannnig
er framtíðarsýn Subaru.
Spennandi, óraunhæft, ótrú-
legt, ómögulegt, frábært, villt,
snjallt, óhugnanlegt, djarft og
aftur og enn, spennandi!
Þessa framtíðarsýn bíla-
framleiðandans gat að líta eigin
augum hér á okkar útnesi
heimsbyggðarinnar helgina
13.—16. júní sl. Sýningarsalur
Ingvars Helgasonar mun vea
þriðji staðurinn á jarðarkringl-
unni sem státar af að hafa
þennan grip til sýnis, hann var
fyrst sýndur á farartækjasýn-
ingunni miklu sem haldin var
í Tókýó sl. haust og næst fengu
þýskir að sjá í vetur og nú hefst
heimsreisa Subaru F-X9 inni í
Rauðgerði. En — hví hér?
1 ár á íslandi
Subam-umboðið á íslandi er tíu
ára. Þar liggur hundurinn grafinn.
Aðstandendur Subara em svo
hrifnir af velgengni bílsins hérna,
að þeir vildu gera dagamun í til-
efni afmælisins og það gerðu þeir
svo um munaði. Ekki er nóg með
að þessi tilraunabíll sé sendur
hingað, heldur vom einnig útbúnir
45 afmælisbflar af „gömlu“ góðu
gerðinni og seldir á nær sama
verði og venjulegir kosta. Þeir
bflar vom allir afhentir laugar-
daginn 14. og vom hingað komnir
fímm Japanir í því skyni að af-
henda þá með pomp og pragt.
Það er reyndar ekki að undra
þótt Japanir séu ánægðir með
gengi Subamsins á íslandi, mark-
aðshlutdeildin hér er nálægt 10%
sem er sú langhæsta sem þessi
tegund hefur náð á nokkrum
markaði. Að auki mun Subara
station vera mest selda einstaka
gerð hér. Að þessu samanlögðu
þykir Japönum nokkurs virði að
gera vel við Islendinga og sendu
Mr. Izawa frá Fuji Heavy Ind. afhendir fyrsta afmælisbilinn Pálínu Guðnýju Guðmundsdóttur.
Hjá þeim stendur Július VífUl Ingvarsson, framkvæmdastjóri Ingvars Helgasonar hf. 45 bílar
voru fengnir hingað i þessari útgáfu og hefðu orðið mun fleiri ef vitað hefði verið fyrir um
tollalækkunina miklu i mars. Bilarair eru auðþekktir á litskrúðugum hliðarröndunum og auk
þeirra er fleira sem gerir þá sérstaka, t.d. driflæsing, hjólkoppar o.fl. Þá má geta þess að vegna
tilefnisins var af hálfu verksmiðjanna sérstaklega vandað til þessara bila á allan hátt, þeir eru
sannkallað afmælismódel.
þessar afmæliskveðjur til lngvars
Helgasonar, sem mun vera með
vinsælli mönnum hjá Fuji Heavy
Industries og Nissho Iwai, fyrir-
tækjunum sem standa að Subara.
Fuji Heavy Industries er gamal-
gróið fyrirtæki í Japan og stendur
að margskonar iðnaði, þ.á m.
flugvélasmíði (smíðaði m.a. hinar
frægu kamikaze-vélar í síðari
styijöldinni), en bíla fór fyrirtækið
að framleiða árið 1958. Það vom
fyrstu framdrifnu fólksbílarnir
framleiddir í Japan og 1972 steig
fyrirtækið annað skref fram á
við: fyrsti fjórhjóladrifni fólksbíll-
inn var settur á markað. Síðan
hefur Subam þróast líkt og flestir
aðrir bflar þaðan að austan, hann
hefur stækkað, batnað og fríkkað
og þar að auki hafa verksmiðjum-
ar aukið fjölbreytni framleiðsl-
unnar, en það hefur háð þeim
nokkuð í markaðssókn að geta
ekki boðið nægilega margar mis-
munandi gerðir og því hefur
kaupendahópur Subam verið
nokkuð þröngur. En það er fleira
sem háir þeim: flestir stærstu
markaðir em að meira eða minna
leyti lokaðir vegna innflutnings-
takmarkana, t.d. Bandaríkin og
EB-löndin. Til þess að koma með
krók á móti bragði fara Japanir
núorðið þá leið að þeir reisa bara
verksmiðjur í þeim Iöndum þar
sem álitlegastur markaður er.
