Morgunblaðið - 11.07.1986, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1986
Hótel Örk:
Hótelsljór-
inn hættir
GUÐMUNDUR Helgason, sem
ráðinn var hótelstjóri hins nýja
hótels í Hveragerði, Hótel Arkar,
hefur látið af þvi starfi.
Að því er Morgunblaðið kemst
næst mun ástæðan vera skoðana-
ágreiningur milli Guðmundar og
eigandans Helga Þórs Jónssonar
um rekstur hótelsins. Helgi Þór
Jónsson mun sjálfur stjóma hótel-
inu fyrst um sinn.
Þrjú skip
hafa landað
í vikunni
Siglufjörður.
ÞRJÚ skip hafa landað afia á
Siglufirði í þessari viku, Stálvík
landaði 120 tonuum á mánudag-
inn, Skjöldur 65 á þriðjudag og
í gærkvöldi kom Sigluvík inn
með 190 tonn.
Aflinn er botnfískur, þorskur og
ýsa og þó nokkuð af grálúðu. Mikil
vinna hefur verið í frystihúsinu.
mj.
Launamálaráð
BHMR boðar
til fundar
um kjaradóm
Launamálaráð BHMR heldur
fund með fulltrúum aðildarfé-
laga sinna klukkan 14.00 á Hótel
Sögu í dag. Að sögn Þorsteins
A. Jónssonar, formanns launa-
málaráðs, verður þetta kynning-
ar- og umræðufundur, en af
honum er ekki að vænta ákvarð-
ana.
„Við ætlum að kynna félags-
mönnum okkar niðurstöðu Kjara-
dóms og ræða hana, en þetta er
ekki rétti vettvangurinn til að taka
ákvarðanir um aðgerðir," sagði
Þorsteinn.
A gangi ígóða veðrinu
Landspítalinn:
Fresta þurfti aðgerðum vegna
veikindaforfalla félaga í BHMR
Þurrt og bjart nyrðra
skýjað og væta syðra
VEÐURSTOFAN spáir bestu veðri
um norðanvert landið um helgina,
þurru og þar njóti sólar víða. Hins
vegar eru líkur á suð-austan eða
sunnanátt og einhverri vætu um
sunnanvert landið.
FRESTA þurfti aðgerðum á
Landspítalanum I gser vegna
veikindaforfalla hjúkrunarfræð-
inga og líffræðinga í Blóðbank-
anum. 25 hjúkrunarfræðingar á
Landspítalanum í BHMR til-
kynntu sig veika og 4 líffræðing-
ar hjá Blóðbankanum boðuðu
forföll vegna þunglyndis. Nokk-
uð var um fjarvistir félaga í
BHMR vegna veikinda í öðrtun
ríkisstofnunum í gær.
Að sögn Davíðs A. Gunnarssonar
forstjóra ríkisspítalanna komu §ar-
vistir þessara starfsmanna sér illa,
og hafa orðið til þess að ekki hefur
verið unnt að sinna nema bráðatil-
fellum. „Það hriktir í kerfinu þegar
svo margir boða forföll og við höf-
um neyðst til að stokka upp
aðgerðariista og endurskipuleggja
vinnubrögðin," sagði Davíð. Hann
sagði að hægt yrði að halda uppi
nauðsynlegri starfsemi á spítalan-
um í nokkra daga ef bati viðkom-
andi starfsmanna drægist á
langinn, og ef veikin stingi sér ekki
niður meðal annarra stétta á spítal-
anum. Davíð sagði að að sú
ákvörðun hefði verið tekin að biðja
þá sem boðuðu forföll um læknis-
vottorð.
Ólafur Jensson yfirlæknir og for-
stöðumaður Blóðbankans sagði að
það stæði starfsemi bankans tölvert
fyrir þrifum að missa iíffræðingana
úr starfí. „Þeir gegna mikilvægu
hlutverki á rannsóknarstofunni, og
er erfitt að vera án þeirra, ekki síst
nú þegar margir eru í fríi,“ sagði
hann. Ólafur sagðist hafa haft
spumir af því að líffræðingamir
myndu verða frá vinnu einnig í dag.
Fjöldauppsagnir BHMR-félaga í kjölfar kjaradómsins?
Margir munu nú
gera upp hug sinn
— segir formaður HÍK, stærsta aðildarfélags BHMR
„FJÖLMARGIR háskólamenn í
störfum hjá ríkinu hafa beðið
með að taka ákvörðun um
framtíð sina þar til Kjaradómur
væri búinn að komast að niður-
stöðu. Eftir dóminn á miðviku-
dag má búast við að margir
geri endanlega upp hug sinn
til þess hvort þeir ætla að halda
áfram eða hvort þeir skipta um
störf,“ sagði Kristján Thorlac-
ius, formaður Hins íslenska
kennarafélags (HÍK), i samtali
við blm. Morgunblaðsins i gær
um viðbrögð félagsmanna
sinna við dómi Kjaradóms. HÍK
er stærst aðildarfélaga BHMR
(l.aiinamálaráðs ríkisstarfs-
manna í Bandalagi háskóla-
manna) með um 40%
félagsmanna þess innan sinna
vébanda.
