Morgunblaðið - 29.07.1986, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
5
Ekki skemma góð lög með því að spila þau í lélegu tæki.
Fáðu þér SHARP ferðatæki og uppáhaldslögin þín verða miklu betri,
hvort sem þau eru spiluð afkassettu eða leikin f útvarpinu.
Tónninn er tær, tækin falleg og verðið er frá
KR.5,480.-
Gældu við hlustirnar - fáðu þér Sharp
„Ætli maður fari ekki á hreppiim“
— sagði Ingvi Böðvarsson, elsti starfsmaður hvalstöðvarinnar
í SKÚR við autt vinnsluplanið
í Hvalstöðinni hitti blaðamað-
ur að máli þá Ingva Böðvars-
son og Helga Jónsson, en þeir
eru báðir verkstjórar. Þeir
Ingvi og Helgi eru báðir af
Skaganum og starfa við Hval-
stöðina árið um kring. Ingvi
hefur starfað í Hvalstöðinni
síðan árið 1949 og mun vera
elsti starfsmaðurinn, en Helgi
hefur starfað þar sem fastur
starfsmaður í fjögur ár.
Ingvi og Helgi voru sammála
um það, að afskipti Bandaríkja-
manna væru afar óeðlileg og bein
afskipti af innanríkismálum ís-
lands. Hins vegar töldu þeir að
ekki mætti fóma fiskmörkuðunum
í Bandaríkjunum, ef út í það færi.
í sumar vinna um 80 manns í
sumar í Hvalstöðinni auk þeirra
þijátíu, sem eru á bátunum. „Okk-
ur fínnst mjög gott að vinna héma;
sérstakur andi ríkir á þessum
vinnustað. Þessi vinnustaður er
allt öðmvísi en sams konar vinnu-
staður í þéttbýli, enda fara menn
ekki heim til sín að kveldi í þessu
lokaða samfélagi. Þeir sem einu
sinni byija losna aldrei aftur; gaml-
ir menn, sem hættir em störfum,
geta ekki slitið sig frá staðnum
heldur koma reglulega í heim-
sókn.“ Verkstjóramir tveir vom
sammála um það að mikil eftirsjá
yrði að þessum vinnustað.
Þeir Helgi og Ingvi vom báðir
mjög svartsýnir á það að úr vand-
anum leystist og sögðust búast við
því að þetta sumarfrí yrði til lang-
frama. Um atvinnuhorfur sagðist
Helgi varla þurfa að óttast svo
mjög, en Ingvi var ekki eins bjart-
sýnn: „Ætli maður fari ekki á
hreppinn."
Verkstjóramir Ingvi Böðvarsson (til vinstri) og Helgi Jónsson heldur
svartsýnir á framhald hvalveiða
Sigurbjöm Áraason 1. stýrimað-
ur á Hval 9 og fyrmm skipstjóri
á Hval 6: Verðum að mæta þessu
af fullri hörku.
„Ættum
að endur-
skoða sam-
skiptin við
Bandaríkin“
— sagði Sigurbjörn
Arnason, 1. stýri-
maður á Hval 9
„AFSKIPTI Bandaríkjamanna
em fyrir neðan allar hellur og í
hæsta máta óeðlilegur sam-
skiptaháttur," sagði Sigurbjörn
Arnason 1. stýrimaður á Hval 9.
„Mér þykir íslenska þjóðin vera
farin að leggjast ansi lágt ef hún
ætlar að láta sér afskipti Banda- •
ríkjanna lynda og ég neita að trúa
því að íslenskir ráðamenn láti undan
þegjandi og hljóðalaust. Við þurfum
að mæta þessu af fullri hörku og
jafnvel leita fiskmarkaða annars
staðar en í Bandaríkjunum." Sigur-
bjöm kvaðst vera hættur að láta
nokkuð koma sér á óvart í sam-
bandi við hvalinn og væri hann
verulega svartsýnn á framhaldið.
„Ég sé ekki að staðan eigi nokkuð
eftir að breytast úr þessu nema
hótað verði á móti, t.d. með brott-
rekstri hersins.
Sigurbjöm var skipstjóri á Hval
6 áður en skipunum var fækkað
og hefur unnið á hvalfangara síðan
hann lauk stýrimannsprófi, eða
síðan 1955. Sigurbjöm kvað ekki
hlaupið að því að fá annað starf
eftir svo langan tíma og þótt ekki
kæmi til algerrar stöðvunar kæmi
þetta langa hlé skattalega illa út,
þar eð tekjurnar minnkuðu að mikl-
um mun miðað við í fyrra og bættist
það ofan á þá tekjulækkun, sem
varð við það að bátunum var fækk-
að í tvo, þar sem menn sem áður
höfðu unnið sem skipstjórar væm
nú stýrimenn og stýrimenn ynnu
margir hveijir á dekki, sem háset-
ar, og sömu sögu væri að segja af
vélstjórum.
HLJÐMBÆR
Umboðsmenn: Bókaskemman Akranesi, Kaupfélag Borgfirðinga, Hijómtorg isafirði, Kaupféiag Skagfirðinga Sauðárkróki, KEA Akureyri,
Radiover Húsavík, Skógar Egilsstöðum, Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum, Myndbandaleiga Reyðarfjarðar Reyðarfirði,
Ennco Neskaupsstað, Djúpið Djúpavogi, Hornabær Hornafirði, Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli, M.M. búðin Selfossi,
Rás Þorlákshöfn, Fataval Keflavík, Rafeindaþjónusta Ómars Vestmannaeyjum, Radioröst Hafnarfirði, JL Húsið Reykjavík.
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
. X
Qt27