Morgunblaðið - 29.07.1986, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
55
„Vil hafa agann meiri
eins og í gamla daga“
- segir Óskar Pétursson,
aldursforseti landsmótsins
„Ég gekk í skátahreyfinguna
8. desember 1916, þá 10 ára gam-
all,“ sagði Óskar Pétursson í
samtali við blaðamann en hann
verður áttræður 2. desember nk.
Óskar lét sig þó ekki vanta á
landsmótið í Viðey frekar en
fyrri daginn enda skátastarfið
hans líf og yndi í öll þau 70 ár
sem hann hefur starfað með
skátum.
Óskar sagðist hafa byijað í Vær-
ingjafélaginu hjá séra Priðriki
Friðrikssyni í KFUM. Síðan tók
Axel Túliníus við félaginu og var
hann jafnframt fyrsti skátahöfðingi
Islands. Árið 1938 sameinuðust
Væringjafélagið og Emir í Skátafé-
lag Reykjavíkur og seinna var því
skipt upp í mörg félög eftir að borg-
in stækkaði og íbúum fjölgaði enda
mikil ásókn í skátahreyfinguna í
þá daga. „Mér lfst ákaflega vel á
mótið hér í Viðey þó að aginn
mætti vera meiri — þú sérð að ég
er greinilega af gamla skólanum.
Tíðarandinn er allt annar nú og
miklu frjálslegri. Það var t.d. al-
gjört bann við því að reykja í
skátabúningi á mínum yngri árum.
Það er komið svo margt sem glepur
unga fólkið nú, t.d. myndböndin,
diskótekin og íþróttafélögin, en í
gamla daga voru skátafélögin og
ungmennafélögin allt það sem ung-
dómnum var boðið uppá. Ég hef
hinsvegar ekki trú á að grundvöllur-
inn að skátastarfínu breytist
nokkuð þó menn séu orðnir fijáls-
legri hér á landi miðað við erlendar
þjóðir. Ég hef trú á að erlendis sé
aginn meiri innan skátahreyfíngar-
innar vegna heragans, sem gjaman
er alinn upp í krökkunum þar.“
Óskar sagðist hafa ferðast tölu-
vert á vegum skátahreyfíngarinnar
til útlanda og hefði nú í sumar far-
ið síðast á Norðurlandaþing St.
Georgsgildisins í Bomholm, en St.
Georgsgildið eru samtök gamalla
skáta og halda þeir þing á tveggja
ára fresti. Óskar hefur farið á þijú
alheimsmót, hið fyrsta í Englandi
árið 1929, þá í Grikklandi 1962 og
í Noregi á áttunda áratugnum, en
þá héldu öll Norðurlöndin sameigin-
lega alheimsmót.
‘„Það eru engin aldurstakmörk
innan skátahreyfíngarinnar. Ég nýt
þess að vera innan um ungviðið
þótt ég sé orðinn þetta gamall.
Maður er svo innilega velkominn."
Óskar er jámsmiður að mennt en
er nú hættur þeirri iðn sökum ald-
urs. Undanfarið hefur hann ásamt
nokkrum eldri skátum, sem kalla
sig Alfana, unnið að uppbyggingu
Gilwells-skálans við Ulfljótsvatn
sem vel er kominn til ára sinna.
Óskar sagðist hafa gengið for-
ingjastigann upp úr þó hann hafí
aldrei verið skátahöfðingi íslands.
„Ég hef e.t.v. ekki verið nógu hug-
myndaríkur til þess að taka við
þeirri stöðu þótt ég geti unnið vel
með öðmm. Ég sé ails ekki eftir
þeim tíma sem farið hefur í skáta-
starfíð, en það þarf að efla þetta
góða starf núna. Því hefur farið
aftur á síðustu áram og þurfum við
að fá til liðs við okkur aftur þá
skáta sem nú era fullorðnir en hafa
hætt einhverra hluta vegna. For-
ingjarnir okkar hafa yfírleitt verið
allt of ungir — oft á tíðum lítið eldri
en krakkamir sjálfír sem verið er
að þjálfa. Þetta þekkist ekki annars
staðar," sagði Oskar P. að lokum.
Einn yngsti þátttakandi á mótinu er Bima Dís
Benjamínsdóttir, sem er hér ásamt foreldram sínum
Stefaníu Gyðu Jónsdóttur og Benjamín Ámasyni.
Bima Dís er þriggja og hálfs mánaðar og eins og
sjá má skáti í báðar ættir.
„Við ætlum að vera á mótinu alla daga og gista
ef veður leyfír," sögðu foreldramir.
Yngsti þátttakandinn
Morgunblaóið/Börkur
í SÓLSKINSSKAPI
Á skátamótum era engin aldurstakmörk. Ungir sem gamlir §öl-
menntu á landsmótið og vora við setninguna sl. sunnudag og var
yngsti gesturinn rúmlega þriggja mánaða og sá elsti að nálgast áttug-
asta áratuginn. Þessar konur sátu í grasinu og létu fara vel um sig
í sólinni á meðan setningarathöfnin fór fram.
VIÐ
VERÐUM
VIÐBÚIN
með bankaútibú í Viðey
á landsmóti skáta.
Hittumst í Viðey
Idnaöarbankinn
-núPim bmti