Morgunblaðið - 12.10.1986, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
LEIÐTOGAFUNDURINN í REYKIAVÍK
Georg Ots í Reykjavíkurhöfn.
Tók Georg Ots
fram yfir Sögu
Reykjavík, AP.
SOVETLEIÐTOGINN MikhaU Gorbachev gat valið á milli þess að
dveljast á Hótel Sögu eða um borð í skemmtiferðaskipinu Georg
Ots, sem ber nafn látins eistnesks söngvara, er stundum hefur verið
kallaður „hinn sovézki Frank Sinatra“.
Sovétmenn nota einnig gamalt
farþegaskip, sem komið er til
Reykjavíkur. Ber það heitið „Balt-
ika“, en með því fór Nikita Kruchev
til Bandaríkjanna 1960 og einnig
til Norðurlanda 1964, skömmu áður
en honum var velt af stóli í Kreml.
Haft var eftir sovézkum embætt-
ismanni, er hann var spurður, hvers
vegna Gorbahev hefði frekar kosið
Georg Ots: „Kannski heldur hann,
að það séu draugar um borð í Balt-
iku."
Rétt fyrir rökkur á föstudags-
kvöld, hlupu sovézku bílstjóramir
að glæsibflunum, sem biðu á
bryggjunni og tóku að fægja þá af
kappi og voru þeir þó glansandi
fyrir. Stuttu síðar fór Gorbachev
og fylgdarlið hans frá borði, steig
upp í bflana og síðan var ekið sem
leið lá til Bessastaða, þar sem Sov-
étleiðtoginn heilsaði Vigdísi Finn-
bogadóttur forseta og Steingrími
Hermannssyni forsætisráðherra.
Reagan Bandaríkjaforseti hafði
heimsótt forseta íslands einni
klukkustund áður.
AMSTRAD PCW tölva með íslensku RITVINNSLUKERFI, ísl. 3ja tíma leiðbeiningum á snældum,
SAMSKIPTAFORRITI fyrir telex, gagnabanka o.fl. og PRENTARAI - fyrir aðeins39.900,- kr. Stóri
bróðir, AMSTRAD 8512, er með 2 drifum og stærra minni og kostar aðeins49.900,- kr. Hann er
auk þess hægt að fá með fullkomnu fjárhagsbókhaldi eða með viðsklptamanna-, sölu- og
lagerkerfi fyrit59.900,- kr., og með hvoru tveggja fyrir aðeins64.900,- kr. - allt í einum pakka
- geri aðrir beturl
AMSTRAD PCW 8256
ritvinnslutölvan: 256 K RAM (innbyggður RAM diskur), 1 drif;
skjár: 90 stafir x 32 línur. Prentari: Punktaprentari, 90 stafir á sek.
AMSTRAD PCW 8512
ritvinnslu-ogbókháldstölvan:512KRAM |innb. RAM diskur),
2 dríf (B-drif er 1 megabyte). skjár: 90 st. X 32 línur. Prentari:
punktaprentari, 90 stafir á sek.
Báðum geröum lylgir íslenskt ritvinnslukerfi |LOGO-
SCRIPT), Dr. Logo og CP/M+, (sl. lyklaborð, ísl.
leiðbeiningar, 3ja tíma kennsluefni á 2 snældum (fsl.),
prentari með mörgum fallegum leturgerðum og
-stærðum. Með AMSTRAD 8512 er einnig hægt að fá
fullkomin bókhaldskerfi sem henta mjög vel litlum og
meðalstórum fyrirtækjum.
Námskeið:
Tölvufræðslan sf. Ármúla 36, s. 687590 & 686790:.
Fjárhagsbókhald 6 tlmar aðeins 2.500 kr.
Viðskiptamanna-, sðlu- og lagerkerfi 6 tímar aðeins 2.500 kr.
Ritvinnslunámskeiö 6 tImar aðeins 2.500 kr.
FORRIT FYRIR AMSTRAD:
Samskiptaforrlt: BSTAM, BSTMS, Chit-Chat, Crosstalk, Honeyterm
8256, Move-it. Áxtlana- og relknlforrlt: Pertmaster. Milestone.
Brainstorm, Statflow, Cracker, Master Planner, Multiplan, PlannerCalc,
SuperCalc. Gagnagrunnsforrlt: Cambase, Cardbox, dBase II, dGraph,
dlltil, Delta, Flexifile. Telknlforrlt: Dataplot plus, Datplot III, DR Draw,
DR Graph, Polyplot, Polyprint. Forrltunarmál: DR C Basic, Mallard,
Basic. Microsoft Basic, Nevada Basic, Cis-Cobol, Nevada Cobol, RM
Cobol, HiSoft C, Nevada Fortran, Pro FortrarvDR PL/I. DR Pascal MT+,
Nevada Pascal, Pro Pascal, Turbo Pascal. Annaö: Skákforrit, Bridgeforrit.
íslensk forrlt: Ritvinnsla (fylgir), Fjárhagsbókhald, Viöskiptamannafor-
rit, Sölukerfi, Lagerbókhald, Nótuútprentun. Lfmmiðaútprentun.
Auk þúsunda annarra CP/M forrita.
^I^Btraga
v/Hlemm Símar 29311 & 621122
GBHIl3í>“
TÆKMDELD Halamtte2 Skni832H
í tilefni Tölvusýningar í Borgarleikhúsinu 8.-12. okt. verður
10% afsláttur frá augíýstu verðif
Tllboðlð gildir tll 15. okt.
ÞETTA ER TOLVAN!
FYRIR EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKI
Umboðsmenn útl á landl: Akranes: Bókaskemman, Akureyrl: Bókabúöin Edda. Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga, DJúpavogl: Verslunin Djúpiö,
Grlndavík: Bókabúö Grindavíkur. Hafnarfjöröur: Kaupfélag Hafnfíröinga, Húsavík: Bókaverslun Þórarins Stef. Isafjöröur: Hljómborg.
Keflavík: Bókabúö Keflavíkur, Vestmannacyjar: Vídeóleiga GS. Seltjarnarnes: Verslunin Hugföng.
öll verö miöuö víö gengi I. sept. 1986 og staðgreiðslu. TC)LA/ULAI\ID HF./ SIA/II 17850
Pravda:
Erfiður fundur
fyrir Gorbachev
Moskva, AP.
PRAVDA, málgagn sovéska kommúnistaflokksins, sagði í
gær, að góðar horfur væru á samkomulagi milli Ronalds
Reagan, Bandaríkjaforseta og Mikhails Gorbachev, aðalrit-
ara sovéska kommúnistaflokksins, á fundi þeirra í
Reykjavík nú um helgina.
Blaðið sagði, að brýna nauðsyn
hefði borið til að halda fundinn,
til þess að þoka áleiðis ýmsum
málurn og að undirbúningur fyrir
fundinn lofaði góðu. Sagt var að
ekki væri við því að búast, að
samningar tækjust um fækkun
langdrægra kjanorkuflauga,
nema Bandaríkjamenn féllu frá
geimvamaráætlun sinni. Fjallað
var um bann við kjamorkutilraun-
um, án þess að minnst væri á
nýlegar hugmyndir Reagans um
takmarkað bann. Sérstök grein
var í blaðinu, þar sem sagt var
frá skoðunum 80 öldungardeildar-
þingmanna í Washington, á leið-
togafundinum, en sovéskir
blaðamenn höfðu talað við þá og
sérstaklega vakin athygli á því,
að nokkrir þeirra styðja bann við
kjamorkutilraunum.
Lev Tolkunov, forseti annarrar
deildar sovéska þingsins, var ekki
beinlínis bjartsýnn á niðurstöður
fundarins, því hann sagði í grein
í blaðinu, að leiðtogafundurinn í
Reykjavík yrði Gorbachev ekki
auðveldur. Erfitt yrði fyrir
Gorbachev að komast að sam-
komulagi, sem viðunandi væri
fyrir báða aðiia, en sagði þó “ við
búumst við því, að á sovésk-
bandaríska leiðtogafundinum
muni miða áleiðis við að leysa
a.m.k. eitt til tvö þeirra vanda-
mála er ógna heimsöryggi".
Tolkunov sagði löngu tímabært
að halda slíkan fund, ekki aðeins
til að halda fundinn, heldur til
þess að ná árangri arrst og fremst
við að draga úr vígbúnaðarkapp-
hlaupinu.
Fulltrúi Araba um Reykjavíkurfund:
A móti umræðu
um hlutskipti
sovéskra gyðinga
Washiugton, AP.
TALSMAÐUR Arababandalags-
ins f Bandaríkjunum gagnrýndi
í fyrradag Ronald Reagan,
Bandarikjaforseta, fyrir að ætla
að fjalia um hlutskipti sovéskra
gyðinga á Reykjavíkurfundinum
með Mikhail Gorbachev.
Clovis Maksoud, fulltrúi Araba-
bandalagsins hjá SÞ og talsmaður
þess í Bandaríkjunum, sagði á
fréttamannafundi, að ísraelar not-
uðu örlög trúbræðra sinna í Sov-
étríkjunum til að réttlæta
„útþenslustefnu sína“ og að um
þessi mál ætti að ræða á öðrum
vettvangi. Gagnrýndi hann Reagan
fyrir að ætla að ræða um þetta
efni á fundinum og einnig mörg
hundruð bandarískra þingmanna,
sem hafa undirritað opið bréf til
Reagans af þessu tilefni.