„Það er fráleitt að tala um leið-
réttingu launa í þessu sambandi,
eins og Kjaradómur gerir í sínum
forsendum," sagði Kristján. „Það
sem hér hefur gerst er ekki annað
en það sama og hefur gerst í
sérkjarasamningum ýmissa fé-
laga innan BSRB og víðar. Við
áttum von á að fá raunverulega
leiðréttingu en þessi niðurstaða
skiptir engu máli í því samhengi."
En hversu mikilli launahækkun
áttu HÍK-félagar von á?
„Við áttum í einlægni von á
að fá talsvert meira en þetta,"
svaraði Kristján Thorlacius.
„Síðan vorið 1984 hefur verið
unnið að könnun á raunlaunum
háskólamenntaðra manna í einka-
geiranum og samanburði við
okkur. Við töldum þeirri vinnu
vera lokið og að hún sýndi fram
á, að þama var verulegur munur
— vægt reiknaður um 60%. Kjara-
dómur taldi muninn vera um 35%
og þvl áttum við von á að þeir
myndu dæma að minnsta kosti
tveggja stafa tölu, enda gáfu öll
gögn tilefni til að ætla það.“
Formaður HlK sagði næsta
skref sfns félags og annarra aðild-
arfélaga BHMR vera að segja upp
gildandi samningum, móta kröfur
og setja þær fram og þá yrði
stefnt að „viðunandi samnings-
rétti", eins og hann orðaði það,
þ.e. fullum samnings- og verk-
fallsrétti. „Nýjustu yfírlýsingar
Qármálaráðherra benda til að það
muni ekki verða mikið mál," sagði
hann.
Stjórnarfundur Byggðastofnunar:
Samþykkt að leita leiða
til að efla og bæta þjón-
ustu við landsbyggðina
SAMÞYKKT var á stjómarfundi
Byggðastof nunar á ísafirði í gær
að beina þvi til ríkisstjómarinnar
að finna hagkvæmar leiðir til að
efla og bæta þjónustu ríkisins á
landsbyggðinni. Lagði stjóm
Byggðastofnunar til að komið
yrði á samstarfi opinberra stofn-
ana um starfsaðstöðu á ákveðn-
um stöðum og lýsti hún sig
reiðubúna til að hafa forystu um
undirbúning slíks samstarfs.
Stefán Guðmundsson, stjómar-
formaður stofnunarinnar, sagði í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins að hann vildi gjaman sjá
slíkar stjómsýslumiðstöðvar rísa í
öllum Ijórðungum landsins eða jafn-
vel hveiju kjördæmi. „Byggðastofn-
un er málsvari landsbyggðarinnar
allrar og hennar hlutverk felst með-
al annars í aðstoð við heimaaðila
við þróunarstarf og áætlunargerð,"
sagði Stefán. Hann gat þess einnig
að nauðsynlegt væri fyrir Byggða-
stofnun að vera í sem nánustum
tengslum við atvinnulíf og mannlíf
landsbyggðarinnar og eðlilegt að
stofnunin hefði um það forgöngu
að athuga á hvem hátt bæta mætti
starfsemi ríkisins þar án þess að
það yrði of dýrt.
„Það er ekki nokkur vafi á að
við það að starfa nær þeim vett-
vangi sem starfsemin nær til mun
þjónustan batna til muna, sem er
sérstaklega mikilvægt vegna þess
að markmiðið er einnig að auka
þróunarstarfsemina við lands-
byggð'113." sagði Stefán Guð-
mundsson að lokum.
Sjá einnig viðtöl á bls. 29.
Hjúkrunarfræðingar
1BSRB gerakröfu
um samræmingu
síðasta mánuði, þegar við gengum
frá okkar sérkjarasamningum,
munaði 5—7% á launum þessara
hópa. í sérkjarasamningunum var
þessi munur leiðréttur en nú er aft-
ur farið að halla á okkur. Ég hef
hins vegar ekki áhyggjur af þessu,
því í bókun, sem fylgir samningn-
um, fellst samninganefnd ríkisins í
reynd á að jöfnuður skuli haldast
með okkur og háskólamenntuðum
hjúkrunarfræðingum í BHMR. Það
er bara fyrir okkur að sækja þenn-
an launamun og það munum við
gera,“ sagði Sigríður.
Hjúkrunarfræðingar í BSRB
munu gera kröfu til að fá sams-
konar flokkahækkanir og
háskólamenntaðir lijúkrunar-
fræðingar í BHMR fengu
samkvæmt Kjaradómi.
„Við munum þegar í stað óska
eftir viðræðum um samræmingu
launastiga okkar og Félags há-
skólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga,“ sagði Sigríður Ingimundar-
dóttir, formaður Hjúkrunarfélags
íslands.
„Síðan í febrúar og þangað til í