Morgunblaðið - 11.07.1986, Side 11

Morgunblaðið - 11.07.1986, Side 11
vald til að náða hvorki einn né neinn upp á sitt eigið eindæmi. í þriðja lagi þótti mörgum nú einsýnt að Shalom væri sekur. Einn fyrrverandi dómsmálaráð- herra landsins Haim Zadok lýsti því yfir að gjörð forsetans og málið allt væri blettur á ísraelsku lýð- ræði. Hann sagði að hvað svo sem Öryggisþjónustan teldi sig hátt- skrifaða og merkilega mætti það aldrei verða að hún kæmist upp með að fremja glæpi. Mikil skrif urðu í blöðum og ríkisstjómin gerði sér grein fyrir að eitthvað varð að gera. En áður en ráðvilltir ráð- herrar gætu snúið sér við hafði Herzog forseti bætt gráu ofan á svart með nýrri yfírlýsingu. Hann varði fyrri ákvörðun með því að segja að yrði sett á fót rannsóknar- nefnd af einhveiju tagi væri óhjákvæmilegt að forsvarsmenn Shin Bet neyddust tii að gefa upp- lýsingar sem kynnu að stefna öryggi landsins í voða. „ísraelar hafa ekki efni á því að öryggi þeirra verði á einhvem hátt veikt. Né held- ur er ástæða til að ætla að þeir valinkunnu sómamenn sem era í forystu hafi nokkuð það að fela sem á erindi fyrir almenningssjónir" sagði Herzog. En menn vora ekki allir á sömu skoðun og forsetinn. Raddimar urðu hávæarari sem kröfðust full- nægjandi rannsóknar á málinu og Shimon Peres forsætisráðherra kunngerði að hann væri fylgjandi rannsókn. Yitzak Shamir, utanríkis- ráðherra, brást hinn versti við og sagðist vera á öndverðri skoðun. Þar með var allt komið opinberlega í háa loft innan ríkisstjórnarinnar. Shimon Peres sagði nú, að hann teldi ekki ástæðu til að rannsókn færi fram. Nokkrir ráðherrar voru honum fylgjandi að málum, þar á meðal Rabin, varnarmálaráðherra og að minnsta kosti tveir aðrir. Aftur á móti er vitað að málið var rætt á hveijum ríkisstjómarfundi af öðram og loks tilkynntu þrír ráð- herrar sem fylgja Verkamanna- flokknum, að þeir myndu segja af sér nema gerð yrði ítarleg athugun á málavöxtum öllum. Þessir ráð- herrar era Ezer Weizmann, Yaakov Tsur og Gad Yaakobi. Reynt hefur verið leynt og ljóst að telja þeim hughvarf, vegna þess að afleiðingar afsagna þeirraa era auðvitað öllum ljósar. Shimon Peres, forsætisráð- herra, greip þá til þess að gefa enn eina yfirlýsingu: hann sagði að eig- inlega væri aðkallandi að nefnd yrði sett til að rannsaka málið. Það hefur vakið furðu í ísrael, hversu reikull í skoðunum forsætis- ráðherrann hefur verið og minnzt hefur verið á hér. Á hinn bóginn er skiljanlegt að það vefjist fyrir Peres hvemig greiða skuli úr mál- inu, án þess að stjórnarsamstarf rofni. Nýjar kosningar nú er vafa- samur kostur, kosningabarátta sem yrði háð um þetta mál eitt yrði hvorugum stjómarflokkanna til framdráttar og aðeins til þess að öfgasinnaðir trúarlegir stjómmála- flokkar kæmust til meiri áhrifa og hafa þau þótt óeðlilega mikil síðustu mánuði og vaxið í röngu hlutfalli við styrkleika þessara smáflokka. En hvemig sem málið verður leyst, hvort sem Peres sýnir þá djörfung að láta taka á því af hisp- ursleysi og einurð hafa báðir stóra flokkamir, svo og forseti landsins beðið alvarlegan álitshnekki og málið hefur valdið djúpstæðari deil- um manna á meðal en svo að um heilt muni gróa alveg í bráð. (Heimildir m.a. Observer, Newsweek, Jeru- salem Post, AP.) Texti: JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR g Electrelax Electrolux Electrolux Electrolux Electrolux Ármúla la Sími 91-686117 Electrelax Electrelax Electrolux Elcctrolux Electrolux MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1986 11 Fiskaflinn nær 50.000 lestum meiri en í fyrra Helmingi meira af ferskum þorski selt erlendis nú ÞAÐ, sem af er árinu er fiskafli landsmanna orðinn 730.073 lest- ir, eða 46.472 lestum meiri en í fyrra og hefur til þessa veiðzt meira af öllum helztu fiskiteg- undum en á sama tíma þá. Mest aflaaukning hefur verið í þorsk- veiðinni, en hún er nú 28.819 lestum meiri en i fyrra. Aflinn i júnímánuði er 5.420 lestum meiri og munar þar mestu um meiri veiði á botnfiski öðrum en þorski. Rúmlega helmingi meira af þorski hefur nú verið landað er- lendis en á síðasta ári. Afli báta í júnímánuði nú varð samtals 18.828 lestir, 440 lestum meiri en í fyrra. Þorskaflinn varð 8.745 lestir á móti 8.171 í fyrra, afli af öðram botnfiski varð 6.497, 253 lestum minni en í fyrra, rækju- aflinn lítillega minni og humaraflinn nokkra meiri. Afli togara varð sam- tals 37.413 lestir, 4.980 lestum meiri en í fyrra. Þorskaflinn varð 22.618 lestir, 453 lestum minni og afli af öðram botnfiski 14.795, 5.433 lestum meiri. Heildaraflinn í mánuðinum varð 56.241 lest, en í fyrra 50.821. Þorskaflinn nánast sá sami, en af öðram botnfiski veiddist 5.180 lestum meira. Heildarflinn frá áramótum til júnfloka varð 730.073 lestir, 46.472 lestum meiri en í fyrra. Munar þar mestu um að þorskveiði er 28.819 lestum meiri en í fyrra, afli af öðr- um botnfiski 13.671 lest meiri og afli annarra helztu nytjaflska er litlu meiri en á sama tíma í fyrra. í júní var 2.194 lestum landað erlendis og er það nánast sama magn og í fyrra. Það, sem af er árinu, hefur 80.836 lestum verið landað erlendis en 49.079 lestum í fyrra. Munurinn liggur að mestu í loðnu, en nú hefur um 5.399 lestum af þorski verið landað í erlendum höfnum, sem er rúmlega helmingi meira en í fyrra. ÁLER OKKAR MÁL! Fyrirliggjandi í birgðastöð: Álplötur (AiMg3) Sæ- og seltuþolnar Hálfhart efni í þykktum frá 0,8mm-10mm Plötustærðir 1250 mm x 2500 mm 2000 mm x 5000 mm Rifflaðar álplötur gólfál (AiMg3) Þykktir: 3 - 7 mm Plötustærðir: 1250 x 2500 mm Stangaál (AiMgSi 0,5) Seltuþolið Fjölbreyttar stærðir og þykktir SINDRA Alprófílar □ czzin Vinkilál ILL STALHF Flatál Sívalt ál Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavlk, sími: 27222. ARGUS/SlA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.