Morgunblaðið - 12.10.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
9
HUGVEKJA
AMEN
eftir EINAR J. GÍSLASON
Er orð sem tekið er úr he-
bresku. Merking þess er satt, í
gildi, traust. Orðið kemur víða
fram í Heilagri Ritningu. Amen
var svar fólks við lofgjörð. Neh-
emíabók greinir frá lofgerðar-
Guðsþjónustu í 8. versinu 6. „Esra
lofaði Drottin, hinn mikla Guð og
allur lýðurinn sagði: Amen, Am-
en.“ Fómuðu þeir um leið upp
höndum, beygðu sig og féllu fram
á ásjónur sínar. Þannig var lof-
gjörðin þá. Skyldi hún vera eins
í dag hjá þeim, sem skreyta aug-
lýsingar um guðsþjónustu sínar
með orðinu lofgjörð?
Þegar sáttmálsörk ísraels-
manna var flutt til Zíon. Þá var
ein stórkostlegasta stund runnin
upp hjá gyðingum. Fagnaðarlát-
unum er lýst í 1. Kronikubók
13.8 og svo áfram í 1. Kronikubók
16. kapitula og versin 35—36:
„Hjálpa þú oss Guð hjálpræðis
vors að vér megum lofa þitt Heil-
aga nafn. Víðfrægja lofstír þinn.
Og allur lýðurinn sagði Amen og
lof sé Drottni". í frumsöfnuði
kristinna manna, þá tóku þeir
undir lofgerð, með því að segja
Amen. 1. Kór. 14.16. Guðsþjón-
ustur í himninum fá sitt rúm í
Opinberunarbók Jóhannesar. í 5.
kapitula, 7. og 19. kapitulum. Þar
sem lofgjörðin til Guðs endar með
orðinu Amen.
I Opinberunarbók Jóhannesar
3. kap. 14. versi talar Jesús Krist-
ur upprisinn og dýrðlegur og
stiginn upp til himna. „Þetta seg-
ir Hann, sem er Amen. Votturinn
trúi og sanni, upphaf Guðs
skepnu.“ Jesús kallar sig sjálfan:
Amen. „Votturinn trúi og sanni.
Hann er sem sé sannleikurinn,
traustur og í gildi. Allt líf Jesú,
svo sem Guðspjöllin greina frá,
styðja þá sögn um Jesúm Krist.“
Svik voru ekki í munni Hans.
Hann illmælti eigi aftur, er Hon-
um var illmælt og hótaði eigi er
Hann leið. — Þessi hefir ekkert
I„Jesús Kristur er GuÖs mikla já ífyrir-
heitum Drottins okkur til handa. Þess
vegnafá fyrirheiti Drottinsfyrir Jesú
sitt„Amen“, svo nafn Drottins verÖur
heiÖraÖ fyrir oggegnum okkur.
rangt aðhafst, sagði ræninginn
um Jesú, sem krossfestur var með
Honum á langaftjádag. Páll
postuli skrifar svo um Jesú í 2.
Kor. 1. 20: „Því að svo mörg fyrir-
heiti Guðs eru, þá er staðfesting
þeirra með jái. Þess vegna skulum
vér fyrir Hann segja Amen Guði
til dýrðar." Jesús Kristur er Guðs
mikla já í fyrirheitum Drottins
okkur til handa. Þess vegna fá
fyrirheiti Drottins fyrir Jesú sitt
„Amen“, svo nafn Drottins verður
heiðrað fyrir og gegnum okkur.
Jesús notar orðið Amen á nýjan
hátt, til þess að staðfesta fyrir-
heiti sín okkur til handa. í
mörgum Biblíuþýðingum er notað
orðið sannlega, en frummálið not-
ar orðið Amen.
Þegar Jesús kallar sjálfan sig
Amen, þá er undirstrikað að Hann
er hinn sanni og trúi vottur Drott-
ins. Orð Hans eru áreiðanleg og
sönn. Honum er hægt að treysta
í lífi dauða. Við Jóhannes sagði
hann: „Vertu ekki hræddur. Eg
er hinn fyrsti og síðasti og hinn
lifandi. .. Ég var dauður, en sjá
lifandi er ég um aldir alda." Hugg-
un fyrir synduga og dauðlega
menn. Hann er ábyrgur fyrir þess-
um orðum, sem sagði um sjálfan
sig, að Hann væri Amen. Vottur-
inn trúi og sanni. Öll loforð og
fyrirheit eru já og Amen í Honum.
Treystu því. Friður Guðs fyllir
þig. Þú byggir á bjarginu, sem
ekki getur brugðist. Hann sem
er Amen — Jesús Kristur er frels-
ari þinn og bregst þér aldrei,
hvorki í lífi, né dauða.
Tamningamenn
Til leigu er tamningamiðstöðin Garð-
húsum, Skagafirði. Pláss fyrir 24 hross.
Góð starfsaðstaða. Nánari uppl. gefur
Jónína Hallsdóttir í síma 95-6382.
Innritun byrjenda er haf-
in. Takmarkaður fjöldi.
Upplýsingar í símum
16581 og 621028.
HIÐ ÍSLENSKA SKYLMINGAFÉLAG
SKYLMINGAR
SARFESTINGARFEl/GÐ
UERÐBREFAMARKAÐURINN
Genqióidaq
12. OKTÓBER 1986
Markaðsfréttir
Veðskuldabréf - verðtryggð
Veðskuldabréf - óverðtr.
Lánst.
2 afb.
áári
1 ár
2 ár
3ár
4ár
5ár
6ár
7ár
8ár
9ár
10 ár
Nafn-
vextir
HLV
4%
4%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
Sölugengi m.v.
mism. ávöxtunar-
kröfu
12% 14% 16%
95
91
90
88
85
83
81
79
78
76
93
90
87
84
82
79
77
75
73
71
92
88
85
82
78
76
73
71
68
66
Lánst.
1 afb.
áári
1 ár
2ár
3 ár
4ár
5 ár
Sölugengi m/v.
mism. nafnvexti
20%
89
81
74
67
62
HLV 15%
84
72
63
56
50
85
76
68
61
56
KJARABRÉF
Gengi pr. 10/10 1986 = 1,729
Nafnverð
5.000
50.000
Söluverð
8.645
86.450
6,5%
vextir
hjá Ríkissjóði
í DAG BJÓÐUM VIÐ ÞÉR
BETRI KOSTIIMIM,
- SPARISKÍRTEIIMI MEÐ
7,5% ÁRSVÖXTUM.
Við bjóðum þér Spariskírteini Ríkissjóðs með hærri vöxtum.
fjármál þín - sárgrein okkar
Fi^rfpcítinnarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. ® (91) 28566, S (91) 28506 símsvari allan sólarhringinn
Sklpttbref
Rikbsjóði
7,5%
vextir
hjá okkur
Ekífl ffokkar
Spartsktrtelrw
RrklisjoÖj