Morgunblaðið - 06.08.1986, Síða 18

Morgunblaðið - 06.08.1986, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1986 Aukin fjárráð veita mögu- leika á aukinni þjónustu - rætt við séra Ólaf Skúlason dóm- prófast um hækkun sóknargjalda og þýðingu þess fyrir söfnuði landsins „SÓKNARGJÖLD hafa verið svo lág, að þau hafa naumast og sums staðar alls ekki staðið undir þvi, sem þeim er ætlað að greiða,“ sagði séra Ólafur Skúlason, dómprófastur, þegar Morgunblaðið leitaði til hans til að fá skýringar á allt að tvöföldun sóknargjalda frá fyrra ári. „Það er sannleikanum sam- kvæmt, að sóknargjöld hækka töluvert mikið núna,“ sagði séra Ólafur. „Það kemur til af breytingu sem varð á þessum málum með lög- um frá Alþingi 20. júní í fyrra. Fram að þessu hafa sóknargjöld verið svokallaður nefskattur, þ.e. allir á aldrinum 16—67 ára hafa greitt sömu upphæð nema sérstakar ástæður hafi hamlað. Kirkjuþing fjallar um fjármál Þjóðkirkjunnar og hinna einstöku safnaða. Þar hefur þetta mál verið mikið rætt og Kirkjuþing vann að því frum- varpi, sem Alþingi samþykkti síðan. Nýju lögin gera ráð fyrir að sóknar- gjöld séu 0,2—0,4 prósent af útsvarsstofni. Á fundi safnaðaráðs Reykjavíkurprófastsdæmis í vetur var einróma samþykkt, að miða skyldi við 0,39%. Þá vissum við ekki vel hvemig þetta myndi koma út endanlega þótt við hefðum um það nokkra hugmynd, því búið var að „keyra" nokkra söfnuði hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykja- víkurborgar." Sóknargjöld ekki staðið undir greiðsl- um safnaðanna — Þetta er talsvert mikil hækk- un. „Já, hún er það, þegar við miðum við sóknargjald eins og það hefur verið. En við megum ekki gleyma því, að sóknargjöld hafa verið svo lág, að þau hafa naumast og sums staðar alls ekki staðið undir því, sem þeim ber að greiða. Sóknargjöld eru auk gjafafjár einu tekjur safnað- anna. Og þegar verið er að hafa mörg orð um það hversu mörg ár kirkjur séu í smíðum, þá er skýring- arinnar yfirleitt alltaf að leita í því einu, að fé hefur skort til fram- kvæmda.“ Séra Ólafur minnti og á, að í þéttbýli og víða annars staðar kæm- ust prestarnir ekki yfir að sinna því sem þeim ber, bæði hvað varðar sálusorgun og forystu í ýmiss konar safnaðarmálum. „Messur rækja þeir vitanlega og bamastarf er í öllum söfnuðum en aðrir þjónustu- liðir, eins og til dæmis húsvitjanir, sitja á hakanum,“ sagði hann. „Með auknum fjárráðum geta söfnuðimir ráðið sér starfsmenn til að sinna sérstökum verkefnum og þá kemur fyrst og fremst í hugann öldrunar- KIORSIRDUR KAUPAHEONA Til foma leystu höfðingjar þjóðarinnar ágreiningsmál sín á Þingvöllum. Þótt nútímamenn noti aðrar og oftast friðsamlegri aðferðir til að leysa sín mál eru Þingvellir enn sem fyrr viðeigandi umhverfi fyrir viðskiptafundi. Bjóddu viðskiptavinum þínum næst í viðskiptaverð á Hótel Valhöll, það tekur aðeins 40 mínútur að aka þangað frá Reykjavík. Sannaðu til, þar komist þið að góðri niðurstöðu. Hótel Valhöll "■ Þingvöllum sími 99-2622 þjónustan og umönnun um þá, sem bundnir em heima, svo og starfið meðal ungmennanna. Hafí söfnuð- irnir meira fé til rekstrarins, svo að afgangur verði þegar búið er að annast hefðbundnar greiðslur, þá geta þeir snúið sér að öðrum knýj- andi verkefnum." Aukin þjónusta — Hveijar eru þessar greiðslur, sem þú talar um? „í viðbót við að reisa kirkjur sínar og safnaðarheimili verður söfnuður- inn að sjá um rekstur starfsemi sinnar. Það þarf að greiða ljós og hita, sem oft eru umtalsverðar upp- hæðir, og það þarf að greiða kirkjuvörðum laun og kostnað af eðlilegu viðhaldi og umhirðu. Síðan eru aðrir kostnaðarliðir og eru þar hæstar greiðslur til organista og söngkóra. Það