Morgunblaðið - 06.08.1986, Side 50

Morgunblaðið - 06.08.1986, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1986 Ólafur Ólafsson vélstjórí—Minning ‘r Fæddur 28. október 1917 Dáinn 14. júní 1986 Hann Ólafur Ólafsson, náfrændi minn og vinur, er horfínn út í mistrið ógagnsæja, sem aðskilur jarðiíf okkar mannanna bama og framlífsstjömur þær hinar fjarlægu í víðáttum algeimsins, sem til er flust að loknum hérvistardögum. í þeim fögm dvalarstöðum munu bíða allra óþrotleg viðfangsefni og síst lítilvægari en þau, sem hverjum manni er ætlað að fást við meðan hér er dvalið. 'r Ekki bar fundum okkar Ólafs saman fyrr en á fullorðinsárum, en margt hafði ég heyrt um þennan íjarlæga frænda minn, þegar í bemsku, og mun ég koma að þeim atriðum síðar. En fyrst langar mig til að minnast lítillega á ætt hans og uppruna. Ólafur Jónsson hét föðurbróðir minn og ólst hann upp í Stóm-Ávík í Víkursveit í Strandasýslu hjá for- eldrum sínum Jóni Péturssyni (f. 8.12 1847, d. 4.2. 1920) frá Dröng- um í sömu sveit og Guðrúnu Ólafsdóttur (f. 1855, d. 17.3. 1942) frá Gnýstöðum á Vatnsnesi í Húna- vatnssýslu. i Er Ölafur hafði aldur til gerðist hann sjómaður á fiskiskipum og stundaði sjómennsku á ýmsum stöðum hér við Iand. Hann þótti glæsimenni, skemmtilegur í tali og ötull í hveiju því starfí, er hann tók sér fyrir hendur. Á einni vetrarvertíð mun skipið, sem Ólafur var á, hafa lagt afla sinn upp í Beruvík á Snæfellsnesi utanverðu. Þar var þá nokkur byggð, þótt allt sé þar nú í eyði komið fyrir löngu. Á bænum Helludal við Bemvík áttu þá heima hjónin Helgi Daníels- son og Anna Helgadóttir. Helludal- ur var harðbalakot en með dugnaði og sparsemi tókst þeim hjónum samt að hafa ofan af fyrir sér og fjölskyldunni. Helgi var talinn dug- andi bóndi, einnig var hann þekktur sem refaskytta, og orð fór af honum fyrir að vera snjall sögumaður. Þau hjón áttu nokkur böm, þar á meðal dóttur eina, sem Guðrún hét og var þá fullvaxta (f. 1894, d. um 1945). Þau Ólafur og Guðrún felldu hugi saman, þótt ekki stæðu þau kynni lengur en þessa einu vertíð. Eignuðust þau bam saman. Varþað drengur og skýrður Ólafur eftir - föður sínum, en hann var þá löngu á burtu farinn og mun aldrei hafa átt þess kost að sjá þetta afkvæmi sitt. Drengurinn ólst upp hjá móður sinni og síðar stjúpa. En ekki gekk hann heill til skóg- ar. Svo var mál með vexti, að er hann fæddist varð að taka hann með töngum, en svo slysalega vildi til að annar armur tangarinnar lenti í auga drengsins og eyðilagði það. Lá það úti eftir það, og má nærri geta hvílíkt kvalræði þetta hefur verið honum á fyrstu bemskuárun- um. En sem betur fór varð hér að lokum ráðin bót á, þegar hann var 7 ára gamall og var það að þakka Guðrúnu Ólafsdóttur í Stóm-Ávík, ^ sem fyrr var nefnd, ömmu okkar beggja. Hún hafði fyrir löngu heyrt að hún hefði eignast sonarson á Snæ- fellsnesi. En hún frétti ekki um þetta hörmuiega slys, fyrr en sjö ámm síðar. Samgöngur vom stop- ular á þeim ámm milli afskekktra og fjarlægra staða, og ömggar fréttir bámst því oft seint. En