Morgunblaðið - 06.08.1986, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1986
59
Stúdentspróf oft óþörf
Eggert E. Laxdal skrifan
„Það er mikið talað og skrifað
um að auka þurfi hvers konar
menntun. Nokkrar námsgreinar
hafa verið fluttar yfir á háskólastig.
Ég heyrði fyrir skömmu samtal
milli fullorðins manns og tveggja
telpna. Maðurinn spurði hvort þær
ætluðu að ganga í skóla og þær
svöruðu því til að þær ætluðu að
verða stúdentar.
Maðurinn spurði hvers vegna og
þær svöruðu að það væri ekki hægt
að verða neitt nema að hafa stúd-
entspróf. Þetta eru orð að sönnu.
Með þessu er verið að útiloka stór-
an hóp manna frá iffvæniegri
atvinnu ef tala má um lífvænlega
atvinnu á íslandi.
Hvað eiga til dæmis hjúkrunar-
fræðingar, ljósmæður og bama-
kennarar með að læra latfnu og
mörg önnur tungumál og flókinn
reikning svo að eitthvað sé nefnt?
Þessarar menntunar getur þetta
fólk aflað sér aukalega ef það vill
en það er fráleitt að krefjast henn-
ar við þessi störf.
Vonandi verður ekki gengið
lengra í þessa átt. Pólk getur haft
góða greind og verið vel hæft til
þessara og annarra starfa þótt það
hafi ekki stúdentspróf og háskóla-
nám að baki. Vonandi verður hér
staðar numið á þessari braut.“
Þessir hringdu . .
Dýrt kakó í
Arbæjarsafni
Húsmæður í Árbænum
hringdu:
„Við erum hérna nokkrar sem
höfum gert það af og til okkur
til ánægju að fá okkur kakó og
meðlæti í Árbæjarsafni undan-
farin sumur.
Hingað til höfum við ekki haft
undan neinu að kvarta en allt í
einu bregður svo við að við þurfum
að borga okkur inn eins og við
ætluðum að skoða safnið þegar
við ætlum bara að fá okkur kakó.
Við urðum að vonum forviða
og enn meira undrandi þegar við
fengum ekki lengur að hafa með
okkur hund sem nú er orðinn 15
ára og gerist ellimóður. Hingað
til hefur ekki verið neitt vanda-
mál að fá að taka hundinn með.
Auk þess er mikið af köttum
þama að flækjast og fyrst þeir
mega það hljóta hundar að mega
koma líka.
Þegar við spurðum hvers vegna
við þyrftum að borga okkur inn
var okkur sagt að það væri gert
til að halda verðinu á veitingunum
niðri. Tókum við það gott og gilt
í fyrstu en við nánari athugun
kom í ljós að það var eitthvað
bogið við þessa röksemdafærslu.
Inn á safnið kostar 100 kr. og
kakó með ijómapönnuköku kostar
155 eða samtals 255. Niðri í bæ
er hins vegar hægt að kaupa þetta
á 180 kr. í Hressingarskálanum
og á 210 kr. í Lækjarbrekku svo
að dæmi séu tekin.
Það er eins og það sé verið að
blekkja fólk með þessu þannig að
það haldi að kakóið sé ódýrara
en það er. Víst er að við hugsum
okkur um tvisvar áður en við för-
um oftar og kaupum okkur kakó
í Árbæjarsafni, við förum frekar
niður í miðbæ."
Bætum hið and-
lega heilsufar
B.Ó. hringdi:
„Hvað er gert í þessu landi til
að bæta og efla hið andlega
heilsufar, siðgæði, réttlætiskennd,
hógværð, heiðarleika og háttvísi?
Við virðumst algjörlega hafa
gleymt vöku okkar í þessum mál-
um. Þar eru sjónvarp, myndbönd,
leikhús og bókmenntir dagsins
gleggsta dæmið. Þar skipa
árekstrar, átök, ofsóknir, morð
og glæpir aðalhlutverkið og þess-
um viðbjóði er hellt yfir alla
þjóðina alla daga ársins enda er-
um við ísiendingar að verða
andlega vanheilir og sálsjúkir.
Allt þjóðfélagið og samskipti
manna loga af árekstrum, óheið-
arleik, ábyrgðarleysi og sálar-
flækjum. Spilling, smekkleysa og
ómenning gegnumsýra allt þjóð-
félagið. Menn kynnast of sjaldan
heiðarlegum og heilbrigðum hugs-
unarhætti. Hann verður því blátt
áfram ijarlægur og óeðlislægur.
Þetta er það sem skapar það
ástand sem nú ríkir, það er vönt-
un á andlegu jafnvægi, yfirvegun
og heiðarlegri framkomu. Menn
eiga í erfiðleikum með að aðlaga
sig að siðum, háttum og hugsun
siðaðra manna, lögum og rétti,
kröfum og kringumstæðum siðaðs
þjóðfélags. Lög og réttur, heiðar-
leiki og hógværð eru þeir þættir
heiðarlegs heilsufars er skapa
eiga jafnvægi, sátt og samlyndi
og eru því grundvöllur andlegrar
heilbrigði. Eins og Ciceró, er uppi
var á árunum 106 til 43 fyrir
Krist, orðaði það: „Trúmennskan
er sá grundvöllur er réttlætið
byggist á.“ Ef trúmennskan við
satt og rétt og heiðarlegt líf glat-
ast, hvar er þá réttlætið?"
Afmælið er 1.
janúar en ekki
18. ágúst
Njörvi hringdi:
„Mér þætti gaman að vita af
hverju haldið er upp á 200 ára
afmæli Rey kj a víku rborgar 18.
ágúst nk. en ekki 1. janúar á
næsta ári þegar borgin verður 200
ára.
Það er að vísu rétt að tilkynn-
ing var send út um þetta 18. ágúst
1786 en lögin tóku ekki gildi fyrr
en 1. janúar 1787.
Þetta kemur til dæmis skýrt
fram í bók sem Jón Helgason bisk-
up gaf út 1916 og hét Reykjavík
14 ára og í annarri bók sem kom
út fyrir 20 árum í sambandi við
180 ára afmæli ísafjarðar.
Burtséð frá þessu vil ég að tek-
in verði upp umferðarfræðsla við
Háskóla íslands. Það virðist ekki
vera vanþörf á henni. Fæstir há-
skólanemanna virðast kunna að
nota gangbrautarljósin við Há-
skólann. Ekki vefst fyrir bömun-
um að nota gangbrautarljósin við
Hamrahlíð og víðar."
Tökum harðar á
fíknief nasmygli
Hafliði Helgason skrifan
„Ég vil koma á framfæri fyrir-
spum til dómsmálaráðherra.
Á ekki að fara að taka harðar
á brotum á fíkniefnalöggjöfinni.
Það er aldeilis forkastanlegt
hvemig alls konar dusilmenni
komast upp með það að flytja inn
eituriyf og eyðiieggja með þeim
líf fjölda manna.
Lögreglan ræður ekki við neitt,
til þess er hún alltof fáliðuð. Það
verður að taka á þessum málum
af festu og röggsemi ef ekki á
illa að fara.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
ég hef kvartað undan þessu en
ástandið virðist bara fara versn-
andi. Þegar ég var á sjónum fyrir
tíu árum var það til siðs að kippa
með sér kannski einum eða tveim-
ur bjórkössum of mikið en ástand-
ið núna er fyrir neðan allar
hellur.“
RAFMOTORAR
Flestar stærðir og gerðir
fyrirliggjandi.
Fljót afgreiðsla.
p-,'
Jtf RÖNNING
Circus Arena sýnir í Reykjavík
vestan húss TBR og Glæsibæjar
Frumsýning miðvikudaginn 6. ágúst kl. 20.00.
Fimmtudaginn 7. ágúst kl. 20.00.
Föstudaginn 8. ágúst kl. 16.00 og 20.00.
Laugardaginn 9. ágúst kl. 16.00 og 20.00.
Sunnudaginn 10. ágúst kl. 16.00 og 20.00.
Mánudaginn 11. ágúst kl. 20.00.
Forsala aðgöngumiða á sýningarsvæði á hverjum
degi tveimur klukkustundum fyrir sýningu.
GALLA CIRKUS ’85