Morgunblaðið - 28.06.1986, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1986
Líbýa:
Gadhafi
að missa
tökin?
Washington, AP.
MOAMMAR Gadhafi, leið-
togi Líbýu, varð fyrir geð-
rænum truflunum vegna
loftárásarinnar á Trípólí, að
því er ónafngreindar heim-
ildir í Washington hermdu.
Sögðu þær Gadhafi hafa
tapað tökum á stjórn lands-
ins.
Fleiri fregnir sama eðlis hafa
birst síðustu daga. Lengst var
gengið í blaðinu The New York
Post, en þar birtist forsíðufyrir-
sögnin „Gadhafi Hikkar". í blaðinu
sagði að Gadhafi væri orðinn klæð-
skiptingur.
Embættismenn í Washington
ganga ekki svo langt, en segja
Gadhafi sýna áköf einkenni geð-
klofa og ofsóknarbijálæðis. Hann
er einnig sagður neyta hass og
jafnvel ópíums, en það eru algeng
eiturlyf meðal bedúína.
Gadhafí hefur ekkert birst á
almannfæri að undanfomu. Fyrir '
skömmu var þó sagt að hann myndi
halda ræðu á útifundi, þar sem
minnast átti brottfarar bandarísks
herliðs fyrir tíu árum, en þá yfírgaf
það herstöð sem Bandaríkin höfðu
haft á leigu. 30 vestrænir blaða-
menn voru viðstaddir, en Gadhafi
kom aldrei. Þess í stað birtist hann
í sjónvarpi, þar sem hann flutti
tveggja tíma ræðu. Hann kom illa
fyrir, fataðist ræðan hvað eftir
annað og ruglaði. Bandarískur
embættismaður viðurkenndi að
bandarísk stjómvöld gætu ekki séð
að nokkur væri í raun og veru við
völd í Líbýu.
Gadhafi er sagður þess fullviss
að sprengjuárásimar hafí beinst
gegn sér persónulega, og telji jafn-
framt að einhver úr eigin liði hafi
gert Bandaríkjamönnum viðvart
um dvalarstað sinn. Ekki bætir úr
skák, að skömmu eftir árásina vom
a.m.k. tvær uppreisnir gerðar innan
hersins. Gadhafí gat þó bælt þær
niður, að því að virðist, með hjálp
sýrlenskra málaliða.
Embættismenn telja. ástandið í
Trípólí mjög valt, segja efnahagslíf-
ið í molum og vömskort á öllum
sviðum. Ríki sem ekki hafa viljað
beita Líbýu refsiaðgerðum, t.d. ít-
alía, hafa dregið úr öllum viðskipt-
um við Líbýu og hefur það komið
Líbýumönnum illa. Síðustu banda-
rísku fyrirtækin hverfa frá Líbýu
hinn 30.júní.
Playboy-klúbbunum lokað
Þessi mynd var tekin í Playboy-klúbbnum í Los Angeles, en þar var á dögunum haldið kveðjusamsæti, þar sem öllum nætur-
klúbbum Playboy-útgáfunnar verður lokað hinn 30. júní. Næturklúbbarnir, sem voru þekktastir fyrir hinar svokölluðu „kanín-
ur“ sínar, hafa farið dalandi að undanförnu. Á myndinni miðri sést glaumgosinn Hugh Hefner í fríðum „kanínuhóp**, en
Hefner er upphafsmaður og persónugervingur Playboy-stórveldisins.
Bandaríkin tryggja ekki
varair Nvja Siálands
Manila, AP.
GEORGE Shultz, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, tilkynnti i
gær að Bandaríkjamenn væru
fallnir frá því heiti að veija Nýja
Sjáland á striðstima i kjölfar
óleysanlegrar deilu ríkjanna um
kjarnorkuvopn.
Shultz tilkynnti þessa ákvörðun
eftir fund með David Lange, forsæt-
isráðherra Nýja Sjálands, en þeir
eru staddir á Filippseyjum á ráð-
stefnu, sem haldin er að tilstuðlan
Suðaustur-Asíubandalagsins.
Bandaríkjamenn taka þessa
ákvörðun í framhaldi af þeirri
ákvörðun stjómar Nýja Sjálands að
leyfa engum útlendum skipum að
sigla til þarlendrar hafnar nema
fyrir liggi fullvissa fyrir því að um
borð séu engin kjamorkuvopn og
að skipið sé ekki knúið kjamorku.
Lange sagði í gær að engin breyting
yrði á þessari stefnu, og Shultz
sagði að Bandaríkjamenn mjmdu
áfram neita að staðfesta hvort um
borð í herskipum þeirra væm kjam-
orkuvopn.
Vamarsamningum við Nýja Sjá-
land hefur ekki verið formlega slit-
ið, en allri samvinnu á sviði vamar-
mála hefur verið hætt, þ. á m.
sameiginlegum heræfingum og
miðlun leynilegra upplýsinga.
Shultz sagði ákvörðun Nýsjá-
lendinga varðandi heimsóknir
bandarískra herskipa hafa kippt
grundvellinum undan ANZUS-
bandalaginu. Þar með teldu Banda-
ríkjamenn sig ekki lengur bundna
af ákvæðum sáttmálans hvað snerti
vamir Nýja Sjálands. Hann sagði
að ef stefna Nýsjálendinga yrði
öðmm ríkjum fordæmi mundi það
„draga jaxlana" úr fælingarstefnu
vesturveldanna gagnvart Sovétríkj-
unum. „Ef fleiri fylgja í kjölfarið
yrði það rothögg fyrir vestrænt lýð-
ræði og vestrænt verðmætamat,"
sagði Shultz.
Hörð átök þrátt fyrir
samkomulag í Beirút
Beirút, AP.
TIL MIKILLA átaka kom í gær
milli fylkinga múhameðstrúar-
manna og Palestínumanna i
Vestur-Beirút í gær. Var barist
við flóttamannabúðir borgarinn-
ar, en bardagar þar höfðu legið
niðri síðustu þijá daga. Átökin
urðu aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir að talsmenn helstu
fylkinga múhameðstrúarmanna
í Beirút lýstu yfir því í gær að
samkomulag hefði tekist um að
loka herbúðum þeirra í Vestur-
Beirút. Er talið að a.m.k. einn
maður hafi látið lífið í bardögun-
um og fjórir særst.
Samkvæmt samkomulaginu
verða einnig hermenn þeirra kvadd-
ir af strætum Beirút til að tryggja
að stjómarherinn geti tekið við
vesturhluta borgarinnar.
Náðist þetta samkomulag að
undirlagi Sýrlendinga, en fylkingar
múhameðstrúarmanna hafa ráðið
yfir Vestur-Beirút um tveggja ára
skeið.
í sameiginlegri tilkynningu
Walids Jumblatt leiðtoga drúsa og
Nabihs Berri dómsmálaráðherra og
forystumanns amalshíta segir að
brjóti liðsmenn múhameðstrúar-
manna þetta samkomulag verði
máli þeirra skotið til herdómstóls.
Svipað samkomulag hefur verið
gert áður, en hefur alltaf verið virt
að vettugi.
ísrael:
Ríkisstj órnin klofin
vegna morðmálsins
Jerúsalem, AP.
KOMINN er upp klofningur í
samsteypustjóra Sirnonar Peres
vegna kröfu um opinbera rann-
sókn á því hvort stjórnmálaleið-
togar í ísrael hafi átt þátt í að
þagað var um morð leyniþjón-
ustumanna á tveimur Palestínu-
mönnum árið 1984. Stjómin mun
koma saman til fundar á sunnu-
dag og ræða hvort skipuð verður
sérstök rannsóknaraefnd i máli
þessu.
Verkamannaflokkur Peres for-
sætisráðherra er fylgjandi opinberri
rannsókn en Shamir utanríkisráð-
herra, leiðtogi Likud-bandalagsins,
er henni andvígur. Shamir, sem
gegndi embætti forsætisráðherra
þegar morðin voru framin, hefur
verið ásakaður um að hafa þagað
þau í hel. Shamir hefur sagt að
hann hafi ekkert að fela en hann
er þó andvígur rannsókn og fullyrðir
að með henni yrði ekki hjá því
komist að gera starfshætti leyni-
þjónustunnar opinbera. Peres, for-
sætisráðherrra, hefur sagt að hann
muni ekki leggjast gegn rannsókn.
Svo sem kunnugt er af fréttum
sagði Avraham Shalom af sér sem
yfirmaður leyniþjónustu ísraela
(Shin Bet) á miðvikudag. Afsögn
hans kom í kjölfar ásakana um að
hann hefði fyrirskipað morðin á
Palestínumönnunum og gefið
nefnd, sem rannsakaði morðin, vís-
vitandi rangar upplýsingar. Herzog,
forseti ísrael, ákvað að Shalom og
þrír leyniþjónustumenn aðrir skyldu
ekki dregnir til ábyrgðar á morðun-
um á Palestínumönnunum. Þessi
ákvörðun forsetans hefur valdið
miklum deilum og hafa nokkrir
lögfræðingar látið í ljós efasemdir
um að hún sé í samræmi við gild-
andi lög.
Herzog forseti hefur réttlætt
ákvörðun sína með tilvísun til hags-
muna leyniþjónustunnar.
Uppboð í London:
Málverk af nöktum
Jagger fór á 60.000
London, AP.
MÁLVERK af popparanum
Mick Jagger, þar sem hann
stendur nakinn og snýr bak-
hlutanum að áhorfendum, var
seld á 950 sterlingspund (um
60.000 ísl. krónur) á uppboði í
London í gær.
Ljósmyndarinn Cecil Beaton
málaði myndina af Jagger árið
1967, þegar hann hitti Jagger og
aðra hljómsveitarmeðlimi the
Rolling Stones, í Marókkó. Beaton
ték mikið af ljósmyndum af Jagg-
er og félögum þá, en ekki er vitað
hvort Jagger hafí setið fyrir þegar
hann málaði mjmdina, sem er um
einn metri á hæð.
Málverkið kejrpti listaverkasal-
inn Jonathan Clark og sagði hann
að verð myndarinnar hefði verið
hlægilegt.
„Ég var reiðubúinn að greiða
fímmfalda þá upphæð sem ég
greiddi fyrir málverkið," sagði
Clark. Hann sagðist búast við að
myndin seldist fyrir mikið hærra
verð í Bandaríkjunum og mjmdi
kaupandinn líklega verða einhver
áhugamaður um popptónlist,
„sennilegast kona“, sagði Clark.