Morgunblaðið - 29.07.1986, Side 54
54
»
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
9
.4
Morjfunblaðið/Börkur
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Um eitt þúsund
manns í Viðey
Á MYNDINNI hér fyrir ofan sést yfir mótssvæði skáta í Viðey. Flest-
ir skátanna fjölmenntu á laugardag með sin tjöld og svefnpoka út í
ey þrátt fyrir að setning mótsins hafi ekki farið fram fyrr en kl.
15.00 á sunnudag.
Mótssvæðinu er skipt niður í
fimm svokallaðar sýslur. Skátar á
aldrinum 11 til 16 ára ráða ríkjum
í flðrum þeirra og bera þær heitin
norður-, suður-, vestur- og austur-
sýsla. Fimmta sýslan, Efrisýsla, er
fyrir Qölskyldu- og þrælabúðir, en
þrælabúðimar eru skipaðar „göml-
um viðloðandi skátum" eins og
komist var að orði og er þeim víst
óspart skipað fyrir verkum á mótinu
ef snör handtök þarf við. Forráða-
menn landsmóts skáta gerðu ráð
fyrir að mannfjöldi í Viðey væri um
1.000 manns.
Á myndinn hér til vinstri má sjá
nokkra skáta í hátíðarskapi, en
þeir voru á leið á setningu mótsins,
sem jafnframt var lýðveldisstofnun
Viðeyjarbúa, þegar Ijósmyndari
Morgunblaðsins rakst á þá. Skát-
amir voru allir klæddir einkennis-
búningum við setninguna og setti
það svo sannarlega hátíðarsvip á
samkomuna.
15% AFSLÁTTUR
af öllum vörum fram að verslunarmannahelgi