Morgunblaðið - 29.07.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.07.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986 Stöðvun hvalveiðanna Starfsitn • / / í» l i i ír a aframi enn almennt svartsým HVALVEIÐISKIP Hvals hf Hvalur 8 og 9, komu í gœr til hafnar að hvalstöðinni í Hvalfirði. Hvalveiðiskipin hættu veiðum á miðnætti og héldu síðan til hafnar. Hla hefur viðrað til hvalveiða undanfarna daga og komu hvalveiðiskipin því tóm til hafnar. Sumarfrí sjómanna á hvalveiðiskipunum hófust í gær, en sumarfrí starfs- manna í Hvalstöðinni hefjast þann 11. ágúst. Vaktavinnu verður hætt næstkomandi helgi og dagvinna hafin þess í stað og er þá búist við að flestir starfsmennimir fari í frí. Morgunblaðið kannaði hljóðið í starfsmönnum stöðvarinnar og hvalveiði- mönnum í tilefni af hinum skyndilegu sumarfríum. Ekki var líflegt um að litast á vinnsluplani hvalstöðvarinnar í gær. Morgunblaðið/Ámi Sæberg „Ekkert vit í því að hætta núna“ — segir Signrður Njálsson skip- stjóri á Hval 9 „ÞAÐ ER ekkert vit í því að fara í frí núna,“ sagði Sigurður Njáls- son skipstjóri og skytta á Hval 9, „enn á eftir að veiða 21 lang- reyð upp í kvótann, og það yrði einstök lukka, ef það tækist að klára kvótann, enda hverfur langreyðin yfirleitt á bilinu 10.- ló.september, auk þess sem birtutíminn er mun styttri." Sigurður hefur verið 33 vertíðir á hvalfangara og byxjaði sem messagutti. „Mér litist ekkert á það að þurfa að hætta núna; enda hleyp- ur maður ekki inn í önnur störf á sjó og enn síður í landi. Annars er ég tiltölulega bjartsýnn á að við höldum út aftur, enda trúi ég ekki öðru en að okkar mönnum takist að koma vitinu fyrir Bandaríkja- menn. Ég tel því að ekki ætti að þurfa að fara í hart." Sigurður taldi afskipti bandarískra stjómvalda fáránleg, en það sem gera þyrfti, væri að útskýra okkar mál fyrir þeim. Hvalur 9 hafði engan hval með- ferðis, er hann kom að landi. „Við lögðum af stað þann 25. júlí, en það var leiðindaveður á miðunum. Við sáum hvali og reyndum allt hvað af tók til þess að fanga hval fyrir miðnættið, en það tókst ekki. Hvalur 9 hefur það sem af er vertíð veitt 33 langreyðar og 8 sandreyð- ar. „Sandreyðin er að skella sér á miðin um þessar mundir og verður á þeim lengi fram eftir hausti. Það þarf engar áhyggjur að hafa af langreyðinni, en það er verst hvað hún er afurðalítil. Það er hins vegar nóg af friðuðu tegundunum á mið- unum, sem sýnir það áróður Grænfriðunga hefur ekkert með útiýmingarhættu tegundanna að gera, heldur virðist hvalurinn vera heilög kýr í þeirra augum; ekkert ósvipað trúarbrögðum hindúa," sagði Sigurður og bauð mönnum í nefið hinn hressasti þrátt fyrir allar skapraunir. „Hæpið að við fáum aðra vinnu fram að skóla“ — sögðu þrír námsmenn, sem starfa í sumar í hvalstöðinni STÓR hluti starfsmanna við hval- Um það hvemig bregðast skuli stöðina í Hvalfirði eru náms- við, sagði Pétur að hann væri þeirr menn, sem eru að afla sér tekna fyrir veturinn og mætti ætla að þessi stöðvun kæmi sér illa fyrir þá. Blaðamaður hitti þrjá þeirra að máli í mötuneyti stöðvarinnar; þá Lárus Blöndal, Pétur Kristins- son