hefur lengi verið draumur presta og forráðamanna safnað- anna að geta ráðið organista í fullt starf við kirkjumar. Þá gætu þeir helgað sig tónlistinni, haft sérstak- ar stundir í kirkjum og spilað fyrir þá, sem þangað leita eftir næði og upplyftingu, annast kórstjóm og skipulagt tónlistarþjónustuna á all- an veg. Nú má vera, að þessi draumur verði ekki svo íjarlægur lengur." — Hvað með aukna þjónustu og aðra þjónustu? „Já, það hefur mikið verið rætt að sóknargjöldin ættu að standa undir margvíslegri þjónustu, sem fólk greiðir nú sérstaklega fyrir. Böm eru skírð og fermd og fyrir það hefur verið greitt sérstaklega. Á fundum hér í prófastsdæminu hefur komið fram, að í raun sé fólk búið að greiða fyrir þessa þjónustu. Vonandi getur orðið af því, þegar sóknargjöldin hækka, að fólk geti gengið að þessari þjónustu án þess að borga aukaverkagreiðslumar, sem við köllum svo. Það er að visu ekki búið að móta þssar hugmyndir endanlega hjá okkur en málið er í athugun og flestir em fylgjandi því að komast hjá aukaverkagreiðslun- Útfararkostnaður úr sameiginlegum sjóði — Hvað með jarðarfarir, sem mörgum þykja dýrar? „Það er meðal þess, sem hefur verið rætt, að útfararkostnaður ætti að vera innifalinn í kirkju- garðsgjaldinu, allur eða eftir því, sem fé hrekkur til. Það er reyndar farið að borga útfararkostnað úr hinum sameigjnlega sjóði í sumum bæjarfélögum og ég vona að af því geti sem fyrst orðið í Reykjavíkur- prófastsdæmi.“ — Hafa allir söfnuðir landsins jafnar tekjur? „Nei, langt í frá. Söfnuðirnir em misfjölmennir og mismunandi tekj- ur framtaldar til skatts ráða nokkm um fjárráð safnaðanna. Við höfum miklar áhyggjur af þessu atriði, þar sem kostnaðarliðir em ekki alltaf í réttu hlutfalli við Qölda sóknar- barna. Því er sá möguleiki eðlilegur, að innan prófastsdæmisins verði stofnaður sérstakur jöfnunarsjóður, sem hlaupi undir bagga með þeim söfnuðum, sem úr minnstu hafa að spila. Þá myndi sá sjóður einnig geta lagt fram fé til kirkjubygginga og tryggt þannig, að þær gengju betur. Einnig er nauðsynlegt að koma betra skipulagi á kirkjubygg- ingamál, svo ekki séu allt of margar kirkjur í smíðum í einu.“ — Þú sérð þá ekki fram á að söfnuðimir safni miklu fé í banka? „Nei, ég held að það sé ekki nokkur vafí á því, að söfnuðimir þarfnist aukins fjár. Margt hefur orðið að bíða og margir söfnuðir em orðnir stórskuldugir svo vand- ræði hljótast af. Þá em og til þeir söfnuðir, sem hvorki hafa getað gengið frá lóðum sínum svo skamm- laust sé né heldur fulllokið við byggingar. En í viðbót við þetta sé ég fyrir mér aukna þjónustu. Þó að peningar leysi ekki allan vanda er hægt að nota þá til að koma til móts við margan mann, sem þarf á því að halda. Og svo má það líka vel vera, að fólk fari að hugsa meira um kirkjumál sín og söfnuð- inn, ef það leggur fram aukið fjármagn til starfseminnar. Auðvit- að er það fólkið sjálft, sem við viljum ná til, enda þótt peningamir geti stundum verið til að auðvelda slíkt," sagði séra Ólafur Skúlason dómprófastur að lokum. Morgunblaóið/PáJmi Eyjólfsson Það liðu hundrað og áttatíu ár frá því að byggð lagðist af í Húsadal í Þórsmörk, uns aftur var heyjað þar, nú í sumar, á nýrækt við aðstöðu Austurleiðar í mynni Húsadals. Hejrjað í Þórsmörk, í fyrsta sinn í 180 ár í SUMAR var heyjað í Húsadal í Þórsmörk, í fyrsta sinn í um 180 ár, en þá lagðist byggð af þar. Slegin var nýrækt á svört- um sandi, gömlum farvegi Markarfljóts, við ferðamannaaðstöðu sem Austurleið á Hvolsvelli kom upp í mynni Húsadals. Þar eru nú næg tjaldstæði og skálapláss fyrir alla sem vilja og engin takmörk á aðsókn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.