Morgunblaðið - 29.07.1986, Side 56

Morgunblaðið - 29.07.1986, Side 56
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Ok á 108 kíló- metra hraða eft- ir Hofsvallagötu LÖGREGLAN í Reykjavík stöðv- aði í gær bifreið á Hofsvallagötu við Vesturbæjarsundlaug, en við hraðamælingu reyndist hún vera á 108 kílómetra hraða. Lögreglan mældi hraða bifreiða er óku um Eskihlíð í Reykjavík á iaugardag og kom þá í ljós að á tímabilinu frá klukkan 18-19 óku 50 bifreiðir yfír leyfilegum hraða, en alls var mældur hraði 120 bif- reiða. Af þessum 50 voru 8 sem óku á 70-80 kílómetra hraða og einn ökumaður var nálægt 90 kíló- metrum á klukkustund. Að kveldi laugardags voru lög- reglumenn aftur við Eskihlíðina með mælingatæki sín og þá reynd- ust tæp 63% ökumanna aka jrfír leyfílegu hámarki. Við Háaleitis- braut var hraðinn einnig mældur og þar reyndust 87 ökumenn af 191 aka of hratt. A Vesturlandsvegi við Ferstiklu reyndist meðalhraði bifreiða um helgina vera um 76 kílómetrar á klukkustund, en leyfílegur hraði er 70 km. Vestan við Borgames var meðalhraði svipaður, svo og á Dalvíkurvegi f EyjaQarðarsýslu. Þá má geta þess að í þremur mæling- um sem gerðar voru í Hrútafírði reyndust 209 ökumenn aka hraðar en á 80 km, en alls var hraði 574 bifreiða mældur. Óli H. Þórðarson, formaður Umferðarráðs, sagði að á landinu öllu hefðu 210 ökumenn verið kærðir og 1.413 hlotið áminn- ingu fyrir of hraðan akstur. Svo háar tölur hefðu valdið mönnum vonbrigðum. Á leið til Lögbergs Morgunblaðið/Börkur Á sunnudag, við setningu 19. landsmóts skáta, var nýtt lýðveldi þeirra Viðeyjarbúa stofnað með tilheyrandi hátíðleik. Skátar gengu fylktu liði frá búðum sinum að hátiðarsvæði eyjarinnar, sem ber nafnið Lögberg. Erlendir skátahópar, komnir um lengri eða skemmri veg, voru marg- ir viðstaddir og samgleðjast íslenskum skátum á landsmótinu, sem stendur fram á næsta sunnu- dag. Veðurguðinn iék við hvern sinn fíngur og hefur verið í sóiskinsskapi síðan Viðeyjarbúar reistu bú sin þar. Sjá frásagnir og myndir á bis. 52,53,54 og 55. Skattbyrðin eykst um 0,5—0,8%» Elsti íslendingnrinn lést á sunnudaginn 107 ára Húaavlk. ELSTI íslendingurinn, Guðrún Þórðardóttir heiðursborgari Guðrún Þórðardóttir Ríkið fær 800 milljónum meira en reiknað var með — varíð til launahækkana og lækkunar á búvöruverði SKATTBYRÐI einstaklinga í ár eykst um 0,5-0,8% miðað við árið í fyrra. Tekjur ríkissjóðs aukast af þeim sökum um 650 milljónir króna umfram áætlun fjárlaga, og um aðrar 150 milljónir króna vegna meiri tekjuskatts af félögum en gert var ráð fyrir. Þessum 800 milljónum króna, sem rikissjóður fær umfram áætiun, hefur þegar veríð ráðstafað, að sögn Þorsteins Pálssonar fjármálaráð- herra. 