Morgunblaðið - 28.06.1986, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1986
AKUREYRI
Fullorðinn maður
slasast alvarlega
Krakkarnir á Króabóli voru ekki alveg vissir um hvernig bæri að taka komu ljósmyndarans og gleymdu
að setja upp sparisvipinn. Talið frá vinstri: Sigurður Ólason, starfsmaður, með Styrmi í fanginu, Kari
Mette Johansen, forstöðukona Króabóls, með Sverri og Eygló í kjöltunni, Vala, Sigfús, Edda Hjörleifs-
dóttir, starfskona, og þvi næst Halldór Kristinsson með dóttur sína Karen.
Nýtt dagheimili
við Löngumýri
Akureyri. J
Akureyri.
MAÐUR hátt á áttræðisaldri
slasaðist mikið er hann varð fyrir
bíl á Akureyri fyrir hádegi i
gær. Hann höfuðkúpubrotnaði
meðal annars og var fluttur i
sjúkrahús í Reykjavík siðari
hlutadags.
Slysið varð með þeim hætti að
maðurinn var að fara yfír gang-
braut á homi Hörgárbrautar og
Stórholts. Bifreið á hægri akrein
hægði ferðina til að hleypa mannin-
um yfír en ökumaður bifreiðar sem
kom norður Höigárbraut á vinstri
akrein gerði sér ekki grein fyrir
þvi sem um var að vera og lenti á
manninum.
Óhappið átti sér stað kl. 11.37
og myndaðist algjört umferðaröng-
þveiti þegar fbúar norðan Glerár
fóm heim í mat á bifreiðum sínum.
Röð var á báðum akreinum frá
slysstað og suður fyrir Glerárbrú.
Harður árekstur varð svo á næsta
homi norðan við slysstaðinn, á
mótum Hörgárbrautar og Undir-
hlíðar, kl. 15.25 í gær. Allir sem í
bflunum tveimur vom vom fluttir á
sjúkrahús en meiðsli vom aðeins
minniháttar.
NTTT DAGHEIMILl fyrir börn
á aldrinum eins árs til sjö ára tók
til starfa við Löngumýri 20 á
mánudaginn. Um er að ræða
einkaframtak nokkurra foreldra
sem fannst nauðsyn á að dagvist-
arrýmum fyrir börn undir
tveggja ára aldri yrði fjölgað.
Nú þegar eru tólf börn á dag-
heimilinu en eftir mánaðamót
munu 14 bðm bætast í hópinn.
„Það var Amar Sverrisson, sál-
fraeðingur, sem fékk hugmyndina
að stofnun þessa bamaheimilis og
fljótlega var félagið „Velunnarar
Króabóls" stofnað og síðan hafíst
handa við að fínna hentugt húsnæði
fyrir starfsemina, sem síðan fannst
hér við Löngumýri 20," sagði Edda
Hörleifsdóttir, einn starfsmanna
heimiiisins í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins, en félagið hefur
fengið húsnæðið leigt til þriggja
ára.
Edda sagði að reiknað væri með
að 23 böm yrðu í byijun september.
„Annars er þetta allt á byijunarstigi
eins og stendur, en samt er eftir-
spumin orðin geysilega mikil. Það
er eins og fólk hafi ekki trúað því
að þetta væri raunin að verið væri
að starfrækja dagheimili á þessum
grundvelli. Hins vegar hafa allir
verið mjög samtaka og öll leiktæki
og húsgögn sem hér eru hafa for-
eldrar komið með og látið okkur í
té. Jafnframt hafa bæjaryfírvöld
sýnt þessu mikinn áhuga og skiln-
ing og þau létu okkur fá borð og
stóla handa krökkunum auk þess
að taka þátt í kostnaðinum að
nokkru leyti," sagði Edda.
Edda sagði einnig að foreldramir
borguðu sem svaraði Qórðungi
meira fyrir bömin sfn á þessu
dagheimili en á þeim sem bærinn
starfrækti en þess væri líka að
gæta að það væri erfíðara að hafa
mikið af bömum undir tveggja ára
aldri og að það væri á fáum stöðum
sem tekið væri við þeim. „Við erum
hins vegar með nokkur böm undir
tveggja ára aldri en aldurshámark
er sjö ár. Og þau koma hvaðanæva
að, utan 64 Pétursborg og: innan
að Þórisstöðum," sagði Edda að
lokum.
Morgunbtaðið/Skapti
Frá slysstaðnum í gær. Það var hvfti bíllinn fremst á myndinni sem
lenti á garnla manninnm
Góð tíðindi hf.
með nýtt vikublað
Alniravrí
Grænland:
Eyfirzkir verktakar
næstlægstir í heildina
Akureyri.