Þannig mun FHI nú vera að koma
blað hjá neytendum heimsbyggð-
arinnar, svo að þeir sækist eftir
að kaupa hann öðmm bflum frem-
ur. Að baki sér hefur FHI stórfyr-
irtækið Nissho Iwai, sem sérhæfír
sig í þróunarverkefnum og mark-
aðssetningu. NI leggur fram
áhættufjármagn og þekkingu,
tekur þátt í starfseminni (þ.e.
sölu og þróun) og er um leið
hluthafí og fær þar af leiðandi
hagnað þegar vel hefur til tekist.
Nissho Iwai er íjársterkt fyrir-
tæki, velta þess árið 1985 var
u.þ.b. 50.000.000.000 dollarar!
Ágóðinn (eftir skatta!) var sam-
svarandi 10—12 milljörðum ísl.
króna! Hvemig er þetta annars
með þróunarfélagið okkar?
Verkaskiptingin er því þannig
að Nissho Iwai aðstoðar við þróun
og markaðssetningu og beita þar
kröftum hinna sex þúsund jap-
önsku starfsmanna fyrirtækisins
(99% þeirra hafa háskólapróf.)
auk nokkurra þúsunda innlendra
starfsmanna í þeim löndum sem
NI hefur skrifstofur.
Fuji Heavy Industries sér síðan
um að framleiða og er að sjálf-
sögðu með í ráðum um annað.
F-9X
Áður hefur verið sagt nokkuð
frá þessum tilraunabfl hér á síð-
unni en nú skal bætt um betur
enda hefur gefíst tækifæri til að
skoða gripinn og spyija fulltrúa
framleiðenda um hann.
Fyrst ber að ítreka að F-9X er
tilraunabfll, hann mun ekki verða
framleiddur né heldur em uppi
áætlanir um að framleiða bfl í
hans líki. Tilraunir lúta að vél-
búnaði öllum, yfírbyggingu, bæði
formi hennar og efniviði, og raf-
eindatækni.
Allt útlit bflsins ber með sér
að mikil áhersla er lögð á að
hagnýta loftstreymið um hann
sem best um leið og mótstöðu
loftsins er sagt stríð á hendur.
Ýmsar rennur og göt leiða loftið
rétta leið og átakalausa að kæli-
flötum sem em margir, enda ekki
vanþörf á í bfl sem nær 300 km
hraða. Fremst, undir húddinu, em
vatnskassamir tveir fyrir kæli-
vatn vélarinnar og taka loftið frá
vindkljúfnum og leiða það síðan
út framan við hjólskálamar. í
miðjunni frammi í er síðan kælir-
inn fyrir sogloft vélarinnar og er
hann sá stærsti. Síðan er olíukæl-
irinn í vindskeiðinni afturá! Hjóla-
skálamar em afrenndar og hleypa
loftinu vel í gegn til að kæla
hemladiskana og hjólin sjálf. Botn
bflsins er sléttur og hvergi neitt,
ekki einu sinni pústkerfí, sem
rekst þar niðurandan til að fanga
loftið.
Eftiið í yfírbyggingunni kallast
FRP (glertrefjar/Kevlar) og vísar
til framtíðaráætlana um bygging-
arefni.
Vélin er sex strokka með tvö-
földum ofanáliggjandi knastásum
og á lágsnúningi þjappar kefla-
blásari loftinu inn þar til afgas-
túrbínan tekur við á 5.000 snún-
inga hraða. Þetta, og bein inn-
spýting ásamt annarri flókinni
elektróník, skapar svo hestöflin
360 sem Michelin 235-45-15-
dekkin þrykkja niður í malbikið.
Draumur? Já — plastklæddur
framtíðardraumur, einskonar litn-
ingur framtíðarkynslóða Subam-
ættarinnar.
Fulltrúar frá Fiyi Heavy Industries, framleiðanda Subaru og Nissho Iwai, markaðsfyrirtækinu,
komu til að vera viðstaddir á afmæli umboðsins. Frá v. Ishii (FHI), Nakamura (NI), Izawa
(FHI), Hashimoti (NI), Shimizu (NI) og síðan feðgarnir Guðmundur Ingvarsson, Ingvar Helga-
son, Júlíus Vífill Ingvarsson og Helgi Ingvarsson.