Morgunblaðið - 28.06.1986, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNt 1986
Flug ’86:
Eru
þeir að
fá 'ann
■
Skrokkur Agnarinnar leit svona út rúmu ári eftir að endursmíðin
hófst. Eins og sjá má er vélin aðallega úr tré, krossvið og striga,
sem voru aðalefnið I flugvélum á þeim árum þegar hún var smíðuð.
TF-ÖGN endursmíðuð
Á SÝNINGU sem er hluti af FLUG ’86 verður flugvélin TF ÖGN
<ýnd í fyrsta sinn eftir endursmíði,
TF ÖGN er fyrsta flugvélin sem
smíðuð hefur verið hérlendis og, að
því er best vitað, sú eina sem hefur
verið hönnuð hér á landi. Hana
smíðuðu tveir ungir menn, Gunnar
Jónasson og Bjöm M. Olsen á §órða
áratugnum. TF-Ögn var sýnd fyrst
sumarið 1933 en komst ekki á loft
fyrr en 1940 vegna þess að þeir
höfðu ekki efni á að kaupa vél í
hana. Ekki fór hún nema fjórar
flugferðir því breski herinn bannaði
flug einkaflugvéla
Herinn skipaði svo fyrir að vélin
yrði tekin sundur. Var hún svo í
geymslu á ýmsum stöðum, án þess
að hún væri nokkum tíma gerð
flugfær. Var hún f mjög slæmu
ástandi þegar flugsögufélagið tók
við henni haustið 1979. Endursmíð-
in hófst svo á Páskum 1980. Fjöldi
manna hefur lagt þar hönd að verki
en hitann og þungann hafa borið
þeir Gísli Sigurðsson og Gunnar
Jónasson. Gísli er sá maður hérlend-
is sem helst kann til verka við smíði
flugvéla upp á gamla móðinn, þ.e.
úr striga og krossvið. Gunnar Jón-
asson er einn af upphaflegu smiðun-
sem hefur staðið á sjöunda ár.
um. Hann hefur séð að mestu um
málmsmfðina við verkið. Flugvélin
var í slæmu ástandi þegar verkið
var hafið, þannig að mikið þurfti
að endumýja. Þó áætla þeir að
30-40% af vélinni sé upphaflegt.
Um 2.000 stundir er áætlað að
hafi farið í endursmíðina.
Erfiðast var að afla hreyfilsins.
Aðeins voru örfá eintök til í heimin-
um, aðallega á söfnum. Fyrir tilvilj-
un kom þó hreyfill í leitimar í kjall-
ara vestur í Kalifomíu. Hefur hann
verið gerður upp svo að flugvélin
er nú flugfær. Ekki er þó Ijóst hvort
henni verður flogið í sumar, „en
menn gætu misst hana í loftið" eins
og einn smiðanna komst að orði.
TF-Ögn er ætlaður framtíðar-
staður í væntanlegu flugminjasafni,
sem meiningin er að rísi einhvem
tíma í framtíðinni hjá Loftleiðahót-
elinu, en þangað til af því verður
er ekki Ijóst hvar hún verður geymd.
Flugsögufélagið hefur boðið að hún
verði sett upp í nýju flugstöðinni í
Keflavík en svar hefur ekki enn
borist.
Skrúfan sett á Ógnina. Endursmíðin er nú á lokastigi, og á henni
að verða lokið fyrir hátiðina i ágúst. Vélin verður máluð ljósrauð,
með silfurlitaða vængi, en þannig átti hún upphaflega að vera á litin.
Gengur vel í Þverá —
illa í Kjarrá
„Þetta er mjög bjart hér niður
frá, hollin eru að fá svona 50 laxa
að meðaltali á 7 stangir á 3 dögum,
hæsta hollið fór í 54 laxa og þeir
sem nú eru að veiða eru hálfnaðir
og hafa fengið 36 fiska, þannig að
þetta gæti orðið metholl til þessa,"
sagði Halldór Vilhjálmsson kokkur
í veiðihúsinu við Þverá í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Halldór bætti við, að illa gengi á
Qallinu, í Kjarrá, og sambæriieg
veiði þar við hópinn í Þverá væri
aðeins 11 laxar. Sagði Halldór það
hulda ráðgátu hvers vegna svo illa
gengi á fjallinu þar sem allar að-
stæður virtust vera fyrir hendi. Alls
eru komnir hátt í 500 laxar á land
samanlagt í ánni, á hádegi í fyrra-
dag höfðu 293 laxar veiðst í neðri
ánni, en aðeins 142 efra, sfðan
bættust við 36 laxar neðra og 11
laxar efra. „Fiskurinn hefur
smækkað skart sfðustu daga, en
alltaf veiðast vænir fiskar innan um
og sá stærsti til þessa vó 19,5
pund," skaut Halldór inn í.
agn
Frásíðasta
flugdegi. Á
miðrí mynd er
flugskýli 1,
þar sem sýn-
ingin verður á
Flug’86.
Þetta verður
jafnframt
aðal-athafna-
svæði flug-
dagsins í
Reykjavík.
Þeir menn sem standa að undirbúningi Flugs ’86. Frá vinstrí, sitjandi: Kárí Guð-
björnsson, Baldur Sveinsson, Ragnar J. Ragnarsson, Sigmundur Andrésson, Ingvar
Valdimarsson og Haukur Hauksson. Aftari röð: Arnór Ingólfsson, Axel Sölvason,
Guðjón Ólafsson, Guðmundur Guðmundsson, Jón G. Egilsson, Stefán Sæmundsson
og Pétur Johnson.
flestar greinar flugs fyrr og nú
verða kynntar. Aðildarfélög flug-
málafélagsins, flugbjörgunarsveitin
og fl. sýna þar. Einnig hefur flug-
rekstursaðilum verið boðið að kaupa
sýningarpláss.