er ömmu minni bámst loks sannar fregnir af þessu illa ástandi sonar- sonar hennar, brá henni illa við. Hún var í eðli sínu stórbrotin kona «, með viðkvæma lund og mátti ekk- ert aumt vita, án þess að reyna að hjálpa. Og hún lét aldrei dragast að gera það, sem hún taldi réttast í hveiju máli. Hún tók sína ákvörð- un og bjó sig til ferðar með næsta strandferðaskipi sem kom á Norð- urfjörð. Til Hellissands var ferðinni heitið. Og er hún sá drenginn leist henni ekki á blikuna. Hún tók hann því með sér og fór með hann til Reykjavíkur með næstu skipsferð. Með hjálp góðrar vinkonu sinnar, Valgerðar Friðriksdóttur frá Gjögri, kom hún honum í læknishendur. Á sjúkrahúsi var tekið úr honum skemmda augað en glerkúla sett í staðinn. Aðgerðin lánaðist vel og var nú líðan hans að þessu leyti önnur og betri upp frá þessu. Áð lokinni þessari læknisaðgerð fór hún með drenginn á skipi til Hellis- sands og skilaði honum í hendur móðurinnar, sem tók við honum þakklátum huga fyrir þetta líknar- verk. En amma okkar hélt aftur norður, til síns heima, ánægð yfír því sem henni hafði tekist að áorka, til hjálpar þessu bamabami sínu. Þetta mun hafa gerst árið 1924. Á bemskuárunum, allt frá eins árs aldri, var Ólafur oft hjá ömmu sinni, Önnu í Helludal, enda skammt þar á milli bæjanna. Því má skjóta hér inn í til gam- ans að konuefni Ólafs, Ingibjörg Hjartardóttir, var hjá þeim hjónum, Önnu og Daníel, í tvö sumur, er hún var á bamsaldri, og var þá um tíma samvistum við Ólaf og léku þau sér saman. Er Ólafur var um það bil 2—3 ára giftist Guðrún Helgadóttir, móðir hans, Guðmundi Sveinssyni bónda. Hann var ekkjumaður og átti fímm böm. Þau hófu búskap í Litla-Lóni í Beruvík og eignuðust saman þijú böm: Guðmund Tómas, Helga og Önnu. Ólafur ólst því þar upp eftir þetta með móður sinni og stjúp- föður og þremur hálfsystkinum. Mun vel hafa farið á með öllum og fjölskyldan verið samhent með besta móti. Fyrir og um fermingu var Ólafí komið fyrir, tíma og tíma, á Svarf- hóli í Miklaholtshreppi, og var þar fermdur af þeim þjóðkunna klerki, Áma Þórarinssyni. Nokkru eftir fermingu Ólafs brugðu þau búi í Litla-Lóni, Guðrún og Guðmundur og fluttu til Reykjavíkur með bömum sínum öllum. Um föður Ólafs, Ólaf Jónsson, er það að segja, að eftir nokkurra ára sjómennsku hér við land, flutt- ist hann til Englands og gerðist farmaður á flutningaskipum, sem sigldu til ísrael og annarra staða við Miðjarðarhafíð. Hann giftist enskri konu, Doris Evelyn. Stofnuðu þau heimili í Grimsby og eignuðust eina dóttur, Dorothy að nafni. Hér eignaðist Ólafur eigin mótorskip, gerðist skipstjóri á því og stundaði fískveið- ar. En hann fórst í ofviðri við Englandsstrendur á þessu skipi sínu, er dóttir hans var á fyrsta árinu. Hún átti því aldrei kost á að kynnast föður sínum eða læra íslensku. En er hún var um 21 árs göm- ul, 1948, kom hún hingað til lands, til að kynnast íslenskum ættingjum sínum. Dvaldi hún þá um nokkurra mánaða skeið á heimili okkar Aðal- heiðar, konu minnar; og ferðaðist með okkur norður í Ámeshrepp og víða