og Bjarna Þór Gunnlaugsson. Þeir félagarnir voru sammála um það, að þetta sumarfrí kæmi sér afar illa fjárhagslega, og enn verra yrði, ef veiðamar legðust með öllu niður, enda væri erfitt að fá vinnu, þann tíma, sem eftir væri sumars. Lárus Blöndalhefur unnið þijár vertíðar í hvalstöðinni. „Mér líst mjög illa á að fá frí núna; líklega líst engum vel á það. Afskipti Banda- ríkjanna eru fyrir neðan allar hellur og tel ég að við eigum að bregðast við af hörku og gugna ekki; hins vegar tel ég bamalegt að hóta brott- rekstri hersins. Það er ágætt að vinna hér, enda rnikla vinnu að fá. Því miður tel ég að síðasti hvalurinn hafí verið skor- inn síðasta iaugardag, enda hafa Bandaríkjamenn sýnt og sannað að þeir láta ógjaman undan." Pétur Kristinssonhefur unnið fjórar vertíðar í hvalstöðinni. Pétur taldi afstöðu Bandaríkjamanna bera hræsni þeirra órækt vitni, ef höfð væru í huga viðbrögð þeirra við kröf- unni um refsiaðgerðir gagnvart Suður-Afríku. „Bandaríkjamenn eru á engan hátt málefnalegir, heldur ræðst afstaða þeirra af tilfinningum og trúarbrögðum." ar skoðunar, að íslendingar ættu að bíða átekta og láta reyna á það, hvort Bandaríkjamenn beiti refsiað- gerðum, og ef út í viðskiptaþvinganir færi, mætti hugsanlega fara út í það, að beita ýmiss konar þrýstingi, eins og að stöðva innflutning á nautakjöti til vamarliðsins. Bjarni Þór Gunnlaugsson, sem unnið hefur í hvalstöðinni einar átta vertíðar, sagði að þetta koma sér illa fjárhagslega, enda væri erfítt að fá nýtt starf. Bjami taldi að íslensk stjómvöld ættu fyrst og fremst að reyna að upplýsa bandarísk stjómvöld um eðli hval- veiða íslendinga. Bjami áleit, að Bandaríkjamenn væru illa upplýstir; að því er snerti fjölda veiddra dýra og að vísindarannsóknir Islendinga væru ekkert yfírskin. Bjami gat þess, að áður fyrr hefðu vísinda- mennimir skoðað hvalina í hálftíma til eina klukkustund, en núna skoð- uðu þeir hvem hval að meðaltali 2-3 tíma áður en starfsmenn fá að skera. Ólafur Arsælsson háseti og fyrr- um stýrimaður: „Fréttin í útvarp- inu hafði mikil áhrif á andann um borð.“ hvalveiðiskipi vera ákaflega spenn- andi og sæmilegt upp úr því að hafa; minna þó núna en undan- farið og sér þætti afleitt að þurfa að skipta um starf eftir svo langan tíma. Ólafur taldi ómögulegt að spá í framhaldið, en þó væri hann nokkuð bjartsýnn á það að hval- veiðar hæfust aftur að loknu sumarfríi. Ólafur áleit afskipti Bandaríkjamanna vera í hæsta máta óeðlileg. „Við heyrðum fréttina um sum- arfríið fyrst í útvarpinu þann 25. júlí á útleið og bitnaði þessi frétt mjög á andanum um borð,“ sagði Ársæll að lokum. Námsmennirnir þrír: (talið frá vinstri) Lárus Blöndal, Pétur Kristinsson og Bjarni Þór Gunnlaugsson Sigurður Njálsson skipstjóri á Hval 9: Er laust starf á Mogganum? Ólafur Ársælsson háseti: „Leyfi mér að vera bjartsýnn“ ÓLAFUR Ársælsson hefur unn- ið á hvalfangara einar 15 vertíð- ir; áður sem stýrimaður, en sem háseti eftir að hvalskipunum var fækkað. Ólafur vinnur á milli vertíða við viðhald á bátunum. Ólafur kvað starfíð um borð í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.