Dagana 23. og 24. ágúst verða
svo flugdagar í Reykjavík og á
Akureyri. Verður beðið með að
ákveða á hvorum staðnum flugdag-
urinn verður hvom daginn. Ræðst
það af veðri. Flugsýning verður
haldin og á hún að standa frá kl.
14 til 17. Ekki er endanlega ljóst
með öll sýningaratriði en þó er ljóst
að þar munu sýna bæði innlendir
og erlendir aðilar. Flugvélar verða
frá bandaríska, breska, þýska, og
hollenska flughemum, einnig munu
einhverjir flugvélaframleiðendur
sýna framleiðslu sína. Þá munu ís-
Ienskir flugaðilar sýna. Þá verður
sýnt listflug á a.m.k. tveim list-
flugvélum sem eru til hérlendis.
Einnig verður svifdrekasýning,
fallhlífastökk, loftbelgsflug, og
flugmódelflug, og stendur til að fá
heimsmeistarann í flugmódellist-
flugi til að sýna listir sínar. Þá ráð-
gera módelflugmenn að efha til
all-sérstæðs póstflugs. Verið er að
smíða líkan af Piper Super-Cup
flugvél sem á að geta borið um tvö
kflo. Verður hún höfð á flotholtum
og er ætlunin að láta hana fljúga
með póst fra Reykjavík til Akra-
ness.
Flugmálastjóm hefur látið gera
brjóstmynd af Agnari Kofoed-
Hansen sem ekkja hans mun af-
hjúpa. Þá verður minningarplatti
gefinn út í tilefni afmælisins og
afreksmenn í flugi heiðraðir. Einnig
verður fyrirlestur haldinn og unnið
er að útvarps- og sjónvarpsþáttum
f tilefiii aftnælisins.
Veiðin fór alveg þokkalega af stað í Laxá í Kjós, en hefur dofnað
nokkuð að undanfömu. Myndin er frá fyrsta degi og þá var ekki
kvartað undan laxleysi eins og sjá má ...
Víst er, að þeir eru til stærri í
Þverá, fyrir nokkru lenti Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri t.d. í harðri
viðureign við „risalax" eins og
Halldór orðaði það. Jóhannes komst
í tæri við laxinn í Ármótakvöm og
barst leikurinn hátt í tvo kflómetra
niður með ánni og lauk ekki fyrr
en í Klapparfljóti, þar sem sá stóri
skilaði flugunni. „Yfir 20 pund,“
sagði Jóhannes af alkunnri hóg-
værð og gátu menn þá farið að
geta í eyðumar. Barði Friðriksson
er í ánni nú og hann lenti í miklum
darraðardansi við gríðarstóran lax,
auðvitað í veiðistaðnum Barða og
mátti Barði endasendast um 800
metra á eftir laxinum áður en
skyldi með þeim. Þeir stóru hafa
því betur þessa dagana, en veiði-
menn hugsa trúlega: Á morgun er
nýr dagur, gamli minn, og þá skaltu
vara þig. Annars hefur þetta verið
tíðindarík veiðiferð hjá Barða, í
Flug’hátíð í
í ÁR eiga Flugmálafélag íslands og Flugmálastjórn hálfrar aldar
afmæli. Af því tilefni verður efnt til dagskrár undir nafninu FLUG
’86, dagana 19. til 24. ágúst, sem verður helguð minningu Agnars
Kofoed-Hansen, fv. flugmálastjóra.
Haldin verður sýning í flugskýli 1 á Reykjavíkurflugvelli, og efnt
tii flugdags á Akureyri og í Reykjavík 23. og 24. ágúst. Þá verður
afhjúpuð fyrsta og eina flugvélin sem hönnuð hefur veríð og smíðuð
hérlendis, TF-Ógn.
Þann 25 ágúst næstkomandi á
Flugmálafélag íslands 50 ára af-
mæli. Einnig verður Svifflugfélagið
fimmtugt á sama tíma. Um svipað
leyti eru 50 ár liðin síðan Agnar
Kofoed-Hansen var ráðinn flug-
málaráðunautur ríkisins, sem var
upphafíð að flugmálastjóm. Agnar
var einmitt helsti hvatamaðurinn
að stofnun Flugmálafélagsins, Svif-
flugfélagsins, Flugmódelfélagsins
svo og annarra flngáhugamannafé-
laga. Því þótti vel við hæfí að helga
honum afmælishátíðina.
í Flugmálafélagi Islands eru nú
16 aðildarfélög, bæði flugklúbbar
víðs vegar um landið og sérfélög
svifflugmanna, flugmódel-flug-
manna, svifdrekamanna, fallhlífa-
stökkvara og Flugsögufélagið.
Afmælisnefnd Flugmálafélagsins
skipaði framkvæmdanefnd afmæl-
isins og er Stefán Sæmundsson
formaður hennar, en með henni
vinna menn frá flugmálastjóm,
flugbjörgunarsveitinni, slökkvilið-
inu á Reykjavíkurflugvelli og lög-
reglunni.
Dagskrá afmælisins er áætluð
svo, en hún er ekki fullfrágengin,
að 19. ágúst verði opnuð sýning í
flugskýli 1 á Reykjavíkurflugvelli,
(við Hótel Loftleiðir), með afhjúpun
fyrstu flugvélar sem var smíðuð og
hönnuð hérlendis, TF-ÖGN, en fé-
lagar úr flugsögufélaginu hafa
staðið að endursmíði hennar. Sýn-
ingin í skýlinu verður svo opin frá
kl. 17 til 21 dagana 20. til 24. ágúst.
Þar verða sýningarbásar þar sem
li
i