um Norðurland. Einnig kynnt- ist hún vel Ólafi bróður sínum, sem nú er hér kvaddur, og fjölskyldu hans. Varð þessi kynnisför henni til mikillar ánægju, sem og okkur hjónum að kynnast þessari frænku minni, enda var hún glaðlynd og skemmtileg í viðmóti, og bar nokk- urt svipmót ættar sinnar hér. Síðast giftist hún breskum manni, Geoffrey Buckley, og eign- uðust þau tvö böm, Catherine og Richard, sem hlutu góða menntun og em nú löngu uppkomin. Ólafur átti þess kost síðar, að heimsækja þessa systur sína í Englandi, a.m.k. tvisvar sinnum báðum þeim til ánægju, og endumýja þannig vin- áttu með frændsemi. Árið 1945, þann 7. september, giftist. Ólafur Ingibjörgu Hjartar- dóttur (f. 30.6. 1921) Clausen frá Hellissandi á Snæfellsnesi, en hún er ættuð í móðurætt frá Látrum á Breiðafirði. Hófust þau handa um byggingu eigin húss í Skipasundi 18 í Reykjavík og gátu flutt í það á næsta ári, 1946. Þau eignuðust sex böm, misstu fyrsta bamið, en hin fímm hafa komist til fullorðinsára og era öll hin mannvænlegustu. Þau era: Guðrún, gift Sigurði Bjamasyni, lyfjafræðingi, og eiga þau heima á Norðfírði; Erla, ógift og hefur átt heima í foreldrahúsum; Anna, gift- ist Hermóði Sigurðssyni, en hefur starfað lengi í Landsbankanum; Björgvin Ómar, pípulagningamað- ur, giftur Björgu Sigurðardóttur; Ragnheiður Bára, býr í Skipasundi 7 með Birgj Halldórssyni. Bama- böm þeirra Ólafs og Ingjbjamar era alls orðin tíu, og veit ég að það hefur verið þeim óblandin ánægja að fá þessa litlu vini í heimsóknir og eins hefur bömunum verið það gleði að koma til afa og ömmu og njóta gestrisni þeirra og hlýju. Áður en kynni þeirra Ólafs og Ingibjargar hófust eignaðist hann eina dóttur, Lilju að nafni, og ólst hún upp í Reykjavík hjá móður sinni. Lilja kom oft í heimsókn til þeirra Ingibjargar og föður síns og var ávallt mikill aufúsugestur og lék sér með bömum þeirra, hálfsystkin- um sínum. Er þar fagurt dæmi til eftirbreytni öðra fólki er líkt stend- ur á fyrir. Ólafur var mikill unnandi nátt- úrafegurðar og útivistar. Á þeim aldri er bömin vora að alst upp, fór hann oft með þeim í lengri eða skemmri útileguferðir. Héldu þau þá til í tjaldi og höfðu með sér allan viðleguútbúnað. Allir sem til þekkja vita, að með slíkum ferðamáta er hægt að komast í nánara samband við móður náttúra, en unnt er með með öðra móti og verður þátttak- endum uppspretta gleði og lífsfyll- ingar, sem geymast hlýtur í huga hvers og eins sem fögur minning ævilangt. Ólafur stundaði ýmis störf, sem einkum hafa lotið að sjómennsku. Má þar nefna útgerð og skipsstjóm á eigin fiskiskipum (hann eignaðist reyndar þijá mótorbáta); og eigin fískverkun. Um 10 ára skeið var hann vélstjóri á hafrannsóknaskip- inu Dröfn. Og síðustu fímm árin stundaði hann harðfískverkun með sérstakri aðferð. Hann var ötull og fylginn sér, að hveiju sem hann gekk og hagleiksmaður hinn mesti, smíðaði t.d. í upphafí hjónabands síns, að mestu með eigin höndum, hús það í Skipasundi 18 í Reykjavík, sem þau hjón hafa átt heima í síðan. En með sanni má segja að ekki