Morgunblaðið - 29.07.1986, Page 37
MORGÚNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ l986
37
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
„Kæri þáttur. Við erum sam-
býlisfólk. Hún í Ljóni, 30.
júlí 1966, kl. 7.06 að morgni
í Reykjavík. Hann er Vog,
21. október 1951, kl. 5.05
að morgni. Við erum forvitin
um það hvemig við eigum
saman og um hæfileika okk-
ar. Með fyrirfram þökk.“
Svar:
Kort ykkar eru athyglisverð
í samanburði því margt er
líkt. T.d. er Sólarmerkið
Rísandi hjá ykkur báðum og
Tunglið er á Miðhimni í kort
ykkar beggja. Miðhiminn
hefur með markmið okkar í
lífinu að gera og oft starf.
Það að hafa sömu plánetu á
Miðhimni táknar að þið
stefnið að svipuðu marki. Þið
gætuð því hafa kynnst á
vinnustað eða lík markmið
og viðhorf hafa dregið ykkar
saman. Þið ættuð í öllu falli
að geta stutt hvort annað og
hjálpað í starfí og lífínu al-
mennt. Kort ykkar eiga vel
saman.
Hún
Hún hefur Sól, Merkúr og
Plútó Rfsandi í Ljóni, Tungl
á Miðhimni í Nauti, Venus í
Tvíbura og Mars í Fiskum.
Einlœg
Ljónið táknar að hún er hlý,
gjafmild, einlæg og stolt.
Hún er einnig ákveðin og
föst fyrir. Plútó Rfsandi tákn-
ar að þrátt fyrir hið opna og
hlýja Ljón býr f henni ákveð-
in dulúð. Hún þarf á einangr-
un að halda og dregur sig
því í hlé á tímabilum. Plútó
gefur henni einnig einbeit-
ingu og gerir að hún er
öfgafull, er allt eða ekkert
manneskja.
Þarf öryggi
Tungl í Nauti táknar að hún
þarf öryggi í daglegu lífí og
þarf að eiga gott heimili. Hún
er töluvert gefín fyrir þæg-
indi. Þolinmæði og þqoska
eru einnig einkennandi.
Lifandi félagslíf
Venus í Tvíbura táknar að
hún þarf félagslega lifandi
umhverfí, hefur áhuga á því
að hafa margvíslegt fólk í
kringum sig. Hún vill jafn-
framt ákveðið félagslegt og
tilfínningalegt frelsi. Á milli
þessa þáttar og Nautsins
getur verið ákveðin spenna.
Eg sé þrenns konar hæfíleika
í kortinu. í fyrsta lagi hæfí-
leika á uppeldissviðum, svo
og lækningum og hjúkrun. í
öðru lagi á listrænum og
skapandi sviðum og f þriðja
lagi á sviðum sem tengjast
ferðamálum.
Hann
Hann hefur Sól og Satúmus
Risandi í Vog, Tungl á Mið-
himni í Krabba, Merkúr í
Sporðdreka og Venus, Mars
í Meyju.
Félagsmálastjóri
Þar sem kort ykkar eru lík
má segja að hann hafí hæfí-
leika á svipuðum sviðum.
Satúmus Rísandi táknar að
hann er vel fallinn til að tak-
ast á við ábyrgð á félagssvið-
um.
Nœmur
Tungl f Krabba táknar að
hann er tilfínningalega næm-
ur og jafnframt vemdandi
og umhyggjusamur. Hann
þarf öryggi og gott heimili,
er mikill pabbi f sér. Helsti
vandi hans em sveiflukennd-
ar tilfínningar og togstreita
milli bjartsýni og þarfar fyrir
frelsi og hreyfíngu og þarfar
til að takast á við ábyrgð og
hafa reglu á daglegu lffí.
Venus og Mars í Meyju tákna
að hann er einnig nákvæmur
og samviskusamur og á til
að vera gagnrýninn.
X-9
V/6-Mnn 1
/ff/wr qffor...\
®lHi K,n9 F««»lur«* Syndicale. Iik. World ríghíTreíerved.
GRETTIR
43?AA © 1985 United Feature Syndicate.lnc.
TOMMI OG JENNI
ALDRE! EK_
AÐ /HA/ZKA ÞesSAfZ
\Z£- ÐUR SPA R. ■' NÚ l/El
EG A£> F2ESTA ÚT/_
LEGUMN/ /
UEe.Dk
HÍ, Hí, m ! l/ERST AP,
TOMAi! ÓKUL/ EK.K! L/KA
/ETLA íSKgÖÐGÖNGÖ
ySLK> Z/Ð G/ETUM R/GK/r
HANA LÍKA'
UOSKA
1 1 | 1 l»l S /6-1 1
===========; FERDINAND
SMAFOLK
Óttinn getur náð heljar-
tökum á lifi okkar!
Ótti við fátækt... ótti
við veikindi__
Ef ég væri spurður hvað
ég óttaðist mest, veiztu
hveiju ég myndi svara?
Að leiknum væri aflýst!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vandvirkni Jakobs Kristins-
sonar í eftirfarandi spili úr leik
íslands og Spánar á Evrópumóti
yngri spilara skilaði islensku
sveitinni góðri sveiflu.
Norður
♦ 62
VÁ92
♦ K43
♦ ÁKG92
Vestur
♦ D973
♦ G1086
♦ Á108
♦ 54
Austur
♦ KG108
▼ 543
♦ 962
♦ D87
Suður
♦ Á54
♦ KD7
♦ DG75
♦ 1063
Á báðum borðum vom spiluð
þijú grönd í N/S. Spánveijamir
spiluðu sögnina í norður og
fengu út spaða. Það útspil gerir
út um samninginn á svipstundu,
vömin fær þrjá slagi á spaða,
einn á tígul og einn á lauf.
Jakob Kristinsson varð hins
vegar sagnhafí í þremur grönd-
um í suður og fékk út hjarta-
gosa. Ólíkt þægilegra útspil, en
spilið er aldeilis ekki komið heim
fyrir það. Ef sagnhafí fer strax
í laufíð og hleypir austri inn á
drottninguna kemur vafalitið
spaði til baka og þá er ekki
hægt að fá fleiri en átta slagi.
Þetta sá Jakob fyrir og í stað
þess að spila laufínu beint af
augum lék hann snotran milli-
leik, drap útspilið heima á kóng
og spilaði litlum tígli á kónginn.
Vestur féll í gildmna og setti
litinn tígul. Þegar kóngurinn
átti slaginn gat Jakob snúið sér
að laufinu í rólegheitum.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Prag um
áramótin kom þessi staða upp i
skák Tékkanna Prandstetter,
sem hafði hvítt og átti leik og
Vanka.
20. Bg6! (Einkar laglegur leikur
sem kemur svörtum í opna
skjöldu) — Hc7, 21. Hc7, 21.
Hxf7! - Hxf7,22. Hf 1 - Hhf8,
23. De6+ — De7, 24. Dc8+ og
svartur gafst upp því hann verð-
ur skiptamun undir í endatafli.