Morgunblaðið - 29.07.1986, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 29.07.1986, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986 '47 Richard Chamberlain í nokkram hlutverka sinna, sem skipta samtals fleiri tugum. Ég er hættur að reyna að gera öll- um til geðs, veit að það er vonlaust verk og vil nú bara fá að kynnast þeim manni, sem innra með mér býr. Að þessu leyti er starfíð mér einnig fjötur um fót, því ég verð alltaf að setja mig í fótspor ann- arra, til að ná tökum á hlutverkum mínum, geta túlkað tilfínningar. Ég er viðkvæmur, svo mikið veit ég fyrir víst og rómantískar kring- umstæður heilla mig mjög. En lengra er ég ekki komin í sjálfsleit- inni.“ Richard Chamberlain hefur löng- um verið eftirsóttur maður, en hefur þó aldrei kvænst. „Nei, ég yrði ábyggilega lélegur eiginmaður, svo ekki sé nú meira sagt“ segir hann. „Ég er óþolinmóður, afbrýðisamur og eigingjam og því best að ég búi einn og út af fyrir mig. Hingað til hefur aðdráttarafl mitt orsakast af þeirri leynd, sem hvílt hefur yfír lífí mínu. En nú er ég meira að segja orðinn þreyttur á að þegja, vil fá að koma til dyranna eins og ég er klæddur, þó svo að það þýði áð einhveijir aðdáendur snúi við mér bakinu. Það er ekkert líf að ÍÍfa í lygi." „Myndi aldr- ei leggja út í leiklistina, ef ég mætti velja í dag,“ segir Ric- hard Chamberla- in. Sjaldan fellur eplið ... að er ekkert nýtt að litlir strák- ar reyni að feta í fótspor feðra sinna. Faðirinn er í flestum tilfellum ímynd alls hins góða, hátt hafínn yfír hversdagsleg vandamál í huga bamsins og því sjálfkjörin fyrir- mynd. Það vekur þó alltaf athygli þegar þetta á sér stað í „skemmt- anabransanum" meðal söngvara eða leikara. Umsvifalaust er þá röddin eða leikhæfíleikar afkvæm- anna bomir saman við það sem foreldramir höfðu til bmnns að bera. Til sönnunar þessari kenningu um tilætlunarsemi almennings nægir að nefna son Lennons heit- ins, Julian. En þeir em fleiri söngvarasynimir, sem komnir em nú með hljóðnema sér í hönd, hyggj- ast spreyta sig á sviðinu. Meðal þeirra er sonur sveitasöngvarans góðkunna, Kenny Rogers. Sonurinn er reyndar alnafni föður síns og er óhætt að fullyrða að hann muni Eftir langvarandi deilur, rifrildi og rökræður sættist Kenny Rog- ers hinn yngri við föður sinn og alnafna, tók hann sér til fyrir- myndar og fetar nú í fótspor hans. njóta þeirrar auglýsingar til að byija með. Kenny hinn yngri vinnur nú að gerð stórrar hljómplötu — plötu, sem beðið er með mikilli eftir- væntingu. Raddir þeirra feðga era sagðar afskaplega áþekkar og sviðsframkoman næstum því hin sama. Það er þó ekki langt síðan sonurinn ákvað að leggja lagasmíð- ar og söng fyrir sig. Lengst af hefur honum nefnilega samið afskaplega illa við föður sinn, rifíst og rökrætt við hann öllum stundum og neitaði meira að segja að hafa nokkur sam- skipti við hann í ein fímm ár. Astæðan fyrir þessum deilum — biturleika og beiskju — er sú, að syninum hefur ávallt fundist hann æði afskiptur, fínnst faðir sinn ekki hafa sinnt sér sem skyldi. Ásökun- um þessum tók faðirinn að vonum illa, fannst sem sonur hans væri að ráðast á sig, snerist til vamar og harðneitaði að nokkuð væri hæft í því, sem hann hélt fram. Nú hefur Kenny hinsvegar snúið við blaðinu og segist sjá mikið eftir því hversu lítinn tíma hann gaf sér til að kynnast bömum sínum, og þá sér f lagi Kenny. „Ég myndi gefa aleigu mína fyrir að fá að snúa tímaskífunni aftur nokkuð mörg ár,“ sagði söngvarinn í við- tali. „Þá myndi ég leggja ríkustu áherslu á að rækta samband okkar feðganna. Nú er ég hinsvegar hræddur um að ég sé orðinn of seinn til að vinna trúnað hans og traust," bætti hann við. Eftir þessar yfírlýsingar á opin- bemm vettvangi — afsökunarbeiðni í blöðunum, bráðnaði sonurinn al- veg, rétti fram sáttarhönd og settist niður með föður sínum og ræddi málin. Samskipti þeirra tóku svo stórkostlegum breytingum að son- urinn ákvað að feta hreinlega í fótspor þessa fyrirmyndarföður. COSPER Þú ert tíundi maðurinn, sem vill fá mig fyrir mág. Flugvélar til sölu C-172 SKYHAWK árg. 1975. 50T/SMOH, NAV/COM 300, XPDR, ADF. C-140 árg. 1946. Báðar flugvélarnar í mjög góðu ástandi. Uppl. gefur: Agnar Gústafsson hrl., Eiríksgötu 4, símar 12600 og 21750. Eigum ávallt fyrirliggjandi: PING' golfsett PING' puttera (margar gerðir) PING' kylfuhlífar PING' poka (margar gerðir) Kerrur. #/#**** tsterJLlllll Ameriska Tunguhálsi 11, sími 82700 Hestaþing Loga verður haldið sunnudaginn 3. ágúst við Hrísholt. Mótiðhefst kl. 14.00. Keppt verður í eftirtöldum greinum: 150 metra skeiði, 250 metra skeiði, 300 metra stökki, 300 metra brokki, 250 metra unghrossahlaupi. Skráning í síma 99-6916, og 6816. I Nefndin. Bingó — Bingó Nú mæta allir í bingó í Glæsibæ í kvöld kl. 19.30. Hæsti vinningur að verðmæti kr. 80.000.- Vinningar og verð á spjöldum í öðrum umferðum óbreytt. Mætum stundvíslega. FASTBGN TILSÖUJ Tilboð óskast í fasteignina nr. 2 við Smiðjuveg í Kópavogi Stœrö hússins er 7.357 ferm. og 32.220 rúmm. Stœrð lóðar er >15.356 ferm. Tilboð skilist til undirritaðra fyrir 15. ágúst n.k. IÐNLÁNASJÓÐUR IÐNAÐARBANKIÍSLANDS HF. IÐNÞRÓUNARSJÓÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.