var Ólafur einn í ráðum eða í starfí, því hin ötula húsfreyja, konan hans, átti þar ekki minnstan hlut að máli. Það er ekki lítið afrek að vinna sig upp úr allsleysi því sem ríkjandi var á fyrri hluta þessarar aldar hjá þorra manna, í sæmileg efni, og koma mörgum bömum til menntun- ar og þroska. Slíkt verður varla gert án sameiginlegs átaks beggja aðila, og svo var vissulega í því til- viki sem hér um ræðir. Ólafur mun hafa lesið mikið er tóm gafst til og var hugsandi mað- ur um ýmis torræð efni. Oft er fundum okkar bar saman barst tal- ið að eilífðarmálunum svokölluðu og vora þá reikistjömur annarra sólhverfa nefndar í því sambandi, sem hugsanlegir dvalarstaðir þeirra, sem héðan flytja. Nú er Ólafur, þessi góði dreng- ur, horfinn okkur sjónum í bili og fluttur þangað sem leið okkar allra liggur að jarðvistarlokum. Er ég sat í kirkjunni með lokuð augu, við kveðjuathöfn þessa frænda míns 23. júní sl., birtist mér heillandi sýn, er mig langar til að lýsa í fáum orðum. Ég sá lýsandi birtubólstur vinstra megin kistunn- ar að mér þótti, og ég eins og vissi að þama væri hinn nýlátni. Rétt í því sá ég afarmikla birtu hátt í lofti til hægri, og ég þóttist undireins vita að hér væri faðir hans á ferð. Þessi mikli birtubjarmi nálgaðist, og er hann kom rétt til móts við birtuhjúpinn sem fyrir var, þótti mér faðirinn rétta syninum hönd sína. Birtubólstramir sameinuðust í eitt skínandi birtuflóð og leið á brott upp á við. Og í huga mér komu fram eftirfarandi setningar, skýrt og greinilega. Fyrst: „Dreng- urinn, sem aldrei fékk að sjá föður sinn,“ og síðan: „Faðirinn, sem aldr- ei fékk tækifæri til að kynnast syni sínum.“ Mér fannst, sem hér hefðu orðið óumræðanlega miklir fagnað- arfundir. Og er þeir liðu hærra fannst mér ég skynja mikinn fjölda náinna ættmenna í fjarlægum stað bíða komu þeirra með eftirvænt- ingu. Þótti mér þar mest bera á Guðrúnu Ólafsdóttur, ömmu hans, eins og hún bæri til hans hlýjastan og sterkastan hug þeirra, sem þama biðu komu hans. Sýninni lauk en hugur minn var fullur eins kon- ar klökkva og æðri gleði. Ég er þess viss að sýn þessi hin fagra, hefur með nokkram hætti staðið í sambandi við þennan góða frænda minn og þær móttökur sem biðu hans á landinu bjarta að lokinni hérvist. Ég vil votta eftirlifandi eiginkonu Ólafs, sem og bömum þeirra og bamabörnum, einlæga samúð mína og okkar hjóna, og óskum þeim alls velfarnaðar á ókomnum áram, uns vegir liggja aftur saman á framtíðarlandinu fagra bak við him- ins höf. Ingvar Agnarsson Morgunblaðið/Sigurður Gunnarason Austur-Skaftaf ellssýsla: 270 þúsund krónur söfnuðust í boðhlaupi Laugardaginn 26. júlí sl. stóð Ungmennasambandið Úlfljótur í Austur-Skaftafellssýslu fyrir boðhlaupi frá Hvalsnesi í Lóni að Skaftafelli í Öræfum, í fjáröflunarskyni fyrir starfsemi sambands- ins. Vegalengdin er u.þ.b. 200 kílómetrar og tók hlaupið tæpar 15 klukkustundir. Alls söfnuðust um 270 þúsund krónur í áheit. Á myndinni sjást hlaupararnir á leiðarenda í Skaftafelli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.