TILBOÐ f sfðasta verkhlutann
við sútunarverksmiðjuna sem
reisa á í Julianehaab á Grænlandi
voru opnuð í gær. Sá hluti var í
allar lagnir f húsið og áttu Ey-
firskir verktakar sf. á Akureyri
(EVA) lægsta tilboð f þann hluta.
Samtals f allt verkið eiga Ey-
firskir verktakar næst lægsta
tílboð.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá í vikunni átti EVA lægsta
tilboð í grunn byggingarinnar en
aftur hæsta tilboð í húsið sjálft.
„Það er betra hljóð í mér nú en
í gær,“ sagði Hörður Túliníus,
stjómarformaður EVA, í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Við emm
næstlægstir og í sterkri samnings-
aðstöðu. Það em fyrirvarar á báða
bóga, þannig að ekki er alveg ljóst
hvemig tölumar liggja. Það er ekki
hægt að lesa fullomlega út úr þessu
strax hveijir eiga lægsta tilboðið,"
sagði Hörður. Hann sagði að það
yrði í fyrsta lagi seinni partinn f
næstu viku sem lægi ljóst fyrir
hvort gengið yrði til samninga við
EVA.
Fái EVA verkið verður um að
ræða vinnu fyrir hátt í 30 manns
í nokkra mánuði.
Akureyri.
NTTT VIKURIT, Akureyrartíð-
indi, er að hefja göngu sína hér
á Akureyri og mun fyrsta tölu-
blaðið koma út á miðvikudaginn
kemur. Það er útgáfufélagið Góð
tfðindi hf. sem gefur blaðið út,
en það er í eigu sex ungra Akur-
eyringa.
Að sögn Bjama Ámasonar mun
útgáfan aðeins að litlu leyti byggj-
ast á fréttaflutningi en þeim mun
meiri áhersla verða lögð á frétta-
skýringar, jákvæða umfjöllun um
málefni Akureyrar og nágranna-
byggðalaga. Þá verða einnig
greinaskrif af ýmsu tagi og hefur
útgáfan fengið til liðs við sig all-
nokkra einstaklinga sem skrifa
munu reglulega í blaðið.
Bjami sagði að útgáfufélagið
hefði látið gera markaðskönnun og
niðurstaða hennar orðið sú að gefa
blaðið út í brotinu A4, en það mun
vera fremur óvenjuleg stærð á viku-
blaði hér á landi. Blaðinu verður
dreift í lausasölu og áskrift, jafn-
framt því sem gengið verður í hvert
hús hér á Akureyri og það boðið
til sölu. Einnig verður blaðinu dreift
á Blönduósi, Sauðárkróki, Ólafs-
firði, Dalvík og Húsavík.
Ritstjóri blaðsins, Tómas Gunn-
arsson, sagði að áhersla yrði lögð
á að halda blaðinu óflokkspólitísku
Suðurbrekka
Blaðbera vantar á Suöurbrekku og i Lundahverfi. Sér-
staklega óskað eftir fólki sem getur borið út fyrir hádegi
allt árið.
Upplýsingar hjá afgreiðslunni í síma 23905.
JMngmiÞlfifetfe
Hafnarstræti 85, Akureyri.
Sr^CS
og að þegar hefði verið haft sam-
band við stjómmálaflokka bæjarins
og þeim boðið að notfæra sér blaðið
sem vettvang skoðanaskipta og
umræðna af ýmsu tagi. Kvað hann
einnig hafa verið haft samband við
neytendasamtökin og önnur félaga-
samtök innan bæjarins og þeim
boðið að bregða á skeið á þessum
ritvelli.
„Það er meiningin að hafa blaðið
sem einskonar málsvara Akureyrar
og Akureyringa, en okkar skoðun
er sú að hann hafí skort," sögðu
þeir Bjami og Tómas. „Svæðisút-
varpið og Dagur hafa ekki sinnt
þessu hlutverki sem skyldi," sögðu
þeir.
Aðsetur blaðsins verður í versl-
unarmiðstöðinni Sunnuhlíð. Blaðið
verður gefíð út f 3.000 eintökum
og stærð hvers blaðs verður um
16-20 blaðsíður.
Starfsmenn Akureyrartfðinda verða tveir til að byrja með, þeir
Bjarni Árnason og Tómas Gunnarsson, ritstjóri.
Yngvi
ritsljóri
Norðurlands
Akureyri.
YNGVI Kjartansson hefur
verið ráðinn ritstjóri Norður-
lands, málgagns Alþýðu-
bandalagsins á Norðurlandi
eystra, og mun það koma út
hálfsmánaðarlega frá miðjum
ágúst.
Yngvi verður einnig fréttarit-
ari Þjóðviljans á Akureyri og
tekur við starfí Guðlaugs Ara-
sonar, rithöfundar. Yngvi var
blaðamaður á Degi fram á
sumar en áður hefur hann starf-
að sem blaðamaður á Vestfírska
fréttablaðinu.