500 milljónir fara til að mæta launahækkunum opinberra %starfsmanna og 300 milljónum verður varíð til niðurgreiðsina landbunaðarvara. I fréttatilkynningu frá Qármála- ráðuneytinu í gær kemur fram að tekjuskattstofn einstaklinga (þær tekjur sem tekjuskattur er lagður á) nam 51,1 milijarði króna og hefur hækkað um 45% frá fyrra ári. Álagður tekjuskattur á árinu 1986 er 5.926 milljónir króna, sem er hækkun frá árinu 1985 um 2.006 milljónir króna eða 51%. Tekjuskattur einstaklinga hefur því hækkað hlutfallslega umfram tekjuskattstofn. Fjármálaráðuneytið gefur á þessu þijár megin skýringan í fyrsta lagi er bent á að skattvísital- an var hækkuð um 36% milli áranna 1985 og 1986, en hins veg- ar reyndust tekjur hafa hækkað mun meira, eða um 42-43% að meðaltali milli áranna. í öðru lagi, sem afleiðing af ofannefndu, hefur stærra hlutfail af tekjum skattþega farið í hærri skattþrep. Loks er í þriðja lagi nefnd sú skýring að hert skatteftirlit og aðgerðir skatt- yfirvalda hafi haft þau áhrif að tekjur manna skili sér betur til skatts en áður. Í skattstiganum eru þrjú þrep. Fyrsta þrep nær til tekna upp að 272 þúsundum króna, en af þeim greiða menn 19,5% í tekjuskatt. Af næstu 272 þúsundunum er greiddur 31,5% skattur, en 43,5% skattur af öllum tekjum umfram 544 þúsund krónur. í frétt fjár- málaráðuneytisins kemur fram að í ár greiða 13% gjaldenda hæsta skatt, eða 43,5%, af hluta tekna sinna, en voru 11% í fyrra. Þessi hópur stendur undir 67,6% af öllum tekjuskattinum fyrir árið 1986. Þeir gjaldendur sem aftur á móti eru í lægsta skattþrepi bera aðeins 0,5% af álögðum tekjuskatti árs- ins, en 56% af gjaldendum tilheyra því skattþrepi. Sjá ummæli fjármálarádherra bis. 2: Vil kanna þann kost að taka upp staðgreiðslu- kerfi skatta. Húsavíkur, andaðist sl. sunnudag tæpra 107 ára, en hún fæddist 10. september 1879. Guðrún var mjög ern og hafði fulla fótavist þar til á sjötta árinu yfir 100 að hún veiktist svo að hún þurfti að fara á sjúkrahús. Við þá breytingu var eins og líkamlegi þrótturinn dvínaði, þótt andlega héldi hún honum furðu vel fram til siðustu stundar. „Mér þykir óskaplega vænt um kirkjuna okkar þó ég sé nú hætt að fara í hana og á ekki eftir nema eina ferð þangað," sagði Guðrún í viðtali við Morgunblaðið þegar hún var 105 ára. Og nú er sú ferð ákveð- in næstkomandi laugardag. Fréttaritari Laxá í Dölum: Vikuveiðin var 345 laxar! GIFURLEG laxveiði hefur ver- ið í Laxá í Dölum að undan- förnu, þannig veiddi 6-stanga hópur sem lauk viku sinni á hádegi á sunnudag 345 laxa og voru þá komnir um 800 Iaxar á land úr ánni. Að sögn Gunnars Bjömssonar í veiðihúsinu að Þrándargili, hafa hvorki veiðimenn né leiðsögu- menn sem hafa verið þama allt að 20 ár séð aðra eins mergð af laxi í ánni, hún er bókstaflega full af laxi og það er nýr lax að ganga á hveijum degi. „Það stefnir í metsumar í Laxá, í fyrra veiddust rúmlega 1.600 laxar í ánni og þá höfðu veiðst um svip- að leyti milli 5 og 600 laxar. Yfírleitt gefur áin best upp úr miðjum ágúst, þannig að það er mikil veisla enn eftir," sagði Gunnar. Stærstu laxamir voru tveir 22 punda fískar sem veiddust í Svarfhólsgijótum og Papa á Blue Charm og Silver Rat. Bill Dono- van veiddi fyrmefnda laxinn og auk þess annan 21 punda. Denn- is Demond veiddi hinn og notaði afar smáa flugu, eða nr. 12. Sjá bls. 7 „Eru þeir að fá